Fréttablaðið - 22.06.2022, Blaðsíða 6
Á stærri stöðum eins
og Selfossi, Akureyri og
Egilsstöðum er mjög
þungt hljóð í fólki.
Steinunn Þórðar-
dóttir, formaður
Læknafélags
Íslands.
TENERIFE
FJÖLSKYLDAN SAMAN Í SÓL
INNIFALIÐ Í VERÐI, FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR. BÓKAÐU ÞITT SÆTI Á UU.IS
VINSÆ
LT
27. JÚNÍ - 05. JÚLÍ
HG TENERIFE SUR 3*
ÍBÚÐ MEÐ 1 SVEFNHERBERGI
VERÐ FRÁ 79.900 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
VERÐ FRÁ 103.500 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
ALLT AÐ
40.000 KR.
AFSLÁTTUR10.000 KR. AFSLÁTTUR Á FARÞEGA MEÐ KÓÐANUM
SUMARSOLGILDIR ÚT 27. JÚNÍ Á FERÐIR TIL TENERIFE 27. JÚNÍ - 05. JÚL. & FERÐIR TIL ALMERÍA 27. JÚN. -07. JÚL.
Það stefnir hratt í að ákveðin
byggðarlög verði læknislaus
innan fárra ára ef ekkert
verður að gert, segir formaður
Læknafélags Íslands. Heil-
brigðisþjónustan hangi víða
á bláþræði sökum manneklu
og fjöldi lækna sé að komast á
aldur, án þess að útséð sé með
eftirmenn þeirra.
erlamaria@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL „Það sem mér
fannst verst var að sjá að við erum
ekki vel sett neins staðar þegar
kemur að mönnun,“ segir Steinunn
Þórðardóttir, formaður Læknafélags
Íslands, um heilbrigðisþjónustu á
landsbyggðinni.
„Ég er sjálf læknir á Landspítalanum
og hef unnið þar alla mína starfs-
ævi á Íslandi. Maður heldur alltaf
að við séum á botninum varðandi
mönnun og starfsumhverfi, en svo
kemur í ljós að við erum öll á sama
báti. Og það virðist vera sem enginn
sé að koma til að bjarga okkur,“ segir
Steinunn en hún er nýlega komin úr
hringferð um landið þar sem hún
heimsótti heilbrigðisstofnanir og
ræddi við lækna.
„Á stærri stöðum eins og Selfossi,
Akureyri og Egilsstöðum er mjög
þungt hljóð í fólki, veruleg mann-
ekla og vaxandi álag. Það er skortur
og þá sérstaklega í heilsugæslunni.
Til dæmis á Selfossi. Þetta er svæði
þar sem íbúum hefur fjölgað gríðar-
lega, þar er risastór sumarhúsabyggð
og mikill ferðamannafjöldi fer þarna
í gegn daglega. En á sama tíma hefur
heilsugæslulæknum ekki fjölgað og
þá erum við að tala um mörg ár aftur
í tímann,“ segir Steinunn. Auk þess sé
aðstaðan ekki til fyrirmyndar.
„Bráðamóttakan þar er gjörsam-
lega sprungin og í algjörlega óviðun-
andi húsnæði sem er í raun engan
veginn í stakk búið til að taka við
öllu þessu álagi.“
Að sögn Steinunnar er það aðstað-
an sem og manneklan sem læknar á
landsbyggðinni kvarta helst sáran
yfir. Vaktabyrðin sé mikil á hverjum
og einum, sem leiði af sér að menn
séu bundnir sólarhringunum saman.
„Þetta er ótrúlega mikill fjöldi
vakta á mánuði hjá hverjum og
einum, og þetta er fólk sem þarf líka
að sinna dagvinnu. Það er ótrúlega
krefjandi að vera í fullu starfi með
svona þunga vaktabyrði ofan á. Og
þetta er farið að vega mjög þungt,
sérstaklega hjá yngri læknum. Fólk
vill geta sameinað fjölskyldulíf og
starf, en þarna er það mjög erfitt,“
segir Steinunn.
Steinunn segir það skjóta skökku
við að ekki sé uppi einhvers konar
áætlun varðandi mönnun þegar
kemur að minni byggðarlögum,
sérstaklega þar sem læknar þar séu
margir hverjir að komast á eftir-
launaaldur.
„Við hittum til dæmis lækna á
Vík í Mýrdal og Vopnafirði sem eru
nánast alltaf einir á vakt og hafa
verið það árum og jafnvel áratug-
um saman, og þeir eru báðir mjög
nálægt sjötugu,“ segir Steinunn, og
bætir við að hún hafi ekki upplifað
að einhver hugsun væri þar varðandi
framtíðina.
„Og þá velti ég fyrir mér, er eitt-
hvert plan í gangi? Hvað á að gera
þegar þessir menn fara á eftirlaun?“
n
Heilbrigðisþjónusta hangi á bláþræði
í byggðarlögum víða á landsbyggðinni
ragnarjon@frettabladid.is
FRAKKLAND Sögulegt tap þing-
flokks Emmanuels Macron Frakk-
landsforseta í frönsku þingkosning-
unum hefur myndað mikla óvissu
í frönskum stjórnmálum. Eftir að
ljóst er að hreinn meirihluti Mac-
rons er fallinn mun hann þurfa að
treysta á bandalag við aðra f lokka
svo unnt sé að mynda meirihluta.
„Kostirnir eru ekki augljósir og
staðan er mjög þröng,“ segir Eiríkur
Bergmann stjórnmálafræðingur.
„Þetta er sögulegt afhroð sitjandi
forseta í þingkosningum í Frakk-
landi.“
Aðspurður um hver næstu skref
Macrons gætu verið segir Eiríkur
að Macron muni líklega reyna að
höfða til Repúblikana sem hlutu
4,8 prósent atkvæða. „Það nægir
honum, en þeir gætu reynst tregir í
taumi, að minnsta kosti í formlegri
samsteypustjórn.“
Þingf lokkur Macrons er enn
stærsti f lokkur franska þingsins en
þau 234 þingsæti sem f lokkurinn
hlaut eru þó langt frá hreinum
meirihluta, en til þess að mynda
meirihluta þarf minnst 289 sæti.
Niðu r stöðu m kosninga nna
hefur verið lýst sem persónulegum
ósigri Macrons sem komi til með að
minnka áhrif forsetans og mögu-
lega setja svartan blett á arf leifð
hans.
Á sama tíma og Macron missti
fjöldamörg sæti, bætti öfgahægri
f lokkur Marine Le Pen við sig og
vann kosningasigur sem skilaði 23,2
prósentum atkvæða, eða 90 sætum.
Langt umfram allar kosninga-
spár. Öfgavinstri f lokkur Jean-Luc
Mélenchon tók þá 22% atkvæða,
sem bendir til að miðjustefna Mac-
rons í Frakklandi sé fallin.
Kosningaþátttaka í landinu var
dræm en 46,23 prósent kjósenda
skiluðu inn atkvæðum. n
Sögulegt afhroð Frakklandsforseta
Þingflokkur Emmanuel Macron
Frakklandsforseta beið afhroð í
nýafstöðnum þingkosningum.
MYND/EPA
benediktboas@frettabladid.is
SKÓLAMÁL . „Við erum að lenda í
þeim vanda hér að þegar fólk sækir
um vinnu hjá okkur þá er ekkert
íbúðarhúsnæði. Það er ekkert laust
á Laugarvatni og ekki í nágrenninu,“
segir Elfa Birkisdóttir, skólastjóri
Bláskógaskóla, sem hefur sent erindi
til sveitarstjórnar Bláskógabyggðar.
Hún segir lóðir lausar til úthlut-
unar sem taki langan tíma að klára.
Of langan, að mati skólastjórans.
„Ég sendi þetta erindi inn til að ýta
aðeins við sveitarstjórninni. Fólk
vill koma og vinna hér en það verð-
ur þá að keyra í og frá vinnu og það
er ekki í boði að fá aksturspeninga
þannig það hættir við,“ segir Elfa. n
Húsnæðisskortur
skapar vandamál
á Laugarvatni
ragnarjon@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Guðrún Aspelund
tekur við embætti sóttvarnalæknis
1. september. „Mér finnst ég vera
að taka við góðu búi en ég mun
ganga til verka á minn eigin hátt.
Ég hef öðlast góða sýn á starf sótt-
varnalæknis undanfarin ár og sé í
starfinu tækifæri til að láta gott af
mér leiða,“ segir Guðrún. Starf sótt-
varnalæknis var auglýst 13. maí
síðastliðinn en Þórólfur Guðnason
lætur af störfum í byrjun september
2022. Ekki bárust fleiri umsóknir en
frá Guðrúnu. Frekari umfjöllun á vef
Fréttablaðsins. n
Guðrún verður
sóttvarnalæknir
Guðrún
Aspe lund,
verðandi sótt-
varnalæknir.
Steinunn nefnir Selfoss meðal staða þar sem hljóðið er þungt í heilbrigðisstarfsfólki vegna manneklu og vaxandi álags.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
6 Fréttir 22. júní 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ