Morgunblaðið - 03.03.2022, Síða 2

Morgunblaðið - 03.03.2022, Síða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra . Madeira v ra . skrúðgarðurinn í Atlantshafinu“ Verð frá kr. 138.350 .A th .a ð ve rð et rb re ys tá n fy rir br e st án fy rir 23. apríl í 9 nætur Skoðaðu úrval gistinga inná heimsferdir.is 595 1000 www.heimsferdir.is NET LAGERSALA ALLT AÐ 80% AFSLÁTTUR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Skjannahvítt Ísland bar nafn með rentu þegar TERRA-gervitungl frá bandarísku geimferðastofnuninni NASA átti leið yfir landið fyrsta dag marsmánaðar og tók meðfylgj- andi MODIS-mynd í björtu og fal- legu veðri. Samfelld skýjahula skyggði þó á norðurströndina og nokkur ský voru yfir Suðurlandi. Nýliðinn febrúarmánuður var mjög illviðrasamur og snjóþungur auk þess sem janúar var mjög um- hleypingasamur. Þessi vetur er þó ekki enn orðinn sá versti sem komið hefur á undanförnum árum. Trausti Jónsson veðurfræðingur rifjar upp að ekki þurfi að fara lengra aftur en til 2019-2020 þegar veturinn var afar illviðrasamur, að ekki sé minnst á veturinn 2014- 2015 sem hefur verið kallaður ill- viðraveturinn mikli. Veturinn núna er að komast í þeirra hóp, sam- kvæmt stormvísitölu sem Trausti reiknar út og segir frá á Hungur- diskum á Moggablogginu (trj.blog.is). Hægt er að finna fjölda illviðraskeiða frá fyrri árum en einnig illviðralítil ár í kippum. gudni@mbl.is, sisi@mbl.is »28 Stund á milli veð- urstríða Ljósmynd/MODIS TERRA frá NASA Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra ræddi um áhrif innrásar Rússa í Úkraínu við Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafs- bandalagsins, á fundi á heimili Stol- tenbergs í Brussel í gærkvöldi. „Við höfum líka verið að horfa á hvað við getum gert sem herlaus þjóð, í mannúðaraðstoð. Ég upplýsti hann um að við höfum tvöfaldað framlag okkar frá fyrstu ákvörðun,“ segir Katrín. Var fyrst ákveðið að leggja fram eina milljón evra í formi mannúðaraðstoð- ar til Úkraínu, en framlagið var hækkað upp í tvær milljónir í gær. Ísland hefur þá einnig staðið með Evrópusam- bandinu í efnahagslegum refsi- aðgerðum gagnvart Rússum en einnig lokað lofthelgi gagnvart rúss- neskum vélum og takmarkað vega- bréfsáritanir. Lýsti Stoltenberg ánægju sinni yf- ir samstöðu innan bandalagsins en þau Katrín ræddu langtímastefnu- mótun Atlantshafsbandalagsins og áhrif innrásarinnar á öryggismál í Evrópu á næstu misserum og árum, en einnig núverandi ástand mála. „Staðan er auðvitað þung og erf- ið,“ segir hún. Á næstu dögum mun Katrín eiga fleiri fundi, þar á meðal með forsætisráðherra Belgíu. Skoða möguleika her- lausu íslensku þjóðarinnar - Katrín fundaði með Stoltenberg - Auka við mannúðaraðstoð Katrín Jakobsdóttir „Ég mun fjalla um það sem er efst á baugi á hverjum tíma. Þættirnir verða ákveðin vikuuppgjör á pólitíkinni,“ segir Páll Magnússon um nýja vikulega Dagmálaþætti hans sem verða sýndir alla laugardaga á mbl.is. Hver þáttur verður um klukkutíma langur og verður sá fyrsti sýndur 19. mars. Ætlar að standa við loforðið Páll er spenntur að byrja og segist hafa lofað sjálfum sér þegar hann hætti í stjórnmálum í fyrra að taka ein- ungis að sér verkefni sem honum fyndust skemmtileg. „Ég hlakka til að byrja á þessu og er viss um að þetta geti verið áhugavert og skemmtilegt. Ég er að reyna að standa við það sem ég lofaði sjálfum mér þegar ég hætti í pólitík – að gera bara það sem mér finnst skemmtilegt.“ Þá telur Páll að reynsla hans úr bæði fjölmiðlum og stjórnmálum muni nýtast honum vel á skjánum. „Að baki býr auðvitað 40 ára reynsla í fjölmiðlum og svo hef ég horft á þetta bæði utan frá og innan frá þar sem ég var alþingismaður í fimm ár. Þessi reynsla skap- ar góðan grunn til að gera þetta vel.“ Dagmál er hnitmiðaður frétta- og dægurmálaþáttur Morgunblaðsins sem er opinn áskrifendum. Páll Magnússon með nýja Dagmálaþætti á mbl.is - Vikuuppgjör á pólitíkinni - Fyrsti þátturinn 19. mars Pólitík Páll Magnússon kemur inn í Dagmálateymið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.