Morgunblaðið - 10.02.2022, Page 32

Morgunblaðið - 10.02.2022, Page 32
32 FRÉTTIR Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2022 Mikill meirihluti Evrópubúa, meira en 60 prósent fólks, vill að ríki þeirra komi Úkraínu til hjálpar ef Rússar ráðast inn í landið eins og margir eiga von á. Þetta er niður- staða viðamikillar könnunar sem stofnunin European Council on Foreign Relations lét á dögunum gera í sjö löndum Evrópu. For- svarsmenn stofnunarinnar segja að niðurstaðan bendi til þess að al- menningur í Evrópu sé mun sam- hentari og ákveðnari í andstöðu við Rússa en búist hafi verið við í ljósi mikilla umræðna um ólíkar skoð- anir vestrænna stjórnvalda á því hvernig bregðast eigi við komi til innrásar. Könnunin leiddi í ljós að fólk tel- ur almennt að Rússar muni láta til skarar skríða gegn Úkraínu á þessu ári. Meirihlutinn segir að innrás sé ekki einkamál Rússa og Úkraínu- manna heldur verði Evrópuríkin ásamt Atlantshafsbandalaginu (NATO) og Evrópusambandinu að koma Úkraínu til hjálpar. Nokkur skoðanamunur er þó meðal fólks um það hvaða ógnir og áhætta fylgi stöðu mála og hve miklar fórnir Evrópulöndin eigi að færa til að hjálpa Úkraínu. Eru Pól- verjar, Rúmenar og Svíar mun reiðubúnari til að færa fórnir í þágu Úkraínu en Frakkar og Þjóðverjar. „Það er að verða vakning í öryggis- málum í Evrópu,“ segir Mark Leonard, framkvæmdastjóri leið- togaráðs ESB, um niðurstöðurnar. Það sé misskilningur að Evrópu- búar séu andvaralausir gagnvart stöðunni sem uppi er og trúi því að friður séu tryggður í álfunni. AFP Spenna Baerbock, utanríkis- ráðherra Þjóðverja, í Úkraínu. Vilja verja Úkra- ínu gegn Rússum - Meiri samhljómur en búist var við Yoweri Muse- veni, forseti Úg- anda, hefur falið Abel Kandiho, fyrrverandi yfir- manni leyniþjón- ustu hersins, að stjórna ríkislög- reglunni. Hann hefur að undan- förnu stýrt að- gerðum í Suður-Súdan. Kandiho hefur verið ásakaður um að bera ábyrgð á pyntingum sem pólitískir andstæðingar stjórnvalda hafa sætt. Í desember var hann settur á bannlista bandaríska fjármálaráðu- neytisins vegna þessara ásakana. Traustar heimildir eru fyrir því að Kandiho hafi sjálfur tekið þátt í að beita handtekna menn hrottaskap. Stjórnvöld í Úganda hafa markvisst reynt að bæla niður alla pólitíska gagnrýni í landinu og hefur það m.a. bitnað á blaðamönnum og lög- fræðingum sem sinna mannrétt- indum. ÚGANDA Hrotti settur yfir lögreglu landsins Abel Kandiho Ekki er hægt að fullyrða að kín- verska tennis- stjarnan heims- fræga Peng Shuai sé frjáls ferða sinna, geti sagt hug sinn og búi við öryggi. Þetta segir blaðamaður sem ræddi við hana í Peking á dögunum að viðstöddum kínverskum túlki. Að sögn túlksins neitaði Shuai að hafa kvartað yfir kynferðisofbeldi háttsetts kínversks embættismanns á samfélagsmiðlinum Weibo í nóv- ember síðastliðnum. Málið væri einn stór misskilningur. Færslunni á Weibo var eytt og Shuai hvarf sjónum næstu vikurnar. Ljóst er að stjórnvöldum í Kína er mjög um- hugað um að kveða málið niður og koma í veg fyrir að það skyggi á Vetrarólympíuleikana sem nú fara fram í höfuðborginni. KÍNA Ekki öruggt að Shuai sé frjáls Peng Shuai Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Vísindamenn í Bretlandi tilkynntu í gær að þeir hefðu náð að slá fyrri met í orkuframleiðslu með kjarna- samruna, og sögðu þeir að það væru merk tímamót í leitinni að ódýrum og grænum orkugjafa í framtíðinni. Kjarnasamruni er sama ferli og sólin notar til þess að framleiða orku, en það felur í sér að kjarnar tveggja frumefna renna saman og mynda nýtt frumefni. Því fylgir mik- ill hiti, geislun og ljós. Til þessa hefur ferlið aðallega ver- ið notað í vetnissprengjum, en vís- indamenn hafa lengi bundið vonir við að hægt yrði að beisla orkuna sem fylgir samrunanum á friðsamari hátt, sér í lagi í ljósi þess að mun „öruggara“ er að láta atómkjarna renna saman frekar en að kljúfa þá líkt og gert er í öllum kjarnorku- verum í dag, þar sem samruninn getur ekki leitt af sér keðjuverkun og farið úr böndunum. Metið var sett á rannsóknarstof- unni Joint Europen Torus, JET, sem er í nágrenni Oxford, og náðu vísindamennirnir að mynda 59 megajúl af orku í fimm sekúndur. Er það tvöfalt meira en náðist að fram- leiða árið 1997. Slík orkuframleiðsla þykir ekki mikil í stóra samhenginu, en hún dugar til þess að sjóða vatn í um 60 tekötlum, eða til þess að knýja 35.000 heimili í fimm sekúndur. Engu að síður þykir tilraunin vera merki um þá möguleika sem felist til framtíðar fyrir orkuframleiðslu með kjarnasamruna. Orkuver tilbúið árið 2050? Vélin sem framleiddi orkuna er í laginu eins og kleinuhringur, og er sú sem JET á í fórum sínum sú stærsta sem byggð hefur verið til þessa. Hins vegar er nú í smíðum annað slíkt „samrunaver“ í suður- hluta Frakklands, sem kallast ITER. ITER-verið mun byggja að miklu leyti á þeim niðurstöðum sem JET- tilraunirnar hafa skilað, en það á að vera fullklárað árið 2025. Standa vonir til þess að það ver muni geta haldið kjarnasamrunanum gangandi í rúmlega 300 sekúndur, ef ekki lengur. Joe Milnes, yfirmaður JET- versins, sagði að ITER-verið sé um 80% tilbúið, og að þá muni starfsemi JET færast þangað. Segir Milnes að þá sé líklegt að samhliða þeim til- raunum sem ITER muni fram- kvæma verði hægt að hanna raf- orkuver sem byggi á tækninni. „Ég held að við séum komin hálfa leiðina þangað,“ sagði Milnes, og áætlaði hann að frumgerð að slíku orkuveri gæti verið tilbúin árið 2050. Vegvísir að orkugjafa framtíðar - Hópur vísindamanna í Bretlandi segist hafa náð merku skrefi fram á við í þróun kjarnasamruna - Mynduðu 59 megajúl af orku í fimm sekúndur Morgunblaðið/Hari Kjarnasamruni Sólin er knúin áfram af kjarnasamruna. Svíar geta nú strokið um frjálst höfuð á ný eftir að nær allar tak- markanir vegna kórónuveirunnar voru felldar úr gildi í gær. Meta stjórnvöld stöðu faraldursins svo eftir að ómíkron-afbrigðið varð ríkjandi að ekki sé lengur ástæða til sama viðbúnaðar og áður. Nú getur fólk til dæmis farið á knæpur og veitingastaði að vild án þess að sýna bólusetningarskírteini og ekki er krafist sérstakrar fjarlægðar á milli fólks. Var því fagnað á mið- nætti í biðröðinni við næturklúbb- inn KB í Malmö eins og myndin sýn- ir. Sömu afléttingar gilda um alla aðra mannfundi í landinu, svo sem á íþróttaviðburðum, leikhúsum og heilsuræktarstöðvum. Stefnt er að endanlegri afléttingu allra tak- markana 1. apríl næstkomandi. Svíar fagna afnámi flestra takmarkana vegna kórónuveirunnar Mikill léttir að fá frelsið aftur AFP 8.990 6.990 5.490 5.490 2.990 KASTARADAGAR RAFVÖRUMARKAÐURINN Við Fellsmúla Reykjavík / Sími: 585 2888 / www.rafmark.is Opið virka daga kl. 09 - 18 Laugardaga kl. 10 - 16 Sunnudaga kl. 12 - 16 ALLT AÐ 70% AFSLÁTT UR AF KÖSTUR UM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.