Morgunblaðið - 22.03.2022, Síða 15

Morgunblaðið - 22.03.2022, Síða 15
5.545 manns tóku þátt í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins vegna komandi borgarstjórn- arkosninga, sem lauk á laugardag. Þetta fjöl- menna forval sýnir vel hinn mikla hljóm- grunn, sem sjálfstæð- isstefnan nýtur meðal borgarbúa, og mikinn kraft sem býr í reyk- vísku sjálfstæðisfólki. Prófkjörið sannar enn og aftur að Sjálfstæð- isflokkurinn er fjölda- hreyfing þar sem áhersla er lögð á að virkja almenna félaga við stefnumótun og fulltrúaval. Mikilvægt er að hinir miklu kraft- ar, sem leystir voru úr læðingi í prófkjörinu, skili sér ríkulega í sjálfri baráttunni fyrir borgar- stjórnarkosningar. Þannig mun prófkjörið marka upphafið að sigri Sjálfstæðisflokksins í kosning- unum 14. maí. Þakkir Í prófkjörinu hlaut ég örugga kosningu í 3. sætið. Í heild fékk ég 3.224 atkvæði eða 61% gildra at- kvæða. Er ég mjög þakklátur fyrir þennan stuðning og það traust sem hann felur í sér. Innilegar þakkir fá einnig hinir mörgu stuðningsmenn, sem aðstoðuðu mig með einum eða öðrum hætti í baráttunni, t.d. með dreifingu bæklinga eða meðmælum við vini og kunningja. Öðrum fram- bjóðendum óska ég til hamingju með árangurinn og hlakka til að vinna með þeim að því að gera góða borg enn betri. Með forvalinu hefur verið valinn fjölbreytilegur hópur frambjóðenda, sem hefur skýra sýn á þjónustu og rekstur borgarinnar og er góður val- kostur við núverandi meirihluta borgarstjórnar, sem eru mislagðar hendur í mörgum málaflokkum svo ekki sé meira sagt. Kosningabaráttuna þarf að hefja strax enda eru nú minna en átta vik- ur til stefnu. Kosningabaráttan verð- ur stutt og snörp en hún verður líka skemmtileg. Frambjóðendur Sjálf- stæðisflokksins munu setja fram skýr stefnumál og kynna þau með kraftmiklum hætti í kosningabarátt- unni. Ég efast ekki um að í þeirri vinnu munu frambjóðendur njóta góðs stuðnings þúsunda sjálfstæð- isfólks í öllum hverfum borgarinnar. Eftir Kjartan Magnússon »Mikilvægt er að hinir miklu kraftar, sem leystir voru úr læðingi í prófkjörinu, skili sér ríkulega í kosninga- baráttunni. Kjartan Magnússon Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Glæsilegt prófkjör í Reykjavík 15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2022 Skyggnst eftir vorinu Dagatalið segir að vorið sé á næsta leiti, lóan er komin og von að landsmenn skyggnist eftir því gegnum snjómugguna og velti því fyrir sér hvort veturinn sé ekki að hörfa. Eggert Jóhannesson Innrás Rússlands í Úkraínu hefur kallað fram sterka samstöðu í Evrópu allri og víða um heim. Sú afstaða hefur verið sýnd í verki með áður óþekktum efnahagsaðgerðum og öðrum þvingunar- aðgerðum. Stríðið hef- ur opnað augu Evrópu á ný fyrir hörmungum stríðsreksturs og stríðsglæpa. Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, hefur sagt sannanir fyrir að rússneski her- inn hafi beitt klasasprengjum. Notk- un slíkra vopna er bönnuð sam- kvæmt Genfarsamningunum. Ursula von der Leyen, forseti fram- kvæmdastjórnar ESB, kallaði eftir því að stríðsglæpir Rússa yrðu rann- sakaðir. Síðast en ekki síst hefur Ka- rim A.A. Khan, saksóknari hjá Al- þjóðlega sakamáladómstólnum, sagt ástæðu til að ætla að stríðsglæpir hafi verið framdir af hálfu rússneska hersins í Úkraínu. Hinn 28. febrúar lýsti saksóknarinn því svo yfir að rannsókn vegna stöðunnar í Úkra- ínu væri hafin. Á fyrstu dögum marsmánaðar höfðu 39 aðildarríki vísað aðstæðum í Úkraínu til sak- sóknara og óskað eftir að saksóknari hæfi rannsókn og gagna- öflun þá þegar. Ísland var þar á meðal. Þessi samstaða er án for- dæma af hálfu aðild- arríkja dómstólsins. Sérstakt fjár- framlag Íslands Litháen hefur lýst yfir að ríkið ætli að leggja til sérstakt fjár- framlag í þágu þess- arar rannsóknar sem nemur um 15 milljónum króna. Sam- hliða hefur Litháen biðlað til ann- arra ríkja um að gera slíkt hið sama. Ráðamenn í Bretlandi hafa gefið vil- yrði fyrir sérstökum fjárframlögum og öðrum stuðningi við rannsókn dómstólsins. Ljóst er að frjáls fram- lög ríkja í þágu þessa verkefnis eru liður í stuðningi við Úkraínu sem og til marks um þá afstöðu að þeir sem fremja stríðsglæpi sæti ábyrgð. Sak- sóknari við dómstólinn hefur jafn- framt biðlað til aðildarríkja að styðja rannsóknina með fjárframlögum. Saksóknari hefur lagt áherslu á þau augljósu sannindi og reglur að sé árásum vísvitandi beint að óbreytt- um borgurum þá sé það glæpur. Ég hef lagt fram þingsályktun- artillögu um að Alþingi feli utanrík- isráðherra að veita 10 milljón króna sérstakt viðbótarframlag til Al- þjóðlega sakamáladómstólsins í Haag vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Þannig geta íslensk stjórn- völd sýnt stuðning við þau gildi sem dómstóllinn stendur fyrir og einarða afstöðu sína gegn stríðsglæpum. All- ur þingflokkur Viðreisnar er að baki tillögunni. Í 116. gr. Rómarsam- þykktarinnar segir að dómstóllinn geti tekið við og notað sem viðbót- arsjóði frjáls framlög frá rík- isstjórnum, alþjóðastofnunum, ein- staklingum, fyrirtækjum og öðrum aðilum. Dómstóllinn er fjármagn- aður bæði af aðildarríkjum stofn- samningsins og frjálsum framlögum frá ríkjum, alþjóðastofnunum, ein- staklingum, fyrirtækjum og öðrum aðilum. Þetta viðbótarframlag Ís- land myndi rúmast innan þess ramma sem ætlaður er ráðuneytinu í fjárlögum. Þeir sem fremja stríðsglæpi sæti ábyrgð Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn (e. International Criminal Court – ICC) er fyrsti varanlegi alþjóðlegi sakamáladómstóllinn sem stofnaður var til þess að taka á alvarlegum brotum sem varða alþjóða- samfélagið. Dómstóllinn rekur upp- haf sitt til 7. júlí 1998 þegar sam- komulag 120 ríkja náðist um Rómarsamþykktina svokölluðu, sem er stofnskjal Alþjóðlega saka- máladómstólsins. Rómarsam- þykktin tók gildi 1. júlí 2002 þegar 60 ríki höfðu fullgilt hana. Ísland varð tíunda ríkið til þess að fullgilda samþykktina. Eitt meginmarkmið dómstólsins er að þeir aðilar sem gerast sekir um alvarlegustu glæpina gegn almenn- um borgurum sæti ábyrgð. Sam- kvæmt ákvæðum Rómarsamþykkt- arinnar falla undir lögsögu dómstólsins stríðsglæpir, hópmorð, glæpir gegn mannúð og glæpir gegn friði. Mikilvægur og táknrænn stuðningur Núna er ríkt tilefni fyrir Ísland til að stíga mikilvægt og um leið tákn- rænt skref með sérstöku fjár- framlagi til að styðja rannsókn á ætluðum brotum rússneska hersins í Úkraínu. Með því getur fámenn þjóð sýnt sterka afstöðu með grundvall- arréttindum hins almenna borgara á stríðstímum. Framlagið felur í sér stuðning við þá hugmyndafræði að þeir sem fremja stríðsglæpi sæti ábyrgð af hálfu alþjóðasamfélagsins. Óskandi er að fleiri ríki sýni þenn- an stuðning núna. Það er mikilvægt á tímum sem þessum að afstaða ríkja sé skýr og birtist alls staðar þar sem ætla má að boðskapurinn heyrist og skiljist. Efnahagsaðgerðir og aðrar þvingunaraðgerðir hafa sýnt áður óþekkta samstöðu. Ísland getur að sama skapi svarað ákalli Karims A.A. Khans, saksóknara hjá Alþjóðlega sakamáladómstólnum, með viðbótarframlagi til dómstóls- ins. Dómstóllinn hefur þýðing- armiklu hlutverki að gegna núna og til framtíðar. Rannsókn á stríðs- glæpum rússneska hersins í Úkra- ínu gefur til kynna að alþjóða- samfélagið ætli sér ekki aðeins að fordæma stríðsglæpi heldur að slík brot hafi afleiðingar af hálfu alþjóða- samfélagsins. Fámenn þjóð eins og Ísland getur með framlagi lagt lóð á vogarskálarnar. Ég hef óskað eftir meðflutningi þingmanna úr öllum flokkum og það er von mín að þing- heimur allur geti sameinast að baki þessari tillögu. Eftir Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur » Ísland getur svarað ákalli Karims A.A. Khans, saksóknara hjá Alþjóðlega sakamála- dómstólnum. Í því felst mikilvægur og tákn- rænn stuðningur. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Höfundur er þingmaður Viðreisnar. Ísland styðji sérstaklega við rannsókn á stríðsglæpum Rússlands

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.