Fréttablaðið - 12.04.2022, Blaðsíða 17
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
ÞRIÐJUDAGUR 12. apríl 2022
Rita Jenrette Boncompagni Ludovisi
fyrir framan villuna nafntoguðu 7.
apríl síðastliðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
jme@frettabladid.is
Hvers virði er villa í Róm með vegg-
mynd eftir einn frægasta listmálara
allra tíma? Þessari spurningu er
enn ósvarað eftir að prinsessan Rita
Boncompagni Ludovisi, eigandi
téðrar villu, mistókst í annað sinn
að selja villuna Ludovisi Casino
sem hún erfði eftir Nicolo Ludovisi
prins. Í villunni er að finna vegg-
mynd eftir ítalska listmálarann
Caravaggio sem hafði gríðarleg
áhrif á barokklist 17. aldar.
Enn óseld
Í janúar síðastliðnum var reynt að
selja villuna á uppboði þar sem
lægsta boð var 471 milljón evra,
tæplega 66 milljarðar íslenskra
króna. Fyrr í mánuðinum var
verðið lækkað niður í 377 milljónir
evra eða um 53 milljarða íslenskra
króna.
Kannski allt sé þá þrennt er?
Villan fer aftur á uppboð í júní á
sérstöku tilboðsverði: eingöngu 301
milljón evra eða um 42 milljarða
íslenskra króna. Samkvæmt The
Guardian er fyrirséð að nýr eigandi
þurfi að verja töluverðum fjármun-
um í endurbætur á byggingunni.
Þó eru allar líkur á því að næsti
eigandi villunnar verði alls ekki
einstaklingur. Undirskriftalisti er á
netinu þar sem 40.000 manns hafa
nú skrifað undir í von um að ítalska
ríkið kaupi villuna og breyti henni
í safn. ■
Veggmynd eftir
Caravaggio og
villa til sölu
Alda Björk Larsen, markaðsstjóri yfir framleiðsluvörum Nóa Síríus, segir að páskaeggin frá Nóa séu fyrir löngu orðin nauðsynlegur hluti af páskahátíðinni á
Íslandi, en framleiðsla þeirra hófst um miðjan fjórða áratug síðustu aldar. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Nóa páskaegg eru stór hluti af hefðinni
Páskaeggin frá Nóa Síríus eru stór hluti af páskahefð Íslendinga, sem halda fast í hefðirnar.
Boðið er upp á fjölbreytt úrval af öllum stærðum og gerðum, ný og eldri séregg með vin-
sælasta namminu og glaðninga í eggjum sem seld eru í samstarfi við Tulipop og Storytel. 2
ALOE VERA
MELTING & BÓLGUR
85%VIRKTCURCUMIN
www.celsus.is