Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 68

Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 68
68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 TJARNARBÍÓ|LAUGARDAG 5. MARS|12-16 Fulltrúar frá eftirtöldum fagháskólum verða til viðtals: ARTS UNIVERSITY BOURNEMOUTH • EU BUSINESS SCHOOL - BARCELONA & MÜNCHEN GLASGOW SCHOOL OF ARTS • ISTITUTO EUROPEO DI DESIGN • LIVERPOOL INSTITUTE FOR PERFORMING ARTS • LEEDS ARTS UNIVERSITY • CAMBERWELL COLLEGE OF ARTS CENTRAL SAINT MARTINS • CHELSEA COLLEGE OF ARTS • LONDON COLLEGE OF COMM- UNICATIONS • LONDON COLLEGE OF FASHION • WIMBLEDON COLLEGE OF ARTS. 12:00-12:45 Örnámskeið “Portfolio Preparation”. 13:00-15:00 Reynslusögur; Fyrrverandi nemar segja frá. 13:00-16:00 „Maður á mann”. Viðtöl við fulltrúa skóla. Aðgangur ÓKEYPIS Námskynning Háskólanám erlendis Tilnefningar til Íslensku myndlistar- verðlaunanna 2022 liggja fyrir. Til- nefnt er í tveimur flokkum; til verð- launanna Myndlistarmaður ársins eru tilnefnd Bryndís Snæbjörns- dóttir og Mark Wilson, Carl Boutard, Steingrímur Eyfjörð, og þær Anna Hrund Másdóttir, Ragnheiður Kára- dóttir og Steinunn Önnudóttir. Til Hvatningarverðlauna ársins eru til- nefnd hópurinn Lucky 3, Klâvs Liep- ins og Renâte Feizaka, og Guðrún Tara Sveinsdóttir. Myndlistarráð stendur nú í fimmta skipti að úthlutun verðlaunanna en markmiðið er að heiðra íslenska myndlistarmenn, eða myndlistar- menn sem búsettir eru á Íslandi, og vekja athygli á því sem vel er gert jafnframt því að hvetja til nýrrar list- sköpunar. Verðlaunin Myndlistar- maður ársins eru veitt myndlistar- manni sem þykir hafa skarað fram úr með nýlegum verkum og sýningu á Íslandi á síðastliðnu ári. Hvatningar- verðlaun verða veitt starfandi mynd- listarmanni sem nýlega hefur komið fram á sjónarsviðið og vakið athygli með verkum sínum. Almenningur, myndlistarmenn og fræðimenn á sviði myndlistar tilnefna til verð- launanna. Við val á verðlaunahöfum hefur dómnefnd í huga að verk myndlistarmanna skari fram úr og að viðkomandi séu fulltrúar þess sem best er gert á sviði íslenskrar sam- tímamyndlistar. Verðlaunin verða af- hent 17. mars. Eftirfarandi eru umsagnir dóm- nefndar: Bryndís og Mark Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson eru tilnefnd fyrir sýninguna Vísitasíur í Listasafninu á Akureyri. Sýningin var afrakstur margra ára rannsóknarverkefnis, „Ísbirnir á villigötum“, sem þau hafa unnið í samvinnu við sérfræðinga á sviði þjóðfræði, náttúru- og umhverfis- fræði. Verkefnið snýst um að auka þekkingu á tengslum dýra, manna og umhverfis á tímum hamfarahlýn- unar. Til þess er sjónum beint að hvítabjörnum á Íslandi í fortíð og nú- tíð. Verkin á sýningunni varpa ljósi á spurningar um náttúruvernd, skoða frásagnir af árekstrum fólks og hvítabjarna í gegnum tíðina og hvað það er sem gerist þegar þessi tvö rándýr mætast. Carl Boutard Carl Boutard er tilnefndur fyrir sýninguna Gróður jarðar í Ásmund- arsafni. Náttúran og tengsl manns- ins við hana er megininntak listar hans. Á sýningunni flutti listamað- urinn náttúruna inn í sýningarrýmið með nýjum og nýlegum verkum í samtali við valin verk Ásmundar Sveinssonar. Sýningin veitti nærandi upplifun þar sem saman fór áhuga- verð nálgun á viðfangsefnið og spennandi efnisnotkun. Listamað- urinn svipti hulunni af raunverulegri birtingu fyrirbæranna með ná- kvæmri skoðun. Maður og náttúra, skynjun, sköpunarferli, neyslumenn- ing og endurvinnsla, tvinnast saman og mynda fagurfræðilega heild í fal- legri sýningu. Steingrímur Eyfjörð Steingrímur Eyfjörð er tilnefndur fyrir sýningu sína Tegundagreining í Listasafni Reykjanesbæjar. Sýn- ingin var ein sú stærsta sem Lista- safn Reykjanesbæjar hefur sett upp og á hana voru valin saman fjöl- breytt verk frá ferli Steingríms ásamt nýjum verkum. Sýningunni var ætlað að skýra kveikjuna að myndsköpun hans. Fjölbreytileiki verkanna vakti strax eftirtekt, texta- verk og teikningar, tréskúlptúrar, málað postulín, vídeóverk og inn- setningar sem allt fléttaðist áreynslulaust saman. En Stein- grímur á að baki langan listferil og hefur verið afar virkur í íslensku myndlistarlífi allt frá áttunda áratug síðustu aldar og margoft unnið til verðlauna fyrir list sína. Anna, Ragnheiður og Steinunn Anna Hrund Másdóttir, Ragn- heiður Káradóttir og Steinunn Önnudóttir eru tilnefndar fyrir sam- starfsverkefnið og sýninguna Feigð- arós í Kling og Bang. Sýningin býður áhorfandanum að stíga inn í til- raunakennt landslag sem kallast á við hugmyndir um náttúru og mennska íhlutun. Verkið er mynd- birting dystopískrar fantasíu sem áhorfendum er boðið inn í en einnig minnisvarði um þá leikgleði, sam- veru og samræður sem áttu sér stað á milli listakvennanna þriggja við gerð sýningarinnar. Hvatningarverðlaun Eftirtalin eru tilnefnd til Hvatn- ingarverðlaunanna að þessu sinni: Lucky 3 er hópur sem saman- stendur af þremur listamönnum sem rekja uppruna sinn til Filippseyja; þeim Dýrfinnu Benitu Basalan, Dar- ren Mark og Melanie Ubaldo. Þegar þau vinna saman nýta þau arfleifð sína og þann stöðuga menningarlega árekstur sem einkennir líf þeirra. Klâvs Liepins og Renâte Feizaka eru tilnefnd fyrir samvinnuverk sín. Þau koma bæði frá Lettlandi og hafa starfað saman gegnum árin og verið virk í íslensku myndlistar- og menn- ingarlífi. Í sameiginlegum verkum sínum tekst þeim að koma til skila skýrri sýn sem ræðst á skilningar- vitin og skilur eftir sterk hughrif. Guðrún Tara Sveinsdóttir er að stíga sín fyrstu skref í sýningarhaldi hérlendis en hefur þegar skapað sér sérstöðu í list sinni. Hún vinnur með gjörninga og skúlptúra sem gangast við því að rannsaka pólitíska sam- félagsmeðvitund og afstöðu ein- staklingsins gagnvart hlutheiminum. Dómnefnd verðlaunanna skipa Aðalheiður Valgeirsdóttir, frá List- fræðafélagi Íslands, Ásgeir Skúlason fyrir hönd SÍM, Ágústa Kristófers- dóttir er fulltrúi safnstjóra íslenskra myndlistarsafna, Helgi Þorgils Frið- jónsson er formaður dómnefndar og frá myndlistarráði, og Páll Haukur Björnsson er fulltrúi Listaháskóla Íslands. Tilnefnt til Myndlistarverðlauna - Sjö myndlistarmenn tilnefndir fyrir fjórar sýningar - Sex tilnefnd til Hvatningarverðlauna Ljósmynd/Daníel Starrason Vísitasíur Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson eru tilnefnd fyrir sýn- ingu í Listasafninu á Akureyri, afrakstur margra ára rannsóknarverkefnis. Ljósmynd/Vigfús Birgisson Gróður jarðar Carl Boutard er tilnefndur fyrir sýningu sína í Ásmundar- safni. Náttúran og tengsl mannsins við hana er megininntak listar hans. Ljósmynd/Vigfús Birgisson Tegundagreining Steingrímur Eyfjörð er tilnefndur fyrir sýningu sína í Listasafni Reykjanesbæjar, með nýjum verkum og frá ferli listamannsins. Ljósmynd/Lilja Birgisdóttir Feigðarós Anna Hrund Másdóttir, Ragnheiður Káradóttir og Steinunn Önnudóttir eru tilnefndar fyrir samstarfsverkefni í Kling og Bang. Mark Wilson og Bryndís Snæbjörnsdóttir Carl Boutard Steinunn Önnudóttir, Ragnheiður Káradóttir og Anna Hrund Másdóttir Steingrímur Eyfjörð Klâvs Liepins og Renâte Feizaa Lucky 7 – Dýrfinna B. Basalan, Darren Mark og Melanie Ubaldo Guðrún Tara Sveinsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.