Morgunblaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2022
Tilkynnt var í gær hvaða tíu bækur
eru tilnefndar til Viðurkenningar
Hagþenkis, félags höfunda fræðirita
og kennslugagna, fyrir útgáfuárið
2021. Viðurkenning Hagþenkis verð-
ur veitt við hátíðlega athöfn um
miðjan mars og felst í sérstöku
viðurkenningarskjali og 1.250.000
krónum.
Viðurkenningarráð Hagþenkis
skipað fimm félagsmönnum
Hagþenkir hefur frá árinu 1986
veitt viðurkenningu fyrir fræðirit,
námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs
efnis til almennings. Árið 2006 var
tekin upp sú nýbreytni að tilnefna
tíu höfunda og bækur er til greina
kæmu. Viðurkenningarráð Hag-
þenkis, skipað fimm félagsmönnum,
stendur að valinu en það hóf störf
um miðjan október og fundaði viku-
lega fram yfir miðjan janúar.
Viðurkenningarráð Hagþenkis er
skipað fimm félagmönnum til
tveggja ára í senn og í því eru: Auð-
unn Arnórsson, Árni Einarsson,
Halldóra Kristinsdóttir, Súsanna
Margrét Gestsdóttir og Svanhildur
Óskarsdóttir.
Eftirfarandi höfundar og bækur
eru tilnefnd í stafrófsröð höfunda.
Með fylgir umsögn viðurkenning-
arráðsins:
- Aðalbjörg Stefanía Helga-
dóttir. Samfélagshjúkrun. Iðnú
útgáfa. „Þarft kennslurit um sam-
félagslega brýn málefni sem hefur
víða skírskotun og nýtist bæði skóla-
fólki og almenningi.“
- Aðalheiður Guðmundsdóttir.
Arfur aldanna. I Handan hindar-
fjalls. II Norðvegur. Háskóla-
útgáfan. „Vandað og yfirgripsmikið
rit sem opnar heillandi baksvið forn-
aldarsagna fyrir lesendum.“
- Anna Dröfn Ágústsdóttir og
Guðni Valberg. Laugavegur. Angú-
stúra. „Með göngu upp Laugaveginn
fá lesendur nýja sýn á sögu og þróun
húsanna við þessa aðalgötu bæj-
arins, verslun og mannlíf.“
- Arnþór Gunnarsson. Hæsti-
réttur í hundrað ár. Saga. Hið
íslenska bókmenntafélag. „Verðugt
afmælisrit sem grefur upp for-
vitnilegar og oft óvæntar hliðar á
sögu æðsta dómstóls sjálfstæðs
Íslands.“
- Auður Aðalsteinsdóttir. Því-
líkar ófreskjur. Vald og virkni rit-
dóma á íslensku bókmenntasviði.
Sæmundur. „Brautryðjandaverk
þar sem fjallað er um þróun bók-
menntaumfjöllunar á Íslandi með
hliðsjón af alþjóðlegum straumum.“
- Guðrún Ása Grímsdóttir (útgef-
andi). Sturlunga saga eða Íslendinga
sagan mikla I-III. Hið íslenzka forn-
ritafélag. „Úrvals textaútgáfa með
greinargóðum inngangi um rann-
sóknir á Sturlungu og umgjörð
hennar. Lesendur fá góða innsýn í
ófriðartíma 13. aldar.“
- Kristjana Kristinsdóttir. Lénið
Ísland. Valdsmenn á Bessastöðum
og skjalasafn þeirra á 16. og 17. öld.
Þjóðskjalasafn Íslands. „Vandað og
ítarlegt verk um stöðu Íslands sem
léns í danska konungsríkinu, byggt á
umfangsmikilli rannsókn á frum-
heimildum.“
- Margrét Tryggvadóttir og
Linda Ólafsdóttir. Reykjavík
barnanna. Tímaflakk um höfuðborg-
ina okkar. Iðunn. „Fjörleg og falleg
bók fyrir alla aldurshópa um líf og
starf í Reykjavík fyrr og nú.“
- Már Jónsson (ritstjóri). Galdur
og guðlast á 17. öld. Dómar og bréf
I-II. Sögufélag. „Rit sem opnar
greiða leið að frumheimildum um
galdramál og veitir jafnframt góða
yfirsýn yfir framandlegt tímabil sög-
unnar.“
- Þórður Kristinsson og Björk
Þorgeirsdóttir. Kynjafræði fyrir
byrjendur. Mál og menning. „Vel
unnið og vekjandi kennsluefni sem
gerir nýrri námsgrein góð skil og
tengir saman sögulegar forsendur
og samtímaumræðu,“ segir í umsögn
viðurkenningarráðs.
Morgunblaðið/Unnur Karen
Framúrskarandi Höfundar þeirra tíu framúrskarandi rita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis þetta árið. Viðurkenningin verður veitt í mars.
Tilnefningar Hagþenkis 2021
- Viðurkenningin veitt fyrir fræðirit, námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings
- Verðlaunin nema 1.250.000 kr. - Afhent um miðjan mars - Viðurkenningin verið veitt síðan 1986
www.gilbert.is
Hjá Gilbert úrsmið sérhæfum
við okkur í úrsmíði, hönnun
og framleiðslu úra
Tónlistarkonan Adele hélt heim af
bresku Brit-verðlaunahátíðinni á
þriðjudagskvöldið hlaðin verð-
launagripum. Hún var valin tón-
listarflytjandi ársins, fjórða og nýj-
asta hljómplata hennar, 30, var
valin sú besta og þá átti hún líka
besta breska lag ársins, „Easy on
Me“. Adele hefur nú samtals hlotið
12 Brit-verðlaun.
Í fyrsta skipti var Brit-verðlaun-
unum nú ekki skipt í flokka eftir
kynferði listamanna og voru konur
sigursælastar; af fimmtán verð-
launum sem veitt voru hrepptu
konur tíu.
Dua Lipa bar sigur úr býtum í
kosningu almennings um besta
framlag popp- eða R&B-listamanns.
Ed Sheeran var tilnefndur til
fernra verðlauna og hreppti engin
þeirra – hann varð hins vegar fyrst-
ur til að hljóta nýja viðurkenningu,
lagahöfundur ársins. Þá var Wolf
Alice valin besta hljómsveitin og
rapparinn Little Simz, AKA Sim-
biatu Ajikawo, var valin besti nýi
listamaðurinn.
AFP
Best Adele hampar einum af þremur verðlaunagripum sem hún fékk.
Adele sigursæl á Brit-
verðlaunahátíðinni
- Konur hrepptu 10 af 15 verðlaunum