Morgunblaðið - 10.02.2022, Page 18

Morgunblaðið - 10.02.2022, Page 18
18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2022 Bighorn M917 front B irt m e ð fy rirv a ra u m m y n d a - o g te x ta b re n g l. Radíal fjórhjóladekk Með breiðan snertiflöt tryggir jafnt og gott grip. Bighorn M918 rear Radíal fjórhjóladekk Hentar í nánast allt undirlag, sand, drullu og snjó. Nankang AT-5 Jeppadekk Frábært neglanlegt dekk í vetrar- ófærðina, kafsnjó og vetrarhálku. Courser MXT Jeppadekk Hentar við allar aðstæður og veðurskilyrði. Jeppadekk Þrautreynt jeppadekkviðallar akstursaðstæðurallt áriðumkring. FJÓRHJÓLADEKK JEPPADEKK Jeppadekk Hentar vel þar semmikið grip þarf, svo sem í drullu og sandi. Á nesdekk.is finnur þú rétta dekkið á rétta verðinu! Fiskislóð 30 101 Reykjavík 561 4110 Tímabókun Grjóthálsi 10 110 Reykjavík 561 4210 Röð Njarðarbraut 9 260 Reykjanesbæ 420 3333 Röð Njarðarnesi 1 603 Akureyri 460 4350 Röð Lyngási 8 210 Garðabæ 565 8600 Röð Skeifan 9 108 Reykjavík 590 2098 Tímabókun nesdekk.is / 561 4200 Breiðhöfði 13 110 Reykjavík 590 2080 Tímabókun Open Country A/T Open Country M/T BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Arkitektastofan ARK-þing ehf. hef- ur sent skipulagsfulltrúa Reykjavík- ur bréf og vill kanna viðbrögð hans við hugmyndum um uppbyggingu á lóðum í Laugarnesi. Lóðirnar sem um ræðir eru á mót- um Sæbrautar og Klettagarða og standa við Héðinsgötu og Köllunar- klettsveg. Þær mynda samfellda heild, sem er eins og stígvél í laginu. Samanlögð stærð þeirra er 56.469 fermetrar. Í dag standa á lóðunum gamlar byggingar, atvinnuhús og vöruskemmur, sem munu víkja ef áformin ná fram að ganga. Verk- takafyrirtækið Þingvangur hefur áður kynnt mikla uppbyggingu at- vinnuhúsnæðis á lóðunum, þ.e. árið 2017, en ekki varð af þeim fram- kvæmdum. Þá kynnti Þingvangur árið 2019 hugmyndir um að reisa á lóð við Köllunarklettsveg 550-600 litlar íbúðir til að leysa skammtíma- vanda á húsnæðismarkaði. Á síðasta fundi skipulagsfulltrúa var kynnt það sem kallað er óform- leg fyrirspurn frá Köllunarkletti ehf., sem er eigandi lóðanna í dag. Þar er óskað eftir viðbrögðum skipu- lagsfulltrúa við þeim hugmyndum að byggja þarna 200 íbúðir fyrir eldri borgara, þ.e. 55 ára og eldri. Á neðstu hæðunum yrði þjónusta og hugsanlega hjúkrunarheimili. Nú- verandi eigandi vilji velta upp þeim möguleika að þarna geti einnig risið skólabyggingar. Í hönnunar- og skipulagsferlinu verði leitast við að tengja lóðirnar við nánasta umhverfi sitt ásamt því að taka mið af umferð og þeirri starfsemi sem sé stunduð í nágrenn- inu. Er lóðareigandi tilbúinn að gera undirgöng undir Klettagarða á sinn kostnað, en þau muni tengja svæðið við sögustaðinn Laugarnes. Á lóðunum er einnig gert ráð fyrir hóteli, hótelíbúðum, fjölnotahúsi, verkstæðum, vinnustofum, versl- unum og skrifstofum. Lóðirnar verði skipulagðar í nánu samstarfi við Reykjavíkurborg og hagsmunaaðila tengda svæðinu. Íbúðir eldri borg- ara og hótelstarfsemi er hugsuð á vestari hluta svæðisins. Eldri borg- arar á svæðinu, sem og gestir í hót- elíbúðum, geti nýtt sér veitingastaði og þjónustu hótelsins. Nálægð við miðborgina verði einnig styrkleiki fyrir hótelstarfsemina. Er í nálægð við miðborgina Fjölnotahús myndi rísa austast á lóðunum, næst Kassagerðinni. Þar gæti verið fjölbreytt starfsemi og viðburðir. Nefna megi vinnustofur, verkstæði, líkamsrækt, íþróttastarf, tónleikahald og sýningar, æfinga- svæði fyrir leiklist o.fl. „Nálægð lóðanna við miðbæinn, sundin, græn svæði og strandlengj- una býður upp á mikla möguleika til þess að skapa aðlaðandi umhverfi fyrir svæðið,“ segir meðal annars í bréfi Köllunarkletts ehf. Þá er bent á að með uppbyggingu á lóðunum opnist stórbrotið útsýni yfir sundin og borgina. Mun skipu- lag miðast við það að gefa sem flest- um tækifæri til að njóta þess. Þann- ig sé ráðgert að byggja sundlaug og veitingastað á þaki fyrirhugaðs hót- els með frábæru útsýni. Köllunarklettur ehf. vonast eftir jákvæðum viðbrögðum við fyrir- spurninni og ítrekar í bréfinu að ekki sé um fullmótaðar hugmyndir að ræða. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra skipu- lagsfulltrúa. Byggt verði upp í „stígvélinu“ - Eldri hús í Laugarnesi víki fyrir íbúðum, hóteli og margvíslegri starfsemi - Stórbrotið útsýni yfir borg og sund - Nálægð við miðborgina styrki hótelstarfsemina - Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur með fyrirspurn til skoðunar Laugarnes Svona líta frumhugmyndir arkitekt- anna út um uppbygginguna á „stígvélinu“ í Laugarnesi. Fremst er hæsta byggingin, hótelið með sund- laug á þakinu. Þar við hliðina er gert ráð fyrir íbúðum eldri borgara. Síðan taka við hús með annarri starfsemi og lengst til hægri, næst Kassagerðinni, er gert ráð fyrir fjölnota húsi. Þar er fyrirhuguð margvísleg starfsemi. Lóðareigandi er tilbúinn að kosta jarðgöng undir Klettagarða, sem myndu tengja lóðina við hið sögufræga Laugarnes, sem er hinum megin við götuna. Tölvumyndir/ARK-þing Sundlaugin Á þaki hótelsins er gert ráð fyrir sundlaug og heitum pottum. Útsýnið yfir sundin og borgina verður óviðjafnanlegt, ekki síst á fögrum vorkvöldum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.