Fréttablaðið - 25.06.2022, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 25.06.2022, Blaðsíða 8
Erdogan, forseti Tyrk- lands, vill að Svíar og Finnar breyti löggjöf sinni um hryðjuverk. Forseti Tyrklands setur Finnlandi og Svíþjóð þung skilyrði fyrir samþykki hans á aðildarumsóknum ríkjanna að Atlantshafsbandalaginu. Viðræður eru enn í hnút. ragnarjon@frettabladid.is UTANRÍKISMÁL Vonir Finnlands og Svíþjóðar um að fá fullgilda aðild að Atlantshafsbandalaginu á næsta fundi aðildarríkja virðast orðnar að engu, en fundurinn fer fram næsta miðvikudag, 29. júní. Tyrkland er enn mótfallið inngöngu ríkjanna tveggja og óljóst er hvenær eða hvort afstaða þeirra til aðildarvið­ ræðna mun breytast. Viðræður milli annars vegar umsóknarríkjanna tveggja og Tyrk­ lands hins vegar, sem er andsnúið aðildinni, hófust þann 20. júní í Brussel að frumkvæði Jens Stolten­ berg, framkvæmdastjóra NATO. Þar var ætlunin að sætta sjónarmið Finnlands, Svíþjóðar og Tyrklands en þjóðunum hefur orðið lítið ágengt í viðræðum sínum. Helsta andstaða gegn inngöngu Svía og Finna í NATO kemur frá Recep Tayyip Erdogan Tyrklands­ forseta. Erdogan hefur lýst því yfir að vilji Svíar og Finnar fá vilyrði Tyrklands fyrir inngöngu verði löndin að ganga að kröfum hans. Helstu kröfur Tyrklands eru að bæði löndin breyti hryðjuverkalög­ um sínum, framselji meðlimi Verka­ mannaf lokks Kúrda (PKK), sem fengið hafa pólitískt skjól, og stöðvi vopnaviðskiptabönn sem hafa verið í gildi síðan Tyrkland beitti sér í Sýr­ landsstríðinu árið 2019. Upprunalega gáfu öll 30 aðildar­ ríki NATO vilyrði sitt fyrir inngöngu landanna. Þar á meðal Tyrkland, en forseti Finnlands, Sauli Niinisto, sagði að Erdogan sjálfur hefði lýst yfir ánægju sinni með umsóknina. Finnland, sem deilir 1.340 kíló­ metrum af landamærum með Rússlandi, er sérstaklega í mun að umsókn þeirra verði tekin fyrir. Ibrahim Kalin, talsmaður for­ seta Tyrklands, hefur gefið í skyn að mögulega þurfi að bíða að minnsta kosti í eitt ár áður en viðræður geta hafist á ný. Þetta er talið tengt því að kosn­ ingar fara fram í Tyrklandi í júní 2023 en vinsældir Erdogan Tyrk­ landsforseta hafa minnkað mikið. Málefni Kúrda eru fyrirferðarmikil í umræðu landsins og mótstaða gegn þeim mikil og því auðséð að Erdogan mun nýta tækifærið til að sækja fylgi úr þessum málaflokki. Tyrkland hefur ekki sett nein sér­ stök tímatakmörk hvað viðræður varðar, enda liggi ekki á að löndin tvö verði tekin inn sem aðildarríki NATO. Þetta hefur þó vakið hörð viðbrögð aðildarríkja, sem saka Erdogan um að nýta sér aðstöðu sína til að koma sínum eigin mál­ efnum fram. ■ Tyrkir enn erfiðir Svíum og Finnum Heimildir: Bloomberg, Reuters Fréttablaðið: Getty © GRAPHIC NEWS PÓLLAND HVÍTA-RÚSSLAND LITÁEN DANMÖRK NOREGUR SVÍÞJÓÐ FINNLAND R Ú S S L A N D EISTLAND Moskva Sankti-Pétursborg Finnsk-rússnesku landamærin eru 1.340 kílómetra löng Gautland Múrmansk 200 km LETTLAND ÞÝSKALAND EystrasaltNorðurhaf ATLANTSHAF Sjóherstöðvar Flugherstöðvar Meðlimir í NATO Mögulegir meðlimir NATO Lykilherstöðvar: Tyrkland enn á móti umsókn Svíþjóðar og Finnlands Finnland og Svíþjóð hafa bæði sent inn formlega umsókn um aðild að NATO, en andstaða Tyrklands gæti sett aðildarviðræður út af sporinu. Ef ríkin fá inngöngu gæti NATO styrkt stöðu sína á Eystrasaltinu umtalsvert. Andmæli Tyrklands gegn stækkun NATO Verkamanna¦okkur Kúrda (PKK): Tyrklandsforseti Recep Tayyip Erdogan (hægri) hefur ásakað Finna og Svía um að styðja við kúrdíska hermenn sem Ankara álítur hryðjuverkamenn. Refsiaðgerðir: Tyrkland vill að Svíar og Finnar afnemi öll vopnaviðskiptabönn sem sett voru á eªir að Tyrkland beitti sér í Sýrlandsstríðinu 2019. Sedat Önal, varautanríkisráð- herra Tyrklands, og Ibrahim Kalin, talsmaður forseta Tyrklands, voru viðstaddir á fundi með talsmönnum Svíþjóðar og Finnlands í Brussel. bth@frettabladid.is EFNAHAGSMÁL Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB, segir að þeir sem hafi breiðustu bökin þurfi að leggja meira fram til samneyslunnar. Flótti sé hafinn úr heilbrigðisgeiranum og varði miklu að verja grunnstoðirnar þótt mikil þensla sé í hagkerfinu og óvissa fram undan í efnahagsmálum. „Kerfin okkar, heilbrigðiskerfið og velferðarkerfið, hafa verið van­ fjármögnuð um árabil,“ segir Sig­ ríður Ingibjörg. „Við erum með heilbrigðiskerfi sem hefur verið undir gríðarlegu álagi og sjáum f lótta hafinn, til dæmis af Land­ spítalanum. Við hjá BSRB höfum lagt gríðarlega áherslu á mikilvægi þess að auka fjármuni inn í þessar stofnanir,“ bætir hún við, „bæði til að tryggja þjónustuna en ekki síður til að tryggja aðbúnað og öryggi starfsfólksins.“ Það styttist í ögurstund í efna­ hagslífinu ofan á óðaverðbólgu og vaxtahækkanir. Kjarasamningar losna á almennum markaði í haust en hjá opinbera geiranum undir næsta vor. Hagfræðingur BSRB segir að til að styrkja kerfin þurfi að vera vilji hjá stjórnvöldum til að sækja tekjur til þeirra sem séu aflögufærir. „Útgerðin og stóreignafólk þurfa að leggja meira til samfélagsins.“ Spurð hvernig Sigríður Ingi­ björg sjái það fyrir sér bendir hún á að skattalækkanir stjórnarinnar á síðasta kjörtímabili hafi ekki verið fjármagnaðar. „Við studdum skattalækkanir á láglaunahópa og millitekjufólk en við bentum líka á að það þyrfti að finna aðra fjámuni í staðinn.“ Sigríður Ingibjörg segir megin­ verkefni kjarasamninganna að vernda kaupmátt og halda áfram að hækka lægstu laun. „Eitt stærsta vandamálið er að hér hefur skort húsnæðisstefnu allt síðan verkamannabústaðir voru lagðir af fyrir tæpum aldar­ fjórðungi,“ segir Sigríður Ingibjörg. Hún telur þá breytingu hafa verið mjög vonda ákvörðun. „Lausnin átti að vera að lána fólki miklu meiri peninga en það hefur skilað sér í ömurlegri stöðu eins og við sjáum núna. Það verður að bæta verulega í almenna íbúðakerfið til að tryggja húsnæðisöryggi fólks í lægri tekjuhópunum.“ ■ BSRB vill að aukið fé verði sótt í vasa sjávarútvegsfyrirtækja Útgerðin og stóreigna- fólk þurfa að leggja meira til samfélagsins. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB kristinnhaukur@frettabladid.is UTANRÍKISMÁL Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, gagnrýndi Breta fyrir áform um að ferja hælisleitendur til Rúanda á þingi Evrópuráðsins. Sagði hún Boris Johnson forsætisráðherra reyna að láta eins og sterkan mann en aðgerðir hans væru í raun veikluð viðbrögð við popúlískum þrýstingi. „Áður fyrr varaðir þú aðra við þessu. Nú ættir þú að horfa í spegil­ inn,“ sagði Þórhildur um aðgerðir Breta, sem hefur verið lýst sem brotum á mannréttindum og angi af kynþáttahatri. Fleiri þingmenn gagnr ý ndu Breta, sem hyggjast leggja fram löggjöf þar sem breskir dómarar geta hnekkt úrskurðum Evrópska mannréttindadómstólsins. Bent var á að Rússland og önnur vald­ stjórnarríki myndu nota þetta sem fyrirmynd eða réttlætingu á eigin brotum á alþjóðalögum og sam­ þykktum. „Heimurinn lærði lexíu eftir seinni heimsstyrjöldina. Að hunsa Mannréttindadómstólinn er að hunsa þá lexíu,“ sagði hinn þýski þingmaður Julian Pahlke. „Boris Johnson leiddi Bretland út úr Evr­ ópusambandinu. Núna er hann að leiða Bretland út úr evrópskum gildum.“ ■ Sagði Boris að horfa í spegil Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata Áttu rétt á veitingahúsa- eða viðspyrnustyrk? Nánari upplýsingar á skatturinn.is skatturinn@skatturinn.is 442 1000 Umsóknarfrestur er til 30. júní 2022 8 Fréttir 25. júní 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.