Fréttablaðið - 22.06.2022, Síða 15
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
Sumarhátíð Samtakanna ’78
fer fram á morgun við hús-
næði Samtakanna með alls
kyns skemmtun. Hátíðin er
mikilvægur vettvangur fyrir
hinsegin menningu og sam-
stöðu hinsegin fólks, sem
stöðugt er reynt að brjóta
niður. Samtökin hafa náð
miklum árangri, en baráttan
er alls ekki búin.
Á morgun, fimmtudaginn 23.
júní, halda Samtökin ’78 hinsegin
Sumarhátíð í samstarfi við Hin-
segin daga og Reykjavíkurborg.
Hátíðin verður milli 17 og 19 á opnu
útisvæði við húsnæði Samtakanna
við Suðurgötu 3. Þar verður hin-
segin menningu fagnað og hinn
eini sanni Páll Óskar stígur á svið.
„Hugmyndin að viðburðinum
kom út frá því að sjá auglýsingu frá
Miðborgarsjóði um að hægt væri að
sækja um styrk til að halda viðburði
á nýjum stöðum í miðborginni,“
segir Sigurgeir Ingi Þorkelsson,
kynningar- og viðburðastjóri Sam-
takanna ’78. „Það er stórt bílastæði
hér við hliðina á okkur á Suður-
götu og ég hef oft hugsað hvað það
væri gaman að halda eitthvað þar
á sumrin. Hér er bjart og fallegt og
það er ótrúlega fallegt tré hérna á
horninu, svo það er oft gaman að
vera hérna.“
Það sem
er ofarlega
á baugi er
til dæmis
þessi sókn
að trans
fólki, sem
er mikið
tengd
íþróttum.
MIÐVIKUDAGUR 22. júní 2022
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr
@frettabladid.is
Gott er að bera réttinn fram með
flatbrauði, söxuðu grænmeti og
jógúrtsósu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
jme@frettabladid.is
Kufta kjötspjót eru ljúffeng og ein-
föld að grilla.
Kufta kjötspjót
1 ristuð heilhveitibrauðsneið
½ rauðlaukur, saxaður
1 dl söxuð steinselja
4 hvítlauksgeirar
200 g nautahakk
100 g lambahakk
1 ¼ tsk. salt
½ tsk. nýmalaður svartur pipar
½ tsk. malað allrahanda/allspice
½ tsk. paprikuduft
¼ möluð kardimomma
1/8 tsk. malað múskat
¼ tsk. cayenne/chili pipar
2 msk. vatn
4 spjót
Fínsaxaðu brauð, lauk, hvítlauk og
steinselju. Settu í stóra skál með
hakki og kryddi. Blandaðu öllu
vel saman með um 2 msk. af vatni.
Plastaðu og láttu standa í ísskáp
a.m.k. 1 klst. eða yfir nótt.
Skiptu blöndunni í fernt, rúllaðu
upp í bolta og stingdu grillspjóti í
gegn. Lagaðu blönduna utan um
spjótið uns hún verður ílöng og
grillast jafnt alla leið.
Grillaðu á heitu grilli. Eldunar-
tími er um 12 mínútur. Vissast er
að stinga kjöthitamæli í þykkasta
hluta kufta-spjótanna. Hitastig
ætti að vera um 63 °C. ■
Kufta á grillið
Á morgun halda Samtökin ‘78 hinsegin Sumarhátíð við skrifstofu sína. Sigurgeir Ingi Þorkelsson, kynningar- og viðburðastjóri Samtakanna, segir að það sé
mikilvægur hluti af réttindabaráttunni að hinsegin samfélagið komi saman og geri skemmtilega hluti. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Sumarhátíð Samtakanna ’78
er hluti af réttindabaráttunni
Hátíðir ramma inn sumarið
„Þetta er skemmtilegur tími til að
halda viðburð, því þetta er bjart-
asti og einn fallegasti tími ársins og
fólk er akkúrat að detta í sumarfrí í
júlí. Svo strax í byrjun ágúst koma
hinsegin dagar,“ segir Sigurgeir.
„Það var strax efst á óskalistanum
að fá Pál Óskar til að koma fram.
Það er svo alltaf öðru hvoru hin-
segin fólk í hinum og þessum
listum eða rekstri sem hefur sam-
band við Samtökin og spyr hvort
við getum boðið því vettvang til
að koma sér á framfæri. Þetta fólk,
sem við höfum viljað aðstoða en
ekki haft vettvang til þess fyrr en
núna, mun koma fram þarna.