Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 34

Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is Í ÞÍNU BESTA FORMI HEIMA Í STOFU Æfingatæki, lóð, rúllur og boltar Úkraínumenn, eru náskyldar og eiga langa sameiginlega sögu. Ég á kunningja og vini beggja vegna landamæranna,“ sagði Jónas Tryggvason, framkvæmdastjóri í Moskvu. Hann er altalandi á rúss- nesku og hefur búið í Rússlandi samtals í um 20 ár með hléum og hefur dvalið þar síðustu fimm ár. Jónas kom fyrst til Sovétríkj- anna fyrir um 40 árum og lauk þar háskólaprófi í íþróttafræðum. Hann nam einnig tölvunarfræði við Háskóla Íslands, viðskiptafræði við University of Washington í Banda- ríkjunum og lauk MA-gráðu í stjórnmálafræði með áherslu á átakagreiningu við Kent-háskóla. Jónas býr nú í Krasnogorsk rétt utan við Moskvu ásamt rússneskri eiginkonu sinni. Hann er fram- kvæmdastjóri þýska lyfjafyrirtæk- isins Aristo Pharma í Rússlandi og nálægum löndum. Jónas þekkir einnig vel til í Úkraínu eftir að hafa verið þar um fimm ára skeið og rekið fyrirtæki. „Úkraína var hluti af rússneska keisaradæminu. Afi konunnar minnar var Úkraínumaður og margir rekja ættir sínar til beggja landa. Það er algengt að fólk eigi foreldra eða systkini sitt hvorum megin við landamærin,“ sagði Jón- as. Sovétríkin leystust upp 1991 og þá lýstu 15 fyrrum Sovétlýðveldi yfir sjálfstæði, þeirra á meðal Úkraína. „Sum höfðu verið sjálfstæð fyrir keisaradæmið, en Úkraína aldrei. Hún var eiginlega búin til af Lenín eftir byltinguna 1917 sem eitt af Sovétlýðveldunum. Úkra- ínumaðurinn Krústsjov gaf Úkra- ínu Krímskaga 1954 þótt 80% íbú- anna væru Rússar. Þegar Sovétríkin féllu 1991 vildu flestir Krímverjar sameinast Rússlandi en urðu áfram hluti af Úkraínu,“ sagði Jónas. En hvernig leggjast refsiaðgerð- Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Það er sorglegt að bræður skuli berjast. Þessar þjóðir, Rússar og ir Vesturlanda í rússnesku þjóð- ina? „Auðvitað eru Rússar ekki sáttir við þetta, en þeir hafa áður staðið saman í gegnum erfiðleika,“ sagði Jónas. En hvaða áhrif hafa aðgerð- irnar á rekstur fyrirtækis hans? „Við gátum fært til fjármagn sem dugar til reksturs í þrjá mán- uði og flutt inn birgðir til 3-6 mán- aða. Annars eru lyf og hjúkr- unarvörur yfirleitt undanþegnar viðskiptahindrunum af mannúðar- ástæðum,“ sagði Jónas. Hann telur að hindranirnar muni ekki síður bitna á Evrópu en Rússum. Lokun á flugi evrópskra flugvéla í gegn- um lofthelgi Rússlands valdi því að flug frá Evrópu til Austurlanda fjær lengist um 2-3 klukkustundir. Með því fá flugfélög í Asíulöndum forskot á keppinautana. Brugðust við aðgerðum 2015 Jónas bendir á að BRICS-löndin taki ekki þátt í refsiaðgerðunum nú. Auk Rússlands eru þau Bras- ilía, Indland, Kína og Suður- Afríka. Rússar muni beina við- skiptum sínum til þeirra og geti m.a. notað alþjóðlegt greiðslukerfi Kínverja. „Vesturlönd settu viðskipta- hindranir á Rússa 2015 og þeir svöruðu með gagnhindrunum. Þetta olli meðal annars því að mik- ilvægir markaðir fyrir íslenskan fisk töpuðust. Færeyingar tóku ekki þátt í þessum aðgerðum og héldu sínum mörkuðum. Rússar brugðust við fiskskorti með auknu fiskeldi og fóru að fullvinna afla í stað þess að selja hann óunninn úr landi. Þeir eru nú sjálfum sér næg- ir með nautakjöt, sem var nær allt flutt inn fyrir 2015. Sama er að segja um osta og vín. Það er búið að efla bílaframleiðslu, skipasmíði og margt fleira. Það var athygl- isvert að sjá hvað þetta gerðist hratt,“ sagði Jónas. „Það er sorglegt að bræður skuli berjast“ - Rússar og Úkraínumenn eru náskyldir - Löng sameig- inleg saga - Rússar standa saman þegar á móti blæs Morgunblaðið/Árni Sæberg Framkvæmdastjóri Jónas Tryggvason býr í Moskvu og stýrir útibúi þýsks lyfjafyrirtækis í Rússlandi og nágrannalöndum. Hann bjó einnig í Úkraínu. Stríð í Evrópu Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl.is Flemming Splidsboel Hansen, sér- fræðingur hjá dönsku alþjóðamála- stofnuninni (DIIS), segir nýtt kalt stríð hafið. Evrópubúar þurfi að undirbúa sig fyrir þær breytingar sem eru í vændum. Hansen segir erfitt að spá um hversu lengi stríðsátökin muni standa yfir en ólíklegt sé að þau verði jafn áköf og langdregin eins og í síð- asta kalda stríði. Þetta kom fram í máli hans á opn- um fundi um innrás Rússlands í Úkra- ínu og þær afleiðingar sem innrásin hefur fyrir öryggi í Evrópu. Fundur- inn fór fram í gær í Háskóla Íslands og var á vegum Alþjóðamálastofnunar HÍ, Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félags stjórnmálafræð- inga. Hansen sagði að með refsiaðgerð- um Vesturlanda væri líklegt að Rúss- ar misstu völd og gætu þeir því orðið ófyrirsjáanlegir í aðgerðum sínum í von um að endurheimta það sem glat- ast hefur. Áhrifin verða umfangsmikil Spurður hvaða áhrif innrás Rússa muni koma til með að hafa á Evrópu, sagði Hansen að erfitt að segja til um hvernig þetta muni enda. Aftur á móti liggi ljóst fyrir að áhrifin verði um- fangsmikil. „Það virðist vera almennur skiln- ingur á því að við höfum byrjað í nýju köldu stríði. Þetta kalda stríð verður ekki jafn ákaft og langdregið og síð- asta kalda stríð – og ég vona að ég hafi rétt fyrir mér – í þeim skilningi að hernaðarátök verða ekki jafn mikil eins og í gamla kalda stríðinu og póli- tísk átök verða ekki jafn áköf,“ sagði hann. „Það sem við sjáum í Rússlandi núna er ekki beint sterk hugmynda- fræði. Þess í stað eru þetta hugmyndir á reiki sem hafa verið settar saman í pólitíska stefnu,“ sagði hann. Ófyrirsjáanlegar aðgerðir Hansen sagði allt benda til þess að Rússar séu að missa mikil völd á al- þjóðavettvangi vegna refsiaðgerða Vesturlanda. Hann sagði heiminn þurfa að undirbúa sig undir það en að- gerðir Rússa gætu orðið ófyrirsjáan- legar í tilraunum þeirra til að endur- heimta það sem glatast hefur. „Ég er nokkuð viss um að [Pútín] muni halda áfram hernaðaraðgerðum nema mannfall verði það mikið að hann verði að stoppa, eða þá að þeir átti sig á því að markmið þeirra sé mjög óraunhæft. Það virðist sem stefnan núna sé að handtaka eða myrða Selenskí, að losna við úkraínsk stjórnvöld og koma upp rússneskri leppstjórn. Þeir gætu aftur á móti hafa komist að þeirri niðurstöðu núna að jafnvel með leppstjórn myndi þjóðin að sjálf- sögðu ekki vera hliðholl Rússum,“ sagði Hansen. Hann telur Rússa mögulega þurfa að draga sig í hlé og einbeita sér að því að semja um það sem þeir telja hvað mikilvægast, sem er að Krím- skagi verði viðurkenndur sem hluti af landsvæði Rússa. Í máli hans kom fram að framtíð Rússlands nú sé óræð en ef þjóðin veikist mikið vegna refsiaðgerða Vesturlanda og nái ekki að endur- heimta fyrri styrk gæti það leitt til aðstæðna þar sem Rússar gætu jafn- vel þurft að laga sig að vestrænum gildum og veruleika. Ef svo færi gæti það einnig haft áhrif á þau lönd sem eiga landamæri að bæði Rússlandi og Vesturlöndum, svo sem Hvíta-Rússland og Moldav- íu. Evrópubúar þurfi að vera reiðu- búnir og taka ákvörðun um hvernig eigi að bregðast við og haga sam- skiptum við þau lönd þar sem mikill munur getur verið á stjórnarháttun- um sem þar ríkja í samanburði við stjórnarhætti Evrópu. Viðhorf til Úkraínu hafa breyst gríðarlega hratt Volodimír Selenskí, forseti Úkra- ínu, hefur nú formlega sótt um inn- göngu í Evrópusambandið fyrir hönd Úkraínu. Spurður við hverju megi bú- ast af því samstarfi, sagðist Hansen telja líklegt að Úkraína yrði samþykkt og það yrði gert eins fljótt og auðið er. „Það er ákveðin samstaða innan Evrópusambandsins um það að Úkra- ína eigi heima þar og að þetta sé eitt- hvað sem okkur hefur mistekist að ná í gegn,“ sagði Hansen. Hann sagði að viðhorfið gagnvart landinu hefði breyst gríðarlega hratt síðustu daga og vikur úr því að vera nokkuð neikvætt yfir í að vera mjög jákvætt. Fyrir viku hefði fáum dottið í hug að Úkraína ætti erindi í ESB, að sögn hans, en Hansen grunar að aðild landsins í sambandið eigi ekki eftir að ganga snurðulaust fyrir sig. „Ef átökin enda, rússneskir her- menn draga sig í hlé líkt og við vonum, og Úkraínumönnum verður frjálst að setja sína eigin utanríkisstefnu, þá grunar mig að margir muni átta sig á því að Úkraína er stórt land og nokk- uð fátækt. Það getur verið vandkvæð- um bundið að samþykkja Úkraínu í Evrópusambandið. Þeir eiga mikla vinnu fyrir höndum,“ sagði Hansen. Kalt stríð og breytingar í vændum - Flemming Splidsboel Hansen, sérfræðingur í Danmörku, segir heiminn þurfa að undirbúa sig undir að aðgerðir Rússa gætu orðið ófyrirsjáanlegar - Rússar eru að missa mikil völd á alþjóðavettvangi Morgunblaðið/Árni Sæberg Fundur Rætt var um innrás Rússlands og afleiðingar fyrir öryggi í Evrópu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.