Morgunblaðið - 03.03.2022, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 03.03.2022, Blaðsíða 53
MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 ✝ Hallgrímur Jónsson fædd- ist 22. júní 1927 á Bessastöðum á Álftanesi. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Skjóli í Reykjavík 20. febr- úar 2022. For- eldrar hans voru Jón Helgi Þor- bergsson, f. 1882, ráðunautur hjá Búnaðarfélagi Íslands og bóndi á Bessastöðum á Álftanesi og Laxamýri í Suður-Þingeyj- arsýslu, og Elín Vigfúsdóttir, f. 1891, kennari og húsfreyja. Systkini Hallgríms eru Sigríður, f. 1922, látin, Þóra, f. 1925, Vig- fús Bjarni, f. 1929, látinn, Björn Gunnar og Þorbergur Helgi, f. 1933, látnir. Fyrri eiginkona Hallgríms var Svava Kristjáns- dóttir, f. 1929, látin. Eignuðust þau tvær dætur. Elín Margrét, f. 1953, gift Kjartani Helgasyni, og eiga þau tvö börn. Álfhildur, f. 1955, áður gift Árna Elíassyni og eiga þau þrjú börn, Hall- grímur kvæntist seinni konunni sinni, Þórunni Frans, f. 1931, ár- ið 1959. Hún er látin. Hún var tónskáld og frumkvöðull í ís- lenskum hannyrðum og kaup- maður. Foreldrar hennar voru sundlaugar. Hallgrímur var for- maður Lögreglufélags Reykja- víkur árið 1969 og sat á þingum BSRB. Hallgrímur byrjaði í frjálsum íþróttum 19 ára gamall. Þegar hann var 21 árs, árið 1948, setti hann þingeyskt met í kúluvarpi á héraðsmóti, 13,56 metra, árið eftir kastaði hann 14,49 og skömmu síðar 14,80 en var ákveðinn eftir það að einblína á kringlukastið. Árið 1955 var gott ár hjá Hallgrími, þá sigraði hann fyrst Hollendinga í kringlukasti, setti Íslandsmet og kastaði 52,18. Hallgrímur komst í sex manna úrslit á Búkarest-leikunum í Rúmeníu. Hallgrímur var valinn í landslið Norðurlanda ásamt Vilhjálmi Einarssyni um haustið en ekkert varð af þeirri keppni. Hann var fyrsti Íslendingurinn til að kasta yfir 50,16 metra á erlendri grund og sá fyrsti sem kastaði 50 metra á meistaramóti Íslands og gerði það þrjú ár í röð, 1956-1958. Hallgrímur varð margsinnis Íslands- og Reykjavíkurmeistari í kringlukasti og setti tvö Ís- landsmet í þeirri grein á ár- unum 1953-1964. Árin 1955- 1957 átti Hallgrímur sinn besta árangur og kastaði margsinnis yfir 50 metra á opinberum mót- um en seinna kastaði hann 53,64. Hallgrímur var íþrótta- maður á heimsmælikvarða. Hallgrímur verður jarðsung- inn í dag, 3. mars 2022, í Laug- arneskirkju kl. 13. Frans Ágúst Ara- son, f. 1897, sjó- maður og Svein- björg Guðmundsdóttir, f. 1905, húsmóðir og verkakona. Börn Þórunnar af fyrra hjónabandi eru Ing- unn Elín, f. 1949, og á hún þrjá syni, og Jóna, f. 1950, gift Guðmundi Lár- ussyni, f. 1951, d. 2017, og eiga þau tvo syni. Börn Hallgríms og Þórunnar eru Sveinbjörg, f. 1957, áður gift Karli Guðmunds- syni, f. 1954, og eiga þau tvö börn. Þorbergur, f. 1959, d. 2019. Ásgerður, f. 1962, gift Ólafi Birni Lárussyni, f. 1958, og eiga þau þrjá syni. Hallgrímur fluttist til Laxa- mýrar í Suður-Þingeyjarsýslu vorið 1928. Hann fór ungur að vinna landbúnaðarstörf og lauk gagnfræðaprófi á Húsavík og búfræðiprófi á Hvanneyri. Hann hóf störf hjá lögreglunni árið 1952 og sótti síðar lögreglufor- ingjaskólann í Bandaríkjunum. Hann var yfirlögregluþjónn og rannsóknarmaður, varðstjóri hjá lögreglunni, fulltrúi hjá Gjaldheimtunni í Reykjavík og forstöðumaður Breiðholts- Frá því ég var lítil stúlka hef ég kallað þig pabba, enda ólst ég upp hjá ykkur mömmu. Eftir þriggja ára dvöl úti í Eyjum fóruð þið aftur til Reykjavíkur en ég varð eftir. Þegar ég komið í heimsókn til ykk- ar var alltaf svo mikil gleði, ég var alltaf svo velkomin með mína þrjá stráka og þú sagðir alltaf: „Ingunn Ella mín og peyjarnir eru að koma“, svo mikil var tilhlökkunin. Upp í sumarhúsið var alltaf svo spennandi að fara og hitta ykkur og var tekið vel á móti mér og mín- um, það var spilað, sungið og hleg- ið mikið. Þú sagðir alltaf hvað það væri gott að fá mig, enda ættir þú mikið í mér og þessi orð sögðu allt. Elsku pabbi, nú ertu kominn til mömmu og Þorbergs bróður, sem þú varst farinn að þrá að hitta. Takk fyrir allt og allt. Létt er að stíga lífsins spor, ljúf er gleðin sanna, þegar eilíft æskuvor, er í hugum manna. (RG) Þín Ingunn Ella. Elsku pabbi minn, hér er stutt kveðja til þín. Þakka þér fyrir allt sem þú kenndir mér. Skapbetri og ljúfari mann var ekki hægt að finna. Aldrei skammaðir þú mig heldur ræddir þú fallega um hlut- ina. Þegar þú baðst mig um að gera eitthvað sem ég stóð mig ekki í, þá tókst þú á móti mér og þakk- aðir mér fyrir aðstoðina með handabandi og brostir þínu blíð- asta. Þannig lærði ég alltaf að gera hlutina strax og þú varst alltaf svo þakklátur og duglegur að nota já- kvætt hrós. Þið mamma voruð sálufélagar af lífi og sál. Það fyrsta sem þú gerðir eftir erfiðan dag var að faðma mömmu og svo kom krakkaskarinn. Mikil vinna var á heimilinu og tókst þú til við að vinna vel flest heimilisstörf, elda, þrífa og hugsa um okkur börnin. Þá var nú oft glatt á hjalla. Ég segi yfirleitt að besti maturinn var pabba matur því á þessum tíma vann mamma myrkranna á milli. Hún rak sína eigin verslun á Laugavegi 63. Þið voruð bæði á undan ykkar samtíð. Við vorum ekki hefðbundin fjöl- skylda og þið áttuð bæði fyrrver- andi hjónabönd að baki. Það var fátíðara en er í dag að fólk skildi. Foreldrar ykkar höfðu tekið hvort sína dóttur ykkar í fóstur. Lífið var ekki alltaf dans á rósum en þið tók- uð á því saman. Þú vannst oft langan vinnudag og í tveimur vinnum þegar ég var mjög ung. Lögreglumaður og dyravörður á skemmtistað, einnig byggðir þú húsið ykkar sjálfur frá grunni með aðstoð vina. Íþrótta- maður af guðs náð varstu og mikill afreksmaður. Ólst ég upp við að fara með þér á æfingar og íþrótta- keppni. Síðustu þrjú og hálft ár hafa verið þér erfið. Þú misstir mömmu og einkasoninn með níu mánaða millbili mjög skyndilega og heilsan fór dvínandi eftir það. Þú tókst á við það af æðruleysi. Ég, yngsta dóttir þín, fékk að aðstoða þig á þessum erfiða tíma. Við ræddum saman um heima og geima. Þú varst með afbrigðum minnugur og eiginlega fæddur sagnfræðingur. Ég gæti skrifað svo miklu meira um þig, elsku pabbi minn. Ég mun sakna þín. Veit að þú ert kominn til mömmu, Þorbergs, ömmu, afa, ættingja og vina í Sumarlandið. Enda á bæn sem þú kenndir mér, ein af mörgum: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum) Þín dóttir, Ásgerður. Pabbi og mamma urðu ástfang- in við fyrstu sýn og ást þeirra varði alla ævi. Líf þeirra var litríkt og gjöfult, oft erfitt og þó að blásið hafi hressilega um þau, þá týndu þau aldrei neistanum sem samein- aði þau. Þau voru glæsilegt par og eftir þeim var tekið. Pabbi var af- burða íþróttamaður og varðstjóri í lögreglunni í Reykjavík, ættaður frá Laxamýri. Hann var hávaxinn og bjartur yfirlitum, dagfarsprúð- ur og dulur en naut sín í vinahópi og hafði frá mörgu að segja. Hann var hafsjór af fróðleik og kunni Ís- lendingasögurnar utanbókar eins og hann hefði lifað þær sjálfur. Eins var um ættfræði, hann sagði frá ættartengslum og lífi fólks aft- ur í aldir, sem væri það ljóslifandi meðal okkar, allt lifnaði við í frá- sögn hans. Pabbi og mamma höfðu þann eiginleika að fólk sogaðist að þeim og í vinahópi var hann mið- depillinn en hún var prímus mótor. Móðir mín var af sunnlenskum ættum, tónskáld og athafnakona og ein af stofnendum Stefs. Rætur þeirra voru ólíkar en þeim tókst hið ómögulega, að halda saman í gegnum brimskafla lífsins og héldu utan um barnahópinn sinn sem þau elskuðu af öllu hjarta. Við vorum sjö systkinin, sex dætur og sonur, úr þremur hjóna- böndum, við vorum því óhefð- bundin fjöskylda þess tíma, sem telst venjulegt í dag. Pabbi vann tvöfalda vinnu til að sjá fyrir fjöl- skyldu sinni. Þegar við systkinin vorum lítil þá bjuggum við nokkur ár í Vest- mannaeyjum en pabbi var yfirlög- regluþjónn þar og það var draumastarfið hans. Við börnin blómstruðum þar en mamma mín var ekki eins sæl, enda var hún hrifin úr faðmi síns starfsframa og þeim vettvangi sem hún hafði skapað sér því þá voru lögin henni á vinsældarlista útvarpsins. Við pabbi vorum mjög lík, skildum hvort annað vel og hann leiðsagði mér ef honum fannst ég vera í vanda. Ég heyri hann enn stappa í mig stálinu þegar ég var nýskilin og segir: „Björg mín þú sérð eftir því allt lífið ef þú ferð ekki til Parísar.“ Þá átti ég vinnustofudvöl vísa í Kjarvalstofu í París, ég fór út og sá ekki eftir því. Pabbi stóð einnig frammi fyrir erf- iðu vali þegar hann var ungur mað- ur, hann hafði náð ólympíumark- inu til að fara til Melborn í Ástralíu. Á sama tíma var hann út- nefndur til að fara í lögregluskóla til Texas, hann valdi Texas og setti þar með fjölskylduna sína í for- gang. Lögreglustarfið fylgdi pabba „eitt sinn lögga ávallt lögga“. Margoft varð ég vitni að því hve mikill mannþekkjari pabbi var, sáttasemjari í eðli sínu og leysti hlutina í ró og yfirvegun. Ég sit hér og hugsa um föður minn sem ég sakna óendanlega mikið og bíð þess að hann hringi. Hann var minn besti vinur, var annt um velferð mína allt til enda, trúaður og andlega sinnaður. Ekki fyrir svo löngu síðan lenti ég í bráðum lífsháska og var rétt kom- in heim þegar síminn hringdi, það var faðir minn og sagði: „Björg mín, eitthvað sagði mér að ég ætti að hringja.“ Ég er þakklát fyrir að hafa átt þig í lífi mínu, elsku pabbi minn, þú ert frábær fyrirmynd. Þín dóttir Sveinbjörg. Tengdafaðir minn Hallgrímur Jónsson var náttúrubarn íþróttanna eins og margir fyrrum félagar hans sem farnir eru yfir móðuna miklu. Álykta má að upp- vaxtarárin á Laxamýri hafi ýtt undir áskapaða hæfileika. Á þeim tíma gengu menn til flestra verka og oft hafa handtökin verið mörg á skömmum tíma. Af og til höfðu menn þó tíma til að vinna smá- vægileg óknyttisverk sem þeir bræðurnir á Laxamýri unnu sér til skemmtunar meðan á stóð – en máttu á móti þola bágt fyrir í kjöl- farið. Strax á þessum árum tókust menn á, bæði á gamansömum nót- um sem og í keppni. Ekki ætla ég hér að tíunda afrek tengdaföður míns en þau eru æði mörg, þess ber vott verðlaunapeninga- og bik- arsafn hans heima fyrir sem og sögur einstaklinga sem þekktu af- rek hans og hafa tjáð mér. Margar sögur sagði hann mér af átökum og keppnum er við sát- um saman og spjölluðum austur í Grímsnesi í sumarbústað þeirra Þórunnar, sögur af ýmsum toga, allt frá löggæslustörfum á útihátíð- um sem og frásagnir af íþrótta- keppnum þar sem forin var svo mikil vegna rigninga að kasthring- urinn sást varla. Einnig var gaman að heyra hann greina frá keppn- isferðum austur fyrir járntjald svo ekki sé minnst á veru hans hjá FBI í Bandaríkjunum. Hallgrímur var heljarmenni, margra manna maki, glæsilegur ásýndum og hafsjór af fróðleik. Þessi mynd, sem ég hef haft í huga mér af Hallgrími frá þeim tíma er ég kynntist Ásgerði dótt- ur hans fyrir margt löngu, á eftir að ylja mér um hjartarætur. Blessuð sé minning vinar míns og félaga, Hallgríms Jónssonar frá Laxamýri. Ólafur Björn Lárusson. Elsku afi Hallgrímur. Það fyrsta sem kemur upp í huga okkar er hversu frábær fyr- irmynd afi var fyrir okkur. Hraustari mann er afar er erfitt að finna. Að vera kominn á níræð- isaldurinn en samt hafa kraftinn í að skreppa í Laugardalslaugina og lyftingasalinn reglulega er drifkraftur sem mun hafa áhrif á okkur alla tíð. Við þetta má bæta hversu góða greind, minni og vits- muni Hallgrímur hafði. Það kom okkur bræðrum alltaf jafn mikið á óvart þegar hann rifjaði upp ártöl, nöfn og kastlengdir úr kringlu- kasti og kúlunni. Við erum ánægðir með að við höfum haft þroskann til þess að vera eins duglegir og við gátum að heimsækja afa síðustu ár. Hvort sem það var að hlusta á gamlar sögur frá íþróttaferlinum, óvænt- um og skemmtilegum atburðum úr lögreglunni eða frá tímunum á Laxamýri, þá höfðum við bræður afar gaman af. Hann hafði þann einstaka hæfileika að segja sögur sem voru bæði áhugaverðar og oft- ar en ekki meinfyndnar. Það eru margar upplifanir með afa sem standa upp úr. Fyrst ber að nefna allar bústaðarferðirnar. Þar fékk maður alltaf dýrindis- lambakjöt frá afa. Þess á milli tók hann okkur í karphúsið í glímu og spilum. Jólin voru alltaf yndislegur tími með honum og ekki þótti hon- um leiðinlegt að hafa orðið yfir kvöldmatnum. Við bræðurnir erum afar þakk- látir að hafa átt svona flotta fyr- irmynd sem átti hlut í að móta okk- ur sem manneskjur. Takk fyrir allt elsku afi. Þrátt fyrir að þú sért far- inn mun arfleifð þín að eilífu lifa. Bræðurnir þrír, Lárus Helgi, Þorgrímur Smári og Bergsveinn Ólafssynir. Hallgrímur Jónsson Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTÍN KRISTJÁNSDÓTTIR, Stína, Seljavegi 21, Reykjavík, lést 26. febrúar á hjúkrunarheimilinu Eir. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 10. mars klukkan 11. Guðmundur Ingi Pétursson Þórhildur Jóhannesd. Sanko Lilja Pétursdóttir Margrét Pétursdóttir Óskar Hlíðar Jónsson og ömmubörn Elsku faðir okkar, sonur og bróðir, HEIMIR HANNIBALSSON, lést föstudaginn 4. febrúar. Útför fer fram 4. mars klukkan 15 frá Kópavogskirkju. Sunna Rós og Bjarki Jón Heimisbörn Sjöfn Helgadóttir Hörður Hrafndal Smárason Harpa Hannibalsdóttir Helgi Hannibalsson Hannibal Hannibalsson Hekla Hannibalsdóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRDÍS ÞORLEIFSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 5. mars klukkan 14. Streymt verður frá útförinni á Facebook- síðu Viðburðastofu Vestfjarða. Hlekk á streymi má nálgast á www.mbl.is/andlat. Rúnar Héðinsson Susan Cleaver Kristinn Héðinsson Anna Rósa Bjarnadóttir Helga Héðinsdóttir Trausti Ágústsson barnabörn og langömmubörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁSMUNDUR JÓN KRISTJÁNSSON frá Stöng í Mývatnssveit, lést á Skógarbrekku, HSN Húsavík, mánudaginn 28. febrúar. Útförin verður auglýst síðar. Börn og fjölskyldur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN EYJÓLFSDÓTTIR, Hverafold 19, Reykjavík, lést þriðjudaginn 22. febrúar. Kristín Andrésdóttir Elín Andrésdóttir Pétur Jónsson Dam Andrés Magnús Vilhjálms. Aðalheiður Sigrún P. Dam Úlfur Arnar Lena Björk Pétursd. Dam Vigfús Geir Júlíusson Pétur Andri Pétursson Dam Herdís Kristjánsdóttir Matthildur Birgisdóttir Holst Toke Falkenberg Holst Eyjólfur Einar, María Björg og barnabarnabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.