Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 16

Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 16
16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 AÐALFUNDUR BRIMSHF. 24. mars 2022 Aðalfundur Brims hf. verður haldinn fimmtudaginn 24. mars 2022 með rafrænum hætti auk þess sem hluthöfum gefst kostur á að mæta til fundarins en fundurinn fer fram í matsal félagsins að Norðurgarði 1, 101 Reykjavík klukkan 17:00. Fundurinn fer fram á íslensku. Dagskrá 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. gr. 4.11 í samþykktum félagsins. 2. Tillaga um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum samkvæmt 55. gr. hlutafélagalaga. 3. Önnur mál. Atkvæðagreiðsla á fundinummun alfarið fara fram með rafrænum hætti í gegnum Lumi AGM Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar á netfangið adalfundur@brim.is með það löngum fyrirvara að unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins, 10 dögum fyrir fundinn. Þannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi síðar en kl. 17:00 mánudaginn 14. mars 2022. Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. hlutafélaga- laga skal tilkynna skriflega, minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar. Framboðum skal skila á skrifstofu félagsins, Norðurgarði 1 eða á netfangið adalfundur@ brim.is. Tilkynnt verður um framkomin framboð tveimur dögum fyrir aðalfundinn. Boðið verður upp á fullgilda rafræna þátttöku á fundinum í gegnum Lumi AGM án þess að hluthafar séu viðstaddir á fundarstað skv. ákvæðum í gr. 4.4 í samþykktum félagsins. Hægt verður að fylgjast með fundinum í gegnum vefstreymi auk þess sem hluthafar geta kosið rafrænt og borið upp skriflegar spurningar í gegnum Lumi snjallforritið eða á vefsíðu Lumi. Rafræn þátttaka jafngildir mætingu á fundinn og veitir rétt til þátttöku í honum að öðru leyti. Atkvæðagreiðsla á fundinum mun alfarið fara fram í gegnum Lumi AGM. Allir hluthafar, hvort sem þeir mæta til fundarins í Norðurgarði eða taka þátt með rafrænum hætti, eru hvattir til að hlaða niður smáforriti Lumi AGM í eigin snjalltæki, en jafnframt geta þeir greitt atkvæði í gegnum vefslóð Lumi AGM. Aðilar sem eru eignaskráðir hluthafar í hlutaskrá skv. hluthafakerfi félagsins þegar aðalfundur fer fram geta beitt réttindum sínum á aðalfundi. Hluthafar geta látið umboðsmann sækja fundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt og dagsett umboð, en form að umboði er aðgengilegt á vefsíðu félagsins. Tekið skal fram að umboð getur aldrei gilt lengur en í eitt ár frá dagsetningu þess. Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru beðnir um að skrá sig tímanlega á vefsíðunni www.lumiconnect. com/meeting/brim eigi síðar en kl. 17.00 þann 23. mars, eða degi fyrir fundardag.Með innskráningu þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á. Hluthöfum stendur jafnframt til boða að kjósa um dagskrármál með skriflegum hætti eða veita umboð. Á vefsíðu félagsins má finna viðeigandi eyðublöð. Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. Heildarhlutafé félagsins nemur kr. 1.955.979.606 og fylgir eitt atkvæði hverjum hlut. Eigin bréf félagsins eru nú kr. 34.920.417 og virkt hlutafé félagins því 1.921.059.189. Dagskrá og öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins og tillögur eru hluthöfum tiltæk á íslensku, á heimasíðu félagsins og á skrifstofu þess á venjulegum skrifstofutíma. Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn. Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn má finna á vefsíðu félagsins https://www.brim.is/is/ fjarfestar/adalfundur Reykjavík 2. mars 2022 Stjórn Brims hf. Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Hópur listamanna hefur skipulagt listaverkauppboð til stuðnings Úkra- ínu og verður það haldið á sunnudag- inn, frá 15 til 21:30, í Gallery Port. Ágóði af sölunni mun renna óskertur til Rauða krossins og úkraínska fjöl- miðilsins The Kyiv Independent. Listamennirnir Alexander Zak- lynsky og Julia Mai Linnéa Maria höfðu samband við Árna Má Erlings- son, sem rekur Gallery Port ásamt Skarphéðni Bergþórusyni, og spurðu hvort þau gætu haldið uppboð þar. „Við vorum meira en til í það. Einn af bestu vinum Portsins er einmitt Ósk- ar Hallgrímsson sem er búinn að vera mikið í sambandi við fjölmiðla,“ segir Árni. Myndlistarmaðurinn Ósk- ar er búsettur í Kænugarði og hefur sagt frá ástandinu þar undanfarna daga. „Maður getur einhvern veginn ekkert gert þannig að þegar þessi hugmynd kom upp þá var það meira en sjálfsagt. Það er svo ótrúlega lítið hægt að gera verandi á þessari eyju með allt sem við þurfum. Það kemur aldrei neitt svona alvarlegt upp hjá okkur. Það er kannski aðalástæðan fyrir því að við Skarphéðinn vorum meira en til í þetta,“ segir Árni. „Við erum strax farin að fá skila- boð frá hinum og þessum listamönn- um sem vilja gefa verkin sín.“ Meðal þeirra listamanna sem hafa staðfest þátttöku sína eru auk skipu- leggjendanna Alexanders og Júlíu, og eigenda Ports, Árna og Skarphéð- ins: Styrmir Örn Guðmundsson, Auð- ur Lóa Guðnadóttir, Hildur Ása Hen- rýsdóttir, Lóa Hjálmtýsdóttir, Alexander Zaklynsky, Áslaug Íris, Story, Aðalheiður Þórhallsdóttir, Há- kon Pálsson, Eva Schram og Comfor- table Universe. „Við verðum örugglega að taka við verkum fram á lokadag og mér sýnist á öllu að vegna ásóknar listamanna verði fleiri viðburðir en þessi eini á sunnudaginn. Við byrjum á honum og sjáum hvað gerist.“ Taka saman höndum og styðja Úkraínu - Listaverkauppboð í Gallery Port - Hópur listamanna gefur verk sín Vísun Verk Þorvaldar Jónssonar vísar til verks Maríu Primachenko. Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Börnum flóttafólks og hælisleitenda í leik- og grunnskólum hér á landi hefur fjölgað mjög á undanförnum árum. Þjónustusamningur sem stærstu sveitarfélög landsins gerðu við ríkið í febrúar í fyrra um samræmda móttöku flótta- fólks rennur út í apríl og vilja forystumenn sveitarfélaganna að hann verði endurnýjaður með talsverðum breytingum og auknu fjár- magni. Fram kemur í gögnum sem lögð voru fyrir stjórnarfund Sambands íslenskra sveitar- félaga í lok síðustu viku að margt hafi farið úr- skeiðis við framkvæmd samningsins. Hafi fjár- mögnun þjónustu gagnvart börnum verið ófullnægjandi bæði hvað varðar stuðning innan skóla og barnavernd. Börnum með stöðu flóttafólks 17 ára og yngri í Reykjavík hefur fjölgað úr 82 árið 2019 í 276 í fyrra. Einnig hefur orðið veruleg fjölgun í þessum aldurshópi í Hafnarfirði, Reykja- nesbæ, Árborg og á Akureyri. Nú eru í leik- og grunnskólum þessara sveitarfélaga 130 börn með flóttabakgrunn, þ.e. þau koma annaðhvort úr röðum hælisleitenda eða svonefnd kvóta- flóttafólks. Fyrirsjáanlegt er að fjölgun barna og ungmenna mun halda áfram og með vænt- anlegum flóttafjölskyldum frá Úkraínu verður fjölgunin enn meiri en gert var ráð fyrir. Fram kemur í bréfi sem fulltrúar sveitarfé- laganna rituðu stjórn sambandsins að rann- sóknir og fengin reynsla sýni að flest börn með flóttabakgrunn séu með brotna skólagöngu og glími við ýmsa erfiðleika sem tengjast aðstæð- um sem þau koma úr. Taka verði tillit til til- finningalegra, félagslegra og námslegra þátta við aðlögun, inngildingu og skipulag náms og annars stuðnings til lengri tíma. M.a. sé þörf á sálfræðiþjónustu vegna áfallastreituröskunar. Sveitarfélögin vilja að í nýjum samningi verði gert ráð fyrir sérstökum greiðslum vegna skólaþjónustu, frístunda og félags- og tóm- stundaþátttöku barna með flóttabakgrunn svo að kleift sé að stuðla að farsælli aðlögun þeirra að íslensku menntakerfi og samfélagi. Núverandi samningur um samræmda mót- töku flóttafólks frá 2021 hefur verið skilgreind- ur sem reynsluverkefni. Sveitarfélögunum sem hann gerðu stóð til boða að vera áfram að- ilar að samningi við ríkið um kvótaflótta- mannamóttöku og fá greiðslur, m.a. til skóla- göngu barna, með þeim hætti. En þá fengju þau ekki greiðslur með flóttafólki sem kemur á eigin vegum (hælisleitendur). Fram kemur í gögnunum sem kynnt voru á stjórnarfundinum að í viðræðunum við ríkið í fyrra hafi verið reynt að fá viðurkenningu á því að í reynslu- verkefninu yrði tekið tillit til svonefndra „þungra tilvika“ í þjónustu skóla, barnavernd- ar og fötlunardeilda. Sú viðleitni hafi ekki borið árangur en ákveðið hafi verið að fá yfirsýn yfir þessi tilvik með sérstöku verkbókhaldskerfi á samningstímanum. Að mati flestra sveitarfé- laganna hefur það kerfi hins vegar reynst óað- gengilegt. Loks kemur fram í gögnunum að hlutverk Fjölmenningarseturs hvað varðar pörun ein- staklinga og sveitarfélaga hafi ekki gengið eft- ir. Tryggja þurfi stjórnsýsluheimildir seturs- ins með breytingum á lögum um málefni innflytjenda. Vilja semja á ný um flóttabörn - Mikil fjölgun barna með flóttabakgrunn í leik- og grunnskólum stórra sveitarfélaga - Eru nú 130 Morgunblaðið/Árni Sæberg Börn Íslenskir krakkar að leik. Flóttabörnum sem koma að utan fjölgar ört hérlendis.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.