Morgunblaðið - 03.03.2022, Page 24

Morgunblaðið - 03.03.2022, Page 24
24 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 Hátíðarhöld í tilefni öskudags hafa verið óhefðbundin síðustu tvö ár vegna samkomutakmarkana en í gær var víðast hvar haldið upp á daginn með hefðbundnum hætti. Sú gamla hefð að sauma öskupoka til að hengja á fólk er raunar á undan- haldi en þess í stað klæða börn sig í skrautlega búninga og ganga á milli verslana og stofnana og syngja og fá eitthvað gott í munninn að launum. Öskudagur, miðvikudagurinn í 7. viku fyrir páska, markar upphaf svonefndar lönguföstu sem er hinn kirkjulegi tími iðr- unar. Fram kemur á vísindavef Háskóla Íslands, að dagurinn hafi lengi verið mikilvægur í katólska kirkjuárinu og nafn hans sé dregið af því að þá er sums staðar ösku dreift yfir höf- uð kirkjugesta til að minna á forgengileikann. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Mæra Á Húsavík var kennsla til hádegis og fóru nemendur þá saman í hópum til að syngja og þiggja mæru (sælgæti) fyrir. Morgunblaðið/Margrét Þóra Þórsdóttir Sungið Ungar stúlkur á Akureyri syngja. Morgunblaðið/Margrét Þóra Þórsdóttir Skrautlegar Margir skrautlegir búningar sáust í versl- unarmiðstöðinni Glerártorgi á Akureyri í tilefni öskudagsins. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Veitingar Í Kringlunni í Reykjavík var tekið vel á móti krökkunum í gær. Furðuverur á ferðinni í tilefni öskudagsins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.