Fréttablaðið - 02.04.2022, Qupperneq 64
Mæðginin Bjarni Gabríel
Bjarnason og Eva Dögg
Sigurgeirsdóttir hafa síðustu
vikur verið að undirbúa
fermingardag Bjarna Gabrí
els, en hann er með sínar
hugmyndir um hvernig
hann vill hafa drauma
fermingardaginn.
sjofn@frettabladid.is
Í þættinum Matur og heimili
á dögunum gaf Bjarni Gabríel
áhorfendum innsýn í hvernig góða
fermingarveislu gjöra skal. „Á ferm-
ingardaginn langar mig að allir sem
mér þykir vænt um séu með mér
að halda upp á daginn. Ég vil að
allir séu glaðir og að það sé mikið
stuð í veislunni. Mig langar að
hafa skemmtilegar veitingar bæði
fyrir mig og vini mína og svo líka
fyrir fullorðna. Mig langar að hafa
poppvél, nammibar og selfí-box
þar sem fólk getur tekið myndir.
Svo langar mig bara að hafa
geggjað stuð allan daginn og bara
eiga frábæran dag,“ segir Bjarni
Gabríel sem valdi líka drauma-
veitingarnar í veisluna í samráði
við móður sína. Bjarni Gabríel
valdi að vera með hollustuhorn
fyrir vinina og Fabrikkuborgara,
svo vildi hann vera með eitthvað
fyrir heldra fólkið eins og hann
orðar svo vel og þá komu canapé-
snitturnar frá Jómfrúnni sterkar
inn. „Svo langar mig að bjóða upp
á flotta fermingartertu á gamla
mátann, eins og var í veislum hér
áður, fyrir svona eitís.“
Uppáhaldslitirnir í forgrunni
„Þema veislunnar er smá í bland,
mig langaði að hafa uppáhalds-
litina mína, blöðruskreytingar
og falleg lifandi blóm í forgrunni.
Síðan ætla ég að stilla upp takka-
skónum mínum og fótbolta á
borðið þar sem gestabókin verður.
Mamma var alveg sammála þem-
anu og því sem mig langar að hafa í
veislunni. Það má segja að þetta sé
smá retró, bóhó þema þar sem blár
og silfurlitaður blær svífur yfir,“
segir Bjarni Gabríel enda er hann
með sjálfstæðar skoðanir og veit
hvað hann vill. Hann valdi sér líka
falleg grá jakkaföt með svörtu vesti
í Kingsman-stíl svo það má segja
að hann hafi hugsað fyrir hverju
smáatriði.
„Við fengum fallegar blöðru-
skreytingar og selfí-myndabox frá
Partýbúðinni og blöðrulengjur
frá Confetti Sisters, ásamt fleira
skemmtilegu skrauti og popp-
uðum þetta upp með lifandi
blómum,“ segir Eva, og sá í hendi
sér að það væri upplagt að fá
aðstoð við að setja skreytingarnar
þar sem þau völdu að halda upp
á stóra daginn í Cavasalnum. „Ég
fékk stelpurnar í Balún til setja upp
skreytingar, eins og blöðrulengj-
urnar og stilla upp nammibarnum.
Frábært að geta panta þjónustu
þeirra gegnum heimasíðuna
þeirra, balun.is.“
Lifandi blóm mynda
heildarstemninguna
Eva fékk Hrafnhildi Þorleifsdótt-
ur, blómaskreyti frá Blómagall-
eríinu við Hagamel, til að aðstoða
við val á blómum og ná heildarút-
komunni á umgjörð veislunnar.
„Til að binda veitingaborðið
saman eru lifandi blóm full-
Þema fermingarbarnsins tekið alla leið
Bjarni Gabríel hugsar vel um mataræðið og vill bjóða upp á hollar veitingar fyrir íþróttafólkið, sjálfur æfir hann fótbolta
af fullum krafti. Hann valdi því Lemon-samlokur og -djúsa sem eru í miklu uppáhaldi hjá honum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Veitinga-
borðið er hið
glæsilegasta
og mikið um
náttúrulegan
efnivið, blóma-
skreytingin er
frá Blómagall-
eríi og fallegu
viðarbrettin,
bæði kringlóttu
og ílöngu, eru
frá Bakó Ísberg.
Canapé-snitt-
urnar eru frá
Jómfrúnni og
makkarón-
urnar eru frá
Tertugalleríi
Myllunnar eins
og fermingar-
tertan.
Nammibar er orðinn algengur í fermingarveislum.
Girnilegar litlar
snittur gleðja
gesti.
komin og í þessu tilfelli gerði ég
eina stóra skreytingu með fal-
legri samsetningu af afskornum
blómum – það verður allt fallegra
þegar blóm lenda á borðinu,“ segir
Hrafnhildur og bætir við að það
sé ótrúlega gaman að leika sér
með blóm þegar kemur að því að
skreyta í veislum.
„Það er líka mjög fallegt að
vera með skreytingar á gesta-
borðunum, til að mynda mis-
stóra glæra vasa þar sem villtir
blómvendir eða stök falleg blóm
raðast saman við og verða í raun
upphafið að óskrifuðu ævintýri
veislunnar, blóm eru svo mikið
augna konfekt.“ n
Grandagarði 13 Glæsibæ, 5.hæð eyesland.is
fylgja með kaupum á gleraugum!
Frí sólgler
Grandagarði 13 Glæsibæ, 5.hæð eyesland.is
6 kynningarblað A L LT 2. apríl 2022 LAUGARDAGUR