Fréttablaðið - 02.04.2022, Side 92

Fréttablaðið - 02.04.2022, Side 92
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is arnartomas@frettabladid.is Það sem situr þyngst á manni eftir vikuna eru þessar erfiðu lýsingar kvennanna sem stigið hafa fram og sagt sögur sínar af heilbrigðis- kerfinu. Kerfið stendur vörð um sjálft sig í stað þess að mæta þessum erfiðu málum af meiri auðmýkt. En af öðrum og ögn léttari málum þá fannst mér mjög gaman að fylgjast með Íslensku tónlistarverðlaunun- um. Um skeið var ég framkvæmda- stjóri þeirra og þetta er sannarlega hápunktur í íslensku tónlistarlífi. Það var líka áhugavert að fylgjast með gagnrýni Bubba á þau. Því í sjálfu sér eru tónlistarverðlaunin ein risastór gagnrýni. Það sem dóm- nefnd þykir best er verðlaunað og annað ekki. Þannig geta tónlistar- verðlaunin ekki verið yfir gagnrýni hafin sjálf og eðlilegt að hlutverk þeirra sé til umræðu. Ef þau væru ekki rædd og ef fólk hefði ekki mis- jafnar skoðanir á þeim þá myndi það þýða að þau skipti engu máli og það gera þau svo sannarlega. En svo fannst mér bestu fréttir vik- unnar frábær árangur íslensks mat- reiðslufólks á Norðurlandamótinu í matreiðslu í Danmörku í vikunni. Eitt gull og tvö silfur, þannig að allir íslensku keppendurnir toppuðu. ■ Eitt gull og tvö silfur Í sjálfu sér eru tón- listarverð- launin ein risastór gagnrýni. ■ Frétt vikunnar Einar Bárðarson Einar Bárðarson. STÓLA DAGAR www.DORMA.is Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur. 20% afsláttur af öllum stólum AVIGNON hægindastóll með skammel Fullt verð: 149.900 kr. Nú 119.920 kr. AUSTIN rafdrifinn hægindastóll Stillanlegur hægindastóll með innbyggðum skammel. Koníaksbrúnt, svart, eða dökkgrátt PVC leður. 90 x 98 cm. Fullt verð: 199.900 kr. Nú 159.920 kr. AVIGNON hægindastóll með skammel Stillanlegur hægindastóll með innbyggðum skemli. Brúnt, svart, dökkgrátt og rautt PVC leður Fullt verð: 259.900 kr. Nú 207.920 kr. MIAMI rafdrifinn lyftistóll Stillanlegur hægindastóll með tveimur öflugum mótorum. Leður á slitflötum. Hægt að halla til baka með skammel. Aðstoðar þig á fætur. Svartur, grár eða brúnn. Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Ljósmyndarar fylgja Fox við hvert fótmál og hún bregst ekki aðdáendum sínum hvað stílinn varðar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY ninarichter@frettabladid.is Leikkonan og fyrirsætan Julia Fox skaust ræki- lega upp á stjörnuhimininn í byrjun árs þegar hún átti í skammlífu sambandi við rapparann Kanye West. Hún er einnig þekkt fyrir leik í kvikmyndinni Uncut Gems frá 2019, og var í kjölfarið tilnefnd til Gotham-kvikmyndaverð- launanna og Breakthrough Actor-verðlaun- anna einnig. Julia Fox er þekkt fyrir óvenjulegan og ögrandi fatastíl og áberandi augnförðun sem einkennist af þykkum svörtum augnskugga. Hún tekur „bert á milli“-tískunni fagnandi eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Bert á milli og brjáluð augnförðun arnartomas@frettabladid.is Sænsku poppgoðsagnirnar í Abba fagna fimmtugasta starfsári sínu í ár. Tímamótunum verður fagnað með sérstakri afmælistónleikasýn- ingu í Hörpu í kvöld þar sem öllu verður tjaldað til. „Við ætlum að flytja fullt af lögum af þessum fimmtíu ára gamla kata- lóg,“ segir Selma Björns sem stígur á svið í Eldborgarsalnum í kvöld. „Það var erfitt að velja en við flytjum ein- hver tuttugu og þrjú lög og mögu- lega einhver af nýju plötunni sem kom út í fyrra.“ Ásamt Selmu koma fram söng- konurnar Jóhanna Guðrún, Stefanía Svavarsdóttir og Regína Ósk ásamt hljómsveit undir stjórn Jóns Ólafs- sonar. Abba-tónleikarnir hafa verið f luttir nokkrum sinnum frá árinu 2012 en var ítrekað frestað í faraldr- inum. Selma segir að tónleikarnir í kvöld verði sérstaklega veglegir í tilefni afmælisins enda hafa Abba snert við mörgum í gegnum árin. „Ég man eftir því að ég var bara lítil stelpa inni í stofu og mamma elskaði Abba,“ segir hún. „Ég var bara pínu pons þegar ég var að dansa við Waterloo og Dancing Queen.“ Velgeng ni Mamma Mia! á sviði og á hvíta tjaldinu segir Selma sýna fram á hversu víð- tækar vinsældir sveitarinnar séu. „Abba virðist höfða til þriggja ára og upp í hundrað og þrettán ára,“ segir hún og hlær. Miðasala fer fram á heimasíðu Hörpu. ■ Sænsku poppgoðin hyllt í Hörpu 56 Lífið 2. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.