Morgunblaðið - 10.02.2022, Qupperneq 60
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
*Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar
með fyrirvara um prentvillur.
GAIN
Borðstofustóll.
Grátt áklæði, sléttflauel.
28.990 kr.
Fyrir
lifandi
heimili
NIRMAL MOTTA
Ishian, dökkgrá.
200 x 300 cm.
49.990 kr.
KARE WATER LILY
Hægindastóll gulur eða bleikur.
89.990 kr.
um að ég hafi gott af þessu held ég
æfingunum áfram, en eftir að hund-
arnir fóru fer ég bara í tvo göngu-
túra á dag. Þeir voru annars bestu
göngufélagar, gripu aldrei fram í
fyrir mér, mótmæltu mér aldrei,
dingluðu bara skottinu og voru góðir
vinir.“
Trésmiðurinn fyrrverandi á marg-
ar góðar minningar úr íþróttunum.
Hann segir það í raun ótrúlegt að
hafa tekið þátt í þremur heimsmeist-
aramótum. „Við unnum tíu tíma á
dag og spiluðum við atvinnumenn og
fyrst og fremst hermenn frá austan-
tjaldslöndunum. Við komumst aldrei
á þeirra skala, kannski sem betur
fer, því ekki er víst að við hefðum
þolað góðærið. Það þarf sterk bein
til að þola góða daga.“
Labbi er tígulegur á velli sem fyrr
og virðist ekkert hafa breyst í ára-
tugi þrátt fyrir að eiginkonan Guðný
Andrésdóttir matreiði fyrir hann
ómótstæðilegan mat. „Ég segi
stundum við konuna að þegar við
kynntumst var ég 85 kíló af vöðvum
en nú er ég bara 85 kíló. Ég er hepp-
inn hvað ég hef haft góða brennslu-
vél því konan eldar góðan mat og
miðað við það sem ég borða ætti ég
að vera allt öðruvísi í laginu. Ég var
snemma nokkuð ellilegur en hef
haldið mér nokkuð vel.“ Hann þakk-
ar það fyrrgreindu líferni og ekki
síður nægjusemi.
„Ég er guðs blessunarlega laus
við netið og farsíma. Mér finnst svo-
lítið broslegt að sjá þegar fólk getur
ekki farið í hálftíma eða þrjú korter í
ræktina án þess að hafa þessi tæki
við hliðina.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Handboltaskyttan Gunnlaugur
Hjálmarsson bar af á árum áður sem
leikmaður ÍR, Fram og landsliðsins
og var meðal annars valinn í heims-
liðið að loknu heimsmeistaramótinu
1961, fyrstur Íslendinga. Hand-
boltadómarinn Gunnlaugur Hjálm-
arsson var í fremstu röð í fjóra ára-
tugi og heldri borgarinn Gunnlaugur
Hjálmarsson er enn við sama hey-
garðshornið, þegar kemur að æfing-
um og uppbyggingu og blæs vart úr
nös eftir verkefni dagsins. „Ég er að
seinka andlátinu,“ segir hann.
Gunnlaugur, sem verður 84 ára í
sumar, hefur alla tíð verið kallaður
Labbi sem er ekki beint lýsandi fyrir
orkuna og kraftinn sem hefur alla tíð
einkennt hann. „Mér var sagt að það
hefði komið til vegna þess að ég
hefði aldrei lært að skríða,“ útskýrir
hann. „Ég er aldrei kallaður annað
nema þegar konan er reið út í mig.
Þá segir hún: „Gunnlaugur!““
Þegar Labbi var sextugur hætti
hann í launaðri vinnu sem trésmiður
og byrjaði á skipulagðri líkamsrækt;
daglegu 1.000 metra sundi í Kópa-
vogslaug og slökun í heitum potti á
eftir og síðan um klukktíma hunda-
göngu þrisvar á dag. Eftir að lík-
amsræktarstöð var opnuð í húsnæði
laugarinnar hefur hann æft þar ekki
sjaldnar en þrisvar í viku og sleppt
þá sundinu en farið beint í heita
pottinn á eftir. Í pottinn alla daga
vikunnar. Í menninguna, eins og
hann kallar það. „Pólitíkin er alls-
ráðandi hjá pottfélögunum og við
leysum öll vandamál alheimsins, en
annars er þetta engin pólitík hérna í
Kópavoginum, voðalega dauft yfir
henni.“
Hvorki með farsíma né tölvu
Labbi var alltaf á hlaupum í bolt-
anum, nema þegar hann var Íslands-
meistari með Val í fótbolta 1967. Þá
var hann markvörður í einum leik.
Hann byrjaði á hlaupabretti í rækt-
inni fyrstu árin en vegna aðgerða á
hné hefur hann haldið sig við skíða-
göngutæki frá aldamótum. „Ég hef
ekki hlaupið á þessari öld en get
djöflast á skíðagöngutækinu eins
lengi og mér sýnist og svo lyfti ég
aðeins á eftir.“ Leggur áherslu á að
hann gæti þess vel að ofreyna sig
ekki. „Á meðan ég get talið mér trú
Fyrstur í heimsliðinu
- Gunnlaugur „Labbi“ Hjálmarsson gefur ekkert eftir 61 ári síðar
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Alsæl Hjónin Guðný Andrésdóttir og Gunnlaugur Hjálmarsson.
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 41. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Frjálsíþróttakonan Tiana Ósk Whitworth, sem er í
harðri keppni við Guðbjörgu Jónu Bjarnadóttur í sprett-
hlaupunum, kveðst ætla að einbeita sér að 100 metra
hlaupi á nýhöfnu keppnistímabili. „Ég held að við Guð-
björg stefnum bara báðar á að komast á EM næsta
sumar. Ég er farin að horfa þangað og það er væntan-
lega stærsta markmiðið á árinu,“ segir Tiana Ósk. »50
Stefnan er sett á EM í sumar
ÍÞRÓTTIR MENNING
Saxófónleikarinn
Albert Sölvi Óskarsson
kemur fram ásamt
félögum sínum, Jóni
Ómari Árnasyni á gítar
og Leifi Gunnarssyni á
kontrabassa, á þrenn-
um tónleikum í tón-
leikaröðinni „Jazz í
hádeginu“ í Borgar-
bókasafninu í dag og á
næstu dögum. Yfir-
skrift tónleikanna er
„Feður fónanna“ og
verða þeir fyrstu í
bókasafninu í Grófinni í hádeginu í dag, kl. 12.15. Á
morgun, föstudag, leikur tríóið í Gerðubergi á sama
tíma og loks í safninu í Spönginni á laugardag kl. 13.15.
Albert Sölvi er kennari við Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar og Skólahljómsveit Austurbæjar og leikur líka í
nokkrum hljómsveitum.
Albert Sölvi leikur ásamt félögum
í tónleikaröðinni Jazz í hádeginu