Morgunblaðið - 22.03.2022, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.03.2022, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2022 BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Það er rólegt yfir Hofsósi í hádeginu í miðri viku. Ferðamannastraumurinn er ekki mikill í fyrri hluta marsmán- aðar. Blaðamaður þræðir sig niður í Kvosina þar sem Vesturfarasafnið er starfrækt. En að þessu sinni er það ekki safnið, sem stofnað var árið 1996 og notið hefur mikilla vinsælda meðal Íslendinga og gesta okkar sem landið sækja heim, sem dregur mig norður að þessu sinni. Það er vegna annarrar stofnunar sem rekin er í sömu húsum sem lítill krókur er lagður á leið aust- ur á land. Það er Íslenska fánasauma- stofan en þar ræður Guðrún Þor- valdsdóttir ríkjum. Gulur og blár Hún tekur glaðlega á móti mér í bæjardyrum og við vindum okkur beint í að greiða úr aðalástæðu heim- sóknarinnar. Hún dregur úr pússi sínu fána, gulan og bláan að lit. Það er fáni Úkraínu sem ég hafði pantað hjá henni þremur dögum fyrr og reynst létt verk fyrir Saumastofuna að hrista fram úr erminni. „Hann kemur mjög vel út. Við notumst við sama bláa lit- inn og í sænska fánanum og það er eins nærri því og við komumst réttum lit,“ segir Guðrún og blaðamaður get- ur staðfest að það þyrfti meira en haukfrán augu til að greina annað en að litasamsetningin sé fullkomin. Með í kaupunum fylgir svo einnig fáni Þýskalands, en af öðrum ástæð- um en þeim sem sá úkraínski er nú saumaður. Hann var ekki efst á óska- listanum fyrr en Rússar réðust inn í Úkraínu 24. febrúar. Það var mikil- vægt að draga hann að húni sem yf- irlýsingu um samstöðu og samhyggð með fólki sem sætir nú ófyrirgefan- legri meðferð. „Þú ert sá fyrsti sem pantar úkra- ínska fánann hjá okkur. Sennilega eru fleiri að panta prentaða fána en við er- um eina saumastofan hér á landi sem vinnur fánana með þeim hætti sem hefðin segir til um,“ útskýrir Guðrún. „Við saumum hinn eina sanna ís- lenska fána,“ bætir hún við og þarf ekki að sannfæra viðstadda. Handverksmeistarinn að baki fán- unum er Inga Dögg Jónsdóttir. Hún hefur yfir að ráða nokkrum sauma- vélum, sem hver og ein hefur sitt skil- greinda hlutverk í framleiðslunni og þær mega hafa sig allar við að hlýða skipunum hennar. Hún saumar hvorki meira né minna en 600 til 700 fána á ári hverju — í öllum stærðum og gerðum. „Þetta er mjög skemmtilegt en ég var ekki mikil fánakona þegar ég byrjaði að vinna hérna,“ útskýrir Inga Dögg. Hún trúir mér (og nú les- endum) fyrir því að hún hefur örsjald- an flaggað en hún kann það þó senni- lega betur en flestir aðrir. „Það þarf að snúa fánanum rétt. Saumarnir verða að liggja niður því annars safnast vatn í sauminn og skemmir fánann.“ Þegar ég sæki þær stöllur heim sit- ur Inga Dögg við innstu saumavélina á stofunni og er þar að festa hvítu, þykku röndina við fánann, þá sem liggur næst stönginni þegar flaggað er. Hausasaumurinn mikilvægur „Ég er að hausa þennan,“ segir hún og þar með hefur nýtt orð bæst í orða- forða blaðamanns. Hausinn á fánan- um er þessi hvíta brydding sem held- ur einnig þétt um bandið sem tengir fánann við stagið á stönginni. Íslenska fánasaumastofan var stofnuð árið 1972 á Hofsósi og hefur verið starfrækt þar allar götur síðan. Var framleiðslan í fyrstu að mestu bundin við íslenska fánann, enda þjóðhátíðarárið 1974 þá skammt und- an. Síðan þá hefur fyrirtækið tekið að sér margs konar verkefni. „Stærsti fáninn var 70 fermetrar minnir mig. Hann var saumaður fyrir Ólympíuleika fyrir löngu síðan. Hann var stærri en gólfflötur fyrirtækisins á þeim tíma,“ útskýrir Guðrún. Þegar við röltum svo niður í her- bergið þar sem efnið í fánana, sem er breskt að uppruna, blasir við flókinn útreikningur á tússtöflu. Þar hefur Inga Dögg verið að reikna út hlut- föllin í fána Grænlendinga. „Hann er flókinn,“ segir Inga Dögg en er hvergi bangin. Hún hefur gert þá nokkra í gegnum tíðina. Allt að sjö hundruð fánar Morgunblaðið/Stefán Einar Saumaskapur Inga Dögg saumar 600-700 fána á ári hverju. Þarna er hún að „hausa“ íslenskan fána. - Fánasaumastofan á Hofsósi heldur í góðar hefðir - Íslenski fáninn í öndvegi - Sauma marga þjóðfána eftir sérpöntun - Flókið að sauma þann grænlenska Fáninn Inga Dögg og Guðrún munda úkraínska fánann. Tveimur dögum síðar var hann fyrst dreginn að hún í stuðningi við íbúa hins stríðshrjáða ríkis. Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg stjórnarformaður og nú þingmaður Vinstri grænna, vék úr stjórn ásamt þeim Eiríki Hauki Haukssyni, Jónínu Björk Óskarsdóttur og Guðmundi Axel Hansen. Auður Björg Guðmundsdóttir situr áfram í stjórn en nýir stjórnarmenn eru Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, Gísli Sigurjón Brynjólfsson, Guðný Hrund Karlsdóttir og Baldvin Örn Ólason. Íslandspóstur mun ekki gefa upp sundurliðun starfs- þátta félagsins, þ.e. afkomu af póstþjónustu innan al- þjónustu annars vegar og samkeppnisrekstri hins vegar. Í ársreikningum ríkisfyrirtækisins hafa þessir liðir fram til þessa verið aðgreindir, en í ársreikningi fyrir síðasta ár er aðeins að finna heildarafkomu fyrirtækisins. Eins og Morgunblaðið hefur áður greint frá nemur tap af al- þjónustu sl. áratug um 6,6 milljörðum kr. Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Íslandspósts, seg- ir í svari til Morgunblaðsins að eftir að einkaréttur bréfa hafi fallið niður sé ekki krafa um að birta bókhaldslegan aðskilnað í ársreikningum. Íslandspóstur hagnaðist um 256 milljónir króna á síð- asta ári. Fyrirtækið fékk í fyrra 563 milljóna króna framlag frá Byggðastofnun fyrir rekstur á alþjónustu, þannig að að frádregnu því framlagi er afkoman nei- kvæð um rúmar 300 milljónir króna. Nánast allri stjórn Íslandspósts var skipt út á aðal- fundi félagsins fyrir helgi. Bjarni Jónsson, fráfarandi Óvíst um afkomu alþjónustu - Takmarkaðar upplýs- ingar veittar um afkomu Uppgjör Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Íslandspósts. « Framvirkir samningar með hveiti hafa hækkað mikið í verði eftir innrás Rússa í Úkraínu. Það hefur samkvæmt frétt Reuters orðið til þess að banda- rískir bændur vilja ólmir selja hveiti. Verð hveitis hækkaði um 30% upp í 12 dali á skeppu, sem er hæsta verð sem Vance Ehmke, bandarískur bóndi, sem Reuters ræðir við, hefur séð í þau 45 ár sem hann hefur stundað búskap. En í stað þess að selja með miklum gróða komst Ehmke að því að markaðir voru í miklu uppnámi. Hann og eigin- kona hans Louise sögðu Reuters að þau hefðu ekki getað selt neitt af uppskeru næsta sumars fyrir fram. Framvirkir samningar hafi þotið svo mikið upp í verði að margir í flókinni aðfangakeðju kornvara hafa hætt að kaupa af ótta við að geta ekki selt aftur með hagnaði. Stríð hækkar verð en bændur geta ekki selt 22. mars 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 129.81 Sterlingspund 170.27 Kanadadalur 102.72 Dönsk króna 19.201 Norsk króna 14.741 Sænsk króna 13.7 Svissn. franki 138.55 Japanskt jen 1.0875 SDR 179.22 Evra 142.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 180.4912 « Ríkisrekni olíu- risinn Saudi Aramco í Sádi- Arabíu hyggst auka til muna fjárfest- ingu í orkufram- leiðslu í kjölfar þess að fyrirtækið tilkynnti tvöföldun hagnaðar á síðasta ári. Í frétt BBC kem- ur fram að fyrirtækið ætli að auka fram- leiðslu sína umtalsvert á næstu fimm árum. Orkuverð hefur hækkað mikið á síð- ustu mánuðum þar sem eftirspurn eftir olíu og gasi hefur verið umfram fram- boð. Stríðið í Úkraínu og tregða ríkja við að reiða sig á orku frá Rússlandi vegna þess hefur aukið á mikilvægi þess að finna orku úr öðrum áttum. Ákvörðun Saudi Aramco er sam- kvæmt BBC líkleg til að verða vel tekið hjá ráðamönnum víða um heim sem áhyggjur hafa af áhrifum hærra orku- verðs á lífskjör, þó svo að fjárfesting Saudi Aramco miði að því að auka framleiðslu á næstu fimm til átta árum. Saudi Aramco fjárfestir í aukinni framleiðslu Olía Orkuverð hef- ur farið hækkandi. STUTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.