Fréttablaðið - 12.04.2022, Síða 10

Fréttablaðið - 12.04.2022, Síða 10
Herskipið USS Arling- ton leggst að bryggju í lok vikunnar þegar æfingunni lýkur. Varnaræfingin Norður-Vík- ingur 2022 stendur nú sem hæst og í gær fór fram æfing í landgöngu í Hvalfirði. lovisa@frettabladid.is Landgönguliðar sjöttu herdeildar bandaríska sjóhersins tóku þátt í æfingunni af skipinu USS Arling- ton. Af skipinu komu bæði þyrlur með hermenn innanborðs og svif- nökkvar með hermenn og ýmsan búnað eins og skriðdreka. Aðmírállinn Eugene Black segir í samtali við Fréttablaðið að æfingin hafi verið ómetanleg og að þeim hafi tekist að vinna vel saman, hernum og Landhelgisgæslunni. „Aðstoð þeirra kom okkur í gegnum kuldann og þeir aðstoðuðu okkur við að skilja hættuna sem fylgir því að vera á sjó og hvað þurfi að gera til að vega og meta áhættuna sem þarf að taka. Það er eitt af því sem stuðlaði að því hversu vel þessi æfing gekk,“ segir Black. Marvin Ingólfsson hjá Landhelgis- gæslunni tekur í sama streng og segir æfinguna hafa verið lærdómsríka og í raun ómetanlegt fyrir starf Land- helgisgæslunnar að fá að skipuleggja og taka þátt í svo stórri æfingu. „Það var mjög lærdómsríkt og það er það sem við einblínum á í þessari æfingu. Þetta er svo stórt og ef það gerist eitthvað á Íslandi, einhverjar stórar náttúruhamfarir eða slíkt, þá þurfum við á öllum að halda,“ segir Marvin. Æfingunni lýkur síðar í vikunni og að henni lokinni mun herskipið USS Arlington leggjast að bryggju í Reykjavíkurhöfn í nokkra daga. n Hermenn gengu á land í Hvalfirði Foringjar Banda- ríkjahers og Landhelgisgæsl- unnar íslensku voru ánægðir með samstarfið á Norður-Víkingi 2022. Áhorf- endur fylgdust spenntir með æfingunni enda sjónarspil sem sjaldnast er hægt að verða vitni að. Skyttur banda- ríska sjóhersins munduðu hólka sína við Hval- fjarðarveginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK NORÐUR-VÍKINGUR 2022 FRÉTTABLAÐIÐ 12. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.