Fréttablaðið - 22.06.2022, Side 11
Árshækkun íbúða-
verðs er nú orðin meiri
en árið 2017 og hefur
ekki mælst meiri frá
árinu 2006.
Bosch-dagar
Þýsk gæða-heimilistæki frá Bosch nú
á frábæru tilboðsverði.
20% afsláttur af öllum Bosch-tækjum,
stórum sem smáum.
Opið virka daga frá kl. 9 til 18.
Lokað á laugardögum í júní, júlí og ágúst.
Vefverslun opin allan sólarhringinn.
Umboðsmenn um land allt.
Gildir til og með 27. júní eða á meðan birgðir endast. Gildir ekki af öðrum tilboðum.
Á S T Ó R U M H E I M I L I S TÆ K J U M
20%
afsláttur
ggunnars@frettabladid.is
Eftir strangt undirbúningsferli og
fjögurra ára þróunarvinnu mun
indó sparisjóður hefja innreið sína
á íslenskan bankamarkað með
haustinu.
Tryggvi Björn Davíðsson og
Haukur Skúlason, stofnendur spari-
sjóðsins, segja indó í anda nýbanka,
sem hafa sprottið upp erlendis und-
anfarin ár. „Í raun hefur ekki verið
stofnaður nýr banki á Íslandi síðast-
liðin fimmtíu ár þannig að nýbanki
er bara mjög lýsandi fyrir okkur,
segir Tryggvi.
Fyrst um sinn mun indó (skrifað
með lágstaf) eingöngu bjóða upp á
debetkortareikninga, millifærslur og
greiðslur, en með tímanum er hug-
myndin að bæta við vöruframboðið.
Nú þegar eru fjögur þúsund við-
skiptavinir á biðlista hjá indó. Þótt
undirbúningurinn hafi tekið lengri
Stofnendur indó sparisjóðs segjast þora að vera öðruvísi
tíma en Tryggvi og Haukur gerðu ráð
fyrir segja þeir það allt þess virði nú
þegar fyrirtækið er komið á koppinn.
„Við trúum því einlæglega að
aukin samkeppni á þessum markaði
geti bætt bankakjör á Íslandi umtals-
vert. Indó mun veita alla þá banka-
þjónustu sem fólk býst við en við
erum líka banki sem þorir að vera
pínulítið öðruvísi. Miðað við við-
brögð þá virðist full þörf á því,“ segir
Haukur. ■Stofnendur indó sjá sparisjóðinn fyrir sér í anda erlendra nýbanka.
magdalena@frettabladid.is
Masterclass Startup SuperNova
fer fram 23.-25. júní í Grósku og er
opinn öllum sprotafyrirtækjum.
Markmið masterclassans er að
undirbúa sprotafyrirtæki til að
gera 18 mánaða aðgerðaplan sem
þau geta svo skilað inn og munu tíu
bestu sprotafyrirtækin halda áfram
í 5 vikna hraðal sem hefst eftir versl-
unarmannahelgi.
Hægt er að skrá sig til miðnættis
í dag, 22. júní. Masterclassinn fer
fram í hátíðasal Grósku og er dag-
skráin pökkuð af reynslumiklum
frumkvöðlum, stjórnendum og sér-
fræðingum úr viðskiptalífinu sem
allir gefa sína vinnu til að stuðla
að aukinni grósku í íslensku frum-
kvöðlastarfi.
Þar má nefna Magnús Scheving
frumkvöðul, Helgu Árnadóttur
frá Tulipop, Magnús Árnason hjá
Nova, Kristján Schram hjá Íslensku
auglýsingastofunni, Mariam Lape-
rashvili, markaðsstjóra Stöðvar 2 og
Vodafone, Siggu Heimis hjá Tækni-
þróunarsjóði Rannís og Margréti
Ormslev hjá Brunni Ventures. ■
Undirbúa
sprotafyrirtæki
magdalena@frettabladid.is
Síðastliðna tólf mánuði hækkaði
vísitala íbúðaverðs á höfuðborgar-
svæðinu um 24 prósent. Þetta
kemur fram á vef Þjóðskrár. Árs-
hækkun íbúðaverðs er nú orðin
meiri en árið 2017 og hefur ekki
mælst meiri frá árinu 2006.
Vísitalan hækkaði um 3 prósent
milli mánaða, síðastliðna 3 mánuði
hækkaði hún um 9,1 prósent og síð-
astliðna 6 mánuði hækkaði hún um
15,7 prósent.
Í greiningu Íslandsbanka kemur
fram að forsendur séu fyrir því að
íbúðaverð haldi áfram að hækka
á allra næstu mánuðum. „Vonandi
verður framboð nýrra íbúða auk
dvínandi eftirspurnar þó nóg til
að hægja á verðhækkunum síðar á
þessu ári. Í þjóðhagsspá okkar frá
því í maí spáðum við því að íbúða-
verð hækki um ríflega 22 prósent í
ár en hægjast muni talsvert á hækk-
unartaktinum þegar líða tekur á
þetta ár og um mitt ár verði komin
ró á markaðinn,“ segir í greining-
unni. ■
Árshækkun
fasteignaverðs
24 prósent
MIÐVIKUDAGUR 22. júní 2022 Fréttir 11FRÉTTABLAÐIÐ MARKAÐURINNFRÉTTABLAÐIÐMIÐVIKUDAGUR 22. júní 2022