Fréttablaðið - 22.06.2022, Side 12

Fréttablaðið - 22.06.2022, Side 12
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@ frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Rúsínan í pylsuend- anum er að eignir úti á landi, sem áður voru óseljan- legar og verðlausar, öðlast nýtt virði. Fá félög hafa þannig svarað kalli breyttra tíma betur en ÍR- ingar sem halda nú úti öflugu starfi. Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur @frettabladid.is Það er ekki lítið sem ÍR hefur lagt til samfélagsins á sinni 115 ára sögu! Á frjálsíþróttasviðinu voru ÍR-ingar í fararbroddi á síðustu öld allt frá upphafi, báðir verðlaunahafar Íslands á Ólympíuleikum ÍR- ingar. Fjöldi annarra Ólympíufara, landsliðsmanna og leiðtoga hefur stolt borið ÍR-merkið í barmi. Samfélagið hefur breyst mikið á þessum 115 árum. Árið 1907 bjuggu rúmlega 10 þúsund íbúar í Reykja- vík, en nú búa í Breiðholtinu einu meira en tvöfalt f leiri, eða um 22 þúsund manns. Íþróttirnar hafa líka breyst. Starfið í íþrótta- félögunum í dag er ekki aðeins fyrir Ólympíufara og annað harðkjarna keppnisfólk. Nú er íþróttastarfið ómetanlegt í uppeldi barna og ungmenna en ekki síður svar fjöldans við hreyfingarleysi við dagleg störf, ólíkt því sem var. Fá félög hafa þannig svarað kalli breyttra tíma betur en ÍR-ingar sem halda nú úti öflugu starfi sem hæfir öllum aldri í alls tíu deildum! Nú hefur Reykjavíkurborg sýnt í verki stuðning sinn við þetta stórveldi í frjálsíþróttum og reist í samstarfi við ÍR nýjan glæsilegan fagurbláan og hvítan opinn frjálsíþróttavöll í Mjódd, í ÍR-litunum. Mikilsverð uppbygging fyrir frjálsíþróttastarf í land- inu en ekki síður fyrir nágrannana í Breiðholtinu, ÍR-inga á öllum aldri sem nú eru boðnir velkomnir á bláu brautina og mjúku skokkbrautina umhverfis völlinn. Um leið er þetta mikilsverð viðurkenning borgar- innar á breyttu samfélagi sem kallar nú eftir opinni og aðgengilegri íþróttaaðstöðu í sínu nærumhverfi. Til hamingju, Reykjavík, með glæsilegan nýjan frjálsíþróttavöll, fyrsta hverfisvöllinn, fyrirmynd fyrir önnur hverfi! Til hamingju, Breiðhyltingar, með ykkar nýju mannvirki sem nú bíða ykkar í Mjóddinni! Mann- virki sem eiga eftir að verða ykkur, sem munuð grípa gæsina og reima á ykkur skóna, uppspretta gleði, hreysti og hamingju! Síðast en ekki síst, til hamingju, ÍR, með 115 ára afmælið! Ykkar er ekki aðeins sagan, heldur einnig framtíðin! ■ Bæting í Breiðholti Freyr Ólafsson formaður Frjáls- íþróttasambands Íslands kristinnhaukur@frettabladid.is benediktboas@frettabladid.is Sú eina Guðrún Aspelund hefur verið ráðin sóttvarnalæknir og tekur við af Þórólfi Guðnasyni 1. sept- ember næstkomandi. Hún var sú eina sem sótti um að taka við embættinu. Sú eina sem vildi taka við stöðu sem ætti að þykja eftirsóknarverð. Þægileg og vel borguð innivinna hjá ríkinu. Hvers vegna sóttu ekki f leiri um? Ætli það álag og orrahríð sem Þórólfur gekk í gegnum í faraldrinum hafi ekki sitt að segja um það? Sjálfsagt hefur enginn ein- staklingur verið meira í fréttum en Þórólfur á ekki lengri tíma en faraldurinn geisaði. Þá var hópur fólks sem taldi sig vita betur, hæddist að honum, sakaði um landráð og þaðan af verra. Þetta fólk er enn að hrína í afkimum internetsins og á ákveðinni útvarpsstöð. Hlustum á tuðið Trúlega verður það stórkostleg lesning þegar sagnfræðingar fara að skoða öll ráð þeirra sem fannst ástæða til að draga orð og ráð Þórólfs í efa. Það voru ekkert eðlilega margir sem gerðu sig að fíf lum dag eftir dag á samfélagsmiðlum. Það kom nefnilega í ljós að á Íslandi voru hartnær 20 þúsund sóttvarna- læknar en aðeins einn sótti um starfið þegar eftir því var leitað.  ■ Sjálfvirkur opnunarbúnaður og snertilausir rofar frá Þýsk gæðavara. Snertilausir rofar Skútuvogi 1h - Sími 585 8900 www.jarngler.is Það eru góðar fréttir að hótelin í landinu hafi rétt úr kútnum eftir Covid. Í venjulegu ári anna hót- elin hins vegar engan veginn þeim straumi ferðamanna sem heimsækja okkur á sumrin og margir reiða sig á íbúða- og herbergjaleigu í gegnum Airbnb. Í því felast frábær tækifæri fyrir Íslendinga sem vilja njóta sumarfrísins annars staðar en á Íslandi og sýna börnunum sínum heiminn. Ferðamannastraumurinn til Íslands hefur ekki aðeins tryggt okkur fjölbreyttara atvinnu- líf og auknar gjaldeyristekjur, heldur hefur ferðafrelsi okkar sjálfra stóraukist því fleiri flugfélög fljúga til og frá landinu á mun betri kjörum. Við það bætist að þau sem það vilja geta tileinkað sér hinn sanna og upprunalega tilgang Airbnb og boðið heimili sín erlendum ferðamönnum í því skyni að komast sjálf í sumarfrí til áfangastaða sem þau hefðu annars ekki efni á að heimsækja. Hótelkeðjurnar og stjórnvöld hafa horn í síðu Airbnb og sambærilegra fyrirtækja. Hótelin hafa áhyggjur af samkeppninni og breyttum þörfum ferðalanga því vanir ferðamenn hafa uppgötvað hvað það er frábært að búa á raun- verulegu heimili. Stjórnvöld hafa áhyggjur af því að húsnæði sem ætti að tryggja íbúum landsins þak yfir höfuðið sé í of miklum mæli í skammtímaleigu til ferðamanna. Sett hefur verið upp strangt kerfi í kringum útleiguna og þeir sem brjóta reglurnar eiga yfir höfði sér þungar sektir. Sú leigustarfsemi sem er iðkuð gegnum Airbnb á Íslandi er í tveimur aðskildum heimum. Annar tilheyrir fyrirtækjum sem eiga fjölda íbúða, innréttuðum sérstaklega til skammtímaleigu, í eins konar hótellíki. Hinn heimurinn er íslensku fjölskyldurnar sem hafa uppgötvað hve eftirsótt gisting á venjulegum íslenskum heimilum er. Við sjáum þetta sjálf sem skipuleggjum frí út á land í sumar. Gistingin er fokdýr um allt land. Og rúsínan í pylsuendanum er að eignir úti á landi, sem áður voru óseljanlegar og verðlausar, öðlast nýtt virði. Andlausar fjöldaframleiddar íbúðir gróðafyr- irtækja, gera hvorki mikið fyrir ímynd Íslands sem áfangastaðar né fyrir íbúa landsins sem eru í húsnæðishrakningum. En sjálfsbjargar- viðleitni Íslendinga sem vilja leigja heimili sín út, hvort heldur er til að komast sjálfir í draumafríið eða til að létta erfiðar afborganir, er góð viðbót við íslenska ferðaþjónustu. Hún hækkar þjónustustig okkar sem ferðamanna- lands, stækkar sjóndeildarhring þeirra sem vilja fara þessa leið og bætir lífsgæði þeirra. ■ Bjóðum heim SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 22. júní 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.