Morgunblaðið - 10.02.2022, Page 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2022
SÓL Í SUMAR
BÓKAÐU ALLT FRÍIÐ Á EINUM STAÐ!
SÍMI 585 4000 WWW.UU.IS
ALMERÍA
FLUG OG GISTING
ARENA CENTER HOTEL 4*
VERÐ FRÁ 84.900 KR
VERÐ Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA & 2 BÖRN Í 10 DAGA FERÐ
FERÐATÍMABIL: BEINT FLUG TIL ALMERÍA 6. JÚNÍ - 9. ÁGÚST
PORTÚGAL
FLUG OG GISTING
CLUB ALBUFEIRA .
VERÐ FRÁ 95.900 KR
VERÐ Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA & 2 BÖRN Í 7 DAGA FERÐ
FERÐATÍMABIL: BEINT FLUG TIL ALMERÍA 7. JÚNÍ - 23. ÁGÚST
INNIFALIÐ: FLUG, GISTING, MORGUNVERÐUR, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Verkefni okkar er að reka athvarf
fyrir mjaldra og að hjálpa lundum
sem lenda í olíumengun og sleppa
þeim aftur út í náttúruna,“ sagði
Audrey Padgett, framkvæmdastjóri
Sea Life Trust í Vestmannaeyjum.
„Ef koma olíublautir fuglar af öðrum
tegundum reynum við að hjálpa
þeim. Starfsmenn okkar eru þjálf-
aðir í að hreinsa olíublauta fugla en
aðstaðan er takmörkuð og miðuð við
lunda. Æðarfuglar og langvíur eru
mun stærri en við höfum einnig
hreinsað fugla af þeim tegundum.“
Audrey nefndi að nú geisi fugla-
inflúensa í Evrópu. Þess vegna mega
villtir fuglar ekki koma nálægt lund-
unum sem eiga heima hjá Sea Life
Trust. Lundarnir gleðja augu gesta
sem koma að skoða mjaldrana Litlu-
Hvít og Litlu-Grá. Þeir dvelja þar
vegna þess að þeir geta ekki lifað af í
náttúrunni. Sumir eru eineygðir eða
blindir, aðrir með lömun eða ónýta
fitukirtla.
Lundapysjur njóta forgangs í ol-
íuhreinsun. Margar þeirra lenda í
Vestmannaeyjahöfn og sumar verða
fyrir olíu- eða grútarmengun. Þeim
er þá bjargað og komið í hreinsun
hjá Sea Life Trust. Audrey segir að
það sé tímafrekt að hreinsa olíu-
blauta fugla. Byrjað er á að meta
ástand hvers fugls, hve mikið hann
er mengaður og hvar. Það gefur vís-
bendingu um hvort fuglinn hefur
reynt að þrífa sig og étið olíu. Það
getur verið lífshættulegt.
Fuglinum er gefinn vökvi í gegn-
um næringarslöngu og beðið þar til
líðan hans er stöðug. Svo er honum
þvegið upp úr heitu v atni með upp-
þvottalegi frá Fairy eða DAWN.
Vatnið þarf að vera 40-42°C heitt.
Þrír starfsmenn hjálpast að við að
þvo hvern fugl. Ekki er þvegið leng-
ur en í 45 mínútur í einu og er oft
skipt um vatn. Svo er fuglinn skol-
aður í tíu mínútur til að ná allri sáp-
unni og síðan settur í þurrkbúr.
Endurtaka þarf þvottinn þar til
fiðrið er orðið hreint og getur það
tekið nokkra daga. Eftir hreinsunina
tekur svolítinn tíma fyrir fuglinn að
fituverja sig á ný. Dæmi eru um að
fiðrið á lundapysjum sé svo illa farið
að bíða verði þar til nýjar fjaðrir
vaxa. Hjá nokkrum pysjum hafa
fitukirtlarnir stíflast og þá þarf að
skola kirtlana út og opna. Það getur
því verið flókið og tímafrekt ferli að
koma fuglinum til fullrar heilsu.
Vingast ekki við villta fugla
Starfsfólkið vingast ekki við fugla
sem á að sleppa. „Við höfum sem
minnst samskipti við þá, tölum ekki
við þá og tengjumst þeim ekki. Gæt-
um þess líka að þeir tengi ekki fólk
við fæðugjöf,“ sagði Audrey.
Hún sagði að því miður takist ekki
að bjarga öllum fuglunum.
„Um þetta leyti fyrir tveimur ár-
um var komið með þrjátíu olíu-
blautar langvíur. Mig minnir að okk-
ur hafi tekist að bjarga tólf en átján
voru of olíublautar eða höfðu étið of
mikið af olíu og varð ekki bjargað.
Það skiptir máli um hvort tekst að
bjarga fugli hvað hann finnst
snemma og hvað mengunin er mik-
il,“ sagði Audrey. Hún kvaðst ekki
vita til þess að olíublautum fuglum
takist að hreinsa sig sjálfir. Þeir
vissulega reyna það og éta olíuna.
Eiturefni í henni valda lifr-
arskemmdum sem drepa fuglinn.
Sea Life Trust í Vestmannaeyjum
hefur bjargað meira en 300 olíu-
blautum fuglum, mest lundapysjum,
á síðustu tveimur árum með dyggri
aðstoð sjálfboðaliða og bæjarbúa.
Starfsfólkið hefur verið reiðubúið að
leggja á sig þessa vinnu í þágu
fuglanna. „Okkur sem vinnum hér er
öllum annt um dýr og við viljum
hjálpa dýrum sem eru í neyð. Það er
okkur mikil hvatning þegar það
tekst,“ sagði Audrey.
Sea Life Trust fær ekki sér-
staklega fjármuni til að sinna þessu
björgunarstarfi. „Við erum góðgerð-
arstofnun. Framlög stuðningsaðila,
tekjur af gestamiðstöðinni, ættleið-
ingar dýra og fleira hjálpar okkur
með kostnaðinn við fuglabjörgunina.
Við erum þó ekki með sérstakt
stuðningsnet hennar vegna. Það er
ein ástæða þess að geta okkar er
takmörkuð,“ sagði Audrey. Hún
sagði að þau hyggist leita eftir aukn-
um stuðningi við þetta starf.
Lundapysja Þessi er olíublaut og
þarf hreinsun til að geta lifað af.
Þvottur Fuglarnir eru þvegnir upp
úr 40-42°C heitu vatni og sápulegi.
Skoðun Dýralæknir skoðar lunda-
pysjuna áður en henni er sleppt.
Hafa bjargað hundruðum fugla
- Starfsfólk Sea Life Trust hefur mikla reynslu af að hreinsa olíublauta fugla - Eftir hreinsun er
fuglunum sleppt - Tímafrek vinna og þolinmæðiverk - Starfsfólkið hefur unnið mjög fórnfúst starf
Ljósmyndir/Sea Life Trust
Heitur blástur Harry Tolliday hvalaþjálfari og Lína Katrín Þórðardóttir,
markaðsráðgjafi hjá Sea Life Trust, að þurrka æðarkollu eftir bað.
Þurrkun Æðarkolla í hitabúrinu.
Hitalampi flýtir fyrir þurrkuninni.
Tandurhrein Lundapysjan er orðin
hrein og tilbúin í lífið í náttúrunni.
Tæplega 40 íbúar Einarsness hafa
krafist endurupptöku á máli þar sem
úrskurðarnefnd umhverfis- og auð-
lindamála hafi augljóslega byggt úr-
skurð sinn á röngum forsendum um
málsatvik. Nefndin hafnaði því í síð-
ustu viku að ákvörðun borgarstjórn-
ar um nýtt deiliskipulag fyrir Nýja-
Skerjafjörð yrði felld úr gildi.
Í kröfunni segir að forsenda
nefndarinnar fyrir úrskurðinum hafi
alfarið byggst á upplýsingagjöf
Reykjavíkurborgar og að stuttu áð-
ur en nefndin kvað upp úrskurð í
málinu greip Reykjavíkurborg til
ráðstafana sem séu ekki í samræmi
við upplýsingagjöfina.
Að sögn Ingva Hrafns Óskarsson-
ar, sem er í forsvari fyrir kærendur
og er auk þess einn íbúanna, var
upplýsingagjöf Reykjavíkurborgar
til nefndarinnar með þeim hætti að
hún mátti ætla að deiliskipulagið fyr-
ir allt svæðið yrði unnið áður en
framkvæmdir myndu hefjast.
Hins vegar hafi Reykjavíkurborg
fyrir skömmu auglýst útboð og þar
komi fram að þetta verði ekki unnið
saman. Nefndin hafi því byggt úr-
skurð sinn á röngum forsendum.
Segir í kröfunni að nefndin virðist
byggja á því í úrskurði sínum að einu
gildi hvort tekist sé á við neikvæð
umhverfisáhrif af nýrri byggð í
Skerjafirði í tveimur frekar en einni
deiliskipulagsáætlun. Sú afstaða
standist hins vegar ekki nema deili-
skipulagstillögur fyrir allt svæðið
séu unnar í samfellu áður en fram-
kvæmdir hefjast í nýju hverfi.
„Það er mjög sérkennilegt að
greina frá því að það verði unnið nýtt
deiliskipulag en sleppa því að geta
þess að það verði engu að síður farið
í framkvæmdirnar við Nýja-Skerja-
fjörð án þess að það sé búið að leysa
úr hinu,“ segir Ingvi.
Íbúar krefjast
endurupptöku
- Segja rangar forsendur fyrir úrskurði
Tölvuteikning/Reykjavíkurborg
Deiliskipulag Svona á Nýi-
Skerjafjörður að líta út.