Morgunblaðið - 10.02.2022, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 10.02.2022, Qupperneq 42
42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2022 ✝ Áslaug Ein- arsdóttir hús- móðir var fædd á Austurgötu 6 í Hafnarfirði 1. apr- íl 1926. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Sólvangi Hafnarfirði 16. janúar 2022. Foreldrar henn- ar voru Helga Þorkelsdóttir, hús- móðir í Hafnarfirði, f. 30. des- ember 1894, d. 25. október 1977, og Einar Einarsson, klæðskeri í Hafnarfirði, f. 13. desember 1893, d. 16. desem- ber 1976. Systkini Áslaugar eru: Guð- ríður, f. 16. nóvember 1916, d. 29. maí 1937; Jóhannes, f. 10. ágúst 1917, d. 25. nóvember 1995; Guðbjörg, f. 30. apríl 1920, d. 19. febrúar 1999; Gróa, f. 9. apríl 1922, d. 9. maí 1922; Ellen, f. 5. júlí 1923, d. 12. mars 2016; Anna, f. 24. mars 1925, d. 27. ágúst 2007; Sigríður, f. 28. febrúar 1936, og María, f. 13. nóvember 1938, d. 2. júlí 2017, og upp- eldissystir þeirra Unnur Jó- hannesdóttir, f. 16. apríl 1913, d. 1. ágúst 1997. Áslaug giftist þann 11. júní ur Kristbjörgu Hólmfríði Sig- urgísladóttur, f. 21. febrúar 1975, börn þeirra eru Sandra Dögg, f. 7. desember 2005, og Gísli Már, f. 24. nóvember 2015, Árni Heimir, f. 21. des- ember 1981, og Helga, f. 7. desember 1985, sambýlis- maður hennar er Björn Stein- ar Árnason, f. 15. mars 1981, synir þeirra eru Þorvarður Einar, f. 15. apríl 2020, og drengur fæddur 27. janúar 2022. 5) Þorvarður Árni, f. 6. nóvember 1964, kvæntur Birnu Benediktsdóttur, f. 31. janúar 1964, börn hans eru Björn, f. 17. júní 1991, Max Úlfur, f. 26. mars 1996, í sam- búð með Laufeyju Ösp Krist- insdóttur, f. 20. janúar 1996, og Ólafur Árni, f. 18. nóv- ember 1998. Áslaug ólst upp á Austur- götu 6 í Hafnarfirði í níu systkina hópi. Hún gekk í Barnaskóla Hafnarfjarðar og lauk barnaskólaprófi þaðan. Á yngri árum vann Áslaug á klæðskeraverkstæði föður síns, Einars Einarssonar í Hafnar- firði. Áslaug og Þorvarður bjuggu allan sinn búskap í Hafnarfirði, lengst af á Álfa- skeiði 71. Áslaug og Þorvarð- ur hófu störf í ullariðnaði og stofnuðu fyrirtækið Icesheep árið 1976 og unnu við það þar til þau létu af störfum. Útför Áslaugar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 10. febrúar 2022, og hefst athöfn- in kl. 13. 1949 Þorvarði Magnússyni, f. 19. maí 1927, d. 26. sept. 2011, bygg- ingarmeistara frá Hafnarfirði. For- eldrar hans voru Þóra Þorvarð- ardóttir, húsmóðir í Hafnarfirði og Krýsuvík, f. 4. september 1884, d. 7. júní 1957, og Magnús Ólafsson, bóndi í Krýsuvík, f. 9. september 1872, d. 10. október 1950. Börn Þorvarðar og Áslaugar eru: 1) Sigurður, f. 14. desem- ber 1950, kvæntur Vigdísi Vic- torsdóttur, f. 15. september 1950, og eiga þau tvö börn, Victor Þór, f. 20. mars 1969, og Áslaugu, f. 22. febrúar 1977. Hún er í sambúð með Sigurjóni Þór Sigurjónssyni og eru börn þeirra Sigurður Orri, f. 25. apríl 2013, og Jökull Þór, f. 17. maí 2019, börn Sig- urjóns eru Brynjar Már, f. 26. maí 2002, og Karítas Dís, f. 9. janúar 2004. 2) Guðríður, f. 18. desember 1952. 3) Óskírður drengur, f. 3. mars 1955, d. 3. apríl 1955. 4) Þóra, f. 8. júní 1957, börn hennar eru Ólafur Þór, f. 22. janúar 1976, kvænt- Elsku mamma, nú þegar komið er að kveðjustund hellast minningarnar fram í hugann, þú sem varst okkar stoð og stytta, varst alltaf til staðar þegar á reyndi. Þú og pabbi sköpuðuð okkur systkinunum tryggt og hlýlegt heimili og eru mínar sterkustu minningar frá Hvaleyrarbraut- inni og Erluhrauninu. Í minn- ingunni finnst mér ég hafa tek- ið þátt í að byggja þessi hús með þér og pabba. Ég minnist þess þegar við mæðginin unn- um við handlang, mótaþrif og annað það sem til féll við bygg- ingarnar. Þá lifir það sterkt í minningunni hvað þú ræktaðir vel samskiptin við stórfjölskyld- una og gættir þess að við systk- inin nytum hennar. Þú sem komst úr níu systkina hópi frá Austurgötunni varst vakandi og sofandi yfir velferð þeirra og eru veislur á Austurgötunni undir stjórn ömmu Helgu, Möggu og Unnu sterk æsku- minning, þá voru veislurnar þínar þar, sem þú hélst fyrir fjölskylduna, svo minnisstæðar, sem og saumaklúbburinn með frænkunum af Hamrinum, dansæfingarnar með frændfólk- inu að sunnan, þetta eru svo sterkar minningar. Þú lagðir mikið upp úr því að við værum Hafnfirðingar og voru ófáar sögurnar sem þú sagðir frá Austurgötunni, þegar þú varst að alast upp, af ein- stökum atburðum, vinum og ná- grönnum, frá Auðuni á móti og Eyjólfi frá Dröngum sem drukku kandískaffi hjá Möggu á hverjum morgni og Jóni Matt, kaupmanni og afa, en eft- ir að hafa borðað hádegismat- inn fengu þeir sér hádegislúr á dívönunum í betri stofunni. Þú talaðir um hvað margt hafði breyst þegar stríðið skall á, þú minntist þess að á ferm- ingardaginn þinn, þegar þú komst út úr Hafnarfjarðar- kirkju, blöstu við hermenn í fullum skrúða. Ég er svo heppinn að geta rifjað upp ánægjustundir með ykkur pabba, eftir að við Dísa stofnuðum heimili, þar nutum við aðstoðar ykkar, þú passaðir fyrir okkur Victor Þór meðan við vorum í námi eða vinnu, eins eru heimsóknir ykkar til okkar þegar við bjuggum í Hor- sens eftirminnilegar, ferðirnar um Danmörku jólin 1974, af- mælisveislan og skírn Áslaugar 1977 eða þegar við heimsóttum Áslaugu þegar hún var við nám í Óðinsvéum. Þá er það mjög sterkt í minningunni hvað gróður og garðrækt skiptu þig miklu máli, tímarnir í kartöflugarðinum hennar ömmu Helgu í Kapla- krika, blómaræktin í vetrar- garðinum á Álfaskeiðinu að ógleymdri skógræktinni. Undir það síðasta vildir þú hvergi vera nema á Álfaskeið- inu, en heilsan gaf sig og þurft- ir þú að þiggja aðstoð frábærra heilbrigðisstarfsmanna á Vífils- stöðum og nú síðast á Sólvangi, sem við þökkum fyrir. Hvíl í friði elsku mamma. Þinn sonur Sigurður. Elsku mamma – nú þegar við kveðjum þig birtast minningar um góða daga sem við höfum átt saman, frásagnir frá lífs- hlaupi þínu og uppvextinum í Hafnarfirði. Þið pabbi voruð mér alla tíð miklir vinir og nutum við sam- vista hér heima og erlendis. Við ferðuðumst saman bæði innan- lands og utan og nýttum vel þann tíma þegar ég dvaldi í Skotlandi við vinnu hjá Scottish Natural Heritage, til að ferðast um Bretland. Þar kynntust þið einnig vinum mínum, góðu fólki sem hefur heimsótt okkur hing- að. Ég minnist margra ferða um landið þar sem við nutum þess að virða fyrir okkur nátt- úru og menningu. Þið pabbi höfðuð mikinn áhuga á og ánægju af að skoða Síldar- minjasafnið á Siglufirði og Stríðsminjasafnið á Reyðarfirði. Eftir að pabbi féll frá héldum við áfram ferðum um landið og var það mér afar dýrmætt. Eitt sinn heimsóttum við vinafólk í sumarbústað á Akureyri og nýttum þá tækifærið til að skoða Hælið, setur um sögu berkla á Íslandi. Heimsóknin þangað rifjaði upp lífið á Aust- urgötunni þar sem Guðríður systir þín lést ung að árum vegna berklaplágunnar. Við fór- um í eina ferð til útlanda eftir að pabbi féll frá, til strand- bæjar á suðurströnd Englands. Við skoðuðum þar almennings- garða og nutum góða veðursins í garðinum hjá vinafólki okkar. Síðasta sumarferðin okkar inn- anlands var einnig mjög ánægjuleg, við dvöldum í Dala- sýslu og fórum í skoðunarferðir um nágrennið og sunnanverða Vestfirði. Við höfðum gaman af því að fara í skemmri og lengri bíltúra og síðast í desember skoðuðum við jólaljósadýrðina í Reykjavík. Allar þessar ferðir eru mér ógleymanlegar og munu ylja mér um hjartarætur til framtíðar. Elsku mamma, það var þér mikils virði að fjölskyldan væri samhent og settuð þið pabbi okkur ætíð í forgang. Þú hafðir mikla ánægju af því að fá alla fjölskylduna heim og halda okk- ur veislu, helst sem oftast. Ég naut þeirra forréttinda að fá að vera með í undirbúningi, m.a. í innkaupunum, sem var ævintýri út af fyrir sig. Oft kom ég með vini heim til ykkar og alltaf var þeim vel tekið. Takk fyrir allt. Guðríður (Gurrý). Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig og lýstu mér um ævistig. Ég reika oft á rangri leið, sú rétta virðist aldrei greið. Ég geri margt, sem miður fer, og man svo sjaldan eftir þér. Sú ein er bæn í brjósti mér, ég betur kunni þjóna þér, því veit mér feta veginn þinn, að verðir þú æ Drottinn minn. (Pétur Þórarinsson) Elsku mamma, í dag kveð ég þig með trega og sorg í hjarta. Ég hef alltaf trúað því að það séu öll litlu augnablikin í lífinu, sem færa okkur mestu gleðina, því þau geyma flestar minning- arnar. Við áttum oft góðar stundir saman, þar sem við ræddum um daglegt amstur, gleði og sorg. Þegar ég var lítil stelpa, læddist ég oft í fata- skápinn þinn til að dást að kjól- unum fínu, sem þú hafðir saum- að í öllum regnbogans litum, með glitrandi steinum og pallí- ettum. Mikið hlakkaði ég þá til að verða stór og geta klæðst svona fínum kjólum. Sú ósk mín rættist svo sannarlega, því í dag á ég fleiri kjóla en skápa- plássið leyfir! Við höfðum svo gaman af að horfa á samkvæmisdansa í sjón- varpinu, ræddum þá um kjólana og sniðin og hreyfingarnar í dansinum, einnig horfðum við saman á sjónvarpsþætti um garðrækt, íslenska sem breska, því þú hafðir áhuga á blóma- ræktun og varst svo sannarlega með græna fingur. Þú ræktaðir ekki bara garð- inn þinn, heldur sáðir þú fyrir sumarblómum, til þess að skreyta með mörg leiði látinna ættingja og vina. Þetta gerðir þú öll árin, frá því að litli bróðir dó og fram á áttræðisaldur. Þegar ég fæddist hafði Þóra amma dáið kvöldið áður. Núna er staðan ekki ósvipuð, því nú er von á nýju lífi, hjá Helgu, á allra næstu dögum. Þú sagðir alltaf að sólargeislarnir í lífi þínu væru börnin og andlit þitt ljómaði þegar lítil börn komu í heimsókn. Ég er svo stolt og þakklát fyrir að hafa átt þig fyrir móð- ur. Þú kenndir mér svo margt, meðal annars Faðir vorið, sem var eitt það síðasta sem við fór- um með saman, áður en þú kvaddir þennan heim. Þín dóttir, Þóra. Elskuleg tengdamóðir mín Áslaug Einarsdóttir hefur kvatt okkur eftir langa og viðburða- ríka ævi. Við vorum samferða síðustu 53 árin. Mér er minn- isstætt þegar við hittumst fyrst á Erluhrauninu, þar var tekið vel á móti verðandi tengdadótt- ur. Áslaug hugsaði alltaf fyrst og fremst um þarfir annarra langt umfram sínar eigin, henn- ar heitasta ósk var að fjölskyld- unni liði vel. Þess naut ég í hví- vetna, hún passaði til dæmis Victor Þór meðan ég var í skól- anum. Síðar átti hún eftir að verða minn lærimeistari í saumaskap bæði við að sauma á sjálfa mig og börnin, leiðbeindi mér af sinni alkunnu færni og þolinmæði. Saumaskapurinn var henni í blóð borinn enda unnið með föður sínum á klæð- skeraverkstæðinu sem staðsett var á neðri hæðinni á Aust- urgötu 6. Tengdamóður minni var margt til lista lagt, hún málaði, saumaði út og prjónaði af mikilli list. Um 1970 fluttum við saman til Noregs þegar mikið atvinnuleysi var á Íslandi og þar reyndum við að veita hvor annarri stuðning meðan feðgarnir unnu við byggingar- vinnu. Okkur fannst báðum gott að flytja aftur heim eftir nokkra mánuði, þar voru ræt- urnar og fjölskyldan. Alltaf fannst henni gaman að heim- sækja okkur til Danmerkur þegar við vorum búsett þar og sérstaklega er mér minnisstætt þegar þau komu og voru við- stödd skírn Áslaugar dóttur okkar og nöfnu hennar. Við ferðuðumst líka innanlands og ekki síst fannst henni gaman að dvelja hjá okkur í sumarbú- staðnum. Ég vona að ég hafi getað launað henni hluta allrar þeirrar góðvildar, sem hún veitti minni fjölskyldu, með að- hlynningu síðustu æviárin. Hún bjó á heimili sínu fram í ágúst síðastliðinn, þar naut hún dyggrar aðstoðar Guðríðar dóttur sinnar í mörg ár. Sig- urður sonur hennar og Victor Þór voru líka með daglegt innlit sem hún mat mikils og gerði þetta henni mögulegt að vera heima svona lengi. Allir voru tilbúnir að styðja hana eftir þörfum og bestu getu. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði sunnudaginn 16. janúar. Aðstandendur þakka góðvild í hennar garð. Elsku Áslaug mín, nú er komið að kveðjustund. Blessuð sé minning þín. Þín tengdadóttir, Vigdís. Í dag verður elsku Áslaug amma jarðsungin frá Hafnar- fjarðarkirkju. Hún lést á Sól- vangi 16. janúar sl. 95 ára að aldri. Amma fæddist á Austurgötu 6 í Hafnarfirði 1. apríl 1926. Foreldrar hennar voru Einar Einarsson klæðskerameistari og Helga Þorkelsdóttir, hús- freyja og straukona. Saman stofnuðu þau heimili á Austurgötu í Hafnarfirði og áttu 9 börn og var amma sjö- unda í röðinni. Á Austurgötunni voru langafi og langamma hvort með sitt fyrirtæki. Áslaug amma rak svo fyrirtæki með foreldrum sínum síðustu árin á Austurgötu. Amma var alla tíð mikill Hafnfirðingur og bjó á Austur- götunni þar til hún hóf búskap með Þorvarði afa á Hringbraut 54. Í kjölfarið teiknuðu þau og byggðu saman eigið hús á Hval- eyrarbraut 9, Erluhrauni 4 og Álfaskeiði 71, auk þess sem þau byggðu sér sumarbústað í Höfnunum. Amma mundi tím- ana tvenna og rifjaði oft upp þegar herinn kom til Hafnar- fjarðar og hvernig það var að alast upp á Austurgötunni og sagði mér frá daglegu lífi í miðbæ Hafnarfjarðar. Ein fyrsta minning ömmu var 23. júlí 1929, þegar jarðskjálfti varð í Brennisteinsfjöllum og minntist hún þess oft hve stór skjálftinn var. Amma og afi höfðu gaman af því að ferðast innanlands og er- lendis. Oft komu þau og heim- sóttu mig ásamt Gurrý, þegar ég bjó í Danmörku. Sérstaklega er það mér minnisstætt, þegar amma og afi tóku mig úr ung- lingavinnunni og fékk ég að fara vikuferð hringinn umhverf- is Ísland ásamt Gurrý, Árna og erlendum gestum. Frábært var að gista sum- arlangt á Álfaskeiðinu, þegar ég bjó erlendis sem barn. Fyrsta minning mín er örugg- lega, þar sem ég er að leika mér í sandkassa á Álfaskeiðinu, þegar ég var í pössun á meðan mamma og pabbi voru að vinna. Amma lauk starfsævinni á eigin saumastofu, sem hún rak ásamt afa. Amma var góður málari og hafði gaman af hannyrðum. Amma var mörg ár í stórum saumaklúbbi sem hittist einu sinni í viku. Amma var ætíð lífsglöð, fróð- leiksfús og var alltaf gaman að heimsækja hana og ræða um liðna tíð. Mun sakna þess að geta ekki lengur komið við og dýft kringlu í tebolla á Álfa- skeiðinu, eins og ég hef gert svo lengi sem ég man eftir mér. Amma hvatti mig ætíð til góðra verka og spurði oft hvort það væri eitthvað verið að byggja í Hafnarfirði. Elsku amma, þakka þér fyrir samfylgdina og allar góðu stundirnar. Mun ætíð geyma minningu þína í hjarta mínu. Victor Þór Sigurðsson. Ég man þegar ég kom í heimsókn til ömmu og hún spurði mig hvað ég væri að læra í skólanum. Ég svaraði því til að ég væri að læra margföld- unartöfluna og að mér gengi frekar erfiðlega að læra hana utan bókar. Amma náði þá í rúðustrikað blað og sagði mér að skrifa hana alla niður frá 1 sinni 10 upp í 10 sinnum 10, „þannig lærir maður,“ sagði hún. En á meðan hannaði hún textílefni á rúðustrikuðu blaði. Það var nefnilega málið að heimilið hennar ömmu, sem við systkinin vorum ávallt velkomin á, var líka vinnustaður afa og ömmu. En amma var ekki bara saumakona sem hannaði sitt eigið textílefni, heldur var henni svo margt annað til lista lagt, t.d. var hún einstaklega flink við að mála fugla. Hún hannaði sín eigin heimili sem afi síðar byggði, heil þrjú ein- býlishús, og amma tók líka þátt í útrásinni áður en það varð að þjóðaríþrótt. Elsku amma, það var svo gaman að fylgjast með rekstrinum hennar og afa. Að sjá hana hanna, sauma og af- greiða lopapeysurnar. Og mér fannst alltaf fyndið þegar ég sá reikning frá þeim til kaupenda í Miami, Flórída. Að peysurnar þeirra væru svo eftirsóttar að þær enduðu alla leið í Miami var sönnun þess, hvað fólk lagði mikið á sig til að eignast þessar peysur. Eitt af því ranglæti, sem ömmu fannst hafa verið beitt, var að hafa ekki fengið að halda skólagöngu sinni áfram eftir barnaskóla, en það er nefnilega kaldhæðni örlaganna. Ég fór alla leið í skólagöngu minni, lærði MSc í alþjóðaviðskiptum en ég hef ekki tærnar sem amma hafði hælana. Amma var svo mikill bógur í lífinu. Amma var nefnilega ekki bara amma mín, heldur líka trúnaðarvinur minn. Henni fannst alltaf mikilvægt að fá að tala. Að fá að rausa um hlutina, eins og hún sagði. En hún amma hikaði ekki við að and- mæla mér og lýsa sinni afstöðu til hlutanna. Mér er eftirminni- legt að í bankahruninu, þá ætl- aði ég að vera sniðugur og kaupa mér áskrift að Lögbirt- ingablaðinu til að kaupa íbúð á uppboði fyrir lítið. Þegar ég sagði ömmu frá þessu ráða- bruggi mínu sagði hún: „Árni minn, svona lagað gerum við ekki. Við högnumst ekki á óför- um annarra.“ Þetta sýnir hvað það er mikilvægt að eiga ein- hvern að sem maður getur bor- ið hluti undir, skynsamlega jafnt sem óskynsamlega hluti. Amma vildi mér líka alltaf það besta. Hún sýndi staminu mínu oft mikinn skilning og áhuga. Þegar ég stamaði átti amma til að stoppa mig í orðinu og segja „mundu að anda“. Ein mín mesta gæfa er að hafa átt hana ömmu sem leiðsögumann mín fyrstu 40 ár á þessari lífsgöngu. Amma var svo lánsöm, að fyrir utan þessa fáu daga sem heimsóknarbann var á Vífils- stöðum og Sólvangi, þar sem hún dvaldi í lokin, held ég að hún hafi ábyggilega ekki eytt heilum degi án fjölskyldu sinn- ar eða með afa. Amma var þeirrar skoðunar að fjölskyldur ættu að vera samheldnar og þær ættu að standa vel saman. Ég hélt að ég yrði betur und- ir það búinn þegar þú færir yfir móðuna miklu. En þegar manni þykir vænt um einhvern, þá er tíminn sem manni er gefinn með þeim aldrei nægur. Þangað til næst, elsku amma, að eilífu þinn Árni Heimir Ingimundarson. Áslaug amma hefur alltaf leikið stórt hlutverk í mínu lífi og á ég henni margt að þakka. Aldrei fór ég í leikskóla, frí- stund eða íþróttir. Í staðinn fór ég í pössun á Álfaskeiðið. Í saumastofunni í kjallaranum skiptumst við amma á að setj- ast við overlock- eða saumavél- ina; ég að lita eða lesa upphátt, á meðan saumaði amma lopa- peysur. Þarna kenndi amma mér að skrifa og reikna. Þó ekki frádrátt. Ég var svo sár út í ömmu að hún hafði ekki kennt mér mínusmerkið, því allir krakkarnir kunnu það nema ég. Amma baðst innilega afsökun- ar. Seinna meir eignaði hún sér að þessi mínus hefði gert það að verkum að ég er stærðfræð- ingur í dag. Áður en ég valdi stærðfræði var ég að spá í fatahönnun, en amma talaði mig af því. Textíll hefur í staðinn fylgt mér sem áhugamál. Í upphafi saumaði amma á mig föt sem ég valdi úr Burda-blaði (þar átti ég að velja út frá sniði en ekki sæt- ustu fyrirsætunni), síðar tók ég upp sniðin og saumaði undir hennar handleiðslu. Þegar Áslaug Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.