Fréttablaðið - 02.04.2022, Síða 70

Fréttablaðið - 02.04.2022, Síða 70
Þá mála allir sig eins og hálfgerða drag­ drottningu með hvíta línu niður nefið og fimm mismun­ andi tóna af farða á andlitinu. „No makeup makeup“ en með sterkum augum eða vörum eins og hefur til dæmis sést á síðast­ liðnum tísku­ vikum. Ísak Freyr Hinriksson er einn alfærasti förðunarfræðingur sem Ísland hefur alið. Hann hefur gert það gott erlendis og farðað fyrir stór tímarit og farið með penslum sínum um andlit stórstjarna á borð við Katy Perry og Dua Lipa. Ísak sem lærði förðun hér á landi það herrans ár 2007 f lutti þremur árum síðar til London og þar hefur hann nú verið síðastliðin tólf ár og gert það gott sem förðunarfræðingur. Aðspurður um stærstu verkefnin segist Ísak hafa unnið fyrir ýmiss konar tímarit, svo sem Vogue, I-D, W, Elle, Modern Matter og einnig með tónlistarmönnum á borð við Katy Perry, Dua Lipa, Charli XCX, Professor Green, JP Cooper, Of Mon- sters and Men, Nicole Scherzinger og fólki á borð við Monicu Lew- insky, Anja Rubik, Eva Herzigova, Sophie Dahl, Cara Delevingne og Poppy Delevigne svo fátt sé nefnt. Ísak segir að í sínu fagi skipti mestu að byggja sjálfan sig upp sem listamann. „Það er mikilvægt að vita hvert þú vilt fara í bransanum, skapa sinn eigin stíl og þora að hugsa út fyrir rammann. Fyrir mér tengi ég förðun við það að mála og skapa út frá listrænu sjónarhorni,“ segir hann og bætir við að hann noti tilfinningar líka í hvert sinn og innblásturinn sem hann fái frá því andliti sem hann er að farða í það skiptið. Instagram-förðun úti Ísak er sannarlega með puttann á púlsinum þegar kemur að því heit- asta í förðun hverju sinni því þó ein- hverjum grunnreglum sé ávallt fylgt er mikið um tískustrauma í förðun eins og öðru. Aðspurður hvaða förðunartrend sé helst á útleið þessa dagana svarar hann ákveðinn: „Instagram-förðun, Instagram-förð- un, Instagram-förðun, var ég búinn að segja Instagram-förðun?“ segir hann ákveðinn en í léttum tón og heldur áfram: „Ísland er lítið land og það er oft þannig að ef það kemur inn eitt- hvert trend eins og til dæmis Kim Kardashian/Instagram-förðun þá hoppa allir á það. Þá mála allir sig eins og hálfgerða dragdrottningu með hvíta línu niður nefið og fimm mismunandi tóna af farða á and- litinu. Vitaskuld eru til förðunarfræð- ingar sem fíla svoleiðis farðanir og vilja feta þann veg í bransanum sem er bara hið besta mál. Allir hafa rétt á sínu tjáningarfrelsi,“ segir Ísak en bendir á að slík förðun eigi þó ekki upp á pallborðið í hinum stóra tískuheimi sem hann starfar við. „Mín reynsla er líka sú að þegar ég hef fengið aðstoðarfólk frá Íslandi til að aðstoða mig í verkefnum í London hef ég þurft að stýra því í burt frá allt of miklum farða og miklum skyggingum. Það er eitt að mála sig fyrir símann sinn heima hjá sér og annað að mála fyrir sjón- varpsauglýsingu þar sem er verið að selja húðvöru.“ Falleg húð og sterk augu og varir En hvað ætli sé það heitasta í þessum efnum? „No makeup makeup“, en með sterkum augum eða vörum eins og hefur til dæmis sést á síðastliðnum tískuvikum. Húðin er þá eins og silki, lítil skygging en allt gert ótrú- lega vel. Smá eins og verið sé að farða fyrir Edwardian-kvikmynd frá árinu 1910. Við erum þá að tala um farða sem sést ekki en húðin er falleg með smá lit í kinnum og smá skyggingu.“ Aðspurður hversu hratt heitustu trendin nái hingað til lands svarar Ísak að við séum náttúrlega ekki vél- menni sem geri allt eins. „Allir hafa sína rútínu og farða sig eins og þeim líður best, sem er frá- bært. Þegar ég var yngri elskaði ég að meika mig með þykkum farða, mála augun kolsvört og hafa varirn- ar nude. Mér leið ótrúlega flottum þannig,“ segir hann og hlær. Ísak segir förðunarfræðinga ekki endilega eltast við trend en mikil- vægt sá að hafa skilning á því til hvers er ætlast af manni ef maður ætli sér að gera það gott erlendis. Sjá eftir að hafa plokkað „Þá er mikilvægt að skilja að Insta- gram-förðun á ekki heima í brans- anum nema auðvitað í einstaka tilfellum, til dæmis í Los Angeles er ennþá mikið í þessum stíl. En jafn- vel þar hefur hann breyst, það er allt orðið mikið léttara, minni farði, meira glow, náttúrulegri skyggingar og svo framvegis.“ Það er ekki hægt að sleppa Ísaki án þess að spyrja hann út í auga- brúnirnar sem þykkst hafa jafnt og þétt undanfarin ár. Sögusagnir hafa verið á kreiki um að örfínu auga- brúnirnar, í ætt við þær sem Pamela Anderson skartaði þegar hún var á toppnum, séu að koma aftur. Ljóst er að hann er ekki hrifinn. „Ég vona svo sannarlega ekki, því ég get ekki sagt þér hversu oft ég heyrt frá konum hvað þær sáu eftir því að hafa plokkað á sér auga- brúnirnar „in the 90’s“.“ ■ Algengt að allir hoppi á sama trendið Ísak Freyr hefur starfað sem förðunarfræð- ingur í London í rúman áratug. MYND/SAGA SIG Ísak hefur farðað margar stórstjörnurnar og tekið þátt í verkefnum fyrir stóru tímaritin eins og Vogue, I-D, W og Elle. Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is 34 Helgin 2. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.