Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 10

Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 Höfðabakka 9, 110 Reykjavík Verið velkomin í sýningarsal okkar að Höfðabakka 9 eða verið í sambandi við Gústa sölustjóra vinnufatnaðar, sími 888-9222, gustib@run.is KULDAFATNAÐUR Við sjáum um allar merkingar 9063 Húfa 100% ull 9015 %$*#+&)+!(($ '!!"! 6441 Fóðraður kuldajakki 6514 Fóðraðar kuldabuxur 6202 Fóðraður kuldagalli Hudson Bay 10061301 Loðfóðraðir öryggisskór SAFE & SMART monitor Garða Garðabær hefur alltaf verið bærinn minn. Mér þykir vænt um það einstaka samfélag sem við myndum og hef elju og metnað fyrir því að gera góðan bæ enn betri. Í rúman áratug hef ég setið í bæjarstjórn og verið þar í forystusveit ásamt því að hafa víðtæka reynslu úr aslaughulda.is atvinnulífinu. Ég þekki starfsemi sveitarfélagsins vel og þau brýnu verkefni sem framundan eru. Með skýrri framtíðarsýn ásamt verðmætri þekkingu og reynslu vil ég leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ. Áslaug Hulda 1. sæti Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Ólympíumótið í skák mun ekki fara fram í Moskvu í Rússlandi í júní líkt og gert hefur verið ráð fyrir, að því er Alþjóðaskáksambandið (FIDE) greindi frá í afdráttarlausri yfirlýs- ingu á sunnudaginn var. Innrás Rússa í Úkraínu gæti komið sér illa fyrir forseta FIDE, Arkady Dvorkovich, sem var áður hægri hönd Pútíns og fyrrverandi vara- forsætisráðherra Rússlands, þar sem hann mun leita endurkjörs í FIDE-kosning- unum sem munu fara fram sam- hliða Ólympíu- mótinu. Óvissa ríkir nú í skáksamfélaginu að sögn Gunnars Björnssonar, forseta Skáksambands Íslands, vegna sterkrar tengingar Rússa inn í FIDE. „Dvorkovich leitar endurkjörs núna og ætlar örugglega að vera kosinn, því hann er búinn að vera vinsæll og gera góða hluti. FIDE hefur reddað rússneskum styrktar- aðilum sem gæti aðeins sett skák- ina í uppnám vegna átakanna,“ seg- ir Gunnar í samtali við Morgun- blaðið. FIDE-þingið settist niður og fundaði eftir að átök brutust út í Úkraínu og komst að þeirri niður- stöðu að engir viðburðir yrðu haldnir í Rússlandi og Hvíta- Rússlandi, öllum styrktarsamn- ingum við rússnesk og hvítrússnesk fyrirtæki yrði slitið, skákmenn sem hafa stutt „þetta óréttlætanlega stríð“ gætu átt von á því að mál þeirra færi fyrir siðanefnd FIDE auk þess sem FIDE-þingið mun fara fram í sumar ásamt Ólympíu- mótinu. Indverjar hafa lýst yfir áhuga á að halda Ólympíumótið en öðrum löndum eru gefnir 10 dagar til þess að lýsa yfir áhuga sínum sé hann til staðar. Þá hefur FIDE tilkynnt að rúss- neski og hvít- rússneski fáninn verði ekki sýni- legir á alþjóð- legum skák- viðburðum og eins megi ekki spila þjóðsöngva þessara ríkja, samkvæmt ákalli Alþjóðaólympíu- nefndarinnar. FIDE-þingið mun áfram vinna að því markmiði að stuðla að sam- heldni innan FIDE og virða mann- réttindareglur stofnsáttmála FIDE, að sögn Dvorkovich, forseta sambandsins. „Hann er vinsæll og hefur verið að gera frábæra hluti, ég held að heimurinn vilji hann áfram sem forseta. Hann er náttúr- lega fyrrverandi varaforsætis- ráðherra og vel tengdur. Þetta er býsna flókin staða fyrir hann og örugglega ekki auðvelt,“ segir Gunnar. Karjakin hliðhollur Pútín og kærður til siðanefndar FIDE Skákmenn hafa margir tjáð sig opinberlega um átökin og fordæmt þau, þar á meðal rússneski stór- meistarinn alkunni og stjórnarand- stæðingurinn Garry Kasparov en sumir skákmenn hafa stillt sér upp við hlið Rússa. Þar má nefna Rúss- ann Sergei Karjakin, stórmeistara og fyrrverandi heimsmeistara í skák, sem var á dögunum kærður til siðanefndar FIDE, ásamt rúss- neska stórmeistaranum Sergei Shi- pov, fyrir umdeild ummæli vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Óljóst er hvort Karjakin fær að keppa í áskorendaflokki í sumar en hann hefur öðlast keppnisrétt þar, fyrir komandi heimsmeistaraeinvígi sem fer fram í byrjun ársins 2023. Kar- jakin er ættaður frá Rússlandi en ólst upp í Úkraínu; hann hafði teflt fyrir hönd Úkraínu og unnið gull- verðlaun á Ólympíumóti fyrir land- ið en árið 2009 fékk hann rúss- neskan ríkisborgararétt. Síðan þá hefur hann teflt fyrir hönd Rússa og stutt Pútín opinberlega. Spurður um framgang stórmóta á næstunni og mætingu sterkra skákmanna segir Gunnar: „Menn hafa bara áhyggjur auðvitað. Loks- ins þegar menn sjá fram á Ólympíuskákmót eftir Covid þá er það bara komið í svona óvissu. Ekki það sem menn vildu. Allir hafa ver- ið að hlakka til einhvers glæsilegs Ólympíuskákmóts í Moskvu. En núna er óvissa innan skákarinnar, það er enginn vafi,“ segir Gunnar í lokin. Dvorkovich hafði boðað komu sína á Reykjavíkurskákmótið í mars en nú er óljóst hvort verði af þeim fyrirætlunum. Átök setja skákheiminn í uppnám - Ólympíumótið fer ekki fram í Rússlandi líkt og stóð til - Forseti FIDE var hægri hönd Pútíns Morgunblaðið/Styrmir Kári Baráttan í skákheiminum fer nú ekki einungis fram yfir skákborðinu. Snúin staða er komin upp í Alþjóðaskáksambandinu eftir innrás Rússa. Gunnar Björnsson Arkady Dvorkovich

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.