Morgunblaðið - 10.02.2022, Síða 53

Morgunblaðið - 10.02.2022, Síða 53
MENNING 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2022 L akkríspítsa er nostalgísk ástarsaga sögð í gegnum skrýtin en mannleg augnablik. Titill kvik- myndarinnar vísar í fræga SoCal- plötubúð á áttunda og níunda ára- tugnum en hugtakið hefur einnig verið notað til þess að lýsa vínil- plötum. Titillinn er því tilvitnun í fortíðina sem er viðeigandi í ljósi þess að kvikmyndin er í heild sinni ein stór tilvitnun í fortíð elskenda. Í San Fernando-dalnum árið 1973 mætir hinn 15 ára gamli Gary Valentine í myndatöku í mennta- skólann sinn þar sem hann hittir hina 25 ára gömlu Alönu Kane, aðstoðarmann ljósmyndarans, og stenst ekki mátið að daðra við hana. Sama kvöld hittast þau yfir kvöldverði en líkt og Alana ítrekar þá er ekki um að ræða stefnumót enda er hann alltof ungur fyrir hana. Stuttu síðar færir Anita, móðir Garys, honum þær fréttir að hún geti ekki farið með honum til New York á sýninguna með Lucy Doolittle sem hann er hluti af og gerir honum líka grein fyrir því að hann geti ekki farið til New York án forráðamanns. Gary er hins vegar þekktur fyrir að vera útsjónarsamur og áður en áhorf- endur geta sagt „lakkríspítsa“ sit- ur hann og sötrar kókið sitt í flug- vélinni með draumastúlkuna og forráðamanninn, Alönu, sér við hlið, hæstánægður. Paul Thomas Anderson leikur sér og brýtur línulega, klassíska söguformið en í hefðbundinni frá- sögn er einhver byrjun, miðja og endir. Lakkríspítsa er hins vegar kvikmynd mynduð af augnablikum tveggja einstaklinga. Hvert augna- blik eða atriði er ekki endilega í samræmi við það næsta og oft óljóst hvaða hlutverki það gegnir í sögunni. Aðferð frásagnarinnar lík- ist því sem við sjáum í Nashville (Robert Altman, 1975) og Once Upon a Time … In Hollywood (Quentin Tarantino, 2019). Sögu- þráðurinn er flöktandi og óskýr þannig að áhorfendur bíða áhyggjufullir eftir því að eitthvað slæmt gerist en þetta er ekki slík mynd heldur ástarsaga. Fyrr- nefndar kvikmyndir eiga að gerast á svipuðum tíma en Nashville, ólíkt hinum myndunum, á sér stað á sama tíma og kvikmyndin er tek- in upp. Nashville hefur þó hlotið aðra merkingu í dag; hún er sönn- un um liðinn tíma og innlit í fortíð- ina. Myndirnar Once Upon a Time … In Hollywood og Lakk- ríspítsa eru frekar endurlit til for- tíðar. Mynd Tarantinos er endur- sögn á kvikmyndasögunni og áhersla lögð á vísanir í kvikmynda- söguna í stað frásagnarframvindu og er slíkt hið sama gert í Lakk- ríspítsu en þar er ekki viðfangs- efnið kvikmyndasagan heldur saga tveggja einstaklinga. Kvikmyndin líkist þannig einu stóru endurliti til fortíðar, áhorfendur sjá stakar minningar, augnablik sem stóðu upp úr eins og þegar þau vinahjúin afhentu borgarbúum varnsrúm þegar olíukreppan stóð hvað hæst. Það að kvikmyndin gerist í fortíð- inni styður þessa kenningu auk þess sem myndin er tekin upp á filmu og kvikmyndatakan er hlý og draumkennd líkt og um minningar sé að ræða. Áður óþekktir leikarar, Alana Haim og Cooper Hoffman, fara með aðalhlutverkin, hlutverk Alönu og Garys. Bæði tvö leika listilega og fanga fullkomlega vandræðalega tímabilið milli þess að vera unglingur og fullorðinn einstaklingur og þær tilfinninga- flækjur sem fylgja því. Það styrkir myndina að hafa óþekkta leikara; þau birtast á skjánum líkt og óskrifað blað sem gerir áhorfand- anum erfiðara fyrir að mynda sér fyrirframskoðanir um karakterana. Öðrum stórstjörnum bregður þó fyrir á skjánum í skamma stund, líkt og Sean Penn og Bradley Cooper. Haim og Hoffman stela hins vegar athygli áhorfandans auðveldlega frá hinum fjall- myndarlegu karlmönnunum með sínum skemmtilega leik. Lakkríspítsa er tilnefnd til Ósk- arsins sem besta mynd og ekki að ástæðulausu. Hún nær því stigi að vera bíóupplifun en ekki einungis frásagnarform. Paul Thomas And- erson manar áhorfendur í að sleppa rökhugsuninni og leyfa sér að njóta þess að lifa í augnablikinu með aðalpersónunum í stað þess að eltast við frásagnarframvind- una. Best væri að lýsa myndinni sem notalegri og hlýrri upplifun á fortíðinni sem nauðsynlegt er að sjá á bíótjaldi. Vínilplötur spila fortíðina Fortíðarþrá „Paul Thomas Anderson manar áhorfendur í að sleppa rökhugsuninni og leyfa sér að njóta þess að lifa í augnablikinu með aðalpersónunum í stað þess að eltast við frásagnarframvinduna,“ skrifar gagnrýnandi meðal annars um Lakkríspítsu. Hér sjást Alana og Gary í upphafsatriði myndarinnar, Gary lagar hárið fyrir myndatöku. Bíó Paradís Licorice Pizza / Lakkríspítsa bbbbn Leikstjórn: Paul Thomas Anderson. Handrit: Paul Thomas Anderson. Aðal- leikarar: Alana Haim og Cooper Hoff- man. Bandaríkin, 2021. 133 mín. JÓNA GRÉTA HILMARSDÓTTIR KVIKMYNDIR Bassaleikarinn Þorgrímur Jóns- son kemur fram ásamt hljómsveit á hádegistón- leikum í Fríkirkj- unni í Reykjavík í dag, fimmtudag, og hefjast þeir kl. 12. Með honum leika Rögnvaldur Borgþórsson á gítar, Tómas Jóns- son á píanó og fleira og Magnús Trygvason Eliasen á trommur. Árið 2016 sendi Þorgrímur frá sér sína fyrstu sólóplötu og var hún valin plata ársins og Þorgrímur tónhöfundur ársins í flokki djass og blús á Íslensku tónlistarverðlaunum fyrir árið 2016. Í ágúst síðastliðnum kom svo út hans önnur sólóplata sem ber nafn- ið Hagi. Sú plata hefur líka fengið glimrandi góðar viðtökur víðsvegar um heim sem og hérlendis. Hádegistóneikar bassaleikarans Þorgrímur Jónsson Á hádegistón- leikum Sinfóníu- hljómsveitar Ís- lands í Eldborg í dag, fimmtudag, kl. 12.10 verða flutt rómuð tón- verk eftir Wolf- gang Amadeus Mozart og Lud- wig van Beetho- ven undir stjórn Evu Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóra sveitar- innar. Eftir Mozart hljómar For- leikurinn að Brúðkaupi Fígarós sem er lýst sem einhverri glaðvær- ustu tónlist sem samin hefur verið. Mozart var á hátindi ferils síns árið 1786 þegar hann samdi þessa sí- vinsælu óperu um ástir og örlög. Eftir Beethoven hljómar síðan Sveitasinfónían, þar sem hann lýsir ljúfri tilveru innan um læki og ár, tré og fugla, þótt óvænt óveður komi öllu í uppnám um hríð. Tónleikarnir eru um 50 mínútur án hlés. Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá miða fyrir fram. Ekki er krafist hraðprófs en grímuskylda er á tónleikunum. Mozart og Beet- hoven í hádeginu Eva Ollikainen

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.