Fréttablaðið - 12.04.2022, Síða 1

Fréttablaðið - 12.04.2022, Síða 1
Verkið var að hefjast af krafti eftir sex vikna hlé vegna veðurs. 7 1 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s Þ R I Ð J U D A G U R 1 2 . A P R Í L 2 0 2 2 Hildigunnur syngur Vivaldi Úr balanum og upp á svið Menning ➤ 26 Lífið ➤ 30 Virðisaukinn er farinn út í bláinn! Laugavegi 174, 105 Rvk. www.mitsubishi.is/eclipse Við fellum niður 480.000 kr. VSK frá áramótum!* Notaðu þetta frábæra tækifæri og fáðu þér vel útbúinn fjórhjóladrifinn Eclipse Cross PHEV tengiltvinnbíl með öllum þeim kostum sem hugurinn girnist – og meira til. *Að sjálfsögðu greiðir Hekla öll gjöld og virðisaukaskatt af bílum til Ríkissjóðs. 480.000 kr. lækkunin á Mitsubishi Eclipse Cross er alfarið á kostnað Heklu. Einungis örfáir bílar eftir á þessu frábæra tilboði! Varnaræfingin Norður-Víkingur stendur nú sem hæst og í gær fór fram æfing landgöngu sjöttu herdeildar bandaríska sjóhersins í innanverðum Hvalfirði. SJÁ SÍÐU 10. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Kópavogsbær fór ekki að lögum við útgáfu fram- kvæmdaleyfis vegna breikk- unar Suðurlandsvegar. Leyfið hefur verið fellt úr gildi og framkvæmdir stöðvaðar. gar@frettabladid.is SAMGÖNGUR Margvíslegir ágallar voru á útgáfu Kópavogsbæjar á framkvæmdaleyfi vegna breikk- unar Suðurlandsvegar við Lögbergs- brekku, samkvæmt úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. „Framkvæmdir við verkið voru stöðvaðar síðastliðinn föstudag enda leyfi til framkvæmda fellt úr gildi,“ segir Sólveig Gísladóttir hjá Vegagerðinni. Var deilt um ákvörðun bæjar- stjórnar Kópavogsbæjar að veita framkvæmdaleyfi fyrir breikkun Suðurlandsvegar frá Fossvöllum að Lögbergsbrekku. Waldorfskólinn í Lækjarbotnum kærði. Skólinn hefði ekki trú á áformum um nýjan veg að skól- anum. Vegagerðin sagði að komið hefði fram að hugað yrði að betri vegtengingum að honum. Kópa- vogsbær sagði að fyrir lægi umsókn um leyfi fyrir veginum. Úrskurðarnefndin segir að máls- meðferð bæjarins hafi vikið frá mikilvægum skilyrðum laganna. Framkvæmdir hófust í desember 2021 „Framkvæmdir stoppuðu í nær sex vikur í vetur vegna veðurs en voru nú að hefjast aftur af fullum krafti þegar framkvæmdaleyfið var afturkallað,“ segir Sólveig. „Nú er Kópavogsbær með málið til skoðunar um hvernig bregðast megi við til að ráða bót á þeim ágöllum sem nefndin telur að hafi verið við veitingu leyfisins.“ ■ Nánar á frettabladid.is Breikkun Suðurlandsvegar í uppnámi eftir sigur Waldorfskólans í kærumáli COVID-19 Þrátt fyrir að Covid-19 smitum í samfélaginu fari ört fækk- andi berast í hverri viku ein til tvær beiðnir um innlögn í endurhæfingu vegna sjúkdómsins á Reykjalund. „Það er algengt að fólk sé lengi að jafna sig eftir veirusýkingar en þarna eru einkenni sem eru lang- vinnari og fjölbreyttari en vana- lega,“ segir Stefán Yngvason, fram- kvæmdastjóri lækninga. Stefán segir þau sem upplifa lang- vinn einkenni Covid einnig þjást af mikilli andlegri og líkamlegri þreytu. „Orkan bara dugir ekki í vinnudaginn,“ segir Stefán. SJÁ SÍÐU 4. Enn beiðnir um endurhæfingu eftir Covid

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.