Fréttablaðið - 03.05.2022, Page 7
Samkaup er
menntafyrirtæki
ársins 2022.
Menntadagur atvinnulífsins 2022
Samkaup reka yfir 60 verslanir um allt land
og hjá fyrirtækinu starfa rúmlega 1400 manns.
Samkaup hafa lagt mikinn metnað í að vera
eftirsóknarverður vinnustaður með markvissri
uppbyggingu starfsfólks með áherslu á tækifæri
til að eflast og þroskast, persónulega sem og
í starfi.
Með því að styrkja einstaklinga til starfsþróunar
er lagður grunnur að framtíðarleiðtogum innan
fyrirtækisins. Menntunarstig hækkar, sem skilar
sér í eftirsóknarverðum vinnu stað, starfsánægju
og jákvæðu viðhorfi starfsfólks.
Frá því Samkaup hlutu menntasprota atvinnu
lífsins árið 2020 hefur kröftug uppbygging
haldið áfram innan fyrirtækisins og markvissar
mælingar á árangri í þjálfun og þróun starfs
manna staðfesta jákvæða og sterka stöðu í
fræðslu og þjálfunar málum innan fyrirtækisins.
TIL HAMINGJU, SAMK AUP!
Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, Gunnar Egill
Sigurðsson, forstjóri Samkaupa, Gunnur Líf Gunnarsdóttir,
mannauðsstjóri Samkaupa og Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Menntaverðlaun atvinnulífsins voru veitt mánudaginn 25. apríl sl.
á Menntadegi atvinnulífsins. Verðlaunin eru veitt í tveimur flokkum,
menntafyrirtæki ársins og menntasproti ársins og eru veitt árlega
á menntadegi atvinnulífsins sem nú var haldinn í níunda sinn.