Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 67
ÍÞRÓTTIR 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022
Kraftur íþróttanna er ótrú-
legur. Allir hápunktar undirritaðs
síðustu daga hafa tengst íþrótt-
um. Á meðan við glímum við
breytta heimsmynd og ógnir úr
austri hafa íþróttir reynst himna-
sending.
Eins og eflaust flestir hefur
bakvörður dagsins átt erfitt með
að einbeita sér að öðru en
ástandinu í Úkraínu síðustu vik-
una. Að geta slökkt á áhyggj-
unum og sokkið djúpt inn í
galdraheim íþróttanna er nauð-
synlegt.
Að sjá íslenska landsliðið í
körfubolta vinna stórkostlegan
107:105-sigur á Ítalíu síðasta
fimmtudag eftir erfiðan dag var
afar mikilvægt fyrir sálina. Þegar
skammdegi, snjókoma, Covid og
stríð reyna að ná manni niður
geta sigrar á íþróttavellinum,
sem í stóra samhenginu eru ekki
mjög mikilvægir, reynst ómetan-
legir.
Að sjá Úkraínumanninn
Roman Jaremtsjúk koma inn á
fyrir Benfica í portúgalska fót-
boltanum um helgina, fá fyrir-
liðabandið og tárast yfir stuðn-
ingi viðstaddra var kraftmikið
augnablik. Að sjá Úkraínu-
manninn Igor Kopishinsky eiga
stórleik fyrir Hauka í Olísdeild-
inni var fallegt. Þessi augnablik
fylla mann af von, sem var ekki
til staðar fyrir.
Þá hafa stórir aðilar innan
íþróttahreyfingarinnar verið
fljótir að bregðast við og nánast
útilokað Rússland úr íþrótta-
heiminum á viku. Íþróttahreyf-
ingin stendur saman í þessari
baráttu.
Íþróttirnar eru alltaf mikil-
vægur vettvangur og sérstaklega
á svona tímum, bæði fyrir
íþróttafólkið sjálft og áhorf-
endur. Í íþróttum getum við sýnt
samstöðu og fagnað litlum sigr-
um sem hafa mikla þýðingu.
BAKVÖRÐUR
Jóhann Ingi
Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Fjölniskonur eru einar á toppi
Subway-deildarinnar í körfuknatt-
leik eftir 80:76-heimasigur á Njarð-
vík í toppslag deildarinnar í gær.
Leikurinn var jafn og spennandi og
réðust úrslitin í blálokin þar sem
Fjölnir skoraði fjögur síðustu stigin.
Aliyah Mazyck skoraði 36 stig og
tók 9 fráköst fyrir Fjölni og Iva
Bosnjak kom sterk af bekknum og
skoraði 15 stig. Aliyah Collier átti
stórleik fyrir Njarðvík og skoraði 35
stig og tók 22 fráköst. Helena Rafns-
dóttir skoraði 12 stig.
Fjölnir er með 28 stig, tveimur
stigum meira en Valur og Njarðvík
en Valur á leik til góða.
_ Leikur Hauka og Keflavíkur
var í fullum gangi þegar blaðið fór í
prentun í gærkvöldi. Úrslitin og töl-
ur leikmanna úr leikjunum þremur
sem fram fóru í gær er að finna á
mbl.is/sport/korfubolti sem og stöð-
una í deildunum.
Morgunblaðið/Eggert
Vörn Dagný Lísa Davíðsdóttir kemst ekki langt í þetta skiptið en til varnar er Vilborg Jónsdóttir.
Fjölnir vann toppslaginn
- Grafarvogsbúar skoruðu síðustu fjögur stigin gegn Njarðvík í Dalhúsum
Hvíta-Rússland í þessu. Þótt við
séum ekki að fara að keppa við þau lið
hér á landi eiga unglingaliðin okkar
og önnur lið möguleika á því að keppa
við þau í sumar á mótum erlendis.
Við erum því í rauninni að bíða eftir
endanlegri niðurstöðu í þessu máli,
hvenær það verður tilkynnt að leik-
irnir fari ekki fram, því auðvitað höf-
um við engan áhuga á að mæta Rúss-
um. Það er alveg á hreinu. Við
þurfum líka að fá þetta á hreint til
þess að geta unnið í okkar skipulagi.
Það var gott að fá þessa tilkynningu
frá FIBA í gær [í fyrradag] því það
var búið að reyna að þrýsta á að fá
hana hjá þeim og hún er mjög góð.
En núna þurfum við að halda áfram
og klára þetta,“ bætti hann við.
Allir samhentir í stuðningi
Rússar eiga fulltrúa í stjórnum
bæði FIBA World og FIBA Europe
og því hætt við einhverjum árekstr-
um vegna málsins. Hannes sagði ekki
marga Rússa í þeim en að vísast sé
erfitt að útfæra svona hluti með hlið-
sjón af pólitík og öðru. „Ég held að
þetta sé bara erfitt pólitískt og menn
vilja gera þetta rétt. Við skiljum það
svo sem alveg. Aðalatriðið var að fá
þessa yfirlýsingu frá FIBA og við
skiljum það alveg að það taki nokkra
daga í viðbót að klára það hvernig
þetta verður gert. Við vinnum það
áfram með FIBA.“
Hann gerir fastlega ráð fyrir því að
málið verði klárað í mánuðinum. „Ég
býst við því að það verði alla vega í lok
þessa mánaðar, vonandi fyrr. Ég og
við öll erum alveg til í að það verði
fyrr en það þarf líka að gera hlutina
rétt. Lykilatriðið er það að Al-
þjóðakörfuknattleikssamfélagið allt,
með þessari yfirlýsingu FIBA, er bú-
ið að gefa það út að við styðjum við
bakið á Úkraínu.
Staðan er þannig að íþróttahreyf-
ingin þarf að standa saman. Auðvitað
er það leiðinlegt fyrir íþróttafólkið
sjálft frá þessum löndum því það eru
ekki þau sem eru í þessu stríði, en við
þurfum að setja þrýsting á yfirvöld í
Rússlandi og þetta er góð leið til
þess. Það er bara ánægjulegt að sjá
hvað íþróttahreyfingin og körfu-
boltahreyfingin stendur saman heilt
yfir. Það er bara samhent hjá öllum;
við styðjum við bakið á Úkraínu og
fordæmum allt þetta ofbeldi sem
Rússar eru að beita.“
Rússar hafni í neðsta sæti
Spurður hvernig hann telji að mál-
inu muni lykta sagði Hannes: „Ég tel
að FIBA muni bara láta Rússa enda
neðsta í þessum riðli okkar. En það
má ekki gleyma því að með þeim
góða árangri sem landsliðið okkar
hefur náð, með sigrunum á Hollandi
og Ítalíu, þá erum við eitt af topp
þremur liðunum í riðlinum eins og
staðan er núna.
Auðvitað gæfi það okkur enn þá
meira ef við segjum að leikirnir við
Rússa verði þurrkaðir út, þá eru þeir
náttúrulega neðstir og þá þurrkast
úrslitin út. Þá erum við öruggir með
að taka sigurinn gegn Hollandi og
sigurinn gegn Ítalíu með okkur í
milliriðil. Svo eigum við náttúrulega
einn heimaleik eftir gegn Hollandi
og það myndi gefa okkur mjög mikið
ef við myndum ná að fara með þrjá
sigurleiki af fjórum inn í milliriðil.
Það myndi setja okkur áfram í góða
stöðu fyrir HM.“
Enginn áhugi á að spila við Rússa
- Alþjóðakörfuknattleikssamfélagið
styður við bakið á Úkraínu í stríðinu
Ljósmynd/FIBA
Rússland Ólíklegt má teljast að Ísland mæti Rússlandi hérlendis í sumar.
KÖRFUBOLTI
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Alþjóðakörfuknattleikssambandið,
FIBA, sendi í fyrrakvöld frá sér yfir-
lýsingu þar sem fram kom að öllum
rússneskum lands- og félagsliðum
verði meinað að taka þátt í keppnum
á vegum sambandsins þar til til-
kynnt verður um annað. Íslenska
karlalandsliðið er með því rússneska
í H-riðli annarrar umferðar und-
ankeppni HM 2023. Þrjú af fjórum
liðum í riðlinum komast áfram í
milliriðla en þrátt fyrir að Rússland
hafi verið sett í bann er Ísland ekki
þegar komið áfram í milliriðilinn.
„Nei. Það sem FIBA gaf út þýðir
að eins og staðan er núna er enginn
leikur Rússlands á dagskrá. En það
á eftir að taka ákvörðun um fram-
haldið, hvernig þetta verður gert.
Það verður ekki tekin ákvörðun um
það fyrr en líður á mánuðinn. Við
vonumst öll til þess að þetta stríð
verði búið helst í dag en það er
kannski of mikil bjartsýni að ætlast
til þess,“ sagði Hannes S. Jónsson,
formaður KKÍ, við Morgunblaðið.
Endanlegrar niðurstöðu beðið
Samkvæmt leikjaplani á Ísland að
mæta Rússlandi í undankeppninni í
byrjun júlí. „Við vitum ekki enn þá
hvernig FIBA ætlar að leysa þetta,
þ.e. hvenær þeir gefa það endanlega
út að leikirnir fari ekki fram. Við er-
um að bíða eftir þeirri ákvörðun
FIBA þar sem okkur verður sagt:
„Það verða engir leikir við Rússland
í sumar.“ Við erum líka að horfa á
Haukar náðu í gær fjögurra stiga
forskoti á toppi 1. deildar karla í
körfubolta er liðið vann afar sann-
færandi 119:71-heimasigur á
Hrunamönnum. Haukamenn gáfu
tóninn strax í fyrsta leikhluta því
staðan eftir hann var 31:3.
Hrunamenn skoruðu 30 stig í
öðrum leikhluta en forskoti Hauka
var aldrei ógnað. Bragi Guðmunds-
son og Jeremy Smith skoruðu 19
stig hvor fyrir Hauka en Clayton
Riggs skoraði 21 stig fyrir Hruna-
menn. Haukar eru nú með 40 stig,
fjórum stigum meira en Höttur.
Fengu á sig 3 stig
í 1. leikhluta
Morgunblaðið/Eggert
Haukar Kristján Leifur Sverrisson
skoraði 11 stig fyrir Hauka í gær.
Knattspyrnumaðurinn Pétur Við-
arsson hefur lagt skóna á hilluna
eftir langan og farsælan feril með
karlaliði FH.
Pétur er 34 ára gamall og lék all-
an ferilinn, að undanskildu einu
tímabili sem lánsmaður hjá Víkingi
úr Reykjavík, hjá uppeldisfélaginu
FH. Pétur varð Íslandsmeistari
með FH fjórum sinnum, árin 2009,
2012, 2015 og 2016. Hann varð þá
bikarmeistari með liðinu árið 2010.
Haustið 2019 kvaðst hann búinn
að leggja skóna á hilluna en snerist
svo hugur á vormánuðum 2020.
Pétur leggur
skóna á hilluna
Ljósmynd/Kristinn Steinn
Hættur Pétur Viðarsson varð fjór-
um sinnum Íslandsmeistari.
Undankeppni EM kvenna
Tyrkland – Ísland................................. 30:29
Staðan: Svíþjóð 4, Serbía 2, Ísland 2, Tyrk-
land 2.
EHF-bikar kvenna
Svartfjallaland – Noregur ................... 27:32
- Þórir Hergeirsson er þjálfari Noregs.
Coca Cola bikar karla:
8-liða úrslit:
Þór Ak.– FH ......................................... 22:33
Meistaradeild karla
A-riðill:
Elverum – Pick Szeged .......................24:27
- Orri Freyr Þorkelsson og Aron Dagur
Pálsson komust ekki á blað hjá Elverum.
Montpellier – Aalborg ........................ 31:33
- Ólafur Guðmundsson lék ekki með
Montpellier.
- Aron Pálmarsson skoraði 3 mörk fyrir
Aalborg. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari
liðsins.
B-riðill:
Flensburg – Porto ................................26:26
- Teitur Örn Einarsson skoraði 8 mörk
fyrir Flensburg.
Þýskaland
B-deild:
Aue – Nordhorn................................... 22:23
- Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 2
mörk fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson
varði 6 skot í marki liðsins.
Noregur
Kolstad – Drammen ............................ 31:30
- Óskar Ólafsson skoraði 1 mark fyrir
Drammen.
Svíþjóð
Alingsås – Guif..................................... 42:28
- Daníel Freyr Ágústsson varði 10 skot í
marki Guif.
Skövde – Kristianstad......................... 21:24
- Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 7
mörk fyrir Skövde.
%$.62)0-#