Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 1

Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 1
*',)( !'& " +$.%-%#'&$..$ *77) *% ;AAA <!44!4#*+ = '2%! $9+!+ "&--4* )*:)? @())$+=)) :>5068 1BB180 6/ 06B6 .300, 03 | 03 | 2022 Við leitum að metnaðarfullu fólki í fjölbreytt og eftirsótt sumar- störf í álverinu á Grundartanga. Í boði eru störf af ýmsu tagi við framleiðslu, raf- og vélvirkjun og fleira. Störfin henta öllumkynjum. Góð laun í boði. Norðurál leggur áherslu á heilsusamlegt, öruggt og ánægjulegt starfsumhverfi og góðan starfsanda. Framtíðin er spennandi í álframleiðslu á Íslandi, og mun framþróun í átt að grænni álframleiðslu hafa raunveruleg áhrif á útblástur gróðurhúsa- lofttegunda á heimsvísu. Starfsfólki bjóðast ferðir frá Akranesi, Borgarnesiog af höfuðborgarsvæðinu. Sumarstarfsfólk í framleiðslu fer á námskeið vegnavinnuvélaréttinda. Umsóknir og upplýsingar eru áwww.nordural.is og í síma 430 1000. Öllum um-sóknum verður svarað og trúnaði heitið. Menntunar- og hæfnikröfur: 18 ára lágmarksaldur Dugnaður og sjálfstæði Bílpróf er skilyrði Mikil öryggisvitund og árvekni Heiðarleiki og stundvísi Góð samskiptahæfni Hreint ál úr íslenskri orku | nordural.is JafnlaunaúttektPwC 2020 Spennandi sumarstörf F I M M T U D A G U R 3. M A R S 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 52. tölublað . 110. árgangur . Mjöðm Nautapiparsteik 2.589KR/KG ÁÐUR: 3.699 KR/KG Toscana brauð 550 g 229KR/STK ÁÐUR: 459 KR/STK VitaYummy, hindberja - 350 g Hair & Nails vítamín 1.499KR/STK ÁÐUR: 2.999 KR/STK 50% AFSLÁTTUR 30% AFSLÁTTUR 50% AFSLÁTTUR TILBOÐ GILDA 3.--6. MARS FRÁBÆR TILBOÐ Í NÆSTU NETTÓ VIÐHORFIN ERU AÐ BREYTAST ÓLÍKIR LISTAMENN OG SÝNINGAR TILNEFNDAR MYNDLISTARVERÐLAUN 68FRÚ RAGNHEIÐUR 14 _ Rakel Garðarsdóttir, stofnandi samtakanna Vakandi, sem vinna að vitundarvakningu um sóun mat- væla, er að athuga möguleikana á að koma upp lítilli verslun til að taka við vörum sem eru að nálgast síðasta söludag og á að skila til framleiðanda og selja þær með miklum afslætti. Mikil verðmæti fara í súginn þeg- ar kjöt- og mjólkurafurðum og fleiri vörum er skilað til framleið- enda þegar tveir eða þrír dagar eru í síðasta söludag. Rakel telur að margir vildu kaupa þessar vörur ef þær fengjust á lágu verði. »38 Morgunblaðið/Kristinn Sóun Unnar kjötvörur sem eru að renna út á tíma mætti selja á lægra verði. Verslun með vörur á síðasta snúningi _ Alls voru skráð 108 sjóatvik hjá Tryggingastofnun og/eða Sjúkra- tryggingum á síðasta ári. Ekki hafa verið færri atvik skráð frá því að skráningar hófust 1966, samkvæmt upplýsingum frá Samgöngustofu. Árið 2021 var einnig fimmta árið í röð þar sem enginn lést á sjó. Valmundur Valmundsson, for- maður Sjómannasambands Íslands, segir tölurnar ánægjuefni en segir sambandið gruna að ekki séu öll smærri slys skráð. Markmiðið verði að vera að sjómenn geti verið full- vissir um að koma heilir heim úr vinnu sinni. »30 Aldrei verið færri skráð slys á sjó Morgunblaðið/Eggert Í höfn Árið 2021 var fimmta árið í röð þar sem enginn lést á sjó og slysum fækkar. Skúli Halldórsson sh@mbl.is Mikill fjöldi fólks hefur neyðst til að flýja heimili sín í Úkraínu frá því að Rússar réðust inn í landið fyrir viku. Nærri níu hundruð þúsund manns eru þegar taldir hafa yfirgefið Úkraínu samkvæmt upplýsingum Sameinuðu þjóðanna. Gert er ráð fyrir að sendinefndir beggja ríkja komi saman til friðarviðræðna á landamærum Pól- lands og Hvíta-Rússlands í dag, en ekkert varð af fyrirhuguðum viðræðum í gærkvöldi. Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, mun á komandi dögum ferðast til Belgíu, Póllands, Eystrasaltsríkjanna og Moldavíu til að ítreka stuðning stjórnvalda í Washington við Úkraínumenn leita skjóls fjarri Rússlandi - Vika liðin frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu - Nærri 900 þúsund manns flúið Úkraínu, að því er ráðuneyti hans greindi frá í gærkvöldi. Á blaðamannafundi sagði hann að „ögrandi orð- ræða“ Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta um kjarnavopn væri „hámark ábyrgðarleysis“, en for- setinn setti kjarnavopnasveitir landsins í við- bragðsstöðu á sunnudag. „Þetta er hættulegt. Þetta eykur hættuna á misreikningi. Þetta þarf að forðast,“ sagði Blinken. Nýtt skeið hafið í Evrópu eftir innrás Rússa Emmanuel Macron Frakklandsforseti ávarpaði þjóð sína í sjónvarpsútsendingu í gær og sagðist myndu ræða við Pútín eins oft og þyrfti, til að fá hann til að stöðva stríðið. Þeir ræddust síðast við á mánudag í níutíu mínútur. Macron tjáði þjóð sinni í ávarpinu að nýtt skeið væri hafið í Evrópu eftir innrás Rússlands í Úkra- ínu og að álfan þyrfti að fjárfesta í vörnum sínum og sjálfstæði í orkumálum. „Nú þegar hefur Evrópa okkar sýnt einingu og staðfestu. Við erum komin inn í nýtt skeið,“ sagði forsetinn. En hann varaði sömuleiðis við: „Kom- andi dagar munu að líkindum verða erfiðari og erf- iðari.“ Rússar sögðust í gær hafa hertekið hafnarborg- ina Kerson. Ef rétt reynist er stórborgin sú fyrsta í Úkraínu sem þeir hafa náð á sitt vald. Allsherj- arþing SÞ samþykkti þá að krefjast þess að rúss- neskt herlið yfirgæfi landið tafarlaust. AFP Flýja stríð Fólk á flótta frá Úkraínu sækir um dvalarleyfi í höfuðstöðvum lögreglunnar í Prag í Tékklandi í gær. Nærri 900 þúsund manns hafa flúið landið. MStríð í Evrópu »2, 4, 32, 34, 36 og 38

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.