Morgunblaðið - 03.03.2022, Page 18

Morgunblaðið - 03.03.2022, Page 18
18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Mikilvægt er að sem fyrst verði haf- ist handa um endurskoðun svæðis- skipulags höfuðborgarsvæðisins þannig að Hafnafjarðarbær geti haf- ið undirbúning þess að brjóta fleiri ný svæði undir byggingarlóðir. Þetta segir Ágúst Bjarni Garðars- son, formaður bæjarráðs Hafn- arfjarðarbæjar og alþingismað- ur. Mikið er byggt í Hafnarfirði um þessar mundir og nú er meðal ann- ars verið að steypa upp fjöl- býlishús í hinu nýja Hamrahverfi og sérbýlishúsin rísa í Skarðshlíðinni. Hamranesið er svæðið sem var und- ir háspennulínunum sem liggja að álverinu í Straumsvík, en sem kunn- ugt er tafðist flutningur þeirra í talsverðan tíma vegna kærumála í skipulagi. Hamranes í byggingu og Ásland tilbúið „Skipulagsmálin eru einn af þeim málaflokkum sem við í Framsókn og Sjálfstæðisflokki, sem stöndum að núverandi meirihluta í bæjarstjórn, settum á oddinn og tekist hefur ákaflega vel til með á kjörtíma- bilinu,“ segir Ágúst Bjarni. „Þegar við hófum samstarfið fyrir tæpum fjórum árum var mörkuð sú stefna að skipuleggja ný og stór svæði und- ir íbúðabyggðir, eins og mikil þörf var á. Þar var Hamranesið efst á blaði, en þar verða alls um 1.600 íbúðir. Samkvæmt þekktri þumal- puttareglu í rekstri sveitarfélaga um 2,5 íbúa í hverri íbúð þýðir slíkt að íbúar í Hamranesi verða nærri 4.000 þegar hverfið er fullbyggt eftir þannski 3-4 ár. Þá erum við nú tilbú- in með deiliskipulag í fjórða hluta Áslandsins, sem er fallegt land í suðurhlíðum Ásfjalls. Þar verða um 550 íbúðir, sérbýli í bland við lítil fjölbýli og fjöldi íbúa um 1.400.“ Hraun og Gjótur Annað byggingarsvæði þar sem stefnt er að uppbyggingu í náinni framtíð er Hraun vestur; það er reitur sem markast af Reykjavíkur- vegi, Flatahrauni og Fjarðarhrauni. Þar munu m.a. hús sem fyrir eru víkja fyrir 2.700 íbúðum og íbúarnir verða því vel á sjöunda þúsund, að ætla verður. Þetta er fjögurra hekt- ara svæði sem hýsir í dag marg- víslega atvinnustarfsemi og þjón- ustu. „Svæðið mætti hins vegar nýta betur þó svo mikilvægt sé að halda í sem mest af þeirri starfsemi sem fyrir er,“ segir á vef Hafnarfjarðar- bæjar um þennan stað sem er vel miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu sem eitt og sér felur í sér ýmis tæki- færi. Gert er ráð fyrir að hverfið í heild byggist í áföngum á um 15-20 árum, en deiliskipulag fyrir fyrsta áfanga á Hraunum vestur. Svæðið Gjótur er tilbúið og áætla lóðarhafar að hefja framkvæmdir nú á vormán- uðum. Þar verða 490 íbúðir auk verslunar og þjónustu. Nærri höfninni í Firðinum, við Flensborgarhöfn og Óseyrarsvæði, er svo unnið að deiliskipulagi hverfis með um 900 íbúðir – að viðbættu því að í bænum eru nokkrir þéttingar- reitir þegar í framkvæmd; það er við Hrauntungu, Hjallabraut, Stekkjar- berg og á svonefndum Dvergsreit undir Hamrinum. Nægt land til uppbyggingar „Hafnarfjarðarbær á nægt land til uppbyggingar á næstu áratugum. Hins vegar setur fyrrgreint svæðis- skipulag höfuðborgarsvæðisins okk- ur skorður og því er eins og fyrr segir mjög brýnt að hefjast handa við endurskoðun þess og breytingar svo svara megi þeirri þörf sem nú þegar er til staðar. Þétting byggðar er nauðsynleg en hún verður að vera samhliða því að sveitarfélög hafi tækifæri til að brjóta ný lönd undir byggingar, svo byggja megi þar hratt og hagkvæmt. Við þurfum húsnæði fyrir alla og þetta þarf að gerast hratt,“ segir Ágúst. Aftur fjölgun Íbúar í Hafnarfirði eru í dag 29.971, skv. nýjustu tölum á vef Hagstofu Íslands, en voru 29.687 skv. árstölum fyrir 2020. Þannig fækkaði fólki í bænum lítið eitt á tímabili, bæði af því ekki var nægt framboð á lóðum, m.a. vegna línu- mála og aukinheldur sem nokkur hópur erlends fólks hélt aftur til heimalanda sinna, þegar sló í bak- seglin vegna kórónuveirufaraldurs- ins. „Núna erum við vonandi komin út úr veirutímanum og uppbygging gengur vel um bæ allan. Framboð lóða verður áfram gott hér í Hafn- arfirði inn í nána framtíð, en við þurfum einnig að hugsa lengra fram í tímann. Tölurnar í Hafnarfirði núna eru aftur orðnar grænar,“ seg- ir Ágúst Bjarni. sbs@mbl.is Brjóta ný svæði undir byggingar Skissa Á þessari snotru vatnslitamynd frá Hafnarfjarðarbæ sést hver gæti orðið svipur byggðar í Áslandi 4, þar sem er gert ráð fyrir um 550 ibúðum. - Nægt framboð lóða - Endurskoðun svæðisskipulags mikilvæg, segir for- maður bæjarráðs - Byggt og þétt Ágúst Bjarni Garðarsson Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hamranes Landnám er hafið og verið er að steypa upp hús. Íslenskum áskrifendum Disney+ fjölg- aði úr 24% í 43% á milli ár- anna 2021 og 2022. Flestir Ís- lendingar eru áskrifendur að Netflix (77,8%), þar á eftir Sjónvarpi Sím- ans Premium (43,2%), og þar á eftir Disney+ (43,1%). Kemur þetta fram í könnun Maskínu sem gerð var dagana 14.-19. jan- úar 2022 og voru svarendur 952 talsins. Fólk búsett í Reykjavík er lík- legast til þess að vera áskrif- endur að Netflix (81,4%), næstlí- kegast að Disney+ (47,3%) en 27,9% eru áskrifendur að Stöð 2 og 31,9% áskrifendur að Sjón- varpi Símans Premium. 78% Íslendinga með áskrift að Netflix Netflix Vinsælasta sjónvarpsveitan. DAGMÁL Andrés Magnússon Stefán E. Stefánsson Garðabær er í þeirri öfundsverðu stöðu að byggingarland er talsvert til framtíðar og líkur á að fjölgað geti úr 18 í 25 þúsund íbúa á kom- andi árum. Í þeirri uppbyggingu er mikilvægt að læra af reynslunni við uppbyggingu Urriðaholts. Um þetta eru bæjarfulltrúarnir Áslaug Hulda Jónsdóttir, Sigríður Hulda Jóns- dóttir og Almar Guðmundsson sam- mála. Þau bjóða sig öll fram í oddvita- sætið í bænum en prófkjör fer fram hjá Sjálfstæðisflokknum um kom- andi helgi. Áslaug Hulda hefur vermt oddvitasætið, en Gunnar Ein- arsson, sem verið hefur óskoraður leiðtogi sjálfstæðismanna í bænum, en hann vermdi áttunda sæti flokksins í síðustu sveitarstjórnar- kosningum, býður sig ekki fram. Þá hlaut flokkurinn einmitt átta sæti í bæjarstjórn af ellefu. Grípa til aðgerða til umbóta Nýverið var greint frá því á síð- um Morgunblaðsins að 240 börn væru á leikskólaaldri í Urriðaholti, nýjasta hverfi Garðabæjar, en að- eins 120 leikskólapláss. Talsverð gremja ríkir í hverfinu vegna þessa ástands. Allt stefnir hins vegar í það samkvæmt áætlunum bæjarins að börnin verði orðin 480 árið 2024. Til þess að mæta þessu ástandi hef- ur verið ákveðið að koma upp leik- skólarými úr færanlegum einingum og þá miða áætlanir bæjarins einnig að því að nýr leikskóli verði þá ris- inn en til stendur að bjóða upp- byggingu hans út á næstunni. Er samhljómur í viðbrögðum leið- togaefnanna við gagnrýni á stöðuna sem upp er komin og vilja þau full- vissa bæjarbúa um að verið sé að hraða framkvæmdum eins og mögu- legt er til þess að greiða úr stöð- unni. Bendir Almar m.a. á að það sé hægt vegna styrkrar fjárhagsstöðu bæjarins. Væri hún með öðru móti, líkt og mörg bæjarfélög standa frammi fyrir, væri mun erfiðara að greiða úr vandanum. Öll fagna þau opnun nýs og glæsilegs fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri sem hlotið hefur heitið Miðgarður. Undirstrika þau að með aðstöðunni stóreflist æfingaaðstaða fyrir ungt fólk í Garðabæ en að í byggingunni sé einnig aðstaða fyrir eldri borgara. Þar liggi auk þess tækifæri í rými, sem enn hefur ekki verið úthlutað til þess að efla enn frekar aðstöðu til íþróttaiðkunar og heilsueflingar. Heilsugæslan of lítil Í áherslum frambjóðendanna má sjá að valfrelsi bæjarbúa er ofarlega á blaði. Þannig hafa þau nefnt mik- ilvægi þess að skoða möguleika einkaframtaks þegar kemur að ým- iss konar þjónustu. Í orðum þeirra má finna gagnrýni á heilsugæsluna í bænum sem þau ítreka að sé of lítil og anni ekki almennilega þörfum stækkandi bæjarfélags. Hafa bæjaryfirvöld átt í viðræðum við heilbrigðisyfirvöld um hvað gera megi til þess að bæta úr stöðunni en þá upplýsa þau einnig að viðræður hafi átt sér stað við einkaaðila um mögulega uppbyggingu einkarek- innar þjónustu af þessu tagi í bæj- arfélaginu. Í því sambandi er hugsanlega verið að líta til húsnæðis sem nú er til reiðu í fyrrnefndri Vetrarmýri. Þegar þáttastjórnendur gengu á frambjóðendurna þrjá um hvort bærinn væri til í að leggja fjármuni eða húsnæði til ef einkaaðilar tækju að sér að byggja upp heilsugæslu í samkeppni við þá sem fyrir er, urðu svörin nokkuð loðin en ljóst er að vilji er til þess að greiða fyrir nýj- um valkosti. Læra þurfi af reynsl- unni í Urriðaholti - Sterkur fjárhagur Garðabæjar skapar mörg sóknarfæri Barátta Sigríður Hulda Jónsdóttir, Áslaug Hulda Jónsdóttir og Almar Guðmundsson sækjast öll eftir fyrsta sætinu hjá Sjálfstæðisflokknum í Garðabæ en prófkjör fer fram hjá flokknum um helgina. Þau eiga öll sæti í bæjarstjórn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.