Fréttablaðið - 25.06.2022, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 25.06.2022, Blaðsíða 62
Arnar Már Ólafsson er einn reynslumesti og farsælasti golfþjálfari Íslands. Hann útskrifaðist úr sænska PGA golfkennaraskólanum árið 1991 og starfaði í átta ár sem afreksþjálfari hjá Golfklúbbn­ um Keili. Arnar starfaði í Þýskalandi í 20 ár og var meðal annars yfirþjálfari í 10 ár hjá Berlin Wannsee Golf Land­ cub, sem er einn elsti og merkasti golf klúbbur Þýskalands. Hann f lutti aftur heim til Íslands árið 2006 og starfaði sem unglinga­ landsliðsþjálfari hjá Golfsam­ bandinu, jafnframt því sem hann stofnaði og kenndi við Golf kenn­ araskóla PGA á Íslandi. Arnar hefur þjálfað afrek s­ kylfinga sem hafa leikið bæði á Áskorendamótaröð Evrópu og sjálfri Evrópumótaröðinni. Hann hefur þjálfað marga af okkar bestu kylf ingum og er í dag þjálfari Guðmundar Ágústs Kristjáns­ sonar, atvinnukylfings sem leikur á Áskorendamótaröðinni. Arnar Már settist niður með kylfingi.is og ræddi starf PGA golfkennarans og golfið á Íslandi. Hann segir nægan markað fyrir PGA golfkennara hér á landi. „Þeir sem eru að leita sér að kennurum, eins og golfklúbbar og þessir nýju staðir sem eru með golf­ hermaaðstöðu, eiga í erfiðleikum með að finna fagmenntaða golf­ kennara. Markaðurinn er alltaf að stækka og það er til marks um gæði PGA að fólk fer meira og meira til kennara og spurnin eftir kennslu hefur aukist umtalsvert. Við PGA golfkennarar höfum nóg að gera.“ Duglegri að sækja sér kennslu Arnar segir íslenska kylfinga ekki alltaf hafa verið duglega að sækja sér kennslu en það hafi breyst mikið. „Ég hef samanburðinn frá Þýskalandi þar sem fólk er almennt duglegt að sækja þjónustu PGA kennara. Ég held að hlutfallið sé að verða mjög svipað hér. Þróunin er svipuð hjá f lestum kylfingum. Fólk byrjar að fá ráð hjá vinum eða fjölskyldumeðlimum en svo þegar það verður betra þá duga þau ráð ekki og kylfingar leita til fagaðila. Flestir enda svo hjá PGA kennara. Þörfin til að læra er mikil hjá okkur kylfingum. Það eru mjög fáir sem byrja í golfi og gera allt upp á eigin spýtur alla sína lífstíð, menn fá ráð hér og þar en best er auðvitað að fara til PGA kennara og byrja á réttum enda í þessu.“ Aðspurður segir Arnar Már að hver sem er megi í raun selja golfkennslu en að PGA merkið sé svo sterkt í þessum heimi að þegar kylfingar hafa hitt PGA kennara í fyrsta sinn séu í raun ekki miklar líkur á að þeir leiti út fyrir PGA eftir það. Hann segir mis­ skilning að golfkennsla sé dýr. „Hún er á öllu verði og allir geta í raun fundið sér farveg við hæfi hjá golf­ kennurum. Það er hægt að finna ýmsar leiðir til að læra án þess að þurfa að borga mikið. Það er boðið upp á hóptíma víða til dæmis og ýmsar lausnir hvað það varðar. En svo eru auðvitað þeir sem vilja heldur kaupa einkatíma, sem eðli­ lega kosta aðeins meira.“ Þarf að bæta aðstöðuna Arnar, sem í dag er afreksþjálfari hjá GKG, segir alla aðstöðu til kennslu hafa stökkbreyst með til­ komu þeirra fullkomnu golfherma sem hafa sprottið upp víða. „Herm­ arnir breyttu öllu fyrir okkur. Hinn almenni kennari hér á landi er mikið í hermunum á veturna og fer svo til dæmis í golfferðirnar til Spánar eða Portúgal á vorin og er að kenna í golfskólum eða í farar­ stjórn. Svo kemur hann hingað heim og kennir í sínum klúbbi eða á heimavelli á sumrin. Það væri rök­ rétt framhald hjá hreyfingunni að bæta æfingaaðstöðuna. Meðlimir klúbbanna þurfa betri aðstöðu til að læra leikinn betur, því þeim mun betur sem kylfingar kunna leikinn hafa þeir meiri ánægju af honum. Svæðin sem eru fyrir hendi nú þegar eru frábær en þau bera bara ekki allan þennan fjölda kylfinga. Hér vantar golf holur, svo hug­ myndin um þjóðarleikvang í golfi er ekki svo galin.“ Gera sitt besta til að verða betri Hvað er það mikilvægasta sem kylfingar geta gert fyrir sitt golf? „Ég hvet kylfinga til að hætta aldr­ ei að læra og að treysta ferlinu. Ég hvet alla kylfinga til að vera for­ vitna um eigin takmörk og gera sitt besta til að verða betri. Það verða allir betri sem leggja sig fram um að læra og því betri sem kylfingar verða því meiri ánægju hafa þeir af sportinu.“ n Hinn almenni kennari hér á landi er mikið í hermunum á veturna og fer svo t.d. í golf- ferðirnar til Spánar eða Portúgal á vorin. Ólafur Pálsson olafur@vf.is - Páll Ketilsson pket@vf.is Golffréttir og umfjöllun alla daga Starfandi PGA golfkennari í þrjátíu ár Saga Traustadóttir úr GKG og Sigurð­ ur Bjarki Blumenstein úr GR, sigruðu á Íslandsmótinu í holukeppni sem fram fór á Hlíðavelli í Mosfellsbæ dagana 17.­19. júní. Mótið er hluti af GSÍ mótaröðinni. Saga varð með sigrinum Íslands­ meistari í holukeppni í annað sinn en hún vann einnig árið 2019. Saga vann Pamelu Ósk Hjaltadóttur úr GM í úrslitaleik en Pamela er mikið efni, aðeins á fjórtánda aldursári. Sig­ urður Bjarki vann sinn fyrsta Íslands­ meistaratitil í holukeppni og með því sinn fyrsta sigur frá upphafi á móta­ röðinni. Hann sigraði Kristófer Orra Þórðarson úr GKG í úrslitaleik. Hafdís Alda Jóhannsdóttir úr GK sigraði Árnýju Eik Dagsdóttur úr GR í leik um þriðja sætið í kvennaflokki og Kristján Þór Einarsson úr GM varð þriðji í karlaflokki eftir sigur á Aroni Emil Gunnarssyni í leik um brons­ verðlaunin. Saga sagði í samtali við kylfing.is að það hefði verið aðeins öðruvísi að vinna þennan titil í annað sinn. Hún sagðist vera reynslumeiri nú en fyrir þremur árum þegar henni fannst hún hafa sigrað heiminn. „Það er samt alltaf jafn gaman að vinna og það var líka mjög skemmtilegt að fá að spila á móti öllum þessum ungu snill­ ingum. Ég fékk að spila við nærri allt stúlknalandsliðið á mótinu og þær eiga svo sannarlega framtíðina fyrir sér. Ég verð að minnast sérstaklega á Pamelu Ósk en hún er þvílíkt efni og bar sig ótrúlega vel. Það er margt mjög gott í hennar leik en hún slær ótrúlega langt og er greinilega með mikið keppnisskap.“ Aðspurð sagð­ ist Saga svolítið setja markmiðin mót fyrir mót en hún byrjaði að æfa aftur í desember eftir að hafa lagt kylf­ urnar á hilluna eftir háskólagolfið. Hún segist stefna á að vera með á Íslandsmótinu í Eyjum í ágúst og ef það gengur eftir ætli hún sér auðvitað að reyna að vinna það. Sigurður Bjarki sagði að fyrir­ komulag holukeppninnar henti sér vel því hann geti leyft sér að reyna að sækja fleiri fugla. Þá líkar honum að spila maður á mann sem dregur fram keppnisskapið í honum og hann gerir allt til að vinna andstæðing­ inn. „Leikskipulagið gekk upp og ég náði að aðlaga golfið mitt aðstæðum hverju sinni. Ég er mjög ánægður með að hafa loksins unnið minn fyrsta sigur á mótaröðinni og ég ætla mér stóra hluti í sumar.“ Hin unga Pamela Ósk sagðist, í samtali við kylfing.is, vera mjög ánægð með árangur sinn á mótinu enda hafi markmiðið verið að kom­ ast upp úr riðlakeppninni. Hún gerði gott betur en það og komst alla leið í sjálfan úrslitaleikinn. Pamela hefur verið í golfi síðan hún man eftir sér og stefnir á háskólagolfið í Bandaríkj­ unum, eins og svo margir íslenskir kylfingar, þegar þar að kemur. Fleiri golffréttir á kylfingur.is n Saga og Sigurður Bjarki Íslandsmeistarar í holukeppni Saga Traustadóttir og Sigurður Bjarki Blumenstein, Íslandsmeistarar í holu- keppni 2022. Pamela Ósk Hjaltadóttir vann til silfurverðlauna í kvennaflokki. Hún er aðeins á fjórtánda aldursári. Arnar Már Ólafsson með ríkjandi Íslandsmeisturum, þeim Huldu Clöru Gestsdóttur og Aroni Snæ Júlíussyni úr GKG. Það eru spennandi tímar fram undan hjá landsliðskylfingum okkar en Evrópumót liða fara fram í júlí. Fjögur mót verða haldin samtímis í jafn mörgum löndum. Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri GSÍ, hefur valið landsliðshópa fyrir verkefnin. Karlalið Íslands keppir í efstu deild á Royal St. George´s vellinum á Englandi, dagana 5.­9. júlí. Liðið skipa þeir: Aron Emil Gunnarsson, GOS, Daníel Ísak Steinarsson, GK, Hákon Ör n Mag nússon, GR , H l y n u r B e r g s s o n , G K G , Kristófer Orri Þórðarson, GKG, og Sigurður Bjarki Blumenstein, GR. Kvennalið Íslands keppir í efstu deild á Conwy Golf Club í Wales, dagana 5.­9. júlí. Liðið skipa þær: Andrea Bergsdóttir, Hills, GC, Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS, Hulda Clara Gestsdóttir, GKG, Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR, Perla Sól Sigurbrandsdóttir,  GR og Saga Traustadóttir, GKG. Stúlknalið Íslands keppir í efstu deild á Urriðavelli í Garðabæ, dag­ ana 5.­9. júlí. Liðið skipa þær: Berglind Erla Baldursdóttir, GM Katrín Sól Davíðsdóttir, GM, Karen Lind Stefánsdóttir, GKG, María Eir Guðjónsdóttir, GM, Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM og Sara Kristins­ dóttir, GM. Piltalið Íslands keppir í næstefstu deild á Pravets Golf Club í Búlgaríu, dagana 6.­9. júlí. Liðið skipa þeir: Bjarni Þór Lúðvíksson, NK, Guðjón Frans Halldórsson, GKG, Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, Heiðar Snær Bjarnason, GOS, Jóhann Frank Halldórsson, GR og Skúli Gunnar Ágústsson, GA. European Young Masters fer fram á Linna Golf í Finnlandi, dag­ ana 21.­23. júlí. Fulltrúar Íslands verða þau: Helga Signý Pálsdóttir, GR, Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, Skúli Gunnar Ágústsson, GA, Veigar Heiðarsson, GA. R&A Junior Open fer fram á Monifieth Golf Links í Skotlandi, dagana 11.­13. júlí. Fulltrúar Íslands verða þau Fjóla Margrét Viðars­ dóttir, GS og Markús Marelsson, GK. n Golflandsliðin á ferð og flugi í júlí GOLF kylfingur.is FRÉTTABLAÐIÐ 25. júní 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.