Fréttablaðið - 22.06.2022, Side 20
Póstverslun.is var stofnuð
árið 2019. Verslunin er
frumkvöðull í sölu á sér-
hönnuðum netum til varnar
lúsmýi sem herjar nú árlega
á Íslendinga, ásamt ýmsum
öðrum vörum til varnar
mýinu.
Lúsmýsnetin eru vönduð, létt og
einföld í uppsetningu. Hægt er
að fá netið í metratali, sem gerir
fólki kleift að sérsníða þannig að
það henti ýmsum gluggastærðum.
Netin eru send kaupanda samdæg-
urs. Á heimasíðu postverslun.is eru
leiðbeiningar og myndir sem sýna
uppsetningu, en einnig er hægt að
fá ýmsa aukahluti.
Heiðar Dagur, starfsmaður fyrir-
tækisins, segir að best sé að smíða
einfalda ramma úr trélistum og
strengja efnið á rammann eins og
sýnt er á heimasíðunni. „Ramm-
inn er látinn falla þétt í gluggann
og festur, til dæmis með litlum
nöglum. Þegar lúsmýið er farið er
hægt að setja rammann í geymslu
þar til mýið vaknar aftur að ári.
Mjög einfalt er að sauma eða líma
rennilás á netið til að hægt sé
að opna eða loka glugganum án
þess að ramminn sé fjarlægður,“
segir Heiðar Dagur. „Sumir festa
netið hins vegar á gluggann með
frönskum rennilás í stað þess að
hafa það á ramma,“ bætir hann við.
„Það er mikil ánægja hjá fólki að
geta loksins sofið með galopinn
glugga án þess að taka áhættuna á
því að vakna með mörg hundruð
lúsmýbit eins og margir hafa lent
í að undanförnu,“ segir Heiðar
Dagur og bætir við: „Öllu máli
skiptir hins vegar að netin sem
notuð eru séu alvöru lúsmýsnet
frá vönduðum framleiðanda.
Við heyrum alltof oft af fólki sem
setur upp venjuleg flugnanet sem
hægt er að kaupa ódýrt á ýmsum
stöðum og duga ágætlega gegn
húsflugum og hefðbundnum
mýflugum en gagnast engan
veginn við lúsmýi,“ upplýsir hann.
„Netin okkar eru með um 160
göt á hvern fersentímetra, sem
er margfalt þéttara en í hefð-
bundnum flugnanetum. Þau eru
einnig dökk á lit þannig að þau
verða næstum ósýnileg þegar þau
eru komin fyrir gluggana.“
Verslunin leggur metnað í að
koma vörum til póstsins á hverjum
degi þannig að biðtíminn er
skammur hjá kaupanda. ■
Nánar á postverslun.is
Sérhönnuð net gegn lúsmýi
Glugganetið er mikið þarfaþing þar
sem lúsmýið heldur sig. MYND/AÐSEND
Póstverslun.is hefur ýmsar lausnir á
boðstólum til að forðast lúsmýið.
Hér er barnið líka varið gegn bit-
varginum.
Þó að það sé ekki jafn heitt á
Íslandi og í hitabylgjunum í
Evrópu er ekkert minni þörf
á að nota sólarvörn hér, til að
verja húðina fyrir geislum
sólarinnar. En hvernig virkar
þessi blessaða sólarvörn
eiginlega?
oddurfreyr@frettabladid.is
Fyrir skömmu brást BBC við
nýlegri hitabylgju í Bretlandi með
því að birta fróðlega umfjöllun þar
sem þessari spurningu er svarað.
Svona virkar sólarvörnin
Það er gott að vita hvernig sólarvörn og tölurnar á umbúðum hennar virka.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Flest þekkjum við SPF-töl-
urnar sem eru á sólarvörn, en það
stendur fyrir Sun Protection Fac-
tor. Því hærri tala, því meiri vörn
gegn geisluninni.
Margar gerðir af sólarvörn eru
líka með ákveðið margar stjörnur
af fimm mögulegum og það getur
verið gott að skilja hvernig þær
virka.
SPF segir til um vörnina gegn
UVB geislun og stjörnurnar segja
til um hve mikil vörn fæst gegn
UVA geislun í hlutfalli við UVB-
vörnina.
Ólíkar gerðir geislunar
UVA og UVB eru ólíkar bylgju-
lengdir sólargeislunar sem koma
inn í andrúmsloftið. UVA er tengd
öldrun húðar, litarefni í húðinni
og húðkrabbameini, sérstak-
lega flöguþekjukrabbameini,
sem er næstalgengasta tegundin.
UVB veldur sólbruna og er tengt
ákveðnum tegundum af húð-
krabbameini; grunnfrumukrabba-
meini, sem er algengasta tegundin,
og illkynja sortuæxlum.
En sólarvörn kemur ekki algjör-
lega í veg fyrir skaða á húðinni
þannig að til að fá sem mesta vörn
er mælt með því að hylja húðina
og leita í skugga þegar sólin er
sterkust.
Hvernig virka tölurnar?
SPF talan segir til um hve mikil
UVB geislun kemst að húðinni,
ekki beint hve mikil geislun er
stöðvuð. Sólarvörn með SPF 15
hleypir einum fimmtánda af
geislum sólarinnar að húðinni,
eða um 7%. Hún síar því um 93% af
UVB geislun. SPF 30 síar hins vegar
um 97% prósent.
Það þýðir að ef við segjum að þú
gætir verið í sólinni í 10 mínútur
án sólarvarnar án þess að brenna
myndi SPF 15 gefa þér um það bil
15 sinnum meiri vörn, eða um tvo
og hálfan tíma í sólinni án þess að
brenna.
Fjöldi stjarnanna segir svo til
um prósentuna af UVA geislun
sem er hindruð sem hlutfall af því
hve mikil UVB geislun er hindruð.
Fimm stjörnur er hámarkið. Þann-
ig getur sólarvörn með lágt SPF
verið með mörgum stjörnum, því
hlutfallið af UVB vörninni er hátt,
ekki af því að vörnin er svo svaka
mikil. Þannig að það er best að
finna vörn með bæði hátt SPF og
margar stjörnur.
Mikilvægt að bera reglulega á sig
Vörnin sem tölurnar segja til um
gildir um kjöraðstæður, en flestir
bera sólarvörn ekki fullkomlega
á sig og hún getur nuddast af með
svita eða í vatni. Sérfræðingar telja
að flestir beri líka bara á sig um
helminginn af ráðlögðu magni.
Samtök breskra húðlækna segja
að sólarvörn með SPF 30, ásamt
verndandi klæðnaði og skugga,
veiti næga vörn en að það þurfi að
bera hana aftur á að minnsta kosti
á tveggja tíma fresti, sama hve
talan er há.
Samkvæmt Evrópureglum má í
mesta lagi markaðssetja sólarvörn
með SPF 50+, ekki með 80 eða 100,
eins og finnst í sumum löndum.
Það er talið misvísandi um vörnina
sem er veitt. SPF 50 veitir um 98%
vörn og 100 veitir minna en 100%
vörn, slíka vörn er ekki hægt að fá.
Engin sólarvörn virðist geta
virkað allan daginn
Sumar sólarvarnir eru markaðs-
settar á þeim forsendum að það
dugi að bera þær á einu sinni á dag
og þær virki í átta tíma ef þær eru
notaðar rétt. En sumir húðlæknar
mæla samt með því að slík vörn
sé notuð á tveggja tíma fresti, eins
og önnur sólarvörn, því það sé svo
mikil hætta á að húðin þekist ekki
alveg eða vörnin nuddist af.
Rannsókn frá 2016 komst líka
að þeirri niðurstöðu að eftir sex
til átta tíma væri vörnin af slíkri
sólarvörn búin að minnka um
74%. ■
Vörn sem virkar
Mygga er áhrifarík mýflugnafæla sem veitir
allt að 9 klukkustunda vörn gegn flugnabiti.
Fæst á völdum
sölustöðum um land allt.
mygga.is
9,5% DEET sprey
2 ára & eldri
20% DEET roll-on
12 ára & eldri
50% DEET sprey
18 ára & eldri
After bite
Vertu í fríi
frá mýi
4 kynningarblað 22. júní 2022 MIÐVIKUDAGURSUMARVARNIR