Morgunblaðið - 10.02.2022, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 10.02.2022, Qupperneq 22
22 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2022 Hef flutt starfstöð mína úr Læknastöðinni í Glæsibæ, Álfheimum 74 íMeltingarklíníkina, Klíníkin, Ármúla 9. Viðtalsbeiðnum og beiðnum ummaga-og ristilspeglanir er svarað í síma 519 7000, Meltingarklíníkin (3). Ásgeir Theodórs læknir, M. Sci (EMPH) Sérgrein: Meltingarlækningar Hef flutt starfstöð mína úr Læknastöðinni í Glæsibæ, Álfheimum 74 íMeltingarklíníkina, Klíníkin, Ármúla 9. Viðtalsbeiðnum og beiðnum ummaga-og ristilspeglanir er svarað í síma 519 7000, Meltingarklíníkin (3). Tryggvi Björn Stefánsson, Sérfræðingur í almennum skurðlækningum og sjúkdómum í endaþarmi (Proktologia) Í baráttu um formannsstólinn Kosning næsta formanns Eflingar og sjö manna í stjórn félagsins hófst klukkan níu í gærmorgun. Þrjú eru í framboði til formanns félagsins; Ólöf Helga Adolfsdóttir, starfandi varaformaður, sem leiðir A-listann, Sólveig Anna Jónsdóttir, fyrrverandi formaður, sem leiðir B-listann og Guðmundur Jónatan Baldursson stjórnar- maður, sem er í forsvari fyrir C-listann. Ómar Friðriksson ræddi við þau um helstu áherslur og baráttumál í kosningunum. Morgunblaðið/Unnur Karen Atkvæði skilað Agnieszka Ewa Ziółkowska, formaður Eflingar, kaus á skrifstofu Eflingar. „Að okkar mati eru húsnæðismálin mikilvægust. Það er mikilvægt að byggja upp meira af húsnæði, sér- staklega hjá óhagnaðardrifnum leigufélögum og að auki viljum við reyna að koma á fót leigubremsu, þannig að það sé fastari rammi á því hversu hátt leigan getur farið miðað við húsnæðið og erum við þá að horfa til danskrar fyrirmyndar, sem tryggir bæði leigjendur og leigusala betur og hefur reynst vel,“ segir Ólöf Helga Adolfsdóttir, frambjóðandi til formennsku í Efl- ingu og oddviti A-lista uppstill- inganefndar. Hún segir mjög brýnt að ráðist verði sem fyrst í aðgerðir til að leysa húsnæðisvanda launafólks og verkalýðshreyfingin þurfi strax að setja á pressu um úrbæt- ur og aðgerðir. Hún telur sjálfsagt að samið verði um krónutöluhækkanir í næstu samningum eins og gert var í seinustu samningum. ,,Að sjálfsögðu byrjum við á því að leita til félagsmanna og fáum kröfurnar hjá þeim en eins og ég sé þetta, þá er mesta vitið í því fyrir okkur að semja um krónutöluhækkanir enda er mikilvægt að lægst launaða fólkið fái hærri prósentuhækkun vegna þess að ef launabilið er alltaf að stækka þá verður ójöfnuðurinn sí- fellt meiri,“ segir hún. Að mati hennar á Efling að standa áfram að róttækri verka- lýðsbaráttu og félagsmenn þurfi alltaf að vera tilbúnir í slaginn ef á þurfi að halda en fyrst þurfi að taka samtalið við samninga- borðið og reyna að finna lausnir þar. „Við getum ekki tekið hverju sem er, við þurfum að geta lifað og það er grunnkrafa okkar að Eflingarfélagar geti lifað af laununum sínum.“ Ólöf segir sjálfsagt að skoða aftur svipað fyrirkomulag og samið var um við gerð lífskjarasamninganna en þá þurfi stjórn- völd að koma meira að borðinu og setja verði niður fastar dag- setningar á loforð stjórnvalda um aðgerðir svo hægt sé að fylgja því betur eftir og krefja stjórnvöld um að standa við sam- komulagið ,,Við förum harðar í það að ýta á eftir að staðið sé við dagsetningar og tryggðar efndir loforða, sem er ekki síður mikilvægt en krónutöluhækkanir í samningum,“ segir hún. Ólöf er hlynnt samvinnu innan launaþegahreyfingarinnar. „Ég tel hagsmunum okkar alltaf betur borgið í samvinnu með öðrum stéttarfélögum, hagsmunir okkar launþega eru þeir sömu að mörgu leyti en þó við séum í samvinnu eða samfloti þegar við erum í samningaviðræðum, þarf það ekkert endilega að þýða að að við höfum ákveðið að setja samningsumboðið til Starfsgreinasambandins.“ Spurð hvernig hún vilji leysa úr deil- unum innan skrifstofu Eflingar svarar Ólöf: „Mér finnst að tek- ist hafi mjög vel til við að greiða úr þeim vandamálum sem voru hérna, t.d. með því að fá sálfræðistofu sem gerði mjög góða og faglega úttekt á líðan starfsfólks og við erum að fá leiðbeiningar frá þeim um hvernig best er að halda áfram.“ Ólöf Helga Adolfsdóttir Þrýsta á aðgerðir í húsnæðismálum „Okkar stærsta og mikilvægasta baráttumál er að Efling sé virk- ustu og máttugustu hagsmuna- samtök verka- og láglaunafólks, þar sem baráttan fyrir réttindum og kjörum félagsfólks er mál mál- anna,“ segir Sólveig Anna Jóns- dóttir um baráttumál Baráttulist- ans, sem hún leiðir og leggur áherslu á kjörorðin fjöldi, sam- staða og sýnileiki. Stefnumál í níu flokkum byggist á sameiginlegri lífsreynslu verka- og láglaunafólks á félagssvæðinu, af störfum innan hreyfingarinnar og fjölmörgum hörðum aðgerðum sem félagið stóð fyrir á seinustu árum. Hún segir að þær aðferðir sem beitt var í stjórnartíð hennar í kjarabaráttunni hafi skilað vinnandi fólki miklum árangri, komið hafi í ljós að félagsmenn hafi verið til í að berjast með félögum sínum, sameinaðir og sterkir með sjálfsvirðinguna að vopni. „Og með þá afdráttarlausu kröfu að okkar ómissandi framlag til íslensks samfélags sé metið að verðleikum. Þetta er sú aðferð sem hefur skilað okkur mestum árangri,“ segir hún. Svo illa hafi verið komið fyrir verka- og láglaunafólki á sínum tíma að forysta þess hafði pakkað gagnlegustu vopnum launafólks ofan í geymslu og þau mátti ekki snerta, „en við sóttum þau og brýndum þau og notuðum með miklum ár- angri,“ segir hún. Áfram verður að sögn Sólveigar lögð mikil áhersla á kjara- bætur láglaunafólks og að samið verði aftur um krónutölu- hækkanir í komandi kjaraviðræðum. Spurð um áhrif hárrar verðbólgu og vaxtahækkana segir hún Baráttulistann gera sér vel grein fyrir þessari stöðu, taki hana alvarlega og greini af vandvirkni en ekki komi til greina að verka- og láglaunafólk verði látið bera byrðarnar. Listinn hafnar hugmyndum um miðstýringu launastefnunnar og innleiðingu Salek-hugmynda- fræðinnar, sem hafi nú verið endurskírð grænbók um vinnu- markað. Ekki megi hrófla við verkfallsréttinum og vill Bar- áttulistinn að þegar næstu samningar verða undirritaðir verði skýr fyrirvari um að þeir verði uppsegjanlegir ef Alþingi hreyfir á minnsta hátt við lagarammanum sem snýr að vinnu- markaðinum eða taki skref í átt að Salek. Að mati hennar var það mikið hneyksli þegar ASÍ skrifaði undir pakka stjórnvalda með loforði um að farið yrði í vinnu við gerð grænbókar um vinnumarkaðinn. „Þetta gera þau án þess að upplýsa okkur á nokkru stigi málsins um þessa fyrirætlun sína og framkvæma svo undirritun án þess að leita samþykkis hjá mér eða samn- inganefnd Eflingar,“ segir Sólveig. Spurð um breytingar á skipulagi innan Eflingar og hvernig leysa eigi úr deilunum á skrifstofunni segir hún félagsmenn eiga að vera í forgrunni. Hún hafi sem formaður gert allt sem í hennar valdi stóð til að standa vörð um hagsmuni þeirra. Skv. stefnuskrá listans á að gera umbætur í rekstri félagsins. Sólveig Anna Jónsdóttir Vopnin notuð með miklum árangri Guðmundur Jónatan Baldursson, frambjóðandi til formanns í Efl- ingu, sem leiðir C-listann, vill breyta skipulaginu innan Eflingar svo tryggt verði betur að kröfur í kjarabaráttunni komi beint úr grasrótinni. „Við ætlum að búa til litlar fimm manna stjórnir innan Eflingar og ætlum að fá fólk úr grasrótinni, t.d. frá hópferðabíl- stjórum, tækjamönnum, leik- skólafólki og fólki í öldrunarþjón- ustu, sem fundi einu sinni í mánuði. Þetta fólk þekkir vel til sinna vinnustaða og veit best hvað brennur á fólki og hvað brýnast er að gera til að bæta kjör þess. Síðan verði formenn þessara litlu stjórna fengnir inn í samninga- nefndir og þar fáum við kröfurnar beint frá fólkinu í grasrót- inni,“ segir hann. Fjölmörg brýn úrlausnarefni blasa við, ekki síst í húsnæðis- málum að sögn Guðmundar sem segir að meðal aðgerða sem grípa þurfi til sé að setja þak á leiguverð. ,,Húsnæðiskostnaður- inn vegur gríðarlega þungt,“ segir hann. Staðan sé graf- alvarleg. ,,Það selst allt sem kemur í sölu og langt yfir ásettu verði. Fólk er að taka á sig skuldir upp á óheyrilegar upphæðir. Ofan á þetta er svo verð að snarhækka þessa dagana eins og all- ir finna sem fara út í búð að kaupa í matinn.“ Hann segir þörf á ýmsum aðgerðum og nefnir m.a. hugmyndir sem komið hafa upp innan verkalýðshreyfingarinnar um að ríkisvaldið lækki virðisaukaskatt og einnig að arðgreiðslur bank- anna til ríkisins verði notaðar til að létta byrði launafólks. Spurð- ur um áherslur í komandi kjaraviðræðum segir hann að megin- krafan verði á krónutöluhækkanir launa. Menn geri sér hins vegar vel grein fyrir því að samfélagið sé að koma út úr mjög erf- iðu tveggja ára tímabili heimsfaraldursins. ,,Við þurfum líka að sækja á ríkisvaldið,“ segir hann og bendir m.a. á að lækka þurfi skatta og létta byrðar vegna hækkunar á eldsneytisverði nú þeg- ar bensínverðið sé að nálgast 300 kr. Um endurnýjun samninga segir Guðmundur að ríkisvaldið verði að koma þar töluvert að málum og m.a. sjá til þess að vextir lækki. „Ég er ekki að sjá fyrir mér að við séum að fara að standa hér mikið á torgum með mótmælaspjöld og heimta launahækkun þegar við erum að koma út úr svona slæmu tveggja ára stoppi. En ferðaþjónustan er að fara af stað, þar eru menn bjartsýnir á sumarið og þegar hún fer í gang verður meiri bjartsýni í samfélaginu. Ég er bjartsýnn á að við náum fram einhverjum kjarabótum.“ Spurður hvernig hann vilji leysa úr deilunum á skrifstofu Eflingar segist hann ekki hafa neinar áhyggjur af því. „Ég hef aldrei verið í vandræðum með sam- skipti við fólk og ef ég kemst þarna að, þá mun ég hafa þetta eins og er hjá VR að framkvæmdastjórinn stjórni fólkinu á gólf- inu. Ég mun ekki stjórna fólkinu á skrifstofunni frá degi til dags.“ Guðmundur Jónatan Baldursson Fá kröfurnar beint úr grasrótinni Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.