Morgunblaðið - 22.03.2022, Page 1

Morgunblaðið - 22.03.2022, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 2. M A R S 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 68. tölublað . 110. árgangur . URÐU TIL Á GÖNGU UM BORG BRÚNNA SÉRSAUMA ÞJÓÐFÁNA EFTIR PÖNTUN LEIKUR EKKI MEIRA ÚT TÍMABILIÐ HJÁ MIDTJYLLAND FÁNASAUMASTOFAN 12 ELÍAS RAFN ÓLAFSSON 27HRAFNHILDUR HAGALÍN 28 Í éljagangi sem gekk yfir borgina í gærmorgun var Hvalur 9 tekinn upp í dráttarbraut Stál- smiðjunnar við Reykjavíkurhöfn og verður þar næstu vikurnar. Á þeim tíma verður bátnum gert til góða á marga lund; málaður, gert við botnloka, tanka og fleira slíkt sem fylgir. Verk- efnið í gær hófst annars á því að vinna upp gamla málningu neðan sjólínu á bátnum, en slíkt er gert með öflugri háþrýstidælu. Með þessu geta þeir sem leið eiga um Mýrargötu og Ægis- garð vel fylgst með enda er Slippurinn bók- staflega í hjarta bæjarins. Í útgerð og sjófærir eru Hvalur 8 og 9 – báðir svipsterkir bátar og fallegir – og verða til taks þegar og ef að hval- veiðum kemur. Morgunblaðið/Eggert Hval 9 verður gert til góða í slippnum Íslenska tollgæslan greindi ekki merkjanlega aukningu á innflutningi falsaðs varnings til Íslands í kórónu- veirufaraldrinum. Sérstaklega var fylgst með því hvort reynt væri að senda hingað fölsuð lyf eða varnar- og hlífðarbúnað eins og andlitsgrímur og aðrar líkamshlífar. Slíkt fannst ekki í neinum mæli, samkvæmt upplýsing- um frá tollinum. Í einhverjum tilvik- um fannst það sem kalla mátti „vafa- saman“ búnað, en hann var ekki ætlaður til magnsölu. Evrópulögreglan Europol greindi frá því fyrr í mánuðinum að í faraldr- inum hefði orðið vart aukningar á fölsuðum vörum og sjóræningjavör- um, það er vörum sem framleiddar eru án tilskilins leyfis rétthafa. Glæpasamtök voru fljót að bregðast við skorti á ýmsum vöruflokkum sem faraldurinn olli. Í fréttatilkynningu Europol kom fram að falsaðar vörur eins og snyrti- vörur, ýmis matvara, lyf, skordýra- eitur og leikföng gætu ógnað heilsu manna. Einnig sagði þar að vörufals- arar hefðu nýtt sér stafrænar leiðir til að auglýsa framleiðslu sína og koma henni til neytenda, t.d. í gegnum sam- félagsmiðla og netsölu. Megnið af fölsuðum vörum sem dreift er innan ESB er framleitt utan sambandsins. Samkvæmt upplýsingum frá ís- lenska tollinum rákust tollverðir á varning sem talinn var falsaður, en hann var ekki ætlaður til almennrar markaðssetningar heldur fluttur inn til eigin nota. Einstaklingar hafa ákveðið svigrúm, samkvæmt tollalög- um, til að flytja inn falsaðan varning. Tollgæslan hefur ekki séð ástæðu til að refsa einstaklingum fyrir að hafa látið glepjast af innistæðulitlum gylli- boðum. Hins vegar er gripið inn í ef slíkur varningur er ætlaður til mark- aðssetningar. Eins er fylgst náið með öryggi varnings sem getur varðað líf eða heilsu notenda, eins og t.d. varahlut- um í bifreiðar, lyfjum eða matvöru. Sé rafbúnaður, eins og t.d. farsím- ar, CE-merktur þá hefur honum ver- ið hleypt í gegnum tollafgreiðslu. Í flestum tilvikum hefur merkti varn- ingurinn staðist öryggiskröfur. gudni@mbl.is Ekki merkjanleg aukn- ing í falsvarningi hér - Europol greindi aukinn innflutning falsaðs varnings til ESB Um fimm þúsund börn nýta sér ekki rétt sinn til gjaldfrjálsrar tann- læknaþjónustu á hverju ári. Unnið er að því að reyna að ná til þessara barna. „Það eru kannski ýmsar ástæður fyrir því að svo mörg börn nýta sér ekki rétt sinn til gjaldfrjálsra tannlækninga. Við teljum að sum þessara barna séu af erlendu bergi brotin og forráðamenn þeirra viti sumir hreinlega ekki að þessi þjón- usta standi til boða. Síðan býr einhver hluti barna við erfiðar félagslegar að- stæður þar sem tannheilsu þeirra er ekki sinnt frekar en mörgu öðru. Svo eru einhverjir sem veigra sér við að koma af ótta við að stofna til skulda,“ segir Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir, formaður Tannlæknafélags Íslands. „Það er náttúrlega ákveðið form af vanrækslu þegar því er ekki sinnt að fara með börn til tannlæknis og börn eru hlunnfarin um þann rétt sem þau eiga á þessari heilbrigðisþjónustu,“ segir Jóhanna Bryndís. »6 „Ákveðið form af vanrækslu“ - 5.000 börn koma ekki til tannlæknis Morgunblaðið/Eggert Í stólnum Þúsundir barna mæta ekki til tannlæknis ár hvert. _ Stjórnmálaflokkar og framboð í sveitarfélaginu Skagafirði eru enn að raða á lista, enda stutt síðan Akrahreppur sameinaðist sveitar- félaginu og staðan því breytt. Gert er ráð fyrir nokkrum breyt- ingum hjá Byggðalista, Sjálfstæðis- flokki og Vinstri grænum og óháð- um, en útlit er fyrir gerbreytingu á lista Framsóknarflokksins, þar sem oddvitinn er kominn á þing, annar bæjarfulltrúi fluttur burt og sá þriðji hyggst ekki taka sæti. Nýr listi Framsóknar verður kynntur á næstu dögum, en ástand- ið er svo viðkvæmt að enginn fram- sóknarmaður fannst til þess að taka þátt í hlaðvarpi Dagmála, sem tekið var upp á Sauðárkróki í gær og birt er í Dagmálum í dag. »10-11 Morgunblaðið/Brynjólfur Löve Kosningar Upptaka kosningahlaðvarps Dagmála Morgunblaðsins á Sauðárkróki. Enginn framsóknar- maður fannst í öllum Skagafirði _ Úkraínsk yfirvöld hafa hafnað kröfum Rússa um að skipa herliði sínu í hafnarborginni Maríupol að leggja niður vopn, yfirgefa borgina og eftirláta Rússum hana. Rússnesk yfirvöld höfðu gefið Úkraínumönnum úrslitakost fram að dögun í gær og yrði úkraínskum hermönnum þá leyft að yfirgefa borgina óvopnaðir. Borgin er enn án rafmagns og rennandi vatns. »13 Neita að gefast upp og yfirgefa Maríupol

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.