Morgunblaðið - 10.02.2022, Síða 40

Morgunblaðið - 10.02.2022, Síða 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2022 Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is „Ég var svolítið bara snemma á lest- ina. Ég byrja á samfélagsmiðlum upp úr 2015,“ segir áhrifavaldurinn og fatahönnuðurinn Camilla Rut í sam- tali við Sigga Gunnars og Friðrik Ómar, sem er með Sigga í þættinum í febrúarmánuði. Hún fór þar djúpt í saumana á því hvernig er að vera áhrifavaldur á samfélagsmiðlum og hvaða mörk hún hefur þurft að draga í sambandi við starfið sem er hennar aðalatvinna. „Ég fór inn á samfélagsmiðlana af því að mér finnst gaman að fylgjast með. Mér finnst skemmtilegt að þú getur farið inn í annarra manna heim og séð svolítið ólíkar upplifanir og upplifað í gegnum annað fólk eitthvað sem þú myndir annars aldrei sjá. Þannig að ég fer eitthvað að fikta við þetta og fer að búa til eitthvert efni og svo fór boltinn að rúlla. Ég ætlaði aldrei að fara að vinna við þetta eða að þetta myndi marka svona líf mitt á þann hátt sem það hefur gert,“ segir Camilla einlæg í þættinum en yfir 30 þúsund manns fylgjast með henni á Instagram þar sem hún heitir „ca- millarut“. Klessti á vegg Hún viðurkennir að hún hafi klesst á vegg hvað varðar starfið sem var farið að taka verulega mikið af tíma hennar frá fjölskyldunni. „Maður þurfti einhvern veginn að ná jafnvægi,“ segir Camilla og bendir á að fólk sem vinnur að sjónvarps- þáttum taki ákveðinn tíma í tökur. „Svo fer það bara í klipp og vinnslu og svo fer það í sýningu. Mér þykir það ekki eðlilegt fyrir mannskepnuna að vera í tökum allan sólarhringinn, alltaf allan ársins hring. Ég fann það alveg að ég klessti á vegginn að því leytinu til,“ lýsir Camilla. „Lífið mitt snerist í kringum þetta. Ég var alltaf að hugsa næsta skref. Hverju er ég að fara að pósta? Hvað er ég að fara að gera? Hvað er ég að fara að búa til? Það var veggurinn þegar strák- urinn minn segir við mig: Æ, mamma ekki fara í símann núna,“ segir hún. Ákveðinn vinnutími „Þetta var farið að yfirtaka líf mitt að þessu leyti. Af því að maður á að vera að sýna frá lífinu sínu,“ segir Ca- milla sem hefur nú sett sér þær regl- ur að hún leggur frá sér símann þeg- ar synir hennar tveir, Gabríel og Óliver, koma heim. „Ég er bara með minn vinnutíma. Ég reyni að leggja símann frá mér, sérstaklega á milli 4 og 8. Það er við- miðið,“ lýsir Camilla. Hún lýsir því skilmerkilega hvern- ig er að vera í samstarfi með fyr- irtækjum og hvernig hún velur kost- unaraðila með sér í samstarf en samstarfsaðilar eru helsta tekjulind áhrifavalda. Sagði hún það afar misjafnt hvernig áhrifavaldar nálgast efnisgerð fyrir samstarfsaðila. „Ég vel til dæmis samstarfsaðilana mína inn til mín út frá því hvað ég fíla og hvernig ég tengi það inn í mitt dag- lega amstur. Ég er ekki mikið fyrir það að vera að taka einhverjum verk- efnum og búa til efni í kringum það. Ég bara get það ekki, ég er ekki þann- ig efnisgerðarkona,“ segir Camilla sem segir að „sponsað“ efni, þ.e.a.s. efni sem er gert í samstarfi og greitt er fyrir, komi oftast fram í story hjá henni, en hún er einnig farin að hafa mjög gaman af „reels“ á Instagram – en það er nokkuð nýtilkominn hluti af samfélagsmiðlinum, þar sem hægt er að deila myndböndum og minnir nokkuð á mest ört stækkandi sam- félagsmiðil nútímans, TikTok. Sjálf segir Camilla að hún sé þó ekki farin að tengjast TikTok sem virðist vinsælastur meðal yngsta ald- urshópsins en Camilla talaði um nýja kynslóð af fólki sem eru snillingar í að búa til skemmtilegt efni (e. content creators). „Þessi nýja kynslóð er að koma. Þessi TikTok-kynslóð. Ég er alveg ung en ég finn alveg að ég næ ekki þessum dampi en ég reyni alveg,“ segir Camilla sem er 27 ára. Hún segist ekki vera með rosalega útreiknað efni, þrátt fyrir að hún leggi mjög mikla vinnu í það sem hún deilir á samfélagsmiðlum. „Stundum er heimilið mitt á dag- inn bara eins og upptökustúdíó. Af því að ég er með flæðandi hugmyndir og ég er að gera alls konar hvort sem það er kostað eða ekki. Ég er bara að búa til efni,“ segir Camilla sem vinn- ur þó með ákveðna litapallettu á in- stagram-síðu sinni sem hún segist vera mjög stolt af. „Ég legg mjög mikla vinnu í það,“ segir Camilla sem kveðst hafa mjög gaman af þeirri vinnu. „Maður sér hluti svolítið „visúalt“,“ segir hún enn fremur, en hún er núna að vinna með mjúka jarðliti. Þetta er svona aðeins mýkra, svona heimilislegra,“ sagði hún. „Þetta var farið að yfir- taka líf mitt“ Mun meiri vinna fer í að vera áhrifavaldur á samfélagsmiðlum en margir halda. Þetta bendir Camilla Rut, einn vinsælasti íslenski áhrifavaldurinn á Instagram, á í Síðdegisþætt- inum en hún sagði frá starfinu á K100. Starf Camilla ræddi um starf áhrifavalda á K100 og benti á mikilvægi jafnvægis í starfinu. Stílhrein Camilla leggur mikla vinnu í instagram-síðu sína þar sem ákveðin litapalletta ræður ríkjum. Instagram/@camillarut Reykjavíkurdætur keppa í seinni undankeppni Söngvakeppninnar þann 5. mars næstkomandi og eru þær gríðarlega spenntar fyrir þátt- töku sinni í keppninni sem hefur ver- ið á döfinni síðustu fjögur árin. Þetta staðfesta Ragga Hólm og Steiney Skúladóttir sem ræddu við morgun- þáttinn Ísland vaknar í gær. Sögðu þær að hljómsveitin, sem samanstendur af átta liðskonum, hafi síðastliðin ár einblínt mest á er- lendan markað og fögnuðu þær því að „koma aftur til Íslands“. „Af því að það eru svo margir sem halda að við séum bara eitthvert „act“ eins og Silvia Nótt. En við er- um búnar að gera svo margt síðan 2015 þegar fólk sá okkur í Vikunni hjá Gísla Marteini og fékk einhverja hugmynd um hverjar við værum og fékk sjokk,“ segir Steiney „Við erum búnar að vera gera mjög mikið síðan þá þannig að við erum mjög spenntar að sýna ykkur hvað við erum orðnar og hvað við kunnum núna,“ segir Steiney. Segjast þær vilja breyta reglum Eurovision ef þær komast alla leið til Ítalíu sem framlag Íslands en reglur Eurovision gera aðeins ráð fyrir sex keppendum á sviði. Þær eru eins og áður segir átta. Ef til þess kemur stefna þær þó á að hafa tvær úr hópnum með á skjám í atriðinu. Flottar Reykjavíkurdætur eru til í slaginn í Söngvakeppninni. Reykjavíkurdætur vilja breyta Eurovision Flytja „Tökum af stað“ í undankeppninni Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes www.gaeludyr.is Með kaupum á 100 lítra+ fiskabúrum fylgir afsláttarkort sem veitir 20% afslátt af öllu í fiskadeild í 30 daga

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.