Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 32
32 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022
vfs.is
EITTRAFHLÖÐUKERFI
YFIR VERKFÆRI215
EITTRAFHLÖÐUKERFI
YFIR VERKFÆRI95
VERKFÆRIALVÖRU
3. mars 2022
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 127.22
Sterlingspund 170.49
Kanadadalur 100.3
Dönsk króna 19.092
Norsk króna 14.402
Sænsk króna 13.284
Svissn. franki 138.58
Japanskt jen 1.1081
SDR 177.36
Evra 142.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 173.2786
« Íbúðafjárfesting nam 177 milljörðum
hér á landi í fyrra. Þetta kemur fram í
nýbirtum þjóðhagsreikningum Hag-
stofu Íslands og hagfræðideild Lands-
bankans gerir að umtalsefni í nýrri
Hagsjá. Dróst fjárfestingin saman um
4,4% milli ára að raunvirði.
„Við höfðum spáð því að íbúða-
fjárfesting myndi dragast saman um
2% milli ára og var fjárfestingin því
minni, og samdráttur meiri, en við átt-
um von á,“ segja hagfræðingar bank-
ans. Hins vegar hefur fjárfestingin að-
eins þrisvar sinnum mælst meiri á
einu ári, mælt á föstu verðlagi, þ.e. fyrr-
nefnt ár 2020, auk 2019 og 2007.
Það er til marks um þann mikla
snúning sem íbúðamarkaðurinn er á að
íbúðafjárfesting mældist 5,5% af vergri
landsframleiðslu í fyrra en að meðaltali
hefur hún numið 4,1% horft aftur til
ársins 1995.
„Það getur reynst gagnlegt að líta til
íbúðafjárfestingar sem hlutfalls af
vergri landsframleiðslu til þess að
leggja mat á hvort verið sé að byggja
mikið eða lítið miðað við aðstæður,“
segir í Hagsjánni. „Staðan eins og hún
er í dag bendir til þess að verið sé að
byggja talsvert en þrátt fyrir það ríkir
mikil spenna á fasteignamarkaði,“
segir þar enn fremur og bent á að verð-
hækkanir séu miklar og að það bendi til
þess að þær séu drifnar áfram af veru-
lega aukinni eftirspurn. Þá hafi það
einnig áhrif að nýjar íbúðir séu dýrari en
þær sem fyrir eru og að mikil sala í
þeim geti knúið verðhækkanir upp.
Íbúðafjárfesting nam
177 milljörðum í fyrra
STUTT
Gísli Freyr Valdórsson
gislifreyr@mbl.is
Sérstakt viðbragðsteymi innan
Marels var virkjað við innrás
Rússa í Úkraínu í síðustu viku, en
Marel hefur verið með sölu og
þjónustustarfsemi í Rússlandi um
árabil og hefur auk þess stundað
viðskipti í Úkraínu. Félagið er með
skrifstofu í Moskvu og hefur unnið
að framleiðslu-
verkefnum á
andakjöti í Síb-
eríu, svo tekin
séu dæmi.
Spurð um
stöðu viðskipta
og bókana frá
viðskiptavinum í
Rússlandi og
Úkraínu, og það
hvort félagið sjái
fyrir sér erfiða tíma eða rof á
tekjum, segir Linda Jónsdóttir,
fjármálastjóri Marels, að hlutall
Rússlands í heildartekjum félags-
ins sé afar lágt og óverulegt fyrir
Úkraínu. Hún bætir við að við-
skiptavinahópur Marel sé fjöl-
breyttur, bæði hvað varðar stærð
og staðsetningu, og að enginn einn
viðskiptavinur telji meira en 5% af
ársveltu félagsins.
Linda segir neyðarteymi Marels
fylgjast náið með ástandinu og
samræmi aðgerðir félagsins á
heimsvísu. Þar hafi öryggi starfs-
fólks og daglegur rekstur verið í
fyrirrúmi. Um 70 manns starfa á
vegum Marels í Rússlandi og
Úkraínu og lögð sé áhersla á að
tryggja öryggi þeirra starfsmanna.
Hún tekur fram að Marel sé með
starfsemi í 30 löndum en um 7.000
manns starfa hjá félaginu.
Tekjur koma víða
Gengi hlutabréfa í Marel hefur
lækkað nokkuð skarpt á þeirri viku
sem liðin er frá innrásinni í Úkra-
ínu, eða um tæp 9%. Þó er rétt að
taka fram að bréf Marels hafa ver-
ið á niðurleið frá áramótum, hafa
lækkað um rúm 19%. Viðmælendur
Morgunblaðsins af markaði hafa
orð á því að bæði almennir fjár-
festar sem og fagfjárfestar telji
umsvif Marels í þessum löndum
meiri en þau eru í raun og veru
auk þess sem óvissa um framhald-
ið skýri að miklu leyti þessa lækk-
un.
„Við höfum átt traust viðskipta-
sambönd til lengri tíma,“ segir
Linda, spurð um stöðuna á við-
skiptum félagsins á svæðinu. Hún
svarar því ekki hversu lengi félag-
ið getur unað við rask á fram-
leiðslu eða þjónustu í Rússlandi
eða Úkraínu en segir að viðskipta-
módel Marels hafi reynst þraut-
seigt á þeim krefjandi tímum sem
hafa verið undangengin ár og nefn-
ir þar til sögunnar milliríkjadeilur,
viðskiptaþvinganir og heimsfarald-
ur.
„Tekjur Marels koma frá sex
heimsálfum og dreifast á þrjá prót-
íniðnaði og þrjú framleiðslustig og
40% heildartekna koma frá vara-
hlutum og þjónustu,“ segir Linda.
Mikil lækkun í vikunni
Eins og gefur að skilja hefur
innrás Rússa í Úkraínu haft áhrif á
hlutabréfamarkaði hér á landi eins
og annars staðar. Á þeirri tæpu
viku sem liðin er frá innrásinni
hefur hlutabréfaverð í Iceland
Seafood lækkað um 12%, í Síldar-
vinnslunni um rúm 5% en aftur á
móti hafa bréf í Brimi hækkað um
3%, enda á Brim minna undir á
þessum markaði. Þá hafa bréf Ice-
landair Group lækkað um 14% en
höfðu hækkað nokkuð fram í miðj-
an febrúar. Bréf Play á First
North-markaðinum hafa lækkað
um 12%, og í Eimskip um 8%. Við-
mælendur Morgunblaðsins af
markaði segja óvissu skýra þá
lækkun sem hefur átt séð stað, fyr-
irsjáanlegt sé að eftirspurn eftir
ferðlögum verði takmörkuð, að
truflanir verði á vöruflutningum og
svo framvegis. Hversu lengi veit
þó enginn.
Hlutfall rússneskra tekna lágt
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Framleiðsla Framleiðsluvélar Marels settar upp í A-Evrópu á síðasta ári.
- Sérstakt viðbragðsteymi virkjað - Segir viðskiptamódel Marels þrautseigt
- Innrásin í Úkraínu hefur áhrif á sjávarútveg og flutningafyrirtæki á Íslandi
Á fjórða ársfjórðungi í fyrra var 44,2
milljarða króna halli á viðskiptajöfn-
uði við útlönd og var það 61,2 millj-
örðum lakari niðurstaða en á þriðja
fjórðungi í fyrra, að því er fram kem-
ur í nýbirtum tölum Seðlabankans.
Þróun viðskiptajafnaðar síðustu
fimm ársfjórðunga er sýnd á töflunni
hér fyrir ofan, sundurliðaður í fjóra
liði: vöruskipti, þjónustu, frumþátta-
tekjur og rekstrarframlög.
Mestur á öðrum fjórðungi 2021
Halli er á vöruskiptum alla þessa
fimm fjórðunga og var sá halli mest-
ur á öðrum fjórðungi í fyrra, eða 56,3
milljarðar króna.
Þjónustujöfnuðurinn var jákvæð-
ur fjóra af þessum fimm fjórðungum.
Undantekningin var fyrsti fjórðung-
ur í fyrra en þá var hann neikvæður
um 8,3 milljarða. Jöfnuður af frum-
þáttatekjum var sömuleiðis jákvæð-
ur fjóra af þessum fimm fjórðungum
en 15,5 milljarða halli var af þessum
lið á fjórða fjórðungi í fyrra.
Á vef Seðlabankans segir að halli
mælist nú á jöfnuði frumþáttatekna
eftir viðvarandi afgang frá 2. árs-
fjórðungi 2015 en helsta skýringin sé
bætt afkoma fyrirtækja í erlendri
eigu sem flokkist undir beina fjár-
festingu. Þá birtist kröftugur inn-
flutningur í halla af vöruskiptum.
44 milljarða halli
á viðskiptajöfnuði
- Sveifla milli 3. og 4. fjórðungs 2021
Viðskiptajöfnuður við útlönd Heimild:
Seðlabanki Íslands
2020 2021
4.ársfj. 1. ársfj. 2. ársfj. 3. ársfj. 4. ársfj.
Vöruskiptajöfnuður -15,5 -21,0 -56,3 -47,7 -38,7
Þjónustujöfnuður 26,0 -8,3 22,6 60,4 20,1
Jöfnuður frumþáttatekna 21,5 13,0 2,1 12,0 -15,5
Rekstrarframlög, nettó -8,5 -7,6 -7,6 -7,7 -10,1
Viðskiptajöfnuður alls 23,5 -23,8 -39,2 17,0 -44,2
Frá 1. ársfj. 2020
til 4. ársfj. 2021
Sala á íslenskum sjávarafurðum til Rússlands hefur dregist töluvert sam-
an á liðnum árum en á sama tíma aukist nokkuð í Úkraínu. Það á rætur
sínar að rekja til þess að rússnesk stjórnvöld bönnuðu innflutning á ís-
lenskum sjávarafurðum í kjölfar þess að Ísland tók þátt í viðskiptaþving-
unum gegn Rússlandi, eftir innrás Rússa á Krímskaga 2014. Aftur á móti
hefur sala á tæknibúnaði fyrir matvælavinnslu og sjávarútveg aukist
nokkuð á sama tíma, og hafa fyrirtæki á borð við Marel, Skagann 3X,
Naust Marine og fleiri átt umfangsmikil viðskipti í Rússlandi á liðnum ár-
um. Vöxtur Marels í Austur-Evrópu hefur gengið vel og í Covid-19-
heimsfaraldinum hefur eftirspurn aukist eftir lausnum til að framleiða
tilbúna rétti, eins og fram kom í viðtali við Rudolf Gubric, framleiðslu-
stjóra Marels í Slóvakíu, í Morgunblaðinu í nóvember sl.
Aukin viðskipti í A-Evrópu
ÚKRAÍNA LEYSTI RÚSSLAND AF HÓLMI EFTIR VIÐSKIPTABANN
Linda Jónsdóttir