Fréttablaðið - 12.04.2022, Blaðsíða 6
Ég tel eðlilegt að geyma
allar frekari hugmynd-
ir um sölu á hlutum í
Íslandsbanka.
Katrín
Jakobsdóttir,
forsætisráð-
herra
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG Blóðbankinn hefur sent
ákall til þeirra sem geta gefið blóð
um að bóka tíma. Í tilkynningu frá
bankanum kemur fram að í þessari
viku og næstu séu fáir dagar til heil-
blóðssöfnunar. Því biðlar Blóðbank-
inn til allra þeirra blóðgjafa sem eru
frískir um að koma og gefa blóð.
Blóðbankinn þarf nauðsynlega
að viðhalda góðri lagerstöðu til að
geta mætt þörfum þeirra sem þurfa
á blóðgjöf að halda. Hver blóðgjafi
getur bjargað lífi allt að þriggja ein-
staklinga, segir í tilkynningunni. ■
Blóðbankinn að
verða gjaldþrota
Blóð er af skornum skammti þessa
dagana og þarf því að bregðast við.
FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
kristinnhaukur@frettabladid.is
HÚSNÆÐISMÁL Húsnæðisverð hefur
hækkað mest á Íslandi af öllu ESB-
og EFTA-svæðinu frá árinu 2010, alls
um 160 prósent. Eina landið sem
kemst nálægt Íslandi er Eistland,
með rúmlega 150 prósenta hækkun.
Þetta kemur fram hjá Eurostat, töl-
fræðistofnun Evrópusambandsins.
Leiguverð hefur ekki fylgt þessari
hækkun en á sama tímabili hefur
það hækkað um 70 prósent, innan
við helming af hækkun húsnæðis-
verðs. Þetta er sama þróun og ann-
ars staðar í álfunni, meðalhækkun-
in er rúmlega 40 prósent en hækkun
leiguverðs er tæplega 20 prósent.
Aðeins í örfáum löndum hefur
leiguverð hækkað umfram hús-
næðisverð, þar á meðal í Finnlandi
og Írlandi. Í þremur löndum hefur
orðið verðhjöðnun á þessu tólf ára
tímabili, á Kýpur, Ítalíu og Grikk-
landi, og verðið hefur nánast staðið
í stað á Spáni. ■
Húsnæði hækkað
mest á Íslandi
eitök
velun
Gleðil e
ga
p
ka
Páskarnir byrja
í Fjarðarkaupum
kristinnhaukur@frettabladid.is
SAMGÖNGUR Starfshópur innviða-
ráðuneytisins um smáfarartæki,
eins og rafhlaupahjól, leggur til að
refsivert verði að keyra þau undir
áhrifum áfengis og að lágmarks-
aldur til að keyra þau verði 13 ár.
Þá leggur hópurinn til að hjálm-
skylda verði sett við 16 ára aldur og
að kennslu um smáfarartæki verði
bætt við umferðarfræðslu í grunn-
og framhaldsskólum.
Slysum þar sem raf hlaupahjól
koma við sögu hefur fjölgað og
banaslys hefur orðið. Í skýrslu-
drögum starfshópsins kemur fram
að flest slysin verði seint um kvöld
á föstudögum og laugardögum.
Ölvun sé áberandi í hópi slasaðra og
viðhorf ungs fólks til ölvunarakst-
urs á raf hlaupahjóli veki athygli.
Samkvæmt rannsókn Samgöngu-
stofu frá 2021 höfðu flestir á aldrin-
um 18 til 24 ára notað rafhlaupahjól
á síðustu 6 mánuðum og 40 prósent
þeirra undir áhrifum áfengis.
Auk ungs fólks er einnig töluvert
um slys á börnum, allt niður í 8 ára
gömlum, samkvæmt skýrslunni, þar
sem vísað er í rannsókn Bráðamót-
töku Landspítalans. Ung börn noti
gjarnan rafhlaupahjól sem ætluð
eru 14 ára eða eldri samkvæmt leið-
beiningum framleiðenda.
Þriðja áskorunin eru breytt hjól
en auðvelt hefur reynst að breyta
hraðastillingum þannig að raf-
hlaupahjól geta farið á allt að 70
kílómetra hraða á klukkustund. En
það er þrefaldur hraði sem þeim er
ætlaður. Ein af tillögum starfshóps-
ins er að setja bann við breytingum
á hámarkshraða smáfarartækja.
Hámarkshraði verði 25 kílómetrar
á klukkustund og hámarksafl 1.000
vött. Aflmeiri hjól verði bönnuð í
umferðinni. ■
Banni notkun rafhlaupahjóla undir áhrifum
Hert verður mjög á reglum um raf-
hlaupahjól miðað við tillögurnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Frambjóðandi Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík segir
Lilju Alfreðsdóttur í hættu á
að einangrast eftir gagnrýni
hennar á sölu hlutabréfa úr
Íslandsbanka. Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra segir
engar athugasemdir frá Lilju
fyrir söluna hafa verið færðar
til bókar.
bth@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Lilja Alfreðsdóttir,
ráðherra og varaformaður Fram-
sóknarflokksins, gæti lent í vanda
síðar þegar hún leitar stuðnings
innan ríkisstjórnarinnar. Þetta segir
Friðjón Friðjónsson, framkvæmda-
stjóri KOM ráðgjafar og borgarfull-
trúaefni Sjálfstæðismanna.
Friðjón ræddi stöðu ríkisstjórn-
arinnar og fjármálaráðherra vegna
útboðs Íslandsbanka á Fréttavakt-
inni á Hringbraut í gær ásamt Þor-
björgu Sigríði Gunnlaugsdóttur,
þingkonu Viðreisnar. Þorbjörg sagði
að nú hlyti að hrikta í stoðum ríkis-
stjórnarinnar vegna ágallanna sem
komu upp við framkvæmd útboðs-
ins og viðbragða Lilju.
Lilja sagði í Morgunblaðinu að
fjármálaráðherra Bjarni Benedikts-
son bæri ábyrgð á hnökrunum en
ekki Bankasýslan. Sjálf segist hún
hafa varað við málum fyrir útboðið.
Ekki kæmi til greina að selja hluta-
bréf ríkisins í Landsbankanum.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra segir í svari við fyrirspurn
Fréttablaðsins að engin mótmæli
úr hópi ráðherra hafi verið færð til
bókar fyrir útboðið en margir ráð-
herrar lýst skoðunum.
„Mín afstaða hefur verið sú að
ferlið yrði eins gagnsætt og skýrt
og kostur væri, upplýsingagjöf væri
góð og jafnframt lagði ég áherslu á
að þingið fengi nægilegan tíma til
að skoða málið enda taldi ég að það
þyrfti tíma til að kynna sér þessa
aðferð. Enn fremur – að lokinni sölu
– lagði ég mikla áherslu á birtingu
lista kaupenda sem fjármálaráð-
herra birti um leið og hann barst
ráðuneytinu,“ segir Katrín.
Katrín kveðst segist eindregið
styðja að málið verði skoðað ofan
í kjölinn og að úttekt Ríkisendur-
skoðunar sé eðlilegt skref. „Þá má
bæta við að aldrei hefur staðið til
að selja Landsbankann og það hefur
legið fyrir frá því að ríkisstjórnin
var mynduð í fyrra sinn. Ég tel eðli-
legt að geyma allar frekari hug-
myndir um sölu á hlutum í Íslands-
banka,“ segir forsætisráðherra.
„Staða Lilju er áhugaverð,“ segir
Friðjón. „Þegar Lilja þarf á einhverju
að halda í framtíðinni frá félögum
sínum í ríkisstjórn ef svo ber undir
er ekkert víst að hún eigi mikið
inni, hvorki hjá Bjarna, Katrínu né
Sigurði Inga,“ bætir hann við.
Friðjón kallar framgöngu Lilju
„mjög óvanalegt sólóútspil“. Tím-
inn muni leiða í ljós hvort hún ein-
angrist. „Ég man ekki eftir svona
í nýliðinni tíð,“ segir hann. Fleiri
Sjálfstæðismenn ræddu á samfélags-
miðlum í gær með gagnrýnum hætti
um framgöngu Lilju. ■
Hægt er að horfa á
Fréttavaktina á frettabladid.is.
Sjálfstæðismenn ósáttir við gagnrýni
Lilju og telja hana geta einangrast
Lilja Alfreðs-
dóttir, við-
skipta- og
menningar-
málaráðherra
gerði alvarlegar
athugasemdir
við úboðið í
Íslandsbanka.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
6 Fréttir 12. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ