Morgunblaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 54
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Ný dansk-færeysk sjónvarpsþátta-
röð, Trom, verður frumsýnd á
streymisveitunni Viaplay næsta
sunnudag og mun vera fyrsta
glæpaserían sem tekin er upp í
Færeyjum. Með aðalhlutverk fer
einn af þekktari leikurum Dan-
merkur, Ulrich Thomsen, sem hef-
ur bæði leikið í fjölda verka í
heimalandi sínu og utan þess, í
jafnólíkum verkum og dogma-
myndinni Festen og James Bond-
myndinni The World is Not
Enough þar sem hann lék illmenni,
nema hvað.
Í öðrum helstu hlutverkum Trom
eru Maria Rich og Olaf Johannes-
sen og segir í þáttunum af blaða-
manninum Hannis Martinsson, sem
Thomsen leikur, sem fær heldur
taugatrekkjandi myndbandsskila-
boð frá færeysku baráttukonunni
Sonju á Heygga sem segist bæði
vera dóttir hans og óttast um líf
sitt. Martinsson heldur til Færeyja
að kanna málið og kemst að því að
Sonja er horfin og að aðstæður all-
ar eru hinar dularfyllstu. Flækist
hann inn í morðrannsókn þar sem
sjómannasamfélag á staðnum, hóp-
ur aðgerðasinna og þekktur kaup-
sýslumaður, Ragnar í Rong, koma
við sögu. Martinsson leitar aðstoð-
ar hjá lögreglukonu sem leiðir
rannsóknina og kemst að því að
hans uppgötvanir stangast á við
þær sem lögreglan hefur gert.
Þáttaröðin er byggð á bókum
færeyska höfundarins Jógvans
Isaksens og leikstjórar hennar eru
tveir, annars vegar Daninn Kasper
Barfoed sem á m.a. að baki þættina
Dicte og hins vegar hinn íslenski
Davíð Óskar Ólafsson sem leik-
stýrði Broti.
Í leit að sannleikanum
„Þetta er ekki svo slæmt,“ svar-
ar Thomsen spurningu þess efnis
hvort viðtölin séu mörg þennan
daginn. Hann hefur verið að í
nokkrar klukkustundir með hléum
þegar blaðamaður nær tali af hon-
um þar sem hann er staddur á hót-
eli í Kaupmannahöfn. Örfáir dagar
eru þá liðnir frá því danska hand-
boltalandsliðið tapaði fyrir Frökk-
um á EM og Thomsen kemur af
fjöllum þegar blaðamaður nefnir
tapleikinn. „Ég hef ekki mikinn
áhuga á þessu,“ segir hann sposkur
um boltann, „mér er eiginlega al-
veg sama.“
Við snúum okkur að blaðamann-
inum Hannis Martinsson sem held-
ur til Færeyja eftir myndskilaboð
frá dóttur sinni, sem fyrr segir.
„Hún er að rannsaka spillingarmál,
hringir í mig og vill ræða við mig
af því ég er blaðamaður. Hún telur
það eflaust góða leið til að koma á
tengslum og fá mig til að skrifa um
þetta spillingarmál,“ útskýrir
Thomsen.
Blaðamaðurinn er í senn að
glíma við flókið mál og þá stað-
reynd að hann á dóttur sem hann
vissi ekki af. Það virðist vera nokk-
uð snúið hlutverk, eða hvað? „Tja,
já og nei,“ segir Thomsen um þær
vangaveltur, „þetta er glæpaþátta-
röð þannig að það eru alltaf ein-
hver skipti og ákveðin söguflétta.
Atburður á sér stað og það þarf að
komast að því hvað gerðist. Það
tekur alltaf mikinn tíma en annars
væri vissulega hægt að kafa dýpra
í persónurnar og þróa þær frekar.“
Thomsen segir þættina drama-
tíska þar sem blaðamaðurinn
Martinsson sé að reyna að komast
að því hvað varð um dóttur hans. Í
anda glæpaþátta fari hann víða um
völl, ræði við marga og reyni að
komast að kjarna málsins. Flétta
glæpasögunnar sé því hinn ráðandi
hluti frásagnarinnar á heildina litið
og fjölskyldudramað aðeins einn
þráður í fléttunni.
Vænn pakki
– Hvernig náungi er þessi blaða-
maður sem þú leikur?
„Hann er rannsakandi í eðli sínu,
leitar uppi sögur sem gætu verið
áhugaverðar. Þess vegna hringir
dóttir hans í hann,“ svarar Thom-
sen. Leikarinn er spurður hvað
hafi fengið hann til að taka hlut-
verkið að sér og svarar hann því til
að honum hafi þótt handritið gott.
Góðvinur hans Kasper Barfoed hafi
þar að auki verið einn leikstjóra og
í þriðja lagi hafi hann átt eftir að
heimsækja Færeyjar. „Mér fannst
þetta vænn pakki,“ segir Thomsen
um þá þrennu.
– Svo er fegurð Færeyja mikil að
vori og sumri …
„Já, við vorum reyndar aðeins
fyrr á ferðinni, frá mars fram í
seinni hluta júní. En eru sumur í
Færeyjum? Ég er ekki svo viss um
það,“ svarar Thomsen og hlær við,
bætir svo um betur og segir ein-
hvern hafa lýst færeysku sumar-
veðri þannig að það hafi verið
harðasti vetur sem hann hafi upp-
lifað.
Að hluta skrifstofustarf
Ulrich á býsna langan feril að
baki og hefur leikið í fjölda þátta
og kvikmynda. Hefur hann til að
mynda leikið rússneskan óþokka í
Bond-mynd og hvað undirbúning
fyrir hlutverk varðar segist hann
vissulega ímynda sér að hann sé
persónan sem hann er að leika,
hvort heldur er rússneskur óþokki
eða þjáður fjölskyldufaðir en starf
leikarans sé líka að stórum hluta
eins og hvert annað skrifstofustarf.
Leikarar þurfi að sitja við og lesa,
læra texta og undirbúa sig og æfa.
Þegar á hólminn sé komið gangi
starfið svo út á að láta allt ganga
upp, líkt og stærðfræðidæmi sem
þurfi að leysa.
– Þú hefur leikið í mörgum kvik-
myndum og þáttum, eru einhverjar
ákveðnar kvikmyndir eða þættir
sem þú ert sérstaklega ánægður
með og stoltur af?
„Já, þær sem komu ferlinum af
stað, Festen og sú fyrsta sem ég
gerði í útlöndum og hóf feril minn
erlendis, James Bond-myndin,“
svarar Thomsen. Festen verði hon-
um líklega alltaf mikilvægust því
hún hafi opnað honum margar dyr
og möguleika á því að vinna utan
heimalandsins. Thomsen minnist
líka sjónvarpsþáttanna Banshee
með hlýju. „Það var mjög gaman
að gera þá, þeir voru býsna klikk-
aðir,“ segir hann kíminn. En hvað
kvikmyndirnar varðar eigi þær sér
allar einhvern stað í hjarta hans.
„Ég hef aðeins gott eitt að segja
um þær flestar,“ segir Thomsen.
Nóg að gera
Leikarinn er að lokum spurður
að því hvað hann sé að gera nú um
stundir og segir hann það býsna
margt. „Ég er að skrifa handritið
að minni þriðju kvikmynd, gera
„storyboard“ og reyna að fjár-
magna hana,“ segir hann og bætir
við að einnig sé sjónvarpsverkefni
fram undan í Chicago. Ómíkron
hafi svo seinkað nokkrum verk-
efnum og eflaust muni einhver
þeirra brotlenda, eins og venja er.
„En sem betur fer hef ég enn nóg
að gera,“ segir Thomsen brattur að
lokum.
Eitthvað er rotið í Færeyjum
Kommúna Thomsen með einni þekktustu leikkonu Dana, Trine Dyrholm, í
kvikmyndinni Kollektivet, eða Kommúnan, sem er frá árinu 2016.
Í Færeyjum Ulrich Thomsen í einum þátta Trom. Færeyjar eru sögusvið þáttanna sem teknir voru upp í fyrra.
Veislan Thomsen, annar frá vinstri, með aðalleikurum Festen sem vakti
mikla athygli á honum, bæði í Danmörku og á erlendri grundu.
- Danski leikarinn Ulrich Thomsen leikur blaðamann sem rannsakar hvarf dóttur sinnar í dansk-
færeysku þáttunum Trom - „Hann er rannsakandi í eðli sínu,“ segir Thomsen um blaðamanninn
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2022
LED skilti
Fjarstýrð LED ljósaskilti
með litastillingu.
Xprentehf. | Sundaborg3 |104Reykjavík |5556500|xprent@xprent.is
xprent.is