Fréttablaðið - 03.05.2022, Side 6

Fréttablaðið - 03.05.2022, Side 6
Það er kominn blökku- maur, faraómaur, eldmaur, svo eigum við náttúrlega maur hérna sem heitir húsamaur, öðru nafni klóakmaur. Guðmundur Óli Scheving, mein- dýraeyðir bth@frettabladid.is STJÓRNMÁL  „Ég held það sé augljóst að átökin í Úkraínu hafi styrkt ESB. Sérstaklega er áberandi að innan ESB hefur skapast meiri eining en áður,“ segir Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði. Baldur Þórhallsson, stjórnmála- fræðingur og sérfræðingur í ESB- málum Íslendinga, sagði í Fréttablað- inu í liðinni viku að umræðuhefð hérlendis væri til vansa og kæmi niður á ígrundaðri skoðun á kostum og göllum ESB-aðildar. Áhugi á aðild hefur aukist hér á landi samkvæmt Gallup-könnun. Það er í takt við að víða í nágranna- löndum Íslands hefur borið á jákvæðara viðhorfi gagnvart ESB í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. „Ég myndi ekki nota orðið þögg- un um Evrópuumræðuna hér á landi en ég get verið sammála Baldri um að umræðan hefur löngum verið of lítil á Íslandi og líka mjög áberandi eins og oft er í umræðu um fleiri mál í íslenska kerfinu að umræðan hefur ekki verið mjög málefnaleg,“ segir Ólafur. Að hans sögn vilja sumir tengja saman varnarhagsmuni og efna- hagsmuni þegar skoðun fer fram á kostum og göllum ESB-aðildar. „Sérstaklega nú þegar skoðana- kannanir benda til að stuðningur við aðild að ESB fari vaxandi, þá hvessir það þá sem vilja aðild,“ segir Ólafur. Hitt sé verra að mati Ólafs að f lokkarnir hafi tilhneigingu til að leggjast í skotgrafir þar sem enda- lausar klisjur ráði ferðinni fremur en að uppbyggileg umræða fari fram um kosti og galla aðildar án upphrópana. ■ Átökin í Úkraínu hafi styrkt ESB Ólafur Þ. Harðarson FUNDARBOÐ AÐALFUNDAR LANDSSAMBANDS VEIÐIFÉLAGA 2022 Aðalfundur Landssambands veiðifélaga verður haldinn 3. og 4. júní 2022 að Sel Hóteli Mývatni, og hefst dagskrá kl. 11:30 þann 3. júní. Þátttaka á aðalfundi Óskað er eftir því að aðildarfélög sendi framkvæmdastjóra Landssam- bandsins tilkynningu um þátttöku á aðalfundinum eigi síðar en 15. maí nk. Vinsamlegast sendið tilkynninguna á netfangið gunnar@angling.is. Nánari upplýsingar um dagskrá og þátttöku á fundinum er að finna á vef Landssambandsins á www.angling.is. Dagskrá Föstudagur 3. júní kl. 11:30-16:45 1. Hádegisverður. 2. Setning fundar um kl. 12:30. 3. Kjör fundarstjóra og fundarritara. 4. Kosning kjörbréfanefndar. 5. Ávörp gesta. 6. Ávarp formanns og skýrsla stjórnar LV. 7. Ársreikningur 2021 lagður fram til staðfestingar. 8. Álit kjörbréfanefndar. 9. Umræður um skýrslu formanns og afgreiðsla reikninga. 10. Erindi gestafyrirlesara. 11. Skipan starfsnefnda aðalfundar. 12. Drög að ályktunum fundarins kynnt og þeim vísað til nefnda. 13. Tillögur aðildarfélaga, sbr. 2. mgr. 4. gr. samþykktar LV. 14. Fundi frestað, nefndarstörf. Laugardagur 4. júní kl. 10:00-12:00 15. Nefndir skila áliti. Umræður. 16. Ályktanir afgreiddar. 17. Stjórnarkjör. Kjör stjórnarmanna frá Norður- og Suðurlandi. 18. Kjör skoðunarmanna reikninga. - Aðalmaður og varamaður til tveggja ára. 19. Önnur mál. 20. Fundi slitið. FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut Maurum er að fjölga hér á landi samkvæmt meindýra- eyði. Þeir berast hingað með ferðamönnum og geta komið sér upp búum inn á heimil- um fólks. tsh@frettabladid.is MEINDÝRAVARNIR Guðmundur Óli Scheving meindýraeyðir sem rekur fyrirtækið Ráðtak, meindýr og varnir, segist hafa orðið var við aukningu á maurum hér á landi undanfarin ár. Guðmundur kveðst fá um tvö til þrjú símtöl á mánuði þar sem óskað er eftir aðstoð við að losna við maura úr vistarverum. „Undanfarin fimm, sex ár hefur maurategundum verið að fjölga hjá okkur. Það er kominn blökkumaur, faraómaur, eldmaur, svo eigum við náttúrlega maur hérna sem heitir húsamaur, öðru nafni klóakmaur,“ segir Guðmundur. Að hans sögn má einna helst rekja þessa fjölgun til erlendra og inn- lendra ferðamanna sem bera maur- ana með sér hingað til lands. Áður- nefndir maurar hafast aðallega við innandyra og sem dæmi þá finnst faraómaur (latneskt heiti: Mono- morium pharaonis), einna helst í myrkum holrýmum og í kringum hitalagnir. Blökkumaurinn (lat- neskt heiti: Lasius niger), finnst hins vegar bæði í manngerðu umhverfi sem og í villtri náttúru. Að sögn Guðmundar er ekki hægt að eitra fyrir maurum með hefð- bundnum hætti eins og gert er fyrir silfurskottur og aðra óværu. „Því það er sérstakt eitur fyrir hverja tegund. Við erum með litlar beitustöðvar sem við setjum efnið í. Maurarnir taka efnið og fara með inn í búið og drepa drottninguna þaðan. Þeir drepa sig innan frá,“ segir hann. Þess vegna þurfa húsráðendur sem verða varir við maura á heimili sínu að byrja á því að fanga nokkur sýni af maurum  og senda þau til Náttúrufræðistofnunar til grein- ingar en tugir undirtegunda finn- ast hér á landi. Eftir það er hægt að hafa samband við meindýraeyði og fá viðeigandi þjónustu. „Um leið og maður setur mat eða æti sem er sérstakt fyrir hverja tegund þá fara þeir með eitrið inn í búið og þá endar það með því að eftir 2-3 vikur hverfur allt. Því um leið og drottningin drepst þá hættir hún að framleiða,“ segir Guðmund- ur. Aðspurður hvort maurarnir geti valdið skaða segir hann að svo sé ekki. „Nei, þetta er bara hvimleitt. Hugsaðu þér að vera inni á hótelher- bergi. Ef þú liggur og ert að slaka á og lítur upp í loftið og sérð allt í einu mauraþyrpingu fara yfir loftið. Þetta er mjög hvimleitt en er ekki að gera neitt.“ Guðmundur  segir það þó ekki vera mikið inngrip á heimili fólks að losna við maurana. „Það eru bara settar upp gildrur með ætinu einhvers staðar þar sem traffíkin á þeim er. Við þurfum ekk- ert að gera meira en að tékka hvort það þurfi ekki að setja annan dropa eða meira æti og svo bara hverfur þetta.“ ■ Maurum fjölgar á Íslandi Minnst fimm maurategundir hafa fundist á Íslandi en tugir undirtegunda. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI olafur@frettabladid.is NEYTENDUR Verð á matarkörfu fjög- urra manna fjölskyldu hækkar um 3,1 prósent á milli mánaða. Hækkun körfunnar frá því október 2021 er 8,6 prósent sem er meira en 2,6 pró- sentum meira en breyting á vísitölu neysluverðs á sama tímabili. Óvissa við mælinguna er 1,5 prósent. Þessi hálfsárshækkun körfunnar upp á 8,6 prósent jafngildir árs- hækkun upp á um 18 prósent. Veritabus kannaði verð vörukörfu sem samanstóð af 35 vöruliðum úr öllum vöruflokkum. Verð körfunnar var á bilinu 22-27 þúsund krónur. Karfan hafði hækkað milli mánaða um 3,5 prósent í Krónunni og 3,2 prósent í Hagkaupum. Í Heimkaup- um nam hækkunin 2,5 prósentum og 2,0 prósentum í Nettó. Vegin meðalhækkun vörukörf- unnar er 3,1 prósent og óvissa er 1,5 prósent. Slík hækkun milli mánaða mælir verðbólguhraða upp á 44,2 prósent á heilu ári. Varhugavert er þó að draga slíkar ályktanir, þar sem hluti hækkunarinnar getur stafað af því að tilboð hafi verið í gangi á ýmsum vörum fyrir páska í mælingu ASÍ í lok mars. Athygli vekur að mjólkurvörur hækka tvöfalt meira en aðrar vörur í körfunni. Virðist það tengjast verð- listahækkunum frá Mjólkursam- sölunni. Hér til hliðar eru dæmi um hækkanir á verðlista Mjólkursam- sölunnar sem birtist á vef hennar. Hagstofan mældi verðhækkun matvara einungis 1,5 prósent í apríl. Mælingar hennar er notaðar til að reikna vísitölu neysluverðs. ■ Risastökk matarverðs milli mánaða D-vítamínbætt mjólk hækkaði um tæp tíu prósent. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Verð Verð 1.12.21 4.4.22 Breyting Smjörvi, 400 g 545 572 5,00% Nýmjólk (D), 1 l 173 190 9,80% Hleðsla, 250 ml 250 263 5,20% Skólaostur, 460 g 711 747 5,10% Ísey, 300 ml 196 206 5,10% Kókómjólk, 250 ml 133 140 5,30% ABT mjólk, 162 g 169 179 5,90% Verðhækkanir vinsælla mjólkurvara í verðlista MS 6 Fréttir 3. maí 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.