Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 56

Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 56
56 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 ✝ Brynja fæddist 23. febrúar 1984 á Landspít- alanum í Reykja- vík. Hún lést 11. febrúar 2022. Foreldrar Brynju eru Aldís Guðmundsdóttir, f. 17. janúar 1963, og Pétur Þór Brynj- arsson, f. 25. des- ember 1961, þau skildu. Móðurforeldrar hennar eru Eginmaður Brynju er Brynj- ar Þór Sigurðsson, f. 24. júní 1982. Börn Brynju eru Camilla Hjördís, f. 15. janúar 2003, Fannar Þórir, f. 17. júlí 2004, Pétur Sólan, f. 25. desember 2006, Tinna Dís, f. 2. júlí 2009, og Aníta Aldís, f. 16. nóvember 2017. Brynja ólst upp í Hafnarfirði og bjó lengstan hluta ævinnar þar. Íþróttir áttu hug hennar allann þar til hún lenti í slæm- um meiðslum á hné og varð að hætta í íþróttum. Hún vann hin ýmsu störf um ævina, þó mest- ur tími hennar færi í barnaupp- eldi. Útförin fer fram frá Fríkirkj- unni í Hafnarfirði í dag, 3. mars 2022, klukkan 13. Guðmundur Albert Guðjónsson, f. 15. okt. 1937, d. 27. apr- íl 2018, og Ásrún Sigurbjartsdóttir, f. 25. mai 1938. Föðurforeldrar hennar eru Ásta Pálsdóttir, f. 20. apríl 1940, og Brynjar Fransson, f. 16. júlí 1939. Systkini Brynju eru Daníel, f. 1980, Þórdís, f. 1988, og Aron, f. 1994. Elsku elsku Brynja mín. Hversu erfitt og óraunverulegt það er að setjast niður til að skrifa um þig minningargrein, ástin mín. Að þú hafir aðeins fengið tæp 38 ár í þessu lífi er svo ósann- gjarnt og sárt. En ljósið í myrkr- inu er að þú hefur skilið eftir þig önnur líf sem eru börnin þín fimm. Ég mun aldrei gleyma degin- um sem þú fæddist, ástin mín, því- líkt stoltur nýbakaður faðir sem ég var og hringdi út um allt í tíkallasíma til að segja frá fæð- ingu þinni, að það væri komin stelpa. Þú sýndir snemma hversu mik- ill dugnaðarforkur þú varst, alltaf svo dugleg og vildir alltaf vera að hjálpa til og gera eitthvað fyrir aðra. Eitt er svo sterkt í minning- unni um þig, það er hve þér fannst gott að láta kitla þig undir iljun- um, alveg sama þótt þú værir orð- in fullorðin. Þú varst mikil íþróttastelpa, sama hvort það var í fótbolta eða frjálsum enda varðstu Austur- landsmeistari í frjálsum á sínum tíma. Það var áfall fyrir þig, Brynja mín, þegar þú sleist lið- band í hné og gast ekki spilað fót- bolta eftir það. Þú varðst ung móðir, aðeins sautján ára gömul þegar þú eign- aðist þitt fyrsta barn, síðan komu tvö til viðbótar með stuttu milli- bili, þannig að það var nóg að gera hjá þér sem ungri móður. Það er eftirminnilegt þegar þú skipulagðir ferð til Tenerife, þeg- ar Binni afi þinn varð áttræður, fyrir tuttugu manns eða svo og gerðir það með þvílíkum glæsi- brag að sómi var að. Lífið hefur ekki alltaf farið um þig mjúkum höndum, ástin mín, þú varst alltaf hugrökk og komst einhvern veginn í gegnum það með hugrekkinu einu saman, en að lokum gastu ekki meir. En falleg minning mín um þig, með þitt fallega bros, mun alltaf vera í hjarta mínu, ástin mín. Góða ferð í sumarlandið, ástin mín. Ávallt elskuð, aldrei gleymd. Nú næðir vindur og nóttin kemur og nú er friður í hjarta þér, þú átt að vita það öðru fremur að englar Drottins þeir vaki hér. Úti vindurinn vex og dvínar, hann vekur öldur við kalda strönd og ber um himininn bænir þínar þær berast áfram um draumalönd. Á meðan birta í brjósti lifir þá bið ég Guð minn að vernda þig, ég bið um ást fyrir allt sem lifir og englar Drottins þeir styðji mig. Í myrkri finnur þú máttinn dofna á meðan vindur um landið fer. Þín augu lokast, þú ert að sofna og englar Drottins þeir fylgja þér. (Kristján Hreinsson) Pabbi. Þetta er það erfiðasta sem ég hef þurft að skrifa og ég veit ekki hvar ég á að byrja. Ég hef alltaf elskað þig út af lífinu og mun ávallt gera. Frá því að við vorum litlar stelpur, þú fjórum árum eldri en ég, þá leit ég alltaf upp til þín. Þú varst mín helsta fyrir- mynd og ég vildi gera allt eins og þú. Þú skrifaðir alltaf svo fallega, teiknaðir fullkomlega og varst svo hæfileikarík í íþróttum og auðvit- að vildi ég vera eins. Þú æfðir skíði, ég vildi æfa skíði, þú æfðir frjálsar, ég vildi æfa frjálsar, þú æfðir fótbolta svo ég fylgdi þínu fordæmi. Elsku Brynja sem var mér allt- af svo kær. Þú passaðir svo vel upp á mig frá því ég fæddist og vildir allt fyrir mig gera. Ef sögur eru sannar þá varst þú lítil fjög- urra ára snúlla að reyna að skipta á litlu systur þinni. En á móti gerði ég allt eins og þú baðst um, eins og að leyfa þér að klæða mig í dúkkuföt þegar ég var þriggja ára gömul í mömmó. Þolinmæði þín í minn garð var óendanleg. Ég fékk að fylgja þér og vinum þínum í hvaða leik sem er og var þá bara súkkulaði-kleina svo ég gæti verið með. Ég var svo myrkfælin sem barn, svo oft fékk ég að kúra til fóta hjá þér og auðvitað þurfti að- eins að kitla fætur líka. Á efri árum leitaði ég enn til þín þegar ég fæddi minn eldri son. Þá varst þú sjálf búin að eignast Anítu litlu aðeins sex mánuðum áður. Það var ótrúlega dýrmætt að geta leitað til þín varðandi hin ýmsu ráð móðurhlutverksins og fengið stuðning frá þér þegar ég þurfti á að halda. Við áttum saman yndislegar stundir með börnin okkar og ég er svo ótrúlega þakk- lát fyrir það. Ég er þakklát fyrir systrakvöldin okkar, ísrúntana, kósýkvöldin, löngu spjöllin, hlát- ursköstin og allar þær stundir sem ég átti með þér. Elsku fallega systir mín, þú munt alltaf eiga stóran stað í hjarta mínu, ég sakna þín svo gríðarlega mikið og mun gera þar til við sameinumst á ný. Þín systir, Þórdís. Í dag eru afi og amma að stíga þyngstu spor sem þau hafa stigið á sinni löngu ævi. Að þurfa að fylgja henni Brynju okkar til graf- ar eftir einungis 38 ára samfylgd. Það er þyngra en tárum taki. Brynja var næst elsta barna- barnið okkar og gleðin var ósegj- anlega mikil þegar þessi fallega stúlka fæddist. Loksins komin stúlka í fjölskylduna. Við vorum svo heppinn að þetta fallega barnabarn okkar hændist mikið að afa og ömmu og fengum við því að njóta gleðinnar af miklum sam- vistum við hana á hennar bernsku- og unglingsárum. Ávallt var gleði og gaman í kringum Brynju. Brynja var svo lítil, að hún var bara nýfarin að ganga, þegar afinn fór að fara með hana í sundlaugina. Með armkúta á handleggjunum sínum trítlað þetta litla skott beint að sundlaug- arbakkanum og stökk út í. Fólk saup hveljur og leit í forundran á afann. En þetta fannst þeirri stuttu mjög gaman. Alltaf jafn hugrökk og kappsöm og lærði því fljótt að synda. Brynja var mikil keppnismanneskja og keppti í frjálsum íþróttum með góðum ár- angri, en varð því miður fyrir meiðslum á hné og varð að hætta keppni. Hún Brynja okkar var með hlýtt og gott hjartalag. Hún vildi öllum vel. Hún var mjög glaðsinna með smitandi hlátur. Fyrir okkur afann og ömmuna vildi hún ávallt allt gera. Þegar átttugasti afmælisdagur afans nálgaðist, andaði hann því út úr sér við Brynju að það hefði lengi verið draumur hans að að geta haldið upp á daginn, helst með öllu sínu fólki í útlöndum. Brynja var fljót til svars og sagði „Afi minn; þá látum við þann draum rætast.“ Brynja tók þegar til óspilltra málanna að undirbúa ferð til Tenerife og lauk hún þess- um góða undirbúningi með mikl- um sóma. Það var því 20 manna hópur og einn laumufarþegi sem fóru til Tenerife. Allur undirbún- ingur og framkvæmd hjá Brynju var til mikillar fyrirmyndar, þann- ig að þetta ferðalag og afmælis- fagnaður verður ógleymanlegur. Síðastliðið haust fluttist Brynja til Danmerkur ásamt eiginmanni sínum og litlu dóttur þeirra, henni Anítu. Tilhlökkun og von um góða tíma framundan áttu hug þeirra allan. En ýmislegt fer öðruvísi en ætlað er og engin ræður sínum næturstað. Amman og afinn voru í myndsímsambandi við Brynju. Í síðasta símtali við ömmuna, sem voru líka síðustu orðin sem amm- an heyrði frá henni, voru „amma ég elska ykkur“. Sorg okkar og söknuður er nánast óbærilegur. Ég sendi þer samúð mína því sálin sem núna dó svo lofsverð mun lengi sýna ljósið sem þarna bjó. Er lofum við ljósið bjarta á leið sem er stundum myrk þá þökkum við þessu hjarta sem þráði að veita styrk. Nú hjartað er hætt að tifa en hlý eru okkar tár því minningar munu lifa í meira en þúsund ár. (Kristján Hreinsson) Megi ljósið okkar ljúfa hvíla í friði og ró. Með ást og þökk fyrir allt það sem Brynja okkar gaf okkur. Amma Ásta og afi Brynjar. Það er þyngra en tárum taki að skrifa minningargrein um elsku- legu bróðurdóttur mína, Brynju Hjördísi Pétursdóttur eða Brynju, eins og við nefndum hana alltaf. Hún var kölluð burt í blóma lífsins allt of snemma, aðeins tæpra 38 ára gömul. Ég sit harmi sleginn af sorg og söknuði að reyna af veikum mætti að koma einhverjum minningum um hana í orð. Ég minnist þess þegar Brynja fæddist. Hún var glaðlegt barn, með gullfallegt rautt hár og var afar ánægjulegt að fylgjast með uppvexti hennar. Það var svo auðvelt að umgangast hana. Við vorum alla tíð nánir vinir. Við náð- um einstaklega vel saman. Smit- andi hlátur hennar endurómar í hjarta mínu. Það var alltaf gaman þegar við hittumst. Það skarð sem Brynja skilur eftir sig verður ekki fyllt. Það er margs að minnast við fá- fall hennar. Ég minnist þess þeg- ar við hjónin komum með Ástu okkar úr ættleiðingarferðinni frá Kína síðla kvölds, dauðþreytt eftir margra klukkustunda ferðalag frá Peking og engin orka eftir. Brynja var ásamt fleiri fjölskyldu- meðlimum, stödd heima hjá okkur í móttökunefndinni. Þegar heim var komið, tók Brynja litlu stúlk- una okkar í fang sér, fór inn í svefnherbergi og svæfði hana. Þetta var svo líkt Brynju. Hún vildi alltaf láta gott af sér leiða. Árið 2019 fór stórfjölskyldan í sól- arlandaferð til Tenerife í tilefni 80 ára afmælis föður míns. Brynja skipulagði ferðina af mikilli sam- viskusemi og myndarskap. Hún hefði ekki getað gert neitt betur í skipulagningunni, allt gekk upp. Ég er mjög þakklátur fyrir þessa ferð, sem var dásamleg í alla staði. Mér fannt óendanlega vænt um Brynju mína og er ekki ennþá far- inn að skilja að samverustundir okkar verða ekki fleiri. Þetta er svo ósanngjarnt og óraunveru- legt. Lífið leikur svo sannarlega ekki alltaf við mann eða tekur þá stefnu sem fólk óskar sér. Að leið- arlokum vil ég þakka elsku Brynju minni fyrir allt það góða sem hún gaf mér og mínum. Ég kveiki á kertum mínum við krossins helga tré. Í öllum sálmum sínum hinn seki beygir kné. Ég villtist oft af vegi. Ég vakti oft og bað. Nú hallar helgum degi á Hausaskeljastað. Í gegnum móðu’ og mistur ég mikil undur sé. Ég sé þig koma, Kristur, með krossins þunga tré. Af enni daggir drjúpa, og dýrð úr augum skín. Á klettinn vil ég krjúpa og kyssa sporin þín. Þín braut er þyrnum þakin, hver þyrnir falskur koss. Ég sé þig negldan nakinn sem níðing upp á kross. Ég sé þig hæddan hanga á Hausaskeljastað. – Þann lausnardaginn langa var líf þitt fullkomnað. Að kofa og konungshöllum þú kemur einn á ferð. Þú grætur yfir öllum og allra syndir berð. Þú veist, er veikir kalla á vin að leiða sig. Þú sérð og elskar alla, þó allir svíki þig. Ég fell að fótum þínum og faðma lífsins tré. Með innri augum mínum ég undur mikil sé. Þú stýrir vorsins veldi og verndar hverja rós. Frá þínum ástareldi fá allir heimar ljós. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi) Ég bið Guð að vaka yfir öllum, sem eiga um sárt að binda vegna fráfalls Brynju minnar. Megi hann blessa minningu hennar um ókomna tíð. Palli frændi, Páll Brynjarsson. Brynja Hjördís Pétursdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku Brynja. Nú næðir vindur og nóttin kemur og nú er friður í hjarta þér, þú átt að vita það öðru fremur að englar Drottins þeir vaki hér. Úti vindurinn vex og dvínar, hann vekur öldur við kalda strönd og ber um himininn bænir þínar þær berast áfram um draumalönd. Á meðan birta í brjósti lifir þá bið ég Guð minn að vernda þig, ég bið um ást fyrir allt sem lifir og englar Drottins þeir styðji mig. Í myrkri finnur þú máttinn dofna á meðan vindur um landið fer. Þín augu lokast, þú ert að sofna og englar Drottins þeir fylgja þér. (Kristján Hreinsson) Elsku Brynja, hvíl í friði, Ragnhildur Ragnarsdóttir. Það eru full fjöru- tíu ár síðan ég fyrst kom við á Fagurhóls- mýri og fékk kaffi hjá þeim góðu hjónum Sigurgeiri og Guðmundu. Síðan hef ég átt þar vinum að mæta. Andrúmsloftið í Neðribænum var þeirrar gerðar að bæði gestum og heimamönnum hlaut að líða vel. Það var andrúm hógværðar og stillingar. Og enn þykir mér það vera til staðar hjá þeim mörgu og góðu afkomendum þeirra, sem fylla þar ganga. Með aldri varð Munda á Fag- urhólsmýri lotleg og bar mjög með sér lúa langrar ævi. En bakvið auð- Guðmunda Jónsdóttir ✝ Guðmunda Jónsdóttir, kölluð Munda, fæddist 26.desem- ber 1929. Hún lést 12. febrúar 2022. Jarðarför Guð- mundu fór fram 26. febrúar 2022. mjúkt og allt að því afsakandi yfirborð skein þar inni fyrir óbrotin sál konu sem stóð fyrir sínu. Hafði sínar meiningar og þorði óhrædd að færa þær fram. Mér eru minnisstæð sam- töl við eldhúsborðið á Fagurhólsmýri og skynjaði þar í fari beggja ævafornra menningu sem var í senn sveita- menning og heimsmenning. Í Öræfunum ríkti frá því löngu fyrir daga Guðmundu Jónsdóttur, og ríkir enn, einkennilegt og dýr- mætt bland af menningu þeirra sem búa fjarri heimsins glaumi og þeirra sem samt sjá víða. Meðan foraðsmiklar jökulár einangruðu sveitina þá leysti þessi einangrun úr læðingi afl uppfinninga og snilli sem skaraði langt framúr því venjulega. Hinir fyrstu sem skrif- uðu reisubækur af Íslandi stóðu orðlausir og undrandi frammi fyrir býsnum þeirra manna sem þau Guðmunda og Sigurgeir röktu ætt- ir sínar til. Og svosem til sönnunar að þetta var ekki bara fyrri alda skrök þá liggur það nærri að Skaft- fellingar hafi fyrstir manna á Ís- landi skilið og kunnað að nýta sér rafmagn og þeir rafvæddu sínar sveitir langt á undan öðrum. Þar voru menn af Fagurhólsmýri í fremstu röð meðal jafningja. Enn nú stærri varð svo sú bylt- ingin í túnfætinum á Fagurhóls- mýri þegar þangað hófst á stríðs- árunum áætlunarflug sem færði heimsbyggðina svo nærri. Mér eru minnisstæð fyrstu samtöl mín við gömlu hjónin á Fagurhólsmýri um þessa tengingu við Reykjavík og þar með alla heimsbyggðina. Þau voru þá sjálf ung. Allt svo stutt frá en samt langt. Öðrum megin frum- stæð, hálftæknivædd og efnalítil sveit, hinum megin iðandi kvörn vaxtar og hraðra breytinga. Ekki að ég hafi ekki vitað þetta fyrri. En þetta var samt ævintýri sem um sumt minnti á karlinn sem sat á krossgötum um nótt og lét aldrei freistast fyrr en réttur var að honum hangiflotsskjöldur. Þau Guðmunda og Sigurgeir höfðu set- ið á þessum þversagnakenndu krossgötum og hagnýtt sér að skynsamlegu marki en samt haldið áfram að vera þau hógværu og átt- hagatryggu náttúrubörn sem enda fylgdi þeim alla tíð. Það var ekki þeirra háttur að ærast yfir einum flotskildi. Það voru mér forréttindi að eiga vini og nú afkomendur á þessum einstaka stað, Fagurhólsmýri. Fyr- ir það vil ég þakka með fátækleg- um orðum og biðja guðina þess að áfram ríki þar á Mýrinni andi þeirra hjóna Sigurgeirs og Guð- mundu. Bjarni Harðarson. Munda, eins og hún var jafnan kölluð, var, mætti segja, fóstran okkar sumarbarnanna, sem nutum þess að fá að dvelja á Fagurhóls- mýri hjá þeim Sigurgeiri, manni hennar og að ógleymdum ömmu Guðnýju og Jóni afa. Það var mikil tilhlökkun á vorin og ævintýralegt að fá að fara með flugvél í sveitina, en þá var hún Skeiðará enn óbrúuð. Við vorum oft fjögur saman börnin og stundum fleiri og síðar bættust börnin þeirra hjóna í hópinn, svo glatt var oft á hjalla. Það var alla- vega mikið hlegið og grínast og Munda tók alltaf þátt í gleðskapn- um og var hrókur alls fagnaðar. Henni tókst alltaf með lagni að eiga við okkur krakkana og við hlýddum því sem hún bað okkur að snúast fyrir sig og heimilið. Ekki man ég til þess að hún hafi þurft að brýna raustina við okkur, enda var hún skapgóð, aldrei reið, alltaf jákvæð og kom fram við okkur af virðingu, hvert og eitt og gaf sér jafnan tíma til að spjalla við okkur um daginn og veginn. Það lék allt í höndunum á henni Guðmundu. Uppáhaldskjötboll- urnar mínar voru þær sem Munda gerði. Allt sem hún matbjó var ljúf- fengt og fallegir voru litlu kjólarnir sem hún saumaði á dætur sínar. Það hefur þurft að hafa skipulags- hæfileika til að komast yfir að hugsa um svona stórt heimili svo vel færi, þegar fjölmennast var, bæði inni- og útiverk, en í þá daga þurfti að koma mjólk í mat ásamt öðrum verkum. Hún Munda var fróðleiksfús, nægjusöm og hjartahlý og vildi öllum vel. Hún var ein af þeim sem hugsuðu fyrst og fremst um aðra en sjálfa sig og hvað gera þyrfti til að bæta hag þeirra. Hún tókst á við efri árin af æðruleysi og með jafnaðargeði. Ég á henni mikið að þakka, það verður aldrei fullþakkað, en frændfólk mitt á Mýrinni lagði grunninn fyrir mig og ég held að það sama megi segja um mörg okkar sumarbörn- in, grunn sem við höfum síðan byggt á. Við lærðum náttúrulega að vinna hin ýmsu verk í sveitinni, öðluðumst verksvit og það að vinna saman sem heild í glöðum hópi, því alltaf var hægt að horfa á björtu hliðarnar og bara brosa að hinu. Á þessum árum var það í hávegum haft að margar hendur ynnu létt verk. Oft var átaksvinna í gangi eins og títt er í sveitum og vinnu- fúsar hendur unnu þá jafnan sam- an eftir getu. Fullorðna fólkið gleymdi því samt ekki að við börn- in, ung að árum, vorum til í að fá öðru hvoru leikhlé, fara kannski í klettaklifur, veiðitúr eða könnunar- leiðangur. Hef ég oft dáðst að því hversu vel hún Munda treysti okk- ur til að fara varlega í þessum ferð- um og ekki man ég til þess að nein óhöpp hafi átt sér stað. Oft buðu þau hjón líka upp á ógleymanlega bíltúra um sveitina fögru. Í seinni tíð hef ég oft hugsað hvað þetta hefur fléttast vel saman hjá þeim, þannig að sveitadvölin í minning- unni hefur verið sem sæludraumur alla tíð síðan. Það er gott þegar maður eldist að eiga góðar minningar frá æsku- árunum. Takk, elsku Munda fyrir allt. Minningin um gæðastundir með þér mun alltaf ylja mér um hjartaræturnar. Hvíl í friði. Guðný A. Valberg.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.