Morgunblaðið - 10.02.2022, Page 50
50 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2022
Lengjubikar karla
A-deild, riðill 1:
Valur – Þróttur V ..................................... 4:0
A-deild, riðill 2:
Keflavík – Leiknir R ................................ 2:3
Heimsbikar félagsliða
Undanúrslit:
Chelsea – Al-Hilal .................................... 1:0
_ Chelsea mætir Palmeiras í úrslitaleikn-
um á laugardaginn.
Grikkland
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit, seinni leikur:
AEK Aþena – PAOK ............................... 1:2
- Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK sem vann einvígið, 2:1 saman-
lagt.
Olympiacos – Panetolikos ............. (frl.) 3:1
- Ögmundur Kristinsson var ónotaður
varamaður hjá Olympiacos sem vann ein-
vígið, 4:3 samanlagt.
Ítalía
C-deild:
Virtus Verona – Sudtirol ........................ 1:1
- Emil Hallfreðsson lék allan leikinn með
Virtus Verona.
Holland
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Ajax – Vitesse........................................... 5:0
- Kristian Nökkvi Hlynsson var ekki í
leikmannahóp Ajax.
England
Manchester City – Brentford............... (2:0)
Norwich – Crystal Palace ..................... (1:1)
Tottenham – Southampton .................. (2:3)
Aston Villa – Leeds................................ (3:3)
_ Leikjunum var ekki lokið þegar blaðið
fór í prentun í gærkvöld. Sjá mbl.is/sport/
enski.
4.$--3795.$
Olísdeild kvenna
Stjarnan – HK ...................................... 27:24
Staðan:
Fram 13 10 1 2 357:308 21
Valur 14 9 0 5 385:324 18
Haukar 15 8 1 6 417:395 17
KA/Þór 12 7 1 4 327:310 15
ÍBV 12 7 0 5 332:306 14
Stjarnan 14 7 0 7 360:361 14
HK 13 4 1 8 302:334 9
Afturelding 15 0 0 15 337:479 0
Þýskaland
Magdeburg – Minden.......................... 28:19
- Ómar Ingi Magnússon skoraði 8 mörk
fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist-
jánsson tvö.
Bergischer – Göppingen .................... 33:27
- Arnór Þór Gunnarsson skoraði fjögur
mörk fyrir Bergischer.
- Janus Daði Smárason skoraði ekki fyrir
Göppingen.
Balingen – Leipzig .............................. 25:29
- Daníel Þór Ingason skoraði ekki fyrir
Balingen. Oddur Gretarsson er meiddur.
Danmörk
GOG – Skive ......................................... 45:31
- Viktor Gísli Hallgrímsson varði 20 skot í
marki GOG.
Fredericia – Aalborg .......................... 23:29
- Aron Pálmarsson lék ekki með Aalborg
vegna meiðsla. Arnór Atlason er aðstoð-
arþjálfari liðsins.
Ringköbing – Esbjerg......................... 28:34
- Elín Jóna Þorsteinsdóttir varði 9 skot í
marki Ringköbing.
Frakkland
Limoges – Montpellier........................ 29:30
- Ólafur Andrés Guðmundsson var ekki í
leikmannahóp Montpellier.
Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit:
Nice – Nancy ........................................ 23:25
- Grétar Ari Guðjónsson varði 7 skot í
marki Nice.
- Elvar Ásgeirsson skoraði tvö mörk fyrir
Nancy.
Noregur
Sandefjord – Drammen ...................... 34:34
- Óskar Ólafsson skoraði ekki fyrir Dram-
men.
Nötteröy – Elverum ............................ 24:33
- Orri Freyr Þorkelsson skoraði 8 mörk
fyrir Elverum.
Sola – Oppsal........................................ 28:13
- Birta Rún Grétarsdóttir var ekki í leik-
mannahóp Oppsal.
Svíþjóð
Hallby – Skövde................................... 21:25
- Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 7
mörk fyrir Skövde.
Kristianstad – Sävehof ....................... 29:33
- Andrea Jacobsen skoraði tvö mörk fyrir
Kristianstad.
Sviss
Wacker Thun – Kadetten ................... 26:30
- Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar karlalið
Kadetten.
Zug – Spono Eagles............................. 32:34
- Harpa Rut Jónsdóttir var ekki í leik-
mannahóp Zug.
%$.62)0-#
FRJÁLSAR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Spretthlauparinn Tiana Ósk Whit-
worth segist nú þurfa að setja sér
markmið fyrir árið sem fram undan
er þar sem hún er aftur orðin heil
heilsu en lítið varð úr síðasta keppn-
istímabili hjá henni. Tiana Ósk er
öflug í upphafi árs eins og fjallað var
um í blaðinu á mánudaginn og hljóp
60 metrana á 7,45 sekúndum á
Reykjavíkurleikunum síðasta
sunnudag.
„Fyrir nokkrum mánuðum vissi
ég ekki hvar ég yrði stödd á þessum
tímapunkti vegna þess að ég var að
koma til baka eftir meiðsli. Nú þegar
ég sé að ég get keppt þá get ég farið
að setja mér framtíðarmarkmið. Ég
held að við Guðbjörg [Jóna Bjarna-
dóttir] stefnum bara báðar á að kom-
ast á EM næsta sumar. Ég er farin
að horfa þangað og það er vænt-
anlega stærsta markmiðið á árinu. Á
innanhússtímabilinu viljum við báð-
ar hlaupa 60 metrana hraðar. Við
vitum að við getum það og við getum
ýtt hvor annarri áfram,“ sagði Tiana
Ósk en Evrópumeistaramótið verð-
ur á dagskrá í ágúst og fer að þessu
sinni fram í München í Þýskalandi.
Tiana hefur hlaupið 60 metra, 100
metra og 200 metra hlaup á und-
anförnum árum. Hún segist eiga von
á því að leggja mesta áherslu á 100
metrana og sú vegalengd henti
henni betur en 200 metrarnir.
Horfir til alþjóðlegra móta
„Já ég held að bestu vegalengd-
irnar séu þessar stuttu. Um leið og
ég er komin upp í 200 metrana á ég
aðeins erfiðara með að halda hrað-
anum. Ég er meira í 60 og 100 og
mun leggja áherslu á 100 metrana í
sumar. En það er alltaf gaman að
keppa einnig í 200 metrunum,“ sagði
Tiana og spurð út í lágmarkið fyrir
EM segir hún það vera krefjandi, en
einnig sé hægt að komast inn í mótið
með góðri stöðu á styrkleikalistum.
„Lágmarkið er mjög krefjandi en
notast er við nýtt kerfi og þar er
einnig horft til stöðu á Evrópulist-
anum. Þótt maður nái ekki lágmarki
þá kemst maður inn í mótið ef maður
er ofarlega á styrkleikalistanum. Við
erum að horfa til þess og þar af leið-
andi að vera í hópi þeirra bestu í
Evrópu. Frekar fáir ná lágmörk-
unum því þau eru orðin svo erfið og
stefnan er því að vera eins ofarlega á
listanum og hægt er,“ sagði Tiana en
því fylgir þá væntanlega þátttaka í
nokkuð mörgum alþjóðlegum mót-
um, ekki satt?
„Já einmitt. Maður þarf að safna
stigum á sterkum mótum erlendis.
Maður hleypur alltaf hraðar í hita og
við góðar aðstæður. Ég stefni því á
að fara út á sem flest mót,“ sagði
Tiana Ósk Whitworth í samtali við
Morgunblaðið.
EM er stóra
markmiðið
- Tiana leggur áherslu á 100 metrana
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Sprettur Tiana Ósk Whitworth á fleygiferð í 60 metra hlaupinu á Reykja-
víkurleikunum þar sem hún náði sínum besta árangri, 7,45 sekúndum.
Romelu Lukaku reyndist hetja
Chelsea þegar liðið mætti Al-Hilal
frá Sádi-Arabíu í undanúrslitum
heimsbikars félagsliða í knatt-
spyrnu á Mohammed Bin Zayed-
vellinum í Abú Dabí í gær. Leiknum
lauk með 1:0-sigri Chelsea en Lu-
kaku skoraði sigurmark leiksins á
32. mínútu. Kai Havertz fór þá illa
með varnarmenn Al-Hilal, átti
sendingu fyrir markið, og Lukaku
var réttur maður á réttum stað.
Chelsea mætir Palmeiras frá Bras-
ilíu í úrslitaleik í Abú Dabí á laug-
ardaginn.
Chelsea leikur
til úrslita
AFP
Sigurmark Romelu Lukaku fagnar
marki sínu í Abú Dabí í gær.
Tyrkneska stórliðið Galatasaray
gerði belgíska liðinu Antwerp Gi-
ants tilboð í íslenska landsliðs-
manninn Elvar Má Friðriksson að
sögn ítalska körfuboltamiðilsins
Sportando.
Elvar er ekki með klausu í samn-
ingi sínum við Antwerp sem myndi
gera honum kleift að skipta um fé-
lag á miðju tímabili. Líklegast er
því að Elvar muni leika út tímabilið
í Belgíu en hann er lykilmaður hjá
Antwerp. Næsta sumar geta lið sem
hafa áhuga á Elvari gert tilraun til
að næla í hann á frjálsri sölu.
Stórlið reyndi að
fá Elvar til sín
Ljósmynd/FIBA
Eftirsóttur Elvar Már hefur verið
mjög áberandi í Belgíu í vetur.
Stjarnan vann sinn annan leik í röð
í úrvalsdeild kvenna í handknatt-
leik, Olísdeildinni, þegar liðið tók á
móti HK í TM-höllinni í Garðabæ í
13. umferð deildarinnar í gær.
Leiknum lauk með 27:24-sigri
Stjörnunnar en Garðbæingar náðu
mest þriggja marka forskoti í fyrri
hálfleik, 12:9. Stjarnan var einu
marki yfir í hálfleik, 15:14, en
staðan var jöfn, 19:19, þegar tutt-
ugu mínútur voru til leiksloka. Þá
seig Stjarnan hægt og rólega fram
úr og fagnaði nokkuð þægilegum
sigri í leikslok.
Lena Margrét Valdimarsdóttir
og Helena Rut Örvarsdóttir voru
markahæstar í liði Stjörnunnar
með fimm mörk hvor.
Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir,
Elna Ólöf Guðjónsdóttir, Berglind
Þorsteinsdóttir og Jóhanna Mar-
grét Sigurðardóttir skoruðu fjögur
mörk hver fyrir HK.
Ljósmynd/Kristinn Steinn
5 Garðbæingurinn Lena Margrét Valdimarsdóttir sækir að HK-ingum í TM-
höllinni í Garðabæ í gær en hún skoraði fimm mörk Stjörnunnar í leiknum.
Stjarnan á skriði
Michaela Kelly átti sannkallaðan
stórleik fyrir Breiðablik þegar liðið
vann óvæntan sigur gegn toppliði
Njarðvíkur í úrvalsdeild kvenna í
körfuknattleik, Subway-deildinni, í
Smáranum í Kópavogi í 19. umferð
deildarinnar í gær.
Leiknum lauk með sex stiga sigri
Breiðabliks, 76:70, en Kelly gerði
sér lítið fyrir og skoraði 37 stig,
ásamt því að taka sjö fráköst og
gefa þrjár stoðsendingar.
Blikar leiddu, 39:29, í hálfleik en
jafnræði var með liðunum í síðari
hálfleik.
Njarðvík tókst að minnka forskot
Breiðablik í tvö stig þegar ein og
hálf mínúta var til leiksloka, 67:69,
en lengra komust Njarðvíkingar
ekki.
Þetta var annar sigurleikur liðs-
ins í deildinni í röð en Aliyah Col-
lier var stigahæst í liði Njarðvíkur
með 32 stig og ellefu fráköst.
Blikar unnu toppliðið
Ljósmynd/Kristinn Steinn
Illviðráðanleg Njarðvíkingar réðu ekkert við Michaelu Kelly í Smáranum í
Kópavogi í gær en hún skoraði 37 stig í leiknum og tók sjö fráköst.