Fréttablaðið - 25.06.2022, Blaðsíða 68
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is,
TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
toti@frettabladid.is
„Veðrið er fréttir vikunnar. Það er
hásumar og lengsti sólardagurinn á
árinu var í vikunni og við sitjum hér
í miklum kulda með snjó í fjöllum.
Global warming hvað?“ segir og
spyr Vigdís Hauksdóttir sem nýtur
nú lífsins, frjáls undan skyldum
sínum sem borgarfulltrúi síðustu
fjögur ár.
„Og á sumrin hafa alltaf gengið
hitabylgjur yfir Evrópu í gegnum
tíðina, jafn langt aftur og ég man.
Ég var í París 1993 í 42 stiga hita og
er nýkomin heim úr 38 stiga hita á
Mallorca,“ segir Vigdís og skilur ekki
alveg við náttúruöflin, enda uggandi
yfir nýlegum skjálfta við Langjökul.
„Ég er áhyggjufull yfir hversu
jörð skelfur víða á landinu og spyr
mig hvar næsta eldgos muni spretta
upp.“
Vigdís fagnar hins vegar síðustu
hræringum í miðbænum.
„Það er loksins búið að opna
Lækjargötu almennilega og var
tími til kominn. Ég hef aldrei heyrt
um ódýrari leigu á heilli götu og fjöl-
mörgum bílastæðum í tæp fjögur
ár. 23.000 á ári! Það eitt og sér er
hneyksli. Svo er á sama tíma verið
að byggja fáránlegt timburverk á
bílastæðunum við Frakkastíginn til
að þrengja enn frekar að fjölskyldu-
bílnum.
Ég keyrði þarna í vikunni og efast
stórlega um að slökkvibílar komist
niður götuna ef kviknaði í þarna,
en það á reyndar við um miðbæinn
allan eftir þrengingarstefnu liðinna
ára. Bílahatrið gengur framar öryggi
íbúa og rekstraraðila,“ segir Vigdís,
greinilega enn á vaktinni. n
Bílastæðaskandall og snjór í fjöllum um hásumar
Vigdís Hauksdóttir, fyrrverandi
borgarfulltrúi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
n Frétt vikunnar
Vigdís Hauksdóttir
Í dag verða haldnar Sumar-
MatStöður, þar sem Vínstúk-
an, Sumac og Public house
halda veislu á langborði á
Laugavegi. Búist er við fjölda
fólks sem mun sitja þétt.
margret@frettabladid.is
SumarMatStöðu-verkefninu var
hrundið af stað fyrsta Covid-sum-
arið með styrk frá Sumarborginni,
sem hefur síðan þá haldið stuðningi
sínum áfram.
„Síðustu tvö ár var fullsetið allan
tímann, frá klukkan tvö til tíu, en
nú getum við setið enn þéttar,“ segir
Charlotta Rós, vínþjónn á Vínstúk-
unni. „Sumarborgin hvatti til sam-
starfsverkefna, svo við horfðum
í kringum okkur og ákváðum að
gera þessa veislu með Public House
og Sumac.“
Charlotta bendir á að viðburður
eins og þessi sé gott dæmi um þá
samstöðu og samkennd sem henni
finnst einkenna íslenskan veitinga-
geira. „Við erum öll í þessu saman.
Við erum dugleg að borða og drekka
hvert hjá öðru og samheldnin hefur
verið svona lengi. Þetta er mjög dýr-
mætt.“
Þétt setið með sól í hjarta
Charlotta segir fólk ekki þurfa að
hafa áhyggjur af veðrinu enda mætt
á svona viðburð með sól í hjarta.
„Spáin er líka góð. Við kunnum nú
að klæða okkur eftir veðri og getum
setið þétt. Svo er bara að borða og
hlæja sér til hita og endilega skilja
bílinn eftir heima.“
Á fyrri viðburðum hafa gestir
ítrekað spurt af hverju þetta sé ekki
haldið oftar. „Galdurinn er að hafa
þetta einu sinni hvert sumar,“ segir
Charlotta, „Ef þetta er oftar hugsum
við oft: Æ, ég mæti bara næst, og
svo missum við af öllum viðburð-
unum.“
Karnival-götubiti
Matsalan undanfarin ár bendir
til þess að um þúsund manns hafi
mætt í hvort skipti. „En við eigum
von á f leirum í ár og erum undir
það búin.“ Fjöldi fólks leggur leið
sína í miðbæinn sérstaklega til
að taka þátt í veislunni, en aðrir
detta inn óvænt. „Já, fólk ætlar að
skreppa í Brynju að kaupa skóf lu
og skrúfur en er svo allt í einu mætt
í heljarinnar veislu!“
Maturinn verður í anda þeirra
staða sem standa að viðburðinum.
„Þetta verður karnival-götubiti.
Allir sem hafa farið á þessa staði
vita að það fer ekkert út úr eldhús-
inu án þess að það sé geggjað,“ segir
Charlotta og sleikir út um áður en
hún heldur áfram: „Sumac verður
með miðausturlenska lamba- og
blómkálsvefju og Public House
Matarkarnival í miðbænum
„Þyrstur kemur,
þyrstur fær,“
segir Charlotta
Rós og er spennt
fyrir deginum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRyGGUR ARI
Fólk ætlar
að skreppa
í Brynju að
kaupa
skóflu og
skrúfur en
er svo allt í
einu mætt í
heljarinnar
veislu.
SumarMatStöður marka upphaf sumarviðburða í miðbænum. FRÉTTABLAÐIÐ/AÐSEND
verður með asíska grænmetissmá-
rétti. Við á Vínstúkunni munum
svo sjá um drykkina, og verður
slagorðið okkar í hávegum haft:
Þyrstur kemur, þyrstur fær.“
Nóg um að vera
Síðar í sumar mun Vínstúkan
svo standa fyrir uppsprettuvið-
burðum á fimmtudögum klukkan
hálf fimm í samstarfi við húðflúr-
stofuna Örlög sem er í sama húsi að
Laugavegi 27.
Á laugardaginn verður ýmislegt
í gangi í nágrenni langborðsins. Á
Hjartatorgi bjóða Sumarborgin og
Kramhúsið í krakka-breikdans-
tíma klukkan eitt og um kvöldið
er Ari Eldjárn með uppistand í
Tjarnarbíói. n
Fáðu fréttirnar fyrst um tilboð, afsláttarkóða
eða aðgang að útsölum á undan öðrum með
því að skrá þig á póstlista Dorma.
Nú 127.425 kr.
LICATA
3ja sæta sófi í dökkgráu áklæði.
199 x 94 x 82 cm. Fullt verð: 169.990 kr.
25%
AFSLÁTTUR
Nú 149.925 kr.
AVIGNON hægindastóll
með skammel
Opið á sunnudögum á Smáratorgi 13-17
Stillanlegur hægindastóll með
innbyggðum skemli. Brúnt, svart,
dökkgrátt og rautt PVC leður.
Verð 199.900 kr.
25%
AFSLÁTTUR
30%
AFSLÁTTUR
CANNES
hægindastóll
S.BEDDING
dúnsæng
Hægindastóll og
skammel. Saddle,
grátt, svart eða rautt
PVC áklæði.
Verð 199.990 kr.
CANNES
hægindastóll
Nú 139.993 kr.
Nú 7.450 kr.
Dúnsæng. 1300g 85%
smáfiður, 15% hreinn
andadúnn. 135 x 220 cm.
Verð 14.900 kr.
50%
AFSLÁTTUR
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
40 Lífið 25. júní 2022 LAUGARDAGURFréttaBlaðið