Fréttablaðið - 12.04.2022, Side 52
Gulur er einn af tískulitum
þessa misseris og ljóst að
margar af skærustu stjörnum
skemmtanabransans taka
þessari glaðlegu tísku fagn-
andi. Á meðan sumir kjósa
gula fylgihluti fara aðrir alla
leið og klæðast gulum heil-
kjólum.
ninarichter@frettabladid.is
Guli liturinn var einnig áberandi í
fyrra en þetta árið er hann tónaður
örlítið niður, eða notaður í bland við
hlýja gula tóna.
Mjúkur smjörgulur litur er síðan
einn af tískulitum Pantone fyrir
árið 2022.
Gulu áhrifanna gætir einnig í
pólitísku tískuvali en annar fánalita
Úkraínu er einmitt guli liturinn. n
Gult og glaðlegt vor
hjá stjörnunum
Herbert
Guðmundsson
tónlistarmaður
„Ég fæ mér
lambakjöt,
kaupi það
ókryddað og
ég krydda
það sjálfur,“
segir tónlistar-
maðurinn Herbert Guðmundsson
spurður um páskamatinn. „Ég sker
síðan kartöflur í skífur og hef þær
undir lærinu,“ segir hann. „Svo
er bara salat og sósa og malt og
appelsín.“
Einhverjum kann að þykja eftir-
rétturinn á borðinu hjá Herberti
óvenjulegur. „Það er ís úr ísbúð
Vesturbæjar. En það er gamli og nýi
ísinn blandaður saman. Þá hef ég
gamla á botninum og svo kemur
nýi ofan á, og svo blanda ég saman
þegar menn fá sér desertinn,“ segir
hann. Landsmenn hafa gjarnan
skipst í tvær fylkingar þegar kemur
að gamla rjómaísnum og nýja
mjólkurísnum sem er kaldari, en
Herbert leiðir þarna saman tvær
fylkingar á einum diski. „Síðan er
auðvitað þeyttur rjómi með. Oft
er ég með Síríus-súkkulaði sem ég
hita í potti, og geri sósuna sjálfur.
Og bláberin og jarðarberin mega
ekki gleymast,“ segir Herbert. n
Tónlistarkonan
H.E.R. stillti sér
upp á rauða
dreglinum á
Grammy-verð-
launahátíðinn-
þann 3. apríl
síðastliðinn.
Sólseturs-pall-
ettan fer henni
einstaklega
vel og lituð
gleraugu skapa
fallega heildar-
mynd.
MYNDIR/GETTY
Leikkonan Anya Taylor-Joy hefur
vakið mikla athygli undanfarið og
ber hér fagurgula tösku fyrir utan
Soho-hótelið í London á dögunum.
Leikkonurnar
Lily Collins og
Ashley Park
stilltu sér upp
fyrir utan
Dolby-leikhúsið
í Hollywood á
sunnudag. Það
má spyrja hvort
pólitísk afstaða
felist í lita-
valinu. Park er
glæsileg í gulum
netabol og pilsi
í stíl og Collins í
blárri dragt.
Michelle Zauner úr Japanese Break-
fast klæddist glaðlegum gulum kjól
á Grammy-hátíðinní í síðustu viku.
Hin ávallt glæsilega
Helen Mirren á for-
sýningu The Duke
í New York um
síðustu helgi.
Leikkonan Rosario Dawson klæddist
appelsínugulum og bleikum kjól á
bransaviðburði í Los Angeles nýlega.
Will &
Grace leik-
konan Debra
Messing á frum-
sýningu í New York
á sunnudag.
n Spurningin
Hvað er í páskamatinn?
Herbert gæðir sér á ís um páskana.
Ársfundur
Íslenska lífeyrissjóðsins
Allir sjóðfélagar og rétthafar eiga rétt til setu á
ársfundinum.
Dagskrá fundarins er samkvæmt samþykktum
sjóðsins:
1. Skýrsla stjórnar
2. Kynning á ársreikningi
3. Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu sjóðsins
4. Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri athugun
5. Kosning í stjórn
6. Kosning endurskoðanda
7. Tillögur um breytingar á samþykktum
8. Laun stjórnarmanna
9. Önnur mál
Tillögur um breytingar á samþykktum þurfa að berast
stjórn með skriflegum hætti tveimur vikum fyrir
ársfund. Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á
ársfundi þurfa að berast stjórn með skriflegum hætti
viku fyrir ársfund. Framboðum aðalmanna til stjórnar
skal skila inn til stjórnar viku fyrir ársfund. Að þessu
sinni verða kosnir tveir aðalmenn til þriggja ára.
Tillögur og framboð skulu berast til stjórnar Íslenska
lífeyrissjóðsins, Austurstræti 11, 101 Reykjavík.
Tillögur að breytingum á samþykktum og framboð til
stjórnar verða birt á vefsvæði sjóðsins, islenskilif.is.
Allar nánari upplýsingar má nálgast á vef sjóðsins
islenskilif.is eða hjá verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf
Landsbankans í síma 410 4040.
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður
haldinn miðvikudaginn 4. maí 2022 kl. 17:00
í Landsbankanum við Austurstræti 11.
28 Lífið 12. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 12. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGUR