Fréttablaðið - 12.04.2022, Page 2
Davíð braut ísinn fyrir
aðra sem gátu þá fetað
í hans fótspor og náð
árangri.
Ragnar Hjartarson, listrænn
stjórnandi
Guðrúnu fylgt til hinstu hvílu
Útför Guðrúnar Helgadóttur, rithöfundar og alþingismanns, fór fram í Dómkirkjunni í gær. Guðrún var einn dáðasti barnabókahöfundur landsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
birnadrofn@frettabladid.is
COVID-19 Tvær konur á áttræðisaldri
með Covid-19 létust á Landspítala
um liðna helgi. Í gærmorgun voru 22
sjúklingar inniliggjandi með Covid
á spítalanum, þar af voru 18 með
virkt smit. Enginn lá með Covid á
gjörgæsludeild Landspítala í gær-
morgun.
Frá því að sú bylgja sem nú stend-
ur yfir hófst þann 30. júní í fyrra
höfðu í gær 1.003 einstaklingar lagst
inn á Landspítala með Covid-19. Þar
af höfðu 83 lagst inn á gjörgæslu og
og 45 þurft á öndunarvél að halda.
32 einstaklingar með Covid hafa
látist hér á landi í þessari bylgju. n
Tvær konur létust
á Landspítalanum
um helgina
22 lágu á spítala með Covid.
birnadrofn@frettabladid.is
SAMFÉLAG Yfir þrjátíu prósent for-
eldra hér á landi sækjast eftir því
að fara með börn sín í ungbarna-
sund, samkvæmt upplýsingum frá
Snorra Magnússyni, sundkennara
og þroskaþjálfa. Hann segir að alltaf
hafi verið tveggja, þriggja mánaða
biðlisti en undanfarin tvö ár hafi
hann lengst í fjóra til fimm mánuði.
„Í upphafi Covid þegar allar sund-
laugar voru lokaðar lengdist biðlist-
inn og ég þurfti að taka börnin inn
þegar þau voru eldri en vanalega,
yngstu börnin fjögurra til fimm
mánaða í stað þriggja mánaða en
þetta er allt að komast í rétt horf
aftur,“ segir Snorri.
Hann segir foreldra meðvitaða
um að bið sé eftir þjónustunni, þau
skrái jafnvel ófædd börn á biðlista.
„Það er fyrst hringt og reynt að koma
börnum á biðlista eftir leikskóla-
plássi og svo er hringt í mig,“ segir
Snorri.
„En ég viðurkenni það alveg að
ég næ ekki að sinna öllum sem
óska eftir því. Ég tek þau elst átta,
níu mánaða þannig að ef fólk er að
hringja með fimm mánaða gömul
börn þá get ég ekkert sinnt því, því
miður.“ n
Mjög mikil aðsókn í ungbarnasund
Snorri Magnússon ásamt ungum
nemanda sínum í ungbarnasundi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HELLY HANSEN
Switchback Low
Kr. 23.990.-
ASOLO Falcon
Kr. 29.990.-
Vinir
fá sérkjör
Skráning á icewear.is
SÓLA zip-o göngubuxur
Kr. 17.990.-
HVÍTANES Merínó hálsklútur
Kr. 4.990.-
HVÍTANES merino buxur
Kr. 11.990.-
SANDEY Flíshanskar
Kr. 2.990.-
SKÓDAGAR
ASOLO Space GV
Kr. 22.990.-
KJÖLUR Létt flíspeysa
Kr. 9.990.-
HARALDUR
Coolmax göngusokkar
Kr. 1.490.-
SALEWA Alpenrose 2 MID
Kr. 30.990.-
SALEWA MS Dropline GTX
Kr. 25.990.-
HELLY HANSEN
Capilano
Kr. 12.990.- 25%
afsláttur af gönguskóm
Davíð Scheving Thorsteins-
son, frumkvöðull og iðju-
höldur, er látinn, 92 ára að
aldri. Samferðamenn minn-
ast Davíðs með hlýhug. Útför
hans verður gerð frá Dóm-
kirkjunni þann 25. apríl.
bth@frettabladid.is
FÓLK Hinn litríki frumkvöðull og
iðjuhöldur Davíð Scheving Thor-
steinsson er látinn, 92 ára að aldri.
Samferðamenn minnast nú Davíðs
sem lést á Landspítalanum síðast-
liðinn föstudag.
Margir fara fögrum orðum um
Davíð og framlag hans til samfélags-
legra umbóta. Ragnar Hjartarson,
listrænn stjórnandi sem starfar hjá
Georg Jensen í Kaupmannahöfn, var
aðeins 19 ára þegar Davíð réð hann
til starfa sem sendil en skömmu
síðar tók Ragnar við umsjón inn-
kaupadeildarinnar. Ragnar segir að
þetta hafi verið lýsandi fyrir Davíð.
„Mér finnst merkilegast þegar
ég minnist Davíðs hvað hann bar
mikið traust til fólks,“ segir Ragnar.
Meðal fjölmargra viðfangsefna
Davíðs á löngu lífshlaupi má nefna
að hann var framkvæmdastjóri hjá
fyrirtækjunum Smjörlíki og Sól
frá 1964 til 1995. Davíð var í stjórn
Félags íslenskra iðnrekenda frá 1968
til 1982, þar af formaður frá 1974.
Hann fékk fálkaorðuna árið 1982.
Davíð var að sögn Ragnars fyrst
og fremst frumkvöðull. Alltaf að
finna upp nýja hluti. „Hann var líka
mjög skemmtilegur, maður leit allt-
af upp til hans. Og Davíð vildi alltaf
vera að finna eitthvað upp, hann
vildi alls ekki gera hlutina eins og
aðrir höfðu gert þá.“
Sem dæmi um persónuleika
Davíðs segir Ragnar þá sögu að
einu sinni keypti Davíð ávaxtasafa
og komst að því að maðurinn sem
seldi honum var að snuða hann.
Hann brást við með því að ná nýjum
samningum um rétt verð. Ekki lét
hann þar við sitja heldur sendi svo
póst til annarra kaupenda, þar sem
hann sagði þeim að þeir væru að
greiða of hátt verð fyrir vöruna.
Frægðarsól Davíðs Scheving
Thorsteinssonar reis kannsk i
einna hæst á árinu 1980 þegar hann
lét reyna á þær reglur að almennir
borgarar mættu ekki f lytja með
sér bjór inn í landið er þeir komu
úr ferðalögum erlendis. Tiltækið
komst í fréttir og varð efniviður í
umræðu sem leiddi til aukins frjáls-
ræðis í þessum efnum og sölu bjórs
á Íslandi.
Annað sem einkenndi Davíð að
sögn Ragnars var trú hans á Íslandi,
trú á íslensku hráefni og íslenskum
auðlindum. „Af hverju erum við að
flytja inn vatn?“
Ragnar segir að þegar frum-
kvöðlar séu annar vegar þurfi að
taka áhættu. Ekki hafi allt gengið
upp hjá Davíð, en það sé líka óhjá-
kvæmilegt þegar um ræðir djörfung
og þor, að feta ókunna stigu.
„Davíð braut ísinn fyrir aðra sem
gátu þá fetað í hans fótspor og náð
árangri,“ segir Ragnar.
Þá nefnir Ragnar að Davíð hafi
ekki haft f leiri starfsmenn í vinnu
en þurfti. Framlags hafi verið krafist
en andinn verið svo góður að fyrr-
verandi starfsmenn hafi lengi verið
í sambandi.
Eftirlifandi eiginkona Davíðs er
Stefanía Svala Borg. Með henni átti
Davíð þrjú börn og einnig þrjú börn
með fyrri eiginkonu sinni.
Útför Davíðs Scheving verður
gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 25. apríl. n
Brautryðjandinn sem vildi
síður feta í fótspor annarra
Davíð Scheving Thorsteinsson í húsakynnum Sólar hf. í Einholti er byggingin
var rifin árið 2007. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
2 Fréttir 12. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ