Morgunblaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2022
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
sl
ík
u.
At
h.
að
ve
rð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
fy
rir
va
ra
.
595 1000
60+
g
28. mars í 15 nætur
Tenerife
Verð frá kr.
239.900
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Síðustu dagana hafa verið mikil
umsvif við höfnina á Þingeyri, sem
nú er orðin umsvifastaður með fisk-
eldinu sem stundað er í Dýrafirði.
Artic Fish er með umfangsmikla
starfsemi á Vestfjörðum og ætlar
sér meira í framtíðinni. Í höfn á
Þingeyri er flutningaskip sem flyt-
ur fóður og þjónustubátar sem not-
aðir eru til ferða að eldiskvíum úti á
firðinum, þar sem nú eru í sjó alls
um 8.000 tonn af laxi.
Slátrun á laxi úr kvíunum á
Dýrafirði sem fram fer á Bíldudal
hófst rétt fyrir jól og stendur allt
þetta ár og væntanlega eitthvað
fram á það næsta. Allt vitnar þetta
um að vestra er bragurinn breyttur
og umsvif í eldinu hafa í raun skap-
að nýjan þrótt í atvinnulífi á svæð-
inu eftir langt samdráttarskeið.
Tímarnir breytast og mennirnir
með er stundum sagt. Nýr tónn sem
ómar víðar er sleginn á Þingeyri og
svo vitnað sé til hinnar frægu Gísla
sögu Súrssonar, sem gerist á þess-
um slóðum, þá falla nú öll vötn til
Dýrafjarðar. sbs@mbl.is
Öll vötn falla nú til Dýrafjarðar þótt í nýrri merkingu sé
Mikil um-
svif í Þing-
eyrarhöfn
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson.
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Áhugaleikfélagið Hugleikur berst í
bökkum eftir synjun um menning-
arstyrki frá borginni og þungan
rekstur í faraldrinum. „Það hefur
ekki gengið nógu vel eins og gefur
að skilja. Við vorum reyndar svo
heppin að það síðasta sem við gerð-
um fyrir Covid var að sýna Gesta-
gang, stóra sýningu, fjölmenna og
mjög vel heppnaða. Það var kraftur í
öllu. En svo höfum við þurft að
fresta öðrum verkefnum. Við höfum
einungis haldið stuttleikjadagskrá
sem við höfum streymt á netinu og
tvö námskeið,“ segir Þórarinn Stef-
ánsson, formaður leikfélagsins.
„Við erum með föst útgjöld svo
það er farið að hringla mikið í budd-
unni,“ segir hann. Það hafi síðan ver-
ið ákveðið áfall að fá synjun í ár þeg-
ar félagið sótti um menningarstyrki
til borgarinnar. „Þessir styrkir sem
okkur hefur verið úthlutað hafa farið
lækkandi síðustu ár og núna í ár
fengum við synjun. Við sóttum um
styrk til þess að halda félaginu á lífi,
halda starfseminni gangandi, og svo
sóttum við líka um styrk til þess að
betrumbæta húsnæðið sem við höf-
um.“
Þetta gerir stjórn Hugleiks erfitt
fyrir. „Það er mjög erfitt að segja til
um hvernig næsta leikár verður. Að
óbreyttu munum við neyðast til þess
að selja húsnæðið okkar,“ segir Þór-
arinn og vísar til eignar félagsins við
Langholtsveg þar sem æfingar þess
fara fram.
Því er ekki enn vitað hvort og þá
hvernig félagið muni starfa á næsta
leikári. „Við erum að kanna hvort við
sjáum einhverja fleti á því að bjarga
rekstrinum en að óbreyttu þurfum
við líklega að pakka saman. Við höf-
um verið starfandi síðan 1984 og sett
upp sýningu nánast á hverju ári síð-
an, þar til kom að Covid, svo þetta
yrði skarð fyrir skildi.“ »14
Gríðarslæm staða hjá Hug-
leik sem fékk enga styrki
- Útlit er fyrir að leikfélagið verði að selja húsnæði sitt
Morgunblaðið/RAX
Leikfélagið Úr sýningu Hugleiks á
„Ó, þú aftur …“ árið 2009.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Umsókn Landsvirkjunar um virkj-
analeyfi fyrir Hvammsvirkjun í neðri-
hluta Þjórsár er enn í vinnslu hjá
Orkustofnun. Umsóknin barst stofn-
uninni 10. júní, eða fyrir átta mán-
uðum, og Orkustofnun veitir ekki
upplýsingar um það hvenær þess
megi vænta að niðurstaða fáist.
Hvammsvirkjun er sá virkjana-
kostur sem einna lengst er kominn í
undirbúningi hjá Landsvirkjun, eins
og fram kom í viðtali við Hörð Arn-
arson forstjóra í blaðinu 28. janúar
síðastliðinn. Þetta er 95 megavatta
vatnsaflsvirkjun. Þegar virkjanaleyfi
fæst verður hægt að sækja um fram-
kvæmdaleyfi hjá sveitarfélögunum og
fara yfir hönnun virkjunarinnar. Ef
stjórn fyrirtækisins ákveður á þessu
ári að virkja má gera ráð fyrir að það
taki fimm ár að undirbúa og fram-
kvæma þannig að virkjunin ætti að
geta tekið til starfa á árinu 2027.
Virkjunin mun því ekki leysa þann
orkuskort sem nú blasir við en Lands-
virkjun telur sig hafa markað fyrir
alla orkuna.
Fyrsta skrefið er að fá virkjana-
leyfi hjá Orkustofnun. Samkvæmt
upplýsingum stofnunarinnar er verið
að ljúka yfirferð yfir innsend gögn,
skoðun á fylgiskjölum, ítarefni og öðr-
um þáttum rannsóknar málsins, í
samræmi við ákvæði laga og reglu-
gerða.
Álag og umfang gagna
Ef stofnunin telur að umsóknin sé
fullnægjandi er næsta skref að aug-
lýsa hana í Lögbirtingablaðinu. Þeim
sem hagsmuna eiga að gæta verður
þá veittur þriggja vikna frestur til að
gera athugasemdir áður en unnið
verður að ákvörðun.
Ef hins vegar stofnunin telur að
upplýsingar eða gögn skorti verður
óskað úrbóta, skýringa eða viðbótar-
upplýsinga um þau atriði, áður en
ferlið heldur áfram.
Orkustofnun viðurkennir að tafir
hafi orðið á yfirferð Orkustofnunar á
umsókn um virkjanaleyfi fyrir
Hvammsvirkjun. Það sé að hluta til
vegna mikils álags á viðkomandi
starfsmenn og fjölda mála sem til af-
greiðslu eru hverju sinni og að hluta
til afleiðing af því hversu málsskjölin
eru mikil að vexti. Til skýringar er
nefnt að framkvæmdin hafi tvisvar
farið í umhverfismat og kæruferli og
ýmsar breytingar hafi orðið á hönnun
og tengdum framkvæmdum á þeim
tæpu 20 árum sem liðin eru frá því
fyrst var fjallað um framkvæmdina
samkvæmt lögum um mat á umhverf-
isáhrifum. Umsóknargögn eru í heild-
ina hátt í 1.200 blaðsíður, auk korta og
teikninga, og samkvæmt upplýsing-
um Orkustofnunar því allnokkurt mál
að fara yfir þau svo vel sé.
1.200 blaðsíður í umsóknargögnum
- Umsókn Landsvirkjunar um virkjanaleyfi fyrir Hvammsvirkjun barst Orkustofnun fyrir átta mán-
uðum - Stofnunin er að ljúka yfirferð þeirra gagna sem fylgdu umsókninni en ferlinu er ekki lokið
Morgunblaðið/RAX
Þjórsá Unnið hefur verið að undirbúningi Hvammsvirkjunar í tuttugu ár.