Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 48

Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Mikið úrval af HVÍLDARST með og án rafmagns lyftibú Komið og skoðið úrvalið ÓLUM naði Laserlyftin Náttúruleg andlitslyfting sem byggir á nýjustu tækn Laserlyfting er öflug anti-aging meðferð byggð á nýjustu tækni frá einum fremsta framleiðanda heims sviði húðmeðferða. • Þéttir slappa húð á andliti og hálsi • Eykur kollagenframleiðslu g i á Ve 13 Við to réttu Pe 21 re Við ta 13 Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Upprennandi tónlistarmaðurinn og Sauðkrækingurinn Atli Dagur Stef- ánsson lét neikvæðar athugasemdir frá fólki í kringum sig svo sannarlega ekki hafa áhrif á ákvarðanir sínar en hann elti drauminn um tónlistarferil alla leið til London þar sem hann, ásamt Hauki Karlssyni, sem er með honum í hljómsveitinni Azpect, stundar nú tónlistarnám. Azpect hef- ur nú gefið út glænýtt lag, ásamt hljómsveitinni Aquariion, með mjög ákveðnum boðskap. Lagið heitir Spotlights og er svar til fólks sem trúði ekki á ungu mennina í hljóm- sveitunum tveimur og drauma þeirra um að verða tónlistarmenn. Sjálfur setur Atli markið hátt og stefnir á að vinna Grammy-verðlaunin innan nokkurra ára og lætur sig dreyma um að vinna með tónlistarmönnum eins og Ed Sheeran og Dua Lipa. Tvíeykið Azpect samanstendur, eins og áður kom fram, af þeim Atla og Hauki en Haukur er einnig liðs- maður í Aquariion ásamt Kristjáni Karli – en allir eru vinirnir þrír rúm- lega tvítugir, fæddir árið 1999. Kynnti lagið á K100 Atli sendi lagið og hljóðkynningu á því inn á K100.is en Heiðar Aust- mann gerir íslenskri tónlist nú enn hærra undir höfði í þætti sínum á K100 á virkum kvöldum á milli 18 og 22. Geta íslenskir tónlistarmenn nú sent lögin sín inn í þáttinn (k100.mbl.is/islensk-tonlist). Atli vakti þar strax athygli í kynningu sinni á Spotlights með Azpect og Aquariion en þar skein þrautseigjan og ástríðan svo sannarlega í gegn. Þar lýsti Atli mótlætinu sem upp- rennandi tónlistarmennirnir hafa þurft að mæta til að elta drauminn sinn. Vildu að þeir færu öruggari leið „Við höfum fengið alls konar at- hugasemdir frá alls konar fólki sem vill frekar að við förum öruggari leið- ir í lífinu, fáum okkur öruggari vinnu og förum í skynsamlegt nám,“ lýsti Atli í hljóðkynningu fyrir lagið. „Við sögðum þessu fólki að þegja og erum núna í tónlistarnámi úti í London þar sem við erum að starfa við alls konar tónlistarverkefni,“ sagði hann. Atli stundar nú nám í breska tón- listarskólanum The Institute of Con- temporary Music Performance í London á meðan Haukur er í Royal College of Music sem einnig er í London. Kristinn stundar svo nám á Íslandi við Háskólann í Reykjavík. „Við vildum koma því til skila til fólksins sem trúði ekki á okkur í byrjun að það hafði rangt fyrir sér og þar af leiðandi sömdum við þetta lag,“ sagði Atli. Morgunblaðið og K100.is náðu tali af Atla sem sagði, spurður út í mót- lætið sem þeir hafa mætt og áhrif þess á þá, að þeir hafi einfaldlega notað það til að ýta sér áfram. „Ég hugsa að þegar markið er sett svona hátt og ákvarðanir eru teknar jafn „drastískt“ og við tókum þær þá sé eðlilegt fyrir fólk í kringum mann að hafa áhyggjur. En við vorum mjög meðvitaðir um það hvað við höfðum í höndunum og þurftum bara að hafa trú á okkur sjálfum og vera duglegir að peppa hvor annan upp. Auðvitað er alltaf gott að fá stuðn- ing en við notuðum þetta mótlæti bara sem eldsneyti til að ýta okkur lengra,“ segir Atli. Hann segir að það hafi verið árið 2020 sem hann ákvað að taka af skar- ið og gera allt sem hann mögulega gæti gert til þess að verða tónlist- armaður. Hann flutti til Danmerkur til Hauks, sem þá bjó þar, og saman fóru þeir svo til Bretlands í tónlist- arnám. Atli hefur lært ýmislegt í námi sínu þar sem hann sérhæfir sig í lagasmíðum. Segir hann London vera sannkallaða tónlistarhöfuðborg Evrópu og trúir að hvergi sé betra fyrir „litla artista“ að koma sér á framfæri en þar. Azpect stefnir á að gefa út sína aðra plötu í ár og segir Atli að þeir séu spenntir að færa sig nær þeim stíl sem þeir eru nú heillaðir af sem er samblanda af trappi, rokki og „synthpoppi“. Þá stefna þeir Haukur á að halda tónleika hér á landi á Sauðárkróki en þeir héldu eina slíka þar í fyrra þökk sé styrk frá Sveitar- félaginu Skagafirði. Atli er þó einnig að gefa út tónlist sjálfur undir nafninu Atli en tónlist- ina hans má finna á Spotify. „Í kringum það [sólóverkefnið] hefur myndast mikil stemning hérna úti í London og ég hlakka mikið til að gefa út alla þá tónlist sem ég sit á,“ segir Atli spurður út í það hvernig hann sjái fyrir sér framtíðina. Stefnir á Grammy-verðlaunin „Ég hef alltaf sett markið frekar hátt í lífinu og er mikill keppn- ismaður og því stefni ég á að vinna Grammy-verðlaunin innan nokkurra ára. Bæði fyrir Azpect og mitt eigið verkefni,“ segir Atli og bætir við að hann langi einnig að vinna með stærstu tónlistarmönnum heims sem lagahöfundur og þá helst þeim Ed Sheeran og Dua Lipa. Þeir Atli, Haukur og Kristján, liðs- menn í Azpect og Aquariion, hlakka mikið til komandi mánaða og eru virkilega spenntir yfir því að öllu sé nú aflétt hvað varðar kórónuveiruna á Íslandi. Djammið mikilvægt „Við erum náttúrulega miklir stemningsmenn og gefum mest- megnis út stemningstónlist og því er íslenskt djamm mjög mikilvægt fyrir okkur þegar kemur að hlustunum,“ útskýrir Atli en hann stefnir á að koma til Íslands ásamt Hauki í sum- ar. Öðru upprennandi tónlistarfólki gefur hann þetta ráð að lokum: „Leyfið ykkur að vera léleg til að byrja með og ekki gefast upp þótt á móti blási. Verið dugleg að semja lög og prufið ykkur áfram í alls konar vitleysu.“ Hægt er að hlusta á Spotlights með Azpect og Aquariion á Spotify. Sögðu gagnrýnendum að þegja og eltu drauminn Keppnismaður Atli lætur ekkert stoppa sig og stefnir á glæstan tónlistar- feril. Hann er keppnismaður mikill og ætlar að vinna Grammy-verðlaun. Azpect Hljómsveitin Azpect er skipuð þeim Hauki (t.v.) og Atla. Aquariion Kristján er í hljómsveit- inni Aquariion ásamt Hauki. Atli Dagur í hljómsveitinni Azpect stefnir hátt í tónlistinni og vonast til að vinna Grammy-verðlaun innan fárra ára en hann stundar nú nám í London ásamt Azpect-liðanum Hauki. Azpect og Kristján í Aquariion gáfu á dögunum út nýtt lag sem er svar til allra þeirra sem ekki trúðu á tónlistardraum ungu mannanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.