Morgunblaðið - 03.03.2022, Síða 39

Morgunblaðið - 03.03.2022, Síða 39
39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 Það er ekki spurning að sveitarfélagið okkar, Garða- bær, á að vera í fararbroddi hvað varðar búsetuskilyrði, lífsgæði og líðan eldri íbúa. Það er því eitt af markmiðum mínum með framboði í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins að fá tækifæri til að vinna markvisst að öruggri og vand- aðri þjónustu fyrir þann fjöl- breytta hóp bæjarbúa sem kominn er á efri ár. Tilgangur og þakklæti Við eldumst öll og hljótum því að vilja að sveitarfélagið okkar sé spennandi bú- setukostur fyrir þá sem lokið hafa störfum. Eldra fólkið sem hefur lagt sitt af mörkum og verðskuldar þakklæti, virðingu, aðbúnað og þjónustu við hæfi. Rannsóknir sýna líka að það er mikilvægt á öllum æviskeiðum að hafa tilgang í lífinu, félagsskap og tækifæri til heilsueflingar. Eldri borgarar er hugtak sem þyrfti að endurskilgreina enda er nú víða talað um þriðja æviskeiðið, þegar fólk færir sig yfir á eftirlaun og fjórða æviskeiðið sem nær yfir þá sem elstir eru. Það er spennandi verk- efni að bæta þjónustu sveitarfélagsins við fólk á báðum þessum æviskeiðum í sam- vinnu við þá sem í hlut eiga. Ég hlakka til þess verkefnis fái ég tækifæri til að sinna því. Í mínum huga er samtal við fólkið sem í hlut á grundvöllur góðra verka og mun ég því leggja áherslu á þétt tengsl og virkt samráð í þessu sambandi sem öðrum. Verum öll með Aðskilnaður kynslóða og jafnvel rof á milli þeirra er einkenni margra vestrænna samfélaga en þar sem hamingja mælist mest er samkennd kynslóða til staðar og allir hjálpast að. Það er spennandi að leita leiða til að auka þátttöku eldra fólks í sam- félaginu enda sannarlega einstaklingar sem hafa mikið fram að færa. Við getum aukið tengslin milli allra kynslóða í Garðabæ til dæmis í gegnum tómstundir og skólastarf og stuðlað þannig að aukinni velsæld og hamingju í samfélaginu. Aldraðir eru breiður hópur fólks með ólíkar þarfir, bæði einstaklingar með fulla færni og aðrir sem þurfa aðstoð, mismikla vegna sjúkdóma eða fötlunar. Markmiðið er að allir sem það kjósa geti búið sem lengst heima, verið sjálfstæðir í lífi og starfi með þá aðstoð sem þeir þurfa, hvort sem búið er í eigin húsnæði eða í einhvers konar þjónustuúrræði. Með mannvirð- ingu og mannréttindi að leið- arljósi er mikilvægt að mæta fólki þar sem það er statt hverju sinni á lífsleiðinni og að allir finni að þeir skipta máli. Einmanaleiki er heilsufarsvá sem bregðast þarf við. Ég vil leiða Garðabæ í forystu sveitar- félaga þar sem unnið er að því bæta lífs- gæði og beita forvörnum gegn einmana- leika. Vönduð heimaþjónusta er grundvöllur þess að fólk geti búið lengur heima, en einnig þarf að sinna heilsueflingu og fé- lagslegri næringu. Þeir sem eru frískari og þurfa litla sem enga þjónustu geta einnig verið einangraðir. Hér er hægt að bæta lífs- gæði og beita forvörnum með ódýrum og einföldum hætti og horfa til nýsköpunar og tækni við veitingu þjónustunnar. Heilsuþjónusta og -efling Bæjarfélagið ætti að stuðla að fjöl- breyttum rekstrarformum í heilbrigðisþjón- ustu og víkka hugtakið heilsugæsla út í takt við nútímaáherslur. Þar skiptir m.a. máli skjótur aðgangur íbúa að þjónustu, samfella í þjónustunni og að hugað sé í senn að lík- amlegri, andlegri og félagslegri heilsu. Styðja þarf við lífsgæði eldri borgara með aðgengi að fjölbreyttri heilsueflingu, fé- lagslífi og hreyfingu. Þar þarf að horfa til enn frekari nýtingar á Jónshúsi og skapa betri aðstöðu á Breiðumýri á Álftanesi. Við getum sannarlega nýtt bæði nútíma- lega tækni og spjall yfir kaffibolla til að skapa saman fleiri leiðir til að það verði öruggt, farsælt og eftirsóknarvert að eldast í Garðabæ. Eftir Sigríði Huldu Jónsdóttur Sigríður Hulda Jónsdóttir Öruggt og eftirsóknar- vert að eldast í Garðabæ »Eldri borgarar er hugtak sem þarf að endurskilgreina. Höfundur gefur kost á sér í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ 5. mars. Hún er bæjarfulltrúi, varaformaður bæjarráðs og formaður skólanefndar. Facebook: Sigríður Hulda 1. sæti. www.sigridurhuldajons.is Hafnarfjörður hefur eftirsókn- arverða stöðu á höfuðborgarsvæð- inu, þar sem við fjörðinn okkar fer saman blómlegt mannlíf, öflug at- vinnustarfsemi, menning og ein- stakur bæjarbragur. Þessum gæð- um er mikilvægt að hlúa að áfram og efla. Undanfarin ár hefur Sjálfstæð- isflokkurinn farið með forystu í bæjarstjórn. Sem forseti bæjar- stjórnar og varaformaður bæjar- ráðs hef ég fylgt eftir stefnumálum okkar og greitt götu þeirra fjölmörgu framfara- mála sem ég tel mikilvægt að beita mér áfram fyrir á komandi kjörtímabili. Sterkur fjárhagur Gríðarleg umskipti hafa orðið til hins betra í fjárhagsstöðu Hafnarfjarðar undanfarin ár. Skuldir bæjarins, sem hlutfall af tekjum, hafa farið jafnt og þétt lækkandi og nú stefnir í að skuldaviðmið Hafnarfjarðar verði það lægsta sem verið hefur um áratuga skeið. Með markvissri hagræðingu í rekstri bæj- arins hefur tekist að halda niðri álögum á íbúa og fyrirtæki. Við höfum lækkað álagning- arprósentu fasteignaskatta og unnið þannig gegn hækkandi fasteignamati. Þrátt fyrir vax- andi verðlag hefur náðst að halda gjaldskrám Hafnarfjarðar með lágmarkshækkunum og í sumum tilvikum óbreyttum milli ára. Þá höfum við lagt áherslu á að halda útsvarsálagningu á íbúa bæjarins undir lögbundnu hámarki. Í Hafnarfirði stendur atvinnulíf styrkum fót- um og löng hefð er fyrir öflugri iðn- og tæknistarfsemi. Það er því ánægjulegt að Háskóli Íslands hefur fundið tæknifræðikennslu sinni stað í Hafnarfirði og jafn- framt stendur nú fyrir dyrum að Tækniskóli Íslands flytji starfsemi sína í Hafnarfjörð. Tengsl mennt- unar og atvinnulífs eru mikilvæg og með þeim aukast tækifæri fyrir ungt fólk og samstarf við atvinnu- lífið. Í Hafnarfirði er gott að búa. Mikilvægt er að bæjaryfirvöld stuðli áfram að farsæld íbúa og at- vinnustarfsemi í bænum, með markvissri upp- byggingu innviða og þjónustu sem skari fram úr og styrkum fjárhag til að fjármagna hana. Trausta forystu áfram Sem forseti bæjarstjórnar hef ég beitt mér fyrir að stefnumál okkar ásamt öðrum fram- faramálum á vettvangi bæjarstjórnar hafi náð fram að ganga. Í komandi prófkjöri verður val kjósenda að tryggja áfram öfluga forystu okkar í bæjarstjórn til næstu fjögurra ára og þar býð ég áfram fram krafta mína. Eftir Kristin Andersen Kristinn Andersen Trausta forystu í Hafnarfirði »Kjósum trausta forystu áfram í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Höfundur er forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði og gefur áfram kost á sér í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. kristinnandersen@gmail.com Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði fer fram nú 3.-5. mars. Ég hvet alla sjálfstæðismenn til að taka þátt í prófkjörinu og stilla þannig upp sigurstranglegum lista. Ánægjulegt er að sjá hve hæfi- leikaríkur og fjölbreyttur hópur fólks býður sig fram og er tilbúinn til að virkja krafta sína í þágu bæj- arins. Ég býð mig fram í fyrsta sæti listans og vil áfram leggja mitt af mörkum til að efla og styrkja bæj- arfélagið. Mitt markmið er að gera Hafn- arfjörð að best rekna sveitarfélaginu á höf- uðborgarsvæðinu. Við höfum undanfarin átta ár lyft grettistaki í fjármálum bæjarins og ætl- um okkur að halda áfram á þeirri braut. Þótt bæjarfélagið sé enn mjög skuldsett er ánægju- legt að sjá hve skuldaviðmið og skuldahlutfall bæjarins hefur farið lækkandi með hverju árinu þannig að nú stenst Hafnarfjörður sam- anburð við flest sveitarfélög. Þessi staða er þó viðkvæm því lítið má út af bregða til að fjár- málin og skuldastaðan snúist í aðra átt og eru kosningarnar í vor því sérstaklega mikilvægar fyrir Hafnfirðinga. Mikil gróska er nú í sveitarfélaginu hvert sem litið er. Miðað við þá íbúðauppbyggingu sem nú er í fullum gangi og fram undan er, bæði í nýjum hverfum og á þéttingarreitum, er gert ráð fyrir að Hafnfirðingum fjölgi um 7.500 manns næstu fjögur árin. Þá flykkjast fyrir- tæki til Hafnarfjarðar og hefur lóðasala til þeirra margfaldast undanfarin ár. Ætla má að uppbygging á atvinnusvæðunum geti skapað á annað þúsund störf í bænum á næstu miss- erum og munar um minna. Allt er þetta af- rakstur stefnu núverandi meirihluta í bæj- arstjórn og vil ég halda áfram á þessari braut. Með því að reka bæjarfélagið af ábyrgð, hef- ur verið hægt að lækka álögur og gjöld á sama tíma. Jafnframt hefur bæjarfélagið stutt myndarlega við heilsueflingu og íþróttastarf, byggt upp og eflt þjónustu við eldri borgara og þá sem þurfa á félagslegri aðstoð að halda, eflt menningu og mannlíf bæjarins svo eftir er tekið. Er þá fátt eitt talið. Blómstrandi mannlíf og skýr framtíðarsýn Bærinn hefur haft einstakt aðdráttarafl undanfarin ár; miðbærinn blómstrað sem aldrei fyrr og spennandi upp- bygging sem hefst þar í vor mun efla miðbæjar- og mann- lífið enn frekar. Undirbúningur fyrir komu Tækniskólans og að nýju skipulagi og upp- byggingu á höfninni stendur sem hæst og mun styrkja samfélagið okkar gríðarlega. Á þessari braut viljum við sjálfstæðismenn halda áfram en fyrst og fremst gengur okkar framtíðarsýn út á að reka bæinn á skyn- samlegan hátt og með virðingu fyrir fjár- munum skattgreiðenda. Til þess þurfum við öflugan stuðning til að verða í forystu við myndun næsta meirihluta í bæjarstjórn Hafn- arfjarðar. Mér hefur verið falið að leiða lista okkar sjálfstæðismanna undanfarin tvö kjörtímabil. Innan flokksins hefur samstarfið gengið afar vel og það hefur skilað sér í góðum árangri fyr- ir Hafnarfjörð og Hafnfirðinga. Ég óska eftir góðu umboði til að halda áfram því forystu- hlutverki sem ég hef gegnt undanfarin ár. Ég óska því eftir stuðningi þínum í fyrsta sæti listans. Eftir Rósu Guðbjartsdóttur Rósa Guðbjartsdóttir Hafnarfjörður tækifæranna »Mitt markmið er að gera Hafnarfjörð að best rekna sveitarfélaginu á höfuðborgarsvæðinu. Höfundur er bæjarstjóri Hafnarfjarðar og frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Reykjavíkurborg er í mjög slæmri stöðu vegna lélegs reksturs og viðvarandi skuldasöfnunar í nær aldarfjórðung. Heildarskuldir borgarinnar eru komnar yfir 400 milljarða króna og hafa aldrei verið hærri. Það þýðir að borgin hefur skuldsett hvern íbúa um 3 milljónir króna og hverja fjögurra manna fjölskyldu um 12 milljónir. Þrátt fyrir grafalvarlega stöðu hyggst núverandi borgarstjóri halda áfram að safna skuldum eins og enginn sé morgundagurinn. Áfram er haldið að eyða og spenna. Nýlega samþykkti vinstri meirihlutinn að eyða 460 milljónum króna til kaupa á skemmu til niður- rifs til að rýma fyrir svokallaðri borgarlínu. Kaupverðið var meira en 100 milljónum yfir verðmati. Borgarlína er það mál sem Dagur B. Egg- ertsson borgarstjóri leggur ofuráherslu á þótt kostnaðurinn sé óþekktur. Kynntar hafa verið undarlegar forsendur, sem einkennast af mik- illi óskhyggju varðandi fjárfestingarkostnað og notkun kerfisins. Enginn veit hver rekstrarkostnaðurinn verður eða á hverjum hann lendir. Allt bendir til að borgarlínan verði óarðbær með öllu og muni í raun hafa verulega neikvætt núvirði eins og dr. Ragnar Árnason prófessor hefur sýnt fram á. Veikar forsendur Ótækt er að skattgreiðendur séu látnir fjár- magna slíkt verkefni upp á a.m.k. 100 milljarða króna þegar allar forsendur varðandi ávinn- ing, fjárfestingu og rekstur eru svo veikar. Nær væri að styðja betur við núverandi stræt- isvagnakerfi, sem er stórlega vannýtt en má svo sannarlega bæta. Svokölluð „létt lausn borgarlínu“ gæti verið hugsanleg málamiðlun en færustu sérfræð- ingar hafa reiknað út að með henni væri unnt að ná flestum markmiðum „þungrar borg- arlínu“ fyrir aðeins hluta kostnaðarins. Hugmyndir eru uppi um að fjármagna fram- kvæmdir við borgarlínu með sérstökum veggjöldum á Reyk- víkinga, sem nú þegar greiða einhverja hæstu bensínskatta og bifreiðagjöld í heimi. Ætl- unin er að rafskynjarar, sem settir verða upp á ákveðnum stöðum í borginni, skrái alla bílaumferð og síðan verði við- komandi bíleigandi skattlagður út frá þeim upplýsingum. Býst ég við að mörgum finn- ist ógeðfelld sú hugmynd að slíkar upplýsingar um ferðir okkar séu færðar jafnóðum í miðlægan gagnagrunn. Vel er hægt að finna aðrar leiðir til að skattleggja akstur bifreiða en að skrá allar ferðir þeirra sjálfkrafa með slík- um hætti. Efrihverfaskattur? Miðað við fyrirliggjandi hugmyndir virðist auk þess sem skatturinn muni leggjast þyngst á þá Reykvíkinga, sem búa austan Elliðaáa. Ef nýr skattur verður lagður á Reykvíkinga, hvort sem hann heitir veggjald, tafagjald eða flýtigjald, er grundvallarkrafa að önnur skatt- heimta, t.d. bensínskattar, verði minnkuð jafn- mikið á móti. Fáir trúa því að það verði gert. Við þekkjum að nær ómögulegt virðist vera að lækka eða afnema skatta eftir að þeir hafa ver- ið lagðir á. Íslendingar axla nú næstmestu skattbyrðina innan OECD. Verði borgarlínuskattur að veruleika, án þess að aðrir skattar lækki á móti, gætu Íslendingar orðið skattpíndasta þjóðin innan OECD. Eftir Kjartan Magnússon Kjartan Magnússon Borgarlínuskatt? – Nei takk » Verði borgarlínuskattur að veruleika, án þess að aðrir skattar lækki á móti, gætu Íslendingar orðið skatt- píndasta þjóðin innan OECD. Höfundur óskar eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins 18.-19. marz.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.