Fréttablaðið - 12.04.2022, Qupperneq 32
Kústar á þvotta-
plönum bensín-
stöðva eru yfirleitt
baneitraðir fyrir lakkið.
Saltið fer ekki vel
með bíllakkið sem
ryðgar hraðar hér á landi
en víðast hvar annars
staðar.
Dekkjaþjónusta Vöku býður
upp á faglega þjónustu þegar
leitað er að sumardekkjum.
Hægt er að fá ný eða notuð
gæðadekk á mjög góðu
verði. Dekkjaþjónustan er á
Héðinsgötu 2.
Halldór Örn Kristjánsson, verslun-
arstjóri hjá Vöku, segir að boðið sé
upp á mjög góð dekk frá Sailun en
það sé ekkert mál að panta aðrar
tegundir ef viðskiptavinurinn
óskar eftir því. „Við bjóðum upp á
gott úrval af bæði nýjum og not-
uðum dekkjum í ýmsum stærðum
og þjónustum jafnt smærri sem
stærri bíla,“ segir hann.
Best er að bóka tíma á heima-
síðu Vöku, vaka.is, sem er mjög
einfalt en reynt er að koma til
móts við þá sem koma á staðinn
án þess að eiga tíma. Halldór
bendir á að hægt sé að gera mjög
góð kaup í notuðum dekkjum.
„Dekkin eru yfirfarin svo hægt sé
að endurnýta þau en það er mjög
góður kostur þar sem þau eru
á frábæru verði. Við erum mjög
sanngjörn í verði og það á við um
bæði ný og notuð dekk,“ bætir
hann við. „Vaka endurnýtir öll
dekk sem standast gæðakröfur en
önnur fara í úrvinnslu,“ segir hann.
Hjá Vöku er mjög góð aðstaða
jafnt fyrir starfsmenn og við-
skiptavini og það tekur ekki
nema 15-30 mínútur að skipta
yfir í sumardekkin. Þar að auki er
Vaka með gott dekkjahótel á mjög
sanngjörnu verði fyrir þá sem
vilja geyma dekkin á milli árstíða.
„Vaka er gamalt og stöndugt
fyrirtæki á markaði sem er
síbreytilegur og hefur fylgt tækni-
þróun mjög vel,“ segir Halldór.
Vaka býður alhliða dekkjaþjón-
ustu og starfsmenn kanna bæði
felgur og jafnvægisstilla dekkin
sem er mikilvægur öryggisþáttur.
Vaka sinnir einnig smáviðgerðum
og smurþjónustu.
Hjá Vöku eru lyftur fyrir
fimm bíla og fyrirtækið býr yfir
fyrsta f lokks tækjum til að gera
umskiptin einföld og þægileg.
Vaka býður ekki eingöngu dekk
því einnig er fjölbreytt úrval af
felgum.
Vaka er rótgróið fyrirtæki
sem hefur starfað í meira en 70
ár. Fyrirtækið veitir fjölþætta
þjónusta varðandi bifreiðar,
til dæmis dráttarbílaþjónustu.
Dekkjaþjónustan er veigamikill
þáttur í starfseminni.
Hjá fyrirtækinu starfa um 30
starfsmenn. Opnunartímar hjá
Vöku eru frá 8-18 alla virka daga
og 10-14 á laugardögum. n
Nánar má skoða úrvalið á heima-
síðunni vaka.is eða renna við að
Héðinsgötu 2. Síminn hjá Vöku er
567 6700.
Frábært úrval af sumardekkjum hjá Vöku
Vaka er við Héðinsgötu 2. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Halldór, verslunarstjóri hjá Vöku,
segir mikið úrval af nýjum og not-
uðum sumardekkjum vera í boði.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Við bjóðum upp á
gott úrval af bæði
nýjum og notuðum
dekkjum í ýmsum
stærðum og þjónustum
jafnt smærri sem stærri
bíla.
Að ýmsu þarf að huga ef
lakk bifreiða á að endast vel.
Reglulegt bón skiptir miklu
máli og eins að forðast að
þvo bílinn á þvottaplani
bensínstöðva.
starri@frettabladid.is
Þótt meiri vakning sé meðal lands-
manna en áður um mikilvægi þess
að hugsa vel um lakk bifreiðarinn-
ar eru Íslendingar svolitlir trassar,
að mati Péturs Rúnars Sverrissonar
sem hefur rekið sprautuverkstæðið
Sprautun í um 20 ár. „Þótt ég hafi
alveg séð jákvæðar breytingar á
undanförnum árum finnst mér
allt of margir bíleigendur bóna bíla
sína seint og of sjaldan. Bón eru
auðvitað misgóð en meginreglan
ætti að vera sú að bóna bílinn á að
minnsta kosti 2-3 mánaða fresti.
Einnig er nauðsynlegt að skola af
bílnum reglulega, þótt það sé bara
með vatni og nota þá helst klút
sem dregur í sig vatn.“
Pétur segir marga bíleigendur
ceramic-húða bílana sína í dag,
þá sérstaklega nýja og dýrari bíla.
„Slík vörn er með fimm ára end-
ingu en hún endist ekki eins lengi
hér og annars staðar vegna þess
mikla salts sem borið er á göturnar
yfir veturinn. Ceramic-húðin er
þó mjög góð til að verja lakkið en
þá þarf að nota sérstaka sápu til að
viðhalda því.“
Snertilausar þvottastöðvar bestar
Verstu mistökin sem bíleigendur
gera þegar kemur að lakkinu, að
mati Péturs, er að þvo bílinn á
þvottaplani bensínstöðva. „Kústar
á þvottaplönum bensínstöðva eru
yfirleitt baneitraðir fyrir lakkið.
Þar getur leynst grjót og annað
drasl sem getur jafnvel stórskemmt
lakkið.
Snertilausar þvottastöðvar eru
í raun bestar eða þá að þvo bílinn
heima ef aðstæður leyfa með vatni
og hreinum svampi. En þá er líka
gott að hafa í huga að leyfa ekki
vatninu að þorna á bílnum. Sól og
vatnsperlur geta nefnilega brennt
sig ofan í lakkið.“
Saltið slæmt fyrir lakkið
Yfir vetrartímann er saltið á göt-
unum versti óvinur lakksins, að
sögn Péturs. „Við erum að tala um
ansi stóran hluta ársins ef veturinn
reynist snjóþungur og kaldur. Þá
er stöðugt verið að salta göturnar
og saltið fer ekki vel með bíllakkið
sem ryðgar hraðar hér á landi en
víðast hvar annars staðar. Þá þýðir
lítið annað en að setja ryðvörn
á bílinn á 4-5 ára fresti og bóna
reglulega.“
Kíkir á sparirúntinn
Sem fyrr segir hefur Pétur starfað í
bransanum í tuttugu ár og eru því
bílar stór hluti af lífi hans.
„Ég á nokkra gullmola sem þarf
meðal annars að bóna reglulega
en það er bara gaman. Meðal
þeirra eru tveir fornbílar sem ég
þarf svolítið að dekra og nostra
við. Svo kíkir maður í einn og einn
sparirúnt til að sýna sig aðeins,
það er jú tilgangurinn með þessu
öllu saman, að sýna sig aðeins á
fallegum sumardögum.“ n
Landsmenn að vakna til vitundar um endingu lakksins
Pétur Rúnar Sverrisson hefur rekið sprautuverkstæði í tuttugu ár og þekkir endingu bílalakks vel. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
8 kynningarblað 12. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGURSUMARDEKK