Morgunblaðið - 22.03.2022, Page 6

Morgunblaðið - 22.03.2022, Page 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2022 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2021 GMC Denali 2500 Litur: Hvítur/ Svartur að innan (nappa leather). Æðislegur fjölskyldubíll hlaðinn búnaði. 7 manna bíll. Hybrid Bensín. Sjálfskiptur. 360 myndavélar. Collision alert system. Harman/Kardon hljómkerfi. Tölvuskjáir í aftursæti. VERÐ 10.390.000 2022 Chrysler Pacifica Hybrid Limited Gullfallegur bíll í ábyrgð! Ekinn 30.000 km. 10 gíra skipting. Auto track millikassi. Multipro opnun á afturhlera. 35” dekk. Samlitaðir brettakantar. Sóllúga. Rúllulok á palli. Led bar. Tveir dekkjagangar á felgum (sumar- og vetardekk). VERÐ 13.990.000 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Stærsta ástæðan er einfaldlega van- þekking á því hvernig kerfið er á Ís- landi og við viljum breyta því,“ segir Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir, for- maður Tann- læknafélags Ís- lands. Í umsögn Tannlækna- félagsins til vel- ferðarnefndar Al- þingis um þingsályktunar- tillögu nokkurra þingmanna Sam- fylkingarinnar um gjaldfrjálsar tannréttingar fyrir börn kemur fram að góð reynsla sé komin á samninga um gjaldfrjálsar tannlækningar hér á landi, sem urðu að fullu gjaldfrjáls- ar árið 2018. Samningarnir hafi jafn- að aðgang að tannlæknaþjónustu og tannheilsa barna hafi batnað mikið. Félagið vekur þó athygli á því að ár- lega séu um 5.000 börn sem ekki nýti sér þennan rétt sinn. „Ýmsar ástæð- ur geta verið fyrir slíku en eitt er víst að stjórnvöldum ásamt tannlæknum ber að reyna að ná til þessara barna. Um er að ræða skýlausan rétt barns til heilbrigðisþjónustu sem tann- lækningar eru og sá réttur er í raun ekki virtur,“ segir í umsögn félags- ins. Jóhanna segir í samtali við Morg- unblaðið að Tannlæknafélagið hafi fylgst með þessari þróun í samvinnu við Embætti landlæknis og Sjúkra- tryggingar Íslands. Mikil vinna hafi verið lögð í að reyna að greina ástæð- ur þessa og huga að leiðum til úrbóta. „Það eru kannski ýmsar ástæður fyrir því að svo mörg börn nýta sér ekki rétt sinn til gjaldfrjálsra tann- lækninga. Við teljum að sum þessara barna séu af erlendu bergi brotin og forráðamenn þeirra viti sumir hrein- lega ekki að þessi þjónusta standi til boða. Einnig býr einhver hluti barna við erfiðar félagslegar aðstæður þar sem tannheilsu þeirra er ekki sinnt frekar en mörgu öðru. Svo eru ein- hverjir sem veigra sér við að koma af ótta við að stofna til skulda. Margir virðast standa í þeirri trú að þetta feli í sér kostnað. Það var til dæmis farið með rangt mál í grein á vefmiðli á dögunum þar sem því var haldið fram að skoðunin væri ókeypis en svo þyrfti fólk að borga fyrir tannvið- gerðirnar. Staðreyndin er sú að það er alveg sama hvað þarf að gera, eini kostnaðurinn sem fólk þarf að bera er 2.500 krónur árgjald sem er greitt á 12 mánaða fresti,“ segir Jóhanna. Hún segir mikilvægt að ná til þessa hóps, kynna þjónustuna betur og eins að tryggja að því sé fylgt eftir að þjónustan sé nýtt. Tannlækna- félagið hafi fundað með heilbrigðis- ráðuneytinu, Embætti landlæknis og Sjúkratryggingum um það hvaða leiðir séu færar. „Við þurfum að koma þessum upplýsingum á fram- færi. Þær þurfa til dæmis einnig að vera til taks á pólsku og ensku. Svo er verið að skoða það að fólk fái áminningar í gegnum Heilsuveru þegar tími er kominn á að fara til tannlæknis. Heilsuvera hefur sannað gildi sitt á þessum Covid-tímum og gæti nýst vel við þetta,“ segir Jó- hanna. „Það er náttúrlega ákveðið form af vanrækslu þegar því er ekki sinnt að fara með börn til tannlæknis og börn eru hlunnfarin um þann rétt sem þau eiga á þessari heilbrigðisþjónustu. Því er mikilvægt að kerfin vinni sam- an, þ.e. tannlæknar, heilsugæslan og félagsþjónustan. Þannig náum við betur að grípa þau börn sem eru í mestum vanda og koma þeim til hjálpar.“ Fimm þúsund börn láta ekki sjá sig Morgunblaðið/Árni Sæberg Tannlækningar Stór hópur barna nýtir sér ekki rétt á ókeypis þjónustu. - Átak þarf til að ná til stórs hóps og kynna betur að tannlækningar barna eru gjaldfrjálsar - Margir óttast að þeir kunni að stofna til skulda - Áminningar frá tannlæknum komi í gegnum Heilsuveru Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir Tannlæknafélagið styður ein- dregið þingsályktunartillögu um gjaldfrjálsar tannréttingar barna. Tillagan felur í sér að heilbrigðisráðherra verði falið að leggja fram frumvarp þess efnis ekki síðar en í maí á þessu ári. „Það eru margir krakkar og fólk sem veit að það hefur ekki efni á tannréttingum. Það hvarflar ekki einu sinni að þeim að fá mat á því sem þarf að gera. Þetta er mikil mis- munun og ótrúlega sorglegt,“ segir Jóhanna Bryndís. Hún segir að styrkur vegna tann- réttinga hafi ekki verið hækk- aður í tvo áratugi og tími sé kominn á breytingar. „Endur- greiðsla ætti að fara eftir erf- iðleikastigi, hún ætti að vera hærri í stærri og erfiðari til- fellum en minni í auðveldari tilvikum.“ Sorgleg mismunun DÝRAR TANNRÉTTINGAR Framleiðsla á tómötum jókst held- ur á síðasta ári en minnkaði ekki eins og ráða mátti af upplýsingum sem fram komu í frétt hér í blaðinu sl. laugardag. Kemur þetta fram í leiðréttum tölum frá Hagstofu Ís- lands. Framleidd voru 1.234 tonn af tómötum á síðasta ári, 71 tonni meira en á árinu 2020, enda bættust við ný gróðurhús þar sem tómatar eru framleiddir. Upplýsingar Hag- stofunnar um papriku voru einnig rangar. Framleidd voru 184 tonn sem svarar til 11% af markaðnum. Leiðréttar upplýsingar koma fram á meðfylgjandi korti sem vegna mistaka birtist ekki að fullu í blaðinu sl. laugardag. Uppskera og afurðir grænmetis og korns Kínakál Blómkál Rauðkál Paprika Hvítkál Spergilkál Salat Rófur Sveppir Gulrætur Tómatar Gúrkur Kartöflur Korn* Heimild: Hagstofa Íslands *Þreskt korn, miðað við 14% rakainnihald 54 105 184172 207 299 538 559 581 754 2.067 6.355 1.234 7.488 Innlend framleiðsla 2018 til 2021 (tonn) og hlutfall innflutnings árið 2021 (%) 120 95 70 45 20 '18 '19 '20 '21 1.000 825 650 475 300 '18 '19 '20 '21 2.500 2.125 1.750 1.375 1.000 '18 '19 '20 '21 300 250 200 150 100 '18 '19 '20 '21 9.000 7.125 5.250 3.375 1.500 '18 '19 '20 '21 10.000 8.500 7.000 5.500 4.000 '18 '19 '20 '21 1.500 1.175 850 525 200 '18 '19 '20 '21 400 300 200 100 0 '18 '19 '20 '21 1.500 1.350 1.200 1.050 900 '18 '19 '20 '21 Innlend framleiðsla 2021 (tonn) Blómkál Innflutningur: 85% Kartöflur Innflutningur: 25% Gulrætur Innflutningur: 47% Rófur Innflutningur: 0% Gúrkur Innflutningur: 2% Spergilkál Innflutningur: 60% Hvítkál Innflutningur: 77% Tómatar Innflutningur: 51% Korn* Meira framleitt af tómötum „Við erum að skoða þetta með lögmönnum og fara yfir forsend- urnar. Við höfum tvær vikur til að ákveða hvort þessu verður áfrýjað og mun- um meta stöðuna í þessari viku,“ segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR. Tveimur málum ÁTVR, gegn Bjórlandi annars vegar og Sante- wines hins vegar, var vísað frá Hér- aðsdómi Reykjavíkur á föstudag. ÁTVR hafði höfðað einkamál gegn Bjórlandi og Santewines þar sem stofnunin taldi félögin hafa valdið stofnuninni tjóni með sölu félag- anna á áfengi í gegnum netsölur sínar. Fór ÁTVR meðal annars fram á að viðurkennd yrði bóta- skylda vegna meints tjóns sem ÁTVR hefði orðið fyrir af sölu áfengis sem ekki var selt á grund- velli einkaleyfis ÁTVR til smásölu áfengis hér á landi. Tekur dómurinn meðal annars fram að annmarkar á málatilbúnaði ÁTVR séu slíkir að þeir leiði til frá- vísunar málanna í heild, fremur en að á þá reyni við efnisúrlausn máls- ins. ÁTVR íhugar að áfrýja úrskurði héraðsdóms um mál netverslana Sigrún Ósk Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.